Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 34
LAUGA'rDAGÍJIÍ 'l JU^ÍÍ Í988.
Vi^46
Rnattspyma unglinga
Hópur stráka í 3. flokki á úrtökumóti KSI 20. mai sl. ásamt leiðbeinendum. 24 drengir verða síðan valdir í drengjalandsliðshóp fyrir 1988. Á Akureyri fer fram úrtökumót 18.-19. júni og endanlegt
val leikmanna. DV-mynd HH
Magnús Þór Sigurðsson, Þór, Vestmannaeyjum:
„Þetta hlýtur að skila sér í bættum fótbolta"
mK*''~**$* ) M m Jtv mLrssrr
MiRilA L—v æ §§pp ** , -4
Þetta eru átta kandídatar í 4. flokki af landsbyggðinni sem eiga góða möguleika á að komast í Knattspyrnuskóla
KSÍ. Frá vinstri: Róbert Skarphéðinsson, Völsungi, Húsavik, Albert Þ. Gunnarsson, Akranesi, Guðjón E. Sveins-
son, Tý, Vestm., Þór Vilmundarson, Hugin, Seyðisfirði, og Magnús B. Kristjánsson. Aftari röð: Kári Steinn Reynis-
son, Akranesi, Matthías D. Einarsson, Völsungi, Húsavík, og Magnús Sigurðsson, Þór, Vestmannaeyjum. Þetta
eru allt frábærir strákar.
KR-ingar bestir í 5. flokki
- Harðsnúnir Framarar náðu jafntefli gegn meisturunum
KR-strákamir í 5. íl. urðu Reykja-
víkurmeistarar 1988. StrákaTnir sigr-
uöu í öllum sínum leikjum í báðum
liðum, að undanskildum leikjunum
gegn Fram sem voru háðir sl. mánu-
dag á Framvelli og skildu liðin jöfn,
2-2, hjá liðum nr. 1 og 1-1 hjá liðun
*nr. 2. Framarar voru mjög harðir í
hom aö taka í fyrri leiknum og áttu
m.a. tvö stangarskot.
Leikur liðanna var aldeilis frábær
skemmtun enda vom fjölmargir
áhorfendur í góða veðrinu og nutu
þess að fylgjast með þeim litlu. Það
var sko ekkert slegið af hjá liðsmönn-
um beggja liða og var oft unun að
horfa á aðfarirnar. Sendingar strák-
anna vom oftast með besta móti og
knattmeðferð góð.
Þegar á heildina er litiö voru leik-
menn beggja liöa nokkuö jafngóðir,
eins og reyndar úrslitin gefa til
kynna, því hvergi voru göt finnanleg
í liðunum.
Þessir skoruðu fyrir KR í fyrri
leiknum: Nökkvi Gunnarsson og
Ragnar Guöjónsson. Fyrir Fram
gerði Vilhjálmur Arnarsson bæði
mörkin.
í seinni leiknum skoraði fyrir KR
Páll Jóhannsson og fyrir Fram Lárus
ívarsson.
Þessir leikir voru svo sannarlega
góð skemmtun fyrir hina fjölmörgu
áhorfendur sem fylgdust með.
Myndir frá leiknum og af meistur-
unum verða að bíða næsta laugar-
dags.
-HH
íslandsmótið:
Týrarar hala inn stig í 5. flokki
5. fl. Týrara frá Vestmannaeyjum
sankaði heldur betur að sér stigum
þegar hann sótti heim Blikana og FH.
Úrslit leikjanna urðu þannig:
A-lið, FH-Týr, 2-4
» B-liö, FH-Týr, 1-0
A-lið, Breiðablik-Týr, 0-2
B-lið, Breiðablik-Týr, 1-2
Stigagjöfin í 5. flokki
í 5. fl. em reglur þannig að 2 stig
em fyrir unninn leik og 1 stig fyrir
jafntefli. Ef við lítum á úrslit leikj-
anna hér að framan kemur í ljós að
í viðureign Týrara gegn FH hljóta
bæði félögin 2 stig en Týrarar hafa
hagstæðari markatölu sem gæti
komið sér vel síðar. í leikjunum gegn
Breiðabliki sigra Eyjapeyjamir í
báðum leikjunum og hljóta því 4 stig
og markatöluna 4-1. Eins gott að
menn geri sér grein fyrir þessu því
víða hefur gætt misskilnings þar um.
