Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 53
LAUGARDAGUE 4. JÚNÍ 1988. 65 Afmæli Einar S. Bnarsson Einar Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri VISA íslands - Greiðslumiðlunar hf., til heimilis að Fýlshólum 1, Reykjavík, verður fimmtugur á mánudaginn. Einar fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum á Bifröst vorið 1958 og stundaði um tíma nám við Chamber of Commerce í Birming- ham á Bretlandi. Hann starfaði við Landsbankann á ísafirði 1955-56, hjá Olíufélaginu hf. í Reykjavík 1959- 60, var sýsluskrifari við bæj- arfógetaembættið á ísafirði 1960- 62, starfsmaður Samvinnu- sparisjóðsins 1962-63, aðalbókari Samvinnubanka íslands hf. frá stofnun hans 1963 um tuttugu ára skeið uns hann tók við núverandi starfi sem framkvæmdastjóri VISA íslands við stofnun þess fyrirtækis vorið 1983. Einar S. hefur tekið virkan þátt í félagsstarfi skákhreyfingarinnar. Sat í stjórn Taflfélags ísafiarðar 1960-62, síðast sem formaður; í sfióm Skáksambands íslands 1975- 80, forseti þess 1976-80; í sfióm Skáksambands Norðurlanda 1976- 81, forseti 1979-81, aðalritari þess síðan. Hefur Einar setið fiöl- mörg þing Alþjóðaskáksambands- ins, FIDE. Einar kvæntist 26. desember 1964 Svölu S. Jónsdóttur, f. 1. desember 1940, bónda Guðnasonar að Val- þúfu á Fellsströnd og Guðbjargar Guðmundsdóttur frá Lambadal í Dýrafirði. Svala hefur starfað við þýðingar fyrir Morgunblaðiö síðan 1973. Böm þeirra Svölu og Einars em: Jón Smári, f. 15. sept. 1964, náms- maður í tölvuverkfræði við Linköping Universitet, Svíþjóð; Eydís Sigurbjörg, f. 27. febrúar 1967, skrifstofustúlka, og Einar Snorri, f. 28. maí 1970, mennta- skólanemi. Systkini Einars eru: Valdimar, f. 1923, fyrrv. skipstjóri, nú starfs- maður Fