Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Síða 31
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
43
Verðandi fjórburamóðirin í samtali við DV:
„Fæ ekki að
þrifa húsiö
mitt lengur"
Fjölskyldan mín iðar í skinninu
• voru fijógvuö 10 egg og fjögur voru
i notuö og ég á enn sex egg eftir í frosti
erlendis sem ég get notað hvenær sem
í ég vil. Þau geta geymst í allt að eina
öld. Það er aldrei að vita hvort mann
i langar í fleiri börn í framtíðinni. Enda
• er ég í hópi þeirra kvenna sem besta
i möguleika eiga til að verða ófrískar
við tæknifrjóvgun. Þaö er eitt sem mig
langaði að minnast á í sambandi við
orðaval yfir frjógvanir af þessu tagi.
Ég er alfarið á móti því að orðið gervi-
frjóvgun sé notað yfir þessa aðferð.
Þetta er engin gervi-frjóvgun. Það er
farið alveg eins að og undir eðhlegum
kringumstæðum, nema örlítið lengri
leið. Tæknifrjóvgun er því mun
skemmtilegra orð.“
Kannski fleiri böm
Ertu að segja að þig langi til að eiga
fleiri börn heldur en fimm?
„Segjum sem svo að þetta verði nú
aht strákar eöa allt stelpur þá gæti
verið að mann langaði til að eignast
eins og, ja, a.m.k. eitt af gagnstæðu
kyni undir lokin til viðbótar. Ég vona
að þessu verði jafnt skipt, tveir strákar
og tvær stelpur. Annars er manni al-
veg sama, svo framarlega að allt gangi
vel. Ég er að minnsta kosti bjartsýn
og ætla jafnvel að eiga fleiri börn í
framtíðinni.
Biðtíminn í seinna skiptið frá frjóvg-
un þar til næstu tíðir áttu að hefjast
var mjög erfiður. Ég var ekki í rónni
þessa 15 daga þar til ljóst væri hvort
eggið hefði fest sig eða ekki.“
Engar félagslegar kröfur
Þarf að uppfyha einhverjar félags-
legar kröfur til þess að komast í fijóvg-
unaraðgerð?
„Nei, það kom a.m.k. ekkert sérstakt
fram hjá okkur. Ég held að mæðmæhn
frá lækninum hér heima, sem þekkir
okkur orðið vel, hafi dugað alveg. Auð-
vitað þarf fólk að vera gift og kannski
að eiga ekki of mörg börn fyrir. Ég
veit dæmi þess að fólki hafi verið synj-
að hér heima af Tryggingastofnun á
þeim forsendum að það ætti of mörg
börn. Þessi hjón voru bæði fráskhin -
hún átti tvö böm frá fyrra hjónabandi
en hann eitt en þau langaði til þess að
eignast börn saman. Sjálf er ég alfarið
á móti því að shkum tilfellum sé hafn-
að. Þau langar til að eiga barn saman,
af hverju mega þau það ekki? Trygg-
ingastofnun á ekki að geta komið í veg
fyrir slíkt með því að setja fólki stóhnn
fyrir dyrnar."
100 til 200 þúsund
í hvert sinn
Kostaði þetta ykkur ekki mikið
fjárhagslega?
„Tryggingastofnun greiðir ahan
kostnað af þessum aðgerðum. Hins
vegar þurfum viö að leggja út fyrir
ferðakostnaði og lyfjakostnaði. Ég held
að allt í aht hafi hvor ferð kostað okk-
ur um 150 th 200 þúsund krónur. Til
dæmis kostaði ein sprautumeðferð mig
330 pund sem er ansi mikill peningur.
Engu að síður er þetta aht þess viröi.
En það er ekki óalgent að hjón þurfi
að fara út mörgum sinnum áður en
aðgerðin heppnast. Eins og þú sérð er
það ekki nema í innan við 15% tilvika
sem þetta lánast. Það getur orðið ansi
dýrt.“
Ættu að fækka
fóstureyðingum
Hvað finnst þér um fóstureyðingar
í ljósi þess aö margar konur geta ekki
átt böm?
„Ég er alfarið á móti svona mörgum
fóstureyðingum. Mér finnst frekar að
sumar konur ættu að reyna að láta
ættleiða börnin. Það eru mörg hjón
sem langar til að ættleiða börn og vilja
leggja aht í sölurnar til þess að fá börn.
