Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 24
LAUGARDAGUR 4., J0NÍ *L988..
24
Stjama á ný eftir 20 ár:
„Ætli ég láti ekki gítaiiim nægja"
Leonard Cohen á Listahátíö í Reykja-
vík? Fyrir nokkrum árum - jafnvel
í hitteðfyrra - hefði maður yppt öxl-
um og spurt: Til hvers að vera að
bursta rykið af útbrunnum og
gleymdum raulara frá Kanada? En
nú, árið 1988, horfir dæmið allt öðru
vísi við. Þessi sami Cohen er stjarna
sem á plötumarkaði í Evrópu keppir
við George Michael og Michael Jack-
son. Undrandi? Tæpast þó meira en
Leonard Cohen sjálfur.
Hveijir skyldu svo vera aðdáendur
og þar með kaupendur platna Leon-
ards Cohen, núna þegar sér fyrir
endann á níunda áratugnum? Tæp-
ast aðdáendur Michaels Jackson og
Georges Michael nema aö litlu leyti.
Þeir höfða fyrst og fremst til táninga
og fólks á þrítugsaldri. Cohen er hins
vegar orðinn 53ja ára gamall. Hann
sló fyrst í gegn árið 1967 og er aldeil-
is búinn að reyna á þolrifin í aðdá-
endum sínum síðan. Nýjasta plata
hans, I’m Your Man, hefur nú selst
í tæplega fimmhundruð þúsund ein-
tökum í Evrópu og það lætur nærri
að þriðjungur þeirra eintaka sé
geisladiskar. Kaupendur eru sem
sagt að miklu leyti fólk sem ekki
þarf að horfa í aurana þegar þaö
kaupir plötur, heldur vill fá bestu
hljómgæði sem fáanleg eru.
Um þessar mundir er hljómleika-
ferð Leonards Cohen um Evrópu að
ljúka. Hann syngur í Dyflini í kvöld
og næstu tvö í Lundúnum. Væntan-
lega hefur eitthvaö bæst við af auka-
tónleikum. Auk þess þarf hann að
sitja fyrir svörum í sjónvarpi, út-
varpi og hjá spyrlum dagblaða og
tímarita, rétt eins og hinar popp-
stjömurnar. Það era nefnilega engar
ýkjur aö Leonard Cohen er stjama
að nýju í gamla heiminum. Seinni
partinn í maí hafði hann til að mynda
veriö í efsta sæti LP plötulistans í
Noregi í þréttán vikur og situr þar
kannski enn. Þá hafði platan hans
selst í hundrað þúsund eintökum í
Noregi. Miðað viö íbúafjöldann þar í
landi hefði hann átt að vera kominn
á aðra milljónina í Bretlandi.
Gleymdurí
Bandaríkjunum
Evrópa og aftur Evrópa. En
hvemig skyldi Leonard Cohen vegna
í Bandaríkjunum þar sem hann hef-
ur búið síðustu áratugina? Illa, takk
fyrir. Cohen er svo til gleymdur vest-
anhafs nema hjá litlum, en traustum
hópi gamalla aðdáenda. Platan I’m
Your Man var til dæmis ekki gefm
út vestra fyrr en hún hafði selst í
kvartmilljón eintökum í Evrópu. Og
næsta plata á undan, Various Positi-
ons, sem kom út árið 1985, kom aldr-
ei út í Bandaríkjunum þótt hún seld-
ist þokkalega annars staðar í heimin-
um.
Leonard Cohen er á plötusamningi
hjá CBS. Fyrir nokkra vora honum
afhent verðlaun fyrir góöa frammi-
stöðu á erlendum plötumarkaði. Rétt
eins og tíðkast með aðra tónlistar-
menn sem ná árangri utan Banda-
ríkjanna. Cohen tók að sjálfógðu við
verðlaununum. Síðan hélt hann
stutta ræðu þar sem hann þakkaöi
starfsfólki CBS sérstaklega fyrir
þann hógværa áhuga sem það hefði
alla tíð sýnt sér og tónlist sinni!
Vinsællaðnýju
En hví er Leonard Cohen, 53ja
ára gamalt Ijóðskáld, lagasmiöur og
söngvari, nú allt í einu orðinn fima-
vinsæll að nýju eftir að hafa verið
að miklu leyti gleymdur og grafinn
í hartnær tuttugu ár? Það era jú liðn-
ir tveir áratugir síðan fyrsta platan,
Songs of Leonard Cohen, kom út.
Skýringar kunna að vera margar.
Various Positions, sem fyrr var
nefnd, kveikti einhvem áhuga. Ekki
skyldum við vanmeta hlut söng-
konunnar Jennifer Warnes. Hún
sendi á síðasta ári frá sér plötuna
Famous Blue Raincoat sem meðal
annars innihélt lagið First We Take
Manhattan. Nú, og ekki má gleyma
að þakka Cohen sjálfum. Á I’m Your
Man hljómar hann nokkuð öðruvísi
en áður. Útsetningar laga hans eru
aðgengilegri fyrir fjöldann en oft áð-
ur og lögin léttari. - Sá gamli er orð-
inn poppaöri en nokkra sinni fyrr.
Þeir sem sjá um að „selja“ Leonard
Cohen segja að hann sé nú samstarfs-
fúsari en nokkra sinni fyrr. Til að
mynda skilaði hann I’m Your Man á
Listahátíð
Asgeir Tómasson
réttum tíma, aö sögn Herve Defrano-
ux, markaðsstjóra CBS í Lundúnum.
