Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 27
LAllGkRbAÍGUR ‘4. 'JÚkí' 1^88. Sæl nú... Breska tónlistartímaritið Melody Maker heldur áfram að hampa íslensku Sykur- molunum i hvívetna. i nýlegu tölublaðí er umsögn um tón- leika molanna í Lundúnum og notast blaðamaðurinn við ekki minna pláss en heila siðu. Og slikt pláss undir tónleikaumsögn fá ekki margar hljómsveitir í Me- lody Maker... Við sögðum frá þvi i siðustu viku að iþróttadeild löggunnar í Nev» York væri heidur betur inn undir hjá frægum popp- urum. Springsteen ætlar að styrkja löggumar t sportinu og nú hafa fleiri bæst i hóp- inn og ekki neinir slúbbert- ar: Hall & Oates, Billy Joel og Cindy Lauper... Steve Stevens, sem ereinna þekkt- astur fyrir það að leika á gitará plötum með Billy Idol og reyndar líka fyrir gítarieik í lagi Michaels Jackson, Dirty Diana, hefur nú sett á laggimar eigin hljómsveit. Heitir hún Steve Stevens Atomic Playboys. Með honum i hljómsveitinni em fyrrnrn trommari Billy Idol Thommy Price og bassa- leikari að nafni Kasim Sult- an. Enn vantar hljómsveitina söngvara og em myndarlegir menn á þritugsaldri með góða söngrödd beðnir um að melda sig hið fyrsta... Bob Geldof er nú að leggja síðustu hönd á fyrstu kvik- mynd sina, Cowboys, en hann hefur unnið að gerð hennar á Irlandi undanfama mánuði. Þegar verkinu lýkur mun Geldof taka við stjóm sjónvarpsþátta fyrir rás 4 i breska sjónvarpinu. Þetta verða átta þættir um lífið á jörðinni og þær skemmdir sem maðurinn hefur unnið á umhverf i sínu síðustu 2000 ár...Hanskonunglega ótukt Prince hefur heldur betur valdið fjaðrafokí með- al margra landa sinna með nýjustu plötunni sinni, Lo- vesexy. Fjölmargar plötu- verslanir, sem hafa áhyggjur af óf lekkuðu mannorði sinu, hafa hreinlega neitað að selja plötu Prince vegna þess að pilturinn er nánast nakinn utan á plötuumslag- inu... Jimmy Page sendir frá sér sólóplötu um miðjan þennan mánuð og honum til aðstoðar á plötunn i em ekki minni menn en John Miles, Robert Piant Chris Fartow og Jason Bonham.. .sælað sinni... -SþS- Megas - Höfuðlausnir Lengi getur íslenskir rokktónlistarmenn eru margir hverjir afkastamiklir meö aíbrigðum í samanburði við erlenda kollega þeirra. í þessum hópi eru þeir Bubbi Morthens, Sverrir Storm- sker og Megas. Sérstaklega virðast tveir þeir síðastnefndu vera ótæm- andi brunnar laga og texta þó ég sé ekki aö bera þá saman að öðru leyti. Megas hefur ekki alla tíð verið jafn- afkastamikill og nú, yfirleitt lét hann sér nægja eina plötu á ári og svo tók hann sér langt frí frá opinberri tón- listarsköpun i byrjun þessa áratugar. En hann kom aftur og þá tvíefldur að virðist; fyrst kom platan í góðri trú, svo kom Loftmynd út fyrir síð- ustu jól og þessi plata, Höfuðlausnir, ku hafa verið tilbúin í febrúar en útgáfa dregist fram til þessa. Höfuðlausnir eru að mínu viti visst framhald á Loftmyndinni; hér eru lög sem greinilega hafa verið samin um líkt leyti og lögin á Loftmynd; lög eins og Borgarblús, í Öskjuhlíð, (Borðið þér) Orma frú Norma og Leiðréttingablús. Nafn þess síðast- nefnda skírskotar beint til lagsins Innréttingablús á Loftmyndinni en textinn er mjög í ætt við texta lagsins Ástarsaga á sömu plötu. Tengsl þessara tveggja plata eru líka á hinn veginn, það er að segja lagiö Fílahiröirinn frá Súrín á Loft- mynd er hvað texta áhærir undan- fari texta í lögum á Höfuðlausnum eins og Tæblús og Drengirnir í Ban- kok. Tónlistarlega eru þessar plötur líka nátengdar, lögin eru svipuð aö upp- byggingu og útsetningar á þeim sömuleiðs. Eg er þó ekki frá þvi að enn betur hafi til tekist á Höfuð- lausnum en Loftmynd, lögin virka melódískari á mann og útsetningar einfaldari. Sér til fulltingis á þessari plötu hefur Megas þúsundþjalasmiðinn Hilmar Örn Hilmarsson og verður ekki annað sagt en að þetta fyrsta samstarf þeirra á plötu hafi tekist framúrskarandi vel. Hilmar er mikill galdramaður á hljóðgervla og notar þá af slíkri smekkvísi á þessari plötu að vart verður annað heyrt en að um orginal hljóðfæri sé að ræða. Þá beitir hann þeim líka til að ná fram nauösynlegri austurlenskri stemningu í þeim lögum sem það á við. Reyndar er Megas sjálfur eitt- hvað með puttana í spilamennsk- unni, hann er.