Ég veit nokkur dæmi þess að hjón
hafi ættleitt börn og í öllum tilfellum
hafa þetta verið yndisleg hjón sem
bókstaflega dá bömin sín. Hins vegar
er því ekki að leyna að margar fóstur-
eyðingar eiga rétt á sér. Sérstaklega
ef það stafar af heilsufarsástæðum.“
Fjögur rúm í
hjónaherbergið
Hvemig sjáið þið framtíðina fyrir
ykkur? Þurfið þið th dæmis að skipta
um húsnæði?
„Nei, við þurfum ekki að skipta um
húsnæði á næstunni. Það er ekki aö-
kahandi. Við höfum þijú barnaher-
bergi og það ætti að duga í bih. Við
hjónin erum aðeins farin að velta
þessu fyrir okkur. Ég ætla til dæmis
að nota bara pappírsbleiur. Svo sjáum
við að við myndum koma öhum rú-
munum inn í herbergiö okkar í byrj-
un. Ég geri bara eins og fimm barna
einstæði faðirinn sem birtist grein um
í einu helgarblaðanna; klæði fjórbur-
ana í gult, rautt, grænt og blátt th þess
að þekkja þá í sundur.“
Verður skemmtilegra
með árunum
„Ég á von á því aö þetta verði mjög
erfitt í byrjun hjá okkur og nokkur
fyrstu árin. Svo verður þetta alltaf
skemmthegra með árunum. Maðurinn
minn á mjög erfitt með að taka sér fri
úr sínu starfi þar sem hann er með
sjálfstæðan atvinnurekstur. Það er víst
hægt að fá ókeypis heimilishjálp frá
bænum í svona tilfellum."
Viö spurðum Auðólf Gunnarsson
hversu mörg glasabörn væru á leiðinni
fyrir utan fjórburana:
6 glasabörn á leiðinni
„Það eru tvö á leiðinni, svo ég viti,
fyrir utan fjórburana. Önnur konan á
að eiga barnið fyrri partinn í ágúst.
Meðgangan hjá henni gengur mjög
vel. En hin er nýkomin að utan og
ekki útséð enn þá hvort aht muni
ganga upp. Jú, svo er eitt glasabarn
þegar komið í heiminn, sem kunnugt
er, 17. mars síðasthðinn. En það eru
margar konur búnar að reyna og ekk-
ert hefur enn gengið hjá þeim,“ sagði
Auðólfur. Hann sagði einnig að tækni-
frjóvgunarmeðganga væri ekki hættu-
legri en aðrar meðgöngur ef þær kom-
ast yfir erfiðasta hjallann. Það væri
ahtaf áhættusamara eftir þyí sem kon-
urnar bæru fleiri börn undir belti. Þá
skipti heldur ekki máh hvort um væri
aö ræða eðhlega fijóvgun eða tækni-
frjóvgim.
Fleiri glasaböm
á landinu?
Verðandi fjórburamóðirin þarf að
taka sérstök lyf sem innihalda sams
konar hormón og fylgjan framleiðir.
Það gerir að verkum að hún missir
síður fóstrið. Hún sendir einnig viku-
lega blóðprufu og fleiri sýni th sjúkra-
hússins í Bourn. Þeir fylgjast vel með
henni þar.
Þaö hefur verið sagt að jafnvel enn
heiri glasabörn séu á landinu sem al-
menningur veit ekki um. Aö foreldarar
hafi farið í leynifarir th útlanda og
ekki látið neinn vita. Við spurðum
Auðólf hvort það væri hugsanlegt.
„Það hafa ekki nein önnur thfehi
komið hingað í læknahendur. Hins
vegar er það mögulegt að einhveijir
aðrir íslendingar eigi glasabörn," sagði
Auðólfur.
Fyrsta glasabarnið
10 ára
Fyrsta glasabarnið í heiminum,
Louise Brown, verður 10 ára um þess-
ar mundir. Þess má geta að móðir
hennar var á Bourn sjúkrahúsinu þeg-
ar ijórburamóöirin verðandi var þar.
Hún var að reyna að koma þriðja barni
sínu undir. En Steptoe, fyrrum yfir-
læknir á Bourn Hah Clinic og sá sem
fann upp tæknifijóvgunaraðferðina,
lést nýlega, einmitt þegar fjórbura-
móðirin tilvonandi var stödd á spíta-
lanum.
Svo vinsæhr eru læknarnir á Bourn
sjúkrahúsinu að þess eru dæmi að
þeir hafi jafnvel fengið stóra og dýra
bíla í gjöf frá foreldrunum þegar börn-
in fæðast. „Hvað er dýrmætara en
börnin okkar?“ sagði fjórburamóðirin
verðandi.
-GKr