„Það er ekki sama á hvaða tíma
plötumar koma út,“ segir hann.
„Okkur tókst að senda I’m Your Man
á markað um miðjan febrúar. Þá er
mátulega langt liðið frá jólum, lítið
að gerast í útgáfunni og forvitnileg
plata hlýtur að vekja athygli.“
OgDefranouxbætirvið: „Cohen
hefur lagt á sig ómælda vinnu við
að kynna plötu sína, - nokkuð sem
hann hefur lítt skeytt um hingað til.
- Það er sama hvert við stungum upp
á að hann færi til að ræða við blaða-
menn og koma fram í sjónvarpi og
útvarpi. Ekkert land var of smátt
fyrir hann. Hann var kominn upp í
næstu flugvél og lagöur af stað áður
en við vissum hvaðan á okkur stóð
veðrið. Svona viöhorf hjálpa að sjálf-
sögðutil."
Álistahátið
Nú er Leonard Cohen sem sagt á
leið til íslands og ætlar að skemmta
á Listahátíðarauka í Laugardalshöll
nokkram dögum eftir að hinni hefð-
bundnu dagskrá lýkur. Það er nokk-
uð gömul hugmynd aö fá Cohen á
hátíðina. Það kom til dæmis til tals
fyrir réttum tíu árum, en varð ekki
af því þá. Listamaðurinn veröur einn
síns liðs með kassagítarinn. Þannig
settur ræður hann prýðilega við Suz-
anne, Maryanne og fleiri einfóld lög
sem hann hefur samið. En hvað með
til dæmis tónlistina af I’m Your Man,
þar sem hljómsveit leikur með hon-
um? Kemst hún til skila?
„Þetta blessast allt einhvern veg-
inn,“ segir Cohen. „Ég hef samið svo
margs konar tónlist sem hefur verið
útsett á svo margan hátt að ef ég
ætti að flytja prógrammið á sama
hátt og á plötum veitti mér ekki af
hundrað og fimmtíu manna hljóm-
sveit. Ætli gítarinn nægi ekki sem
endranær."
Víst hafa plöturnar hans Cohens
verið mismunandi. Sumar jafnvel
misheppnaðar að margra mati. Co-
hen tekur undir það af heilum hug.
Honum líkaði til dæmis aldrei fyrsta
platan, Songs of Leonard Cohen.
Friðelskandi hippa og önnur blóma-
böm hitti hún hins vegar beint í
hjartastað. Eftir að vera búinn að
poppa sig dálítið upp nú, hvernig
hljóma þá næstu plötur? Leonard
Cóhen yppir öxlum.
„Það verður bara aö koma í ljós,“
svarar hann. „Hins vegar hefur mig
alltaf langað annars vegar til að gera
hreinræktaða rock’n’roll plötu. Hins
vegar hreinræktaða plötu í kúreka-
og sveitasöngvastíl sem yrði tekin
upp i Nashville eöa Austin í Texas.
Enn hef ég ekki getað látið verða af
þessu því að ég finn ekki réttu hljóm-
sveitirnar til að spila með mér. En
ég er viss um að þessar plötur verða
einhvern tíma til. Ég á jú ennþá ein
tuttugu ár eftir af starfsævinni." -
Hver var svo að tala um svartsýnis-
manninn Leonard Cohen?!
Misheppnaður-
útbrunninn
I’m Your Man er níunda plata
Cohens á tuttugu árum. Hann er sem
sagt ekki með afkastamestu tónlist-
armönnum sem fást við hljómplötu-
gerð.
„Rétt er það,“ svarar hann. „Mér
gengur oft ótrúlega illa að smíða lög
um ljóðin mín. Ég er stundum allt
upp í ár að finna réttu laglínurnar.
Og meðan ég bíð eftir því að þær
komi, held ég gjarnan áfram aö bæta
erindum við ljóðin. Ætli ég hafi ekki
verið kominn upp í 75 erindi af First
we Take Manhattan áður en mér
tókst að kreista fram svolitla laglínu
á hljóðget-vilinn minn. Það tók marga
mánuði að koma þessu öllu heim og
saman. Ég hafði á tilfinningunni að
ég væri meö gott efni í höndunum
en þaö hvorki gekk né rak hjá mér.
Mér fannst ég vera að sóa tíma mín-
um, misheppnaður... Útbrunninn.
Loksins fór ég í stúdíóið mitt, spilaöi
laglínuna, sem ég var hreint ekkert
ánægður með, söng nokkur erindi
og tók allt upp á kassettu. Með hana
fór ég til Jeffs Fisher og spurði hvort
væri hægt að gera lag úr öllu saman.
Hann settist við hljóðfærið, lék lagið
og spurði svo hvort við gætum ekki
haft þeta einhvem veginn svona. Og
þannigvarðþað."
Eftir nokkra daga gefst okkur færi
á að hlusta á enn eina útgáfuna af
First We Take Manhattan. Þá mætir
höfundurinn sjálfur og leyfir okkur
að heyra einfóldustu útgáfu lagsins
sem hægt er að hugsa sér. Og öll hin
lögin aö auki, gömul og ný. Fyrir ári
hefði listamaðurinn tæpast vakið
nema miölungi mikla athygli. Nú
skín hins vegar stjarna Leonards
Cohen á ný. Og kannski skærar en
nokkrasinnifyrr.
-ÁT-