í það minnsta skráður fyrir hljómborðum á umslagi. Ekki má gleyma hlut söngkvenna á plötunni en þar fara þær systur Björk og Inga Guðmundsdætur á kostum ásamt Rose McDowall. Einn galli er á hvað þessa plötu snertir en það er vöntun textablaðs og býður mér í grun að það sé öðrum þræði vegna þess aö textar eru á stöku stað nokkuð berorðir og jaðra sumir reyndar við að vera ekki prenthæfir. Hvað um þaö, Höfuðlausnir er mögnuö plata hvar sem á hana er htið og skyldu einhverjir efast um að Megas bæri meistaranafnbótina með rentu ættu þeir að hlusta á plöt- unaogsannfærast. -SþS- gott batnað Megas. Eden Alley - Timbuk3 Good Morning Vietnam Ljósvakavíkingur í Víetnam Á aldeilis réttu róli Timbuk 3 virðist vera orðin dúett. Þegar grúppan kom fyrst fram á sjónarsviði með plötuna Greetings From Timbuk 3 var því hampað að þriðji meðlimurinn væri JVC kass- ettutæki hjónanna Pats og Barböru K. MacDonald. Nú er græjunnar hvergi getið lengur. Greetings, sem fyrr er getið, vakti talsverða athygh þótt ekki seldist hún í neinum risaupplögum. Nýjasta plata Timbuk 3 er Eden Alley. Hún er í svipuðum dúr og sú fyrri. Pat og Barbara hafa greinilega tekið í æð sömu tónlistaráhrif og liösmenn Rolhng Stones, Bob Dylan, Tom Petty og fleiri og fleiri og fleiri. Eden Alley er þó síður en svo stæling á einhverju gömlu eða nýju. Hún er einfaldlega nýja Timbuk 3 platan. Þau hjón leika á öll hljóðfæri á plöt- unni nema hvað þau kveðja til harm- ónikkuleikara í einu lagi. Sömuleiöis syngja þau sjálf ahar aðal- og bak- raddir. Munnharpan er áberandi sem fyrr en því miður virðast Pat og Barbara MacDonald slakir trommu- leikarar. Þau reiða sig því nær alfar- ið á trommuheila. Þeir eru eiginlega þaö eina sem setur blett á plötuna. Lögin á Eden Alley eru vissulega nokkuð misjöfn. Mörg ágæt, nokkur góð og fáein í meðallagi. Þau venjast þó öll. Hægt en örugglega. Sé einvher sem þetta les á báðum áttum um hvort hann skuli fjárfesta í Eden Alley skal honum bent á að prófa Easy, Welcome To The Human Race og Dance Fever í plötubúð. Hitti þau í mark á platan erindi á heimilis- fóninn. - ÁT Good Morning America er ný kvik- mynd sem fjallar um útvarpsmann í Víetnam þegar stríðið stóð sem hæst. Robin Wihiams leikur útvarpsmann- inn og gerir það með slíkum tilþrif- um að hann var tilnefndur th óskars- verðlauna síðastliðið vor. Platan með tórhistinni í myndinni væri ekki nema eins og hver önnur meðalsafnplata ef ekki nyti hinna óborganlegu brandara ljósvakavík- ingsins Adrians Cronauer en svo nefnist persónan sem Wilhams leik- ur. Hann lætur hvorki stjórnmála- menn né hermenn í friði, alhr fá sinn skammt af gríninu. Þess má geta að Williams „impró- víseraði" megnið af textanum beint fyrir framan myndatökuvélarnar og hluti af þessum óborganlega texta getur hlustandi plötunnar fengið á Robin Williams. mhh gamalla rokklaga frá síðari hluta sjötta áratugarins og fyrri hluta þess sjöunda. Flytjendur eru misþekktir og lögin misgóð. The Beach Boys standa fyrir sínu en þeir eiga tvö lög I Get around og The Warmth of the Sun. Gamla brýnið, James Brown, er í góðu formi í I Got You. Önnur þekkt rokklög eru Game of Love, Nowhere to Run, Sug- ar and Spice og endahnútinn á plöt- una rekur svo Louis Armstrong með hinu ljúfa lagi What a Wonderful World sem svo sannarlega er í mót- sögn við þema myndarinnar. Eins og áður sagði er það þáttur Robins Williams sem gerir Good Morning Vietnam nokkuð sérstaka og gerir það að verkum að platan er hin eigulegasta. HK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.