Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 25
LÁtfGÁRÖAGUÍt 4. JÚNÍ 1988. 25 Rúmlega aldargamalt skip endurbyggt: „Ég var talinn mesti fnrðnfugr' - segir Guðmundur Kárason skipstjóri sem ætlar að sýna skipið á morgun í Reykjavíkurhöfn Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunu „Siglingin frá Vági í Færeyjum til Keflavíkur tók um tvo og hálfan sólarhring. Tilgangur feröarinnar er 'að sýna skipiö í Reykjavíkur- höfn á sjómannadaginn,“ sagöi Guömundur Kárason (Jacobsen), skipverji á kútter Jóhönnu TG-326 er fréttaritari DV ræddi viö hann um borö í Keflavíkurhöfn. „Veðrið var mjög gott á leiðinni hingað. Við sigldum 8-9 mílur á klukkustund með hjálparvél, án hennar náðum við 6-7 mílur undir fullum seglum og komum hingað beint frá Færeyj- um,“ sagði Guðmundur. Nafnið kútter Jóhanna lætur litið yfir sér en þegar betur er að gáð er þetta mjög merkilegt skip, 104 ára, smíðað í Englandi hjá J. Coll- ings í Reye, Sussex, 85 brúttólestir, og fékk nafniö Oxfordshire og var gert út frá Grimsby í tíu ár. Þann 8. desember 1894 keypti Jákup Dahl í Görðum skipið og gaf því nafnið Jóhanna. Skipið var á veiðum við Færeyjar, Islandsstrendur og Grænland. Jóhanna komst heil í gegnum tvær styijaldir. „Skipinu var lagt árið 1976 og átti að sökkva því um áramótin 1981-82. Þá fóru menn að velta fyr- ir sér að varðveita skipiö. Það var gert eftir að útgerðarfélagið hatði samþykkt aö selja nýstofnuðu fé- lagi um Jóhönnu skipið fyrir eina færeyska krónu," sagði Guðmund- ur skipstjóri sem er greinilega vel kunnugur sögu skipsins. Guðmundur á íslenska móður sem ættuð er frá Vestmannaeyjum. Foreldrar hans bjuggu þar fimm ár, frá 1964-69. Þá flutti fjölskyldan til Vágs. Guðmundur hefur unnið sleitulaust við endursmíði Jó- hönnu í tæp sjö ár. Hann stundar auk þess nám í skipasmíði og lýkur því á næsta ári. „Eg fór með fóður mínum þegar hann var að vinna við að koma Jóhönnu á land í Vági á hverju kvöldi því ég fékk alltaf gosdrykk hjá honum. Við þetta heillaðist ég af skipinu, aðeins 12 ára gamall. Þegar jafnaldrar mínir voru í knattspyrnu fór ég um borð Kútter Jóhanna er nær bryggjunni en fjær er Westward Ho. Guömundur Kárason (Jacobsen) skipstjóri og faðir hans, Kári Jacobsen DV-myndir Ægir til að smíða. Af þessum sökum þótti ég hinn mesti furðufugl en lét það ekki á mig fá. Ég hélt ótrauður áfram við smíð- ina. Menn töldu að hún myndi taka mig tvö ár en þau urðu sjö. Ennþá á ég nokkru ólokið sem líklega tek- ur um tvo mánuði að klára. Mér vannst ekki tími til þess fyrir ís- landsferöina sem er fyrsta sjóferð Jóhönnu eftir að hún var sjósett að nýju.“ Margir Færeyingar voru vantrú- aðir á að Jóhanna kæmist nokkum tíma á þurrt og ef hún kæmist á land færi hún aldrei á sjó aftur. Nú voru menn orönir vantrúaðir á aö hún kæmist á flot og að hægt væri að sigla henni. Sennilega trúa þeir því ekki að hún komist heilu og höldnu úr fyrstu ferð sinni. „Áhugi minn var slíkur að ég vann næstum alla daga, allt að sextán klukkustundir á dag. Ég fékk htla aðstoð, nema einna helst frá einum Dana. Hann fór frá borði með öh sín verkfæri nokkru áöur en við héldum úr höfn. Ég er hins vegar með öll mín verkfæri með mér um borösagði Guðmundur ennfremur. „Smíðin er búin að kosta fjórar milljónir færeyskra króna sem eru frjáls framlög ýmissa stofnana og einstaklinga. Éinnig hefur verið haldið vikulegt bingó sem menn kalla Jóhönnubingó - með góðum vinningum. Þá hefur félagið um skipið greitt félagsgjöld. Ég hef greitt mér laun fyrir vinnuna en annars er reynt að spara þann Uð sem mest með sjálfboðavinnu," sagði Guðmundur. Tuttugu og einn maður er um borð. Enginn er á launum nema menn eyði sumarfru sínu í feröina. Áhöfnin er á öUum aldri, allt frá ungum mönnum upp í eUilífeyris- þega, allt karlmenn. Skipið heldur til Akraness frá Reykjavík en það- an tíl Sandgerðis sem er vinabær Vágs. Þaöan fer skipið til Vest- mannaeyja þar sem Guðmundur mun hitta hina fjölmörgu ættingja sína áður en siglt verður heim á leið. Þess má geta að Jóhanna er i samfloti við Westward Ho frá Þórs- höfn en það skip er einnig komið á aðra öldina aö árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.