Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 37
LAUGABDAGUR ft. JÚNÍ ra88.
Iþróttapisttll
Amór hefur
tekið forystu
Það er kunnara en frá þurfi að
segj'a að við íslendingar eigum
nokkra einstaklinga í íþróttunum
sem skara fram úr og hafa náð ár-
angri á heimsmælikvarða. í dag-
legu tali manna vill fjöldi þessara
einstaklinga oft verða meiri en efni
og ástæður eru til.
Ein skærasta stjarna okkar í dag
er knattspymumaðurinn Arnór
Guðjohnsen hjá belgíska félaginu
Anderlecht.
Bikarmeistari og frábær
frammistaða
Um síðustu helgi var Arnór
Guðjohnsen mikið í sviðsljósinu,
ekki bara hér á íslandi heldur úti
um allan heim. Anderlecht lék þá
gegn Standard Liege í úrslitaleik
belgísku bikarkeppninnar. And-
erlecht sigraði 2-0 og að dómi
knattspyrnusérfræðinga í Belgíu
og allra þeirra sem leikinn sáu var
Arnór langbesti leikmaðurinn á
velhnum. Þetta er ekki dónaleg
frammistaða og kemur þeim sem
kappann þekkja raunar ekki svo
mikið á óvart.
Arnór orðinn fremstur
Það er mín skoðun og reyndar
margra annarra að Arnór sé nú
orðinn fremsti knattspyrnumaður
okkar í dag. Hann hefur lengi mátt
standa í skugganum af Ásgeiri Sig-
urvinssyni en nú hefur hann sem
sagt tekið forystuna. Mikið birti
yfir framtíð Arnórs eftir bikarsig-
urinn og frammistöðuna í úrslita-
leiknum. Hann á nú mikla mögu-
leika á að komast að hjá enn fræg-
ara liði en Anderlecht og mér kæmi
ekki á óvart þótt forráðamenn ítal-
skra knattspyrnuhða væru farnir
að líta hann hýru auga. Það mun
skýrast á næstu vikum hvort Ar-
nór verður áfram hjá Anderlecht
en heimildarmenn mínir segja að
belgíska liðið megi alls ekki við því
að missa Arnór.
Fleiri stjörnur
Af fleiri stjörnum, sem við eigum
í íþróttunum, má nefna spjótkast-
arana Einar Vilhjálmsson og Sig-
urð Einarsson, sundmanninn Eð-
varð Þór Eðvarðsson, júdómann-
inn Bjarna Friðriksson og körfu-
knattleiksmanninn Pétur Guð-
mundsson. Við þessa upptalningu
má síðan bæta landsliði okkar í
handknattleik eins og það leggur
sig. Þá held ég að þetta sé upptalið.
Umsjón:
Stefán Kristjánsson
Þessir íþróttamenn, fyrir utan Pét-
ur Guðmundsson, verða í sviðsljós-
inu í haust þegar ólympíuleikarnir
hefjast í Seoul. Til þessara íþrótta-
manna eru geröar gífurlegar kröf-
ur sem þeir standa vonandi undir
þegar í alvöruna verður komið.
Döpur frammistaða
íslenska ólympíuliðsins
í knattspyrnu
Framgöngu íslenskra knatt-
spymumanna í undankeppni
ólympíuleikanna í knattspyrnu er
nú lokið og var frammistaðan væg-
ast sagt döpur og ekki til að hrópa
húrra fyrir. Við höfnuðum í neðsta
sætinu í okkar riðh og þarf varla
að hafa mikið fleiri orð um það.
Hestamennska og
stangaveiði eru
líka íþróttir
í sumar sem önnur sumur verður
knattspyman fyrirferðamest eins
og gefur að skilja en frjálsíþrótta-
menn og kylfingar verða einnig á
fullri ferð. Þeir eru margir sem
vilja meina að hestamennska og
stangaveiði séu líka íþróttir og
undir það skal tekið hér. Hesta-
menn hafa reyndar fengiö inn-
göngu í íþróttasamband íslands.