-HH
Frá leik Fram og KR í 3. fl. A á dögunum. - Framarar sækja og hér á Friórik Sigurðsson skalla aö marki KR-
inga. Stefán Jóhannsson i marki KR er vel á verði og bjargaöi að þessu sinni.
DV-mynd HH
Matthías D. Einarsson úr Völsungi
kvað aðstöðu góða á Húsavík til iðk-
unar knattspyrnu. Með tilkomu nýja
íþróttahússins hefði aðstaðan batnað
til muna. Hápunktinn á sínum stutta
ferli kvað hann vera þegar Völsung-
ur sigraði FH, 1-0, í 5. fl. á Iceland
Cup keppninni sem var á vegum
Vals 1986 en þá voru FH-ingar ís-
landsmeistarar.
„í sambandi við þetta úrtökumót á
vegum KSÍ finnst mér alveg stórkost-
legt að vera innan um alla þessa góðu
stráka. Það er bæði lærdómsríkt og
þrælgaman,“ voru lokaorð Matthías-
ar og tóku allir strákarnir undir það.
Magnús Þór Sigurðsson, Þór, Vest-
mannaeyjum, hafði þetta að segja um
úrtökumót KSÍ: „Að vera innan um
svona marga góða stráka er mjög
uppbyggjandi. Það víkkar sjóndeild-
arhringinn. Mér líst mjög vel á þetta
allt saman. Þetta hlýtur að skila sér
með tímanum í bættum fótbolta,“
sagði Magnús.
-HH
4. flokkur - A-lið:
Strákamir reyndu
ávallt að
Valur og Þróttur í 4. fl. A-liða léku
á Vaisvelli sl. laugardag. Valsstrák-
arnir unnu 4-2 eftir að staðan hafði
veriö 3-1 í hálfleik. Sigur strákanna
var nokkuð sannfærandi þrátt fyrir
að þeir væru flestir á fyrra ári.
Greinilegt er því að þessi flokkur
ætti að geta orðið öflugur á næsta
ári. Þrátt fyrir smæðina reyndu þeir
ávallt aö spila boltanum og voru
margar sendingarnar gullfallegar.
spila
Sama má reyndar segja um Þróttar-
strákana, þeir reyndu mikið að ná
saman og tókst oft vel. Atkvæða-
mestur Þróttara var Reynir Ólafsson
sem skoraði bæði mörkin. Mörk Vais
gerðu þeir Ólafur Brynjólfsson, sem
skoraöi 2, og Örvar Rúdólfsson og
Sigurjón Hákonarson eitt mark hvor.
Þróttarar tefldu ekki fram B-liði.
- HH
Guðmundur Benediktsson
leikur í sumar með Þór
Guðmundur Benediktsson,
leikmaöurinn ungi frá Akureyri,
hefur æft og leikið með 4. flokki
Fram í nýafstöðnu Reykjavíkur-
móti. í úrslitakeppni 5. flokks 1986
vakti frammistaða hans með Þór
frá Akureyri mikla athygli en Þórs-
arar léku þá til úrslita um fyrsta
sæti gegn FH en biðu lægri hlut,
0-2.
Fjölskylda Guðmundar flutti til
Reykjavíkur snemma árs í fyrra
og hefur drengurinn verið viö æf-
ingar og leikið með Fram eins og
áður segir. Nú hyggst fjölskylda
hans flytja aftur norður og eru það
slæmar fréttir fyrir Framara því
Guðmundur hefur átt frábæra leiki
með því ágæta félagi og því til sönn-
unar er hann langmarkahæstur
allra leikmanna Reykjavíkurmóts-
ins með 24 mörk.
Aöspurður kvaöst Guðmundur
að öllum líkindum halda norður
um miðjan júní til að vera löglegur
með Þór í Islandsmótinu.
Eitt er þó ljóst að hann hefur
áreiöanlega haft gott af veru sinni
hjá Frömurum og kemur það áreið-
anlega honum til góöa í sumar.
Að loknum leik Framara og ÍR
sl. laugardag færðu Framarar Guð-
mundi góðar gjafir til minningar
um veru hans hjá félaginu.
-HH
Umsjón
Halldór Halldórsson
Guðmundur Benediktsson: „Líkaði
vel hjá Fram.“