Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
55
LífsstíU
Þótt Álandseyjar tilheyri Finnlandi er þar sjálfstjórn og Álendingar hafa
sinn eiginn fána. Hann er ansi líkur okkar fána, blár með gulri rönd, í staó
hvíta litarins í þeim íslenska, og svo rauði krossinn í miðið. Hér hafa tvö
ungmenni skreytt sig með fánalitunum og mynstrinu.
ar samlagast náttúrunni á sérstakan
máta.
Álandseyjar eru þekktar fyrir sín-
ar fallegu granítkirkjur frá miðöld-
um. Þær eiga það ílestar sameigin-
legt aö vera í sérstaklega fallegu
landslagi, gjaman meö útsýni út á
haf.
Ef ferðast er um landið verða svo-
kallaðar maí-stangir oft á vegi
manna. Það er gömul hefð á Álands-
eyjum, líkt og í Svíþjóð, að halda
ærlega upp á Jónsmessuna. Þá er
dansað og haldið uppi miklu fjöri í
kringum maí-stangirnar. Þær eru
fagurlega skreyttar litskrúðugum
borðum og blómum en sjálfar stang-
irnar eru úr tré. Jónsmessan er mik-
Álandseyjum sem svipar til Íslandí
og íslendinga. Finnum og íslending-
um er gjaman líkt saman og Álend
ingar eru eyjaskeggjar eins og vit
sem einnig búum á fámennri eyju
Því er oft sagt að við séum enn líkar>
Álendingum en Finnum. Eyjaskeggj-
ar em alltaf eyjaskeggjar.
Álendingar byggja gjarnan gríðar
Það er mjög auðvelt að komast yfir til Álandseyja frá Sviþjóð og Finnlandi. Daglega eru margar ferðir, hvort sem
er með skipi eða flugvél. Það eru stór og glæsileg skip, eins og þetta á myndinni, sem notuð eru i ferðirnar. Þaö
er vinsælt, bæði af Svium og Finnum, að sigla á milli en koma heim samdægurs. Litiö er á slika siglingu sem
bestu skemmtan enda er boðið upp á hinn mesta lúxus á snekkjunum. Svo er líka hægt að kaupa tollfrjálsan
varning um borð. Skipin eru flest í eigu Álendinga og er farmiðinn alveg ótrúlega ódýr. Hann kostar á bilinu
100-200 krónur. Frá Stokkhólmi tekur siglingin til Álandseyja um fjóra tima en flugferðin 35 mínútur. Á myndinni sést
í Pommern, fræga seglskipið sem getið er um í greininni.
Litast um á frægum
stöðum
Sjóminjasafniö í Mariehamn,
Áland Maritime Museum, er vel þess
virði að skoða það. Þar gefur að líta
ýmsa merkilega muni sem tengjast
gamalli sjófara- og siglingasögu
landsins. Þarna eru ýmsir ævafornir
munir, sumir hveijir frá víkingatím-
um.
Rétt fyrir utan safnið hefur gömlu
seglskipi verið komið fyrir. Þetta
skip er þýskt og var smíðað árið 1903.
Pommem, en svo heitir skipið, er 100
metra langt og þykir hið glæsilegasta
í alla staði. Það er eitt þaö síðasta
sinnar tegundar sem smíðað hefur
veriö.
Sæfarinn mikli, Carl Gustav Erik-
son, átti skipið og notaði það til korn-
flutninga frá Ástralíu til Englands.
Pommern hefur alla tíð verið mikið
Fínnland
Eins sést á kortinu eru Alandseyjar
mitt á milli Finnlands og Sviþjóðar.
Sigling frá Stokkhólmi tekur um fjóra
tíma en hægt er að taka minni báta
frá Grisselhamn sem er rétt hjá
Uppsölum. Sú sigling tekur rúman
klukkutíma.
Álandseyjar eru samansafn 6.500 eyja og skerja. Mikið er um sumarhús úti
á eyjunum. Vinsælt er að sigla þangað út og eyða fríinu sínu í mikilli nátt-
úrufegurð og við hvitar strendur. Auðvelt er að fá leigða litla báta til að
sigla um skerjagarðinn. Það ætti ekki að vera neitt tiltökumál að fá leigt
sumarhús úti í einhverri eyjunni. Og þá er bara að velja: Viltu vera einn
á eyjunni eöa grennd viö önnur hús?
stolt Álendinga og eru hótel og fleiri
staðir á Álandseyjum nefndir eftir
því.
Mjög vinsælt er að skoða tvo gamla
kastala, Kastelholm og Bomarsund.
Kastelholm var setur sænskra valda-
manna þegar Svíar réðu yfir Álands-
eyjum. Kastalinn var byggður á 14.
öld en eyöilagðist að hluta í bruna á
18. öldinni. Hluti kastalans hefur
verið endurbyggður og hýsir nú
álenska sögusafnið, Áland Historic
Museum.
Rússar hófu að byggja Bomarsund
árið 1830 en voru aðeins hálfnaðir
þegar Krímstríöiö braust út 23 árum
síðar. Aldrei var haldið áfram með
bygginguna né nokkuð hreyft við
henni. Engu að síður er virkiö
skemmtilegt ásýndar og hefur reynd-
Álandseyjar
Slokkhólmur
Sovétríkin
GASALEG VÖNTUN
ÁTÓMUM HYLKJUM
Lagerinn okkar verður æ fátækari af gashylkjum til
áfyllingar. Því þætti okkur gott ef þú gætir litið eftir
hvort ekki leynist hjá þér tómt gashylki; í sumarbú-
staðnum, hjólhýsinu eða kannski bílskúrnum!
Eigir þú í fórum þínum tómt gashylki frá
Skeljungi máttu gjarnan grípa það með
þér næst þegar þú ferð á Shell-stöð og
fá endurgreidda skilatryggingu.
I Kosangas!
Skeljungur hf.
lega stórt, svo stórt að sambærilegai
byggingar í stórborgum standa*
vart samanburð. Þetta könnumst vií
Íslendingar svo vel við. „Smáir en
hugsa stórt“, ef svo má segja.
Skemmtistaðir eru nokkrir aJ
stærra taginu og á maður bágt mef
að skilja hvernig þeir geta þrifist
Öllu auðveldara er að skilja hvernii
öll þessi fínu hótel bera sig þar sem
svo mikill fjöldi ferðamanna sækii
Álandseyjar heim á sumrin.
Hvernig væri að slást í hópinn og
heimsækja Álandseyjar í næstu ferð
til Norðurlandanna?
ill viðburður í lífi Álendinga og er
gleðin og veisluhöldin skipulögð
langt fram í tímann.
Álendingar og
Islendingar líkir
í Mariehamn eru, eins og áöur
segir, skemmtilegir veitingastaðir,
margir hveijir litlir og þægilegir og
oft við sjóinn. Hvers kyns fiskréttir
eru sérgrein matreiðslumanna
þeirra enda eru Álendingar miklir
fiskimenn, líkt og viö íslendingar.
Reyndar er ýmislegt annað á
BM ■ I
Texti: Rósa Guðbjartsdóttir