Fjölmörg hestamót eru á dagskrá í
sumar um allt land og mun verða
skýrt reglulega frá gangi mála í
mánudagsblaði DV.
Sömu sögu er að segja um lax-
og silungsveiðina. Fyrstu laxarnir
eru nú komnir á land og margir
bíða spenntir eftir fyrsta veiðitúrn-
um. Að veiða lax á stöng er mikil
íþrótt og erfið og ekki gefin hverj-
um sem er. Guðmundur Guðmund-
son, landshðsmaður í handknatt-
leik og leikmaður með Víkingi, er
einn margra íþróttamanna sem
tekið hafa veiðidehuna og í Sport-
veiðiblaðinu, sem nú er nýkomið
út, er viötal við handboltakappann
og fer hann þar á kostum.
Grasið loksins að komast í
gagnið
íslandsmótið í knattspyrnu, SL-
deildin, er nú komið á fulla ferð á
ný eftir nokkurra daga hlé. Gra-
svehir landsins eru nú loksins að
komast í nothæft ástand en slæmt
tíðarfar í vor setti heldur betur
strik í reikninginn og má segja að
nú sé íslandsmótið fyrst að hefjast
fyrir alvöru. Leikirnir á malarvöll-
um og á gervigrasinu hafa verið svo
til marklausir. Framundan eru
skemmtilegar og spennandi um-
ferðir í knattspyrnunni sem knatt-
spyrnuunnendur ættu ekki að láta
framhjá sér fara.
-SK
• Arnór Guðjohnsen sést hér í baráttu í Evrópukeppninni en hann stóð sig frábærlega um síðustu helgi
þegar Anderlecht varð belgískur bikarmeistari. DV-mynd Marc de Waele
V
49
.............. * ~
Útboð
Raknadalshlíð 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 5,7 km, bergskeringar
2.800 m3, undirbygging 71.400 m3 og neðra burð-
arlag 6.600 m3.
Verki skal lokið 15. nóvember 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
6. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 20. júní 1988.
Vegamálastjóri
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3-105 Reykjavík - sími 26102
íþróttasvæði Fylkis í Árbæ.
Stækkun grasvalla.
Teikningar og greinargerð eru til sýnis í Árseli og á
Borgarskipulagi frá mánudegi 6. júní til 13. júní.
Verslunarmiðstöð í Grafarvogi.
Teikningar ásamt greinargerð verða kynntar í Gunn-
laugsbúð við Fjallkonuveg á afgreiðslutíma verslun-
arinnar frá mánudegi 6. júní til 27. júní 1988.
Þeir sem vilja koma athugasemdum eða ábendingum
á framfæri geri það innan auglýsts kynningartíma til
Borgarskipulags, Borgartúni 3, sími 26102.
ÞAKLEKI - ÞAKMÁLUN
RYÐVÖRN
10 (20) ÁRA ÁBYRGÐ
Bjóðum bandariska hágæðavöru til þéttingar á járni
(jafnvel ryðguðu), pappa (asfalt), asbest- og
steinsteypuþökum (t.d. bílskúrsþök) er jafnframt
getur gefið fallega áferð.
Allir þæklingar á íslensku.
Ráðleggjum og gerum tilboð eftir óskum og án
skuldbindinga.
HAGSTÆTT VERÐ.
GARÐASMIÐJAN S/F
Lyngási 15, Garðabæ
sími 53679, kvöld- og helgarsímar 51983/42970
SÉRKENNARAR,
SÁLFRÆÐINGAR,
UPPELDISFRÆÐINGAR
Viltu taka þátt í að móta spennandi starf?
Hefur þú áhuga á ferðlögum í starfi?
Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis
vestra er á Blönduósi. í umdæminu eru
20 skólar með ca tvö þúsund nemendur.
Samgöngur eru góðar á svæðinu.
Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta Fræðslu-
skrifstofunnar óskar eftir að ráða áhuga-
samt og hugmyndaríkt starfsfólk til að taka
þátt í skólastarfi umdæmisins.
Nánari upplýsingar eru veittar á Fræðslu-
skrifstofunni, Blönduósi, í símum 95-4209
og 95-4369.