Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 39
.886; 1ATOAHDA01ÍRI Aí JTÍJáMÍ 1988.
Breiðsíðan
Með hækkandi sól fá margir
köllun til að mála húsin sín.
Ekki vitum við hvort þessi vinn-
usami maður hefur fengið köll-
un en eitt er víst að sú merking
er ekki fjarri honum. Kristján
Ari, Ijósmyndari DV, fékk einn-
ig einhvers konar köllun, er
hann sá málarann, að taka af
honum mynd sem flokkast
undir myndbrot vikunnar.
Myndin er táknræn fyrir suma-
rið því varla er til gata þar sem
ekki er verið að mála hús eða
laga til í kringum þau. Enda
er það eitt aðaieinkenni ís-
lenskra húsa hversu litrík þau
eru, alveg eins og útidyrahurð-
irnar í Dyflinni en þær eru það
fyrsta sem ferðamenn taka eft-
ir í þeirri borg. írar mála hurð-
ir sínar í öllum regnbogans lit-
um þrátt fyrir að húsin séu grá
og Ijót. Það sama verður ekki
sagt um íslensk hús...
-ELA/DV-mynd KAE
Maj-Britt Briem og María Hjálmtýsdóttir voru meöal afkastamestu Ijóðaskálda i Hólabrekkuskóla. Maj-Britt heldur
á Ijóðabókinni þeirra, Ljáðu mér eyra. DV-mynd GVA
segir Maj-Britt, þrettán ára, sem gaf út ljóðabók ásamt skólasystkinum sínum
„Við vorum í sérstökum ljóðatím-
um og lékum okkur að því að setja
saman ljóð. Ætli bókin sé ekki af-
rakstur þess,“ sagði Maj-Britt Briem,
13 ára nemi í Hólabrekkuskóla. Sjö-
undi bekkur skólans gaf út þykka og
mikla ljóðabók nú í lok skólaársins.
Það var kennari þeirra, Ragnar
Hilmarsson, sem átti hugmyndina aö
ljóðabókinni. Beiðni barst skólanum
frá ríkisútvarpinu um að koma með
frumsamin ljóö í bamatíma. Áhug-
inn var slíkur að Ragnar sá ástæðu
til að hvetja börnin enn frekar. í bók-
inni eru nærri tvö hundruö ljóð sem
flokkuð eru eftir efni.
Máj-Britt á alls þrettán ljóð í bók-
inni og er með afkastamestu höfund-
um. Hún segir að sér frnnist ljóðið
um bókina best en það samdi hún
ellefu ára gömul. „Ég fæ stundum
yfir mig þörf til að setja saman ljóð
en stundum get ég það alls ekki,“
sagði Maj-Britt. Hún sagði að afi sinn,
Eiríkur Briem, væri mikill hagyrð-
ingur og þau sætu oft og ræddu um
ljóðin. „Afi hefur samið n\jög mikiö
en aldrei gefið neitt út. Ég hef hka
sýnt honum mín ljóð.“
Maj-Britt sagðist vonast til að
áframhaldandi samstarf yrði í skól-
anum næsta vetur í sambandi við
ljóðagerð. Að sögn kennarans, Ragn-
ars, er mikill áhugi fyrir að koma
upp smásagnasamkeppni í skólanum
næsta vetur. „Krakkarnirvirðast
hafa mikinn áhuga á að semja,“ sagði
Ragnar Hilmarsson. „Við verðum
áreiðanlega með einhvers konar
framhald."
I gegnum Ijóðin má lesa ýmsan
þankagang unghnganna. Þau semja
um skólann, náttúruna, dýrin, hörm-
ungar heimsins, ástina, gamanmál
og ýmislegt fleira, m.a. var eitt ljóð
um Eurovision. Til gamans birtum
við hér uppáhaldsljóð Maj-Britt sem
nefnist Bókin.
Bókinerhljóð
enþegarhúnopnast
verður maður fuhur af orðum
orðum um heiminn.
Þegar bókin opnast
dansa orðin á gulum síðum
en þegar hún lokast
verður hún þögul sem steinn.
-ELA
MK-kvartettinn á æfingu fyrir lokatónleikana. Ævintýrið byrjaði i mennta-
skóla árið 1982. DV-mynd Brynjar Gquti
Síðasti kvartettiiin fer í frí:
„Yiðerumvinsæl"
- segir Guðrún Gunnarsdóttir söngkona um MK-kvartettinn
„Ahuginn vaknaði hjá okkur er við
sungum í kór Menntaskólans í Kópa-
vogi en þá höfðum við 18 ára stjórn-
anda, Gunnstein Ólason, sem nú er
í tónhstarnámi í Ungverjalandi,“
sagði Guðrún Gunnarsdóttir, einn
meðlima í MK-kvartettinum í sam-
tali við Breiðsíðuna. Guðrún er
kannski þekktari sem dagskrárgerð-
armaður á rás 2 og söngkona í
söngvakeppni Sjónvarpsins, þar sem
hún söng Íag unnusta síns, Valgeirs
Skagfjörð. „MK-kvartettinn var
stofnaður áriö 1982 upp úr kórnum
en þá vorum við á öðru ári í mennta-
skólanum. Þetta var meira grín en
alvara í byijun og við sungum lög
Andrews-systra og önnur gömul og
fræg lög,“ sagði Guðrún ennfremur.
MK-kvartettinn hefur starfað óslit-
ið frá byrjun og komið fram í öllum
menntaskólum, á skemmtunum í
Háskólabíói og á hinum ýmsu árs-
hátíðum. Einnig hefur kvartettinn
komið fram í sjónvarpi og útvarpi.
Með Guðrúnu eru þau Þuríður Jóns-
dóttir, Þór Ásgeirsson og Hjörleifur
Hjartarson auk undirleikarans, Ara
Einarssonar, sem leikur á gítar.
„ Við höfum æft okkur minnst einu
sinni í viku frá upphafi og alltaf
heima í stofu hjá einhverju okkar,“
sagði Guðrún. Lögin, sem þau syngja
nú, eru öll í léttari kantinum og
mörg í nýstárlegri útsetningu Ara
Einarssonar. Hópurinn ætlar að taka
sér frí um tíma þar sem tvö úr honurr
halda í tónlistarnám á komandi vetri
„Við ætlum að halda tvenna lokatón-
leika, þá fyrri á mánudagskvöldið á
Hótel Borg og þá síðari 12. júní í
Duus-húsi. Við sem eftir verðum
heima reynum að halda áfram að
æfa okkur því hver veit nema viö
eigum eftir að gefa út plötu.“
MK-kvartettinn er sá eini sinnar
tegundar sem starfandi er á landinu
um þessar mundir og veröur því eng-
inn kvartett eftir nú er þau fara í
frí. „Ég er alveg viss um að við eigum
eftir að halda áfram þó síðar verði,“
sagði Guðrún og bætti við að þeir
sem ekki komast á tónleika Stéphqne
Grappelh gætu í staðinn hlýtt á
hressilegan söng MK-kvartettsins á
Borginni. „Við erum vinsæl," sagði
Guðrún. „ Að minnsta kosti var alveg
fullt hjá okkur síðast er við vorum
með tónleika, þótt við auglýstum
ekki nema með einni lítilli auglýs-
ingu.“
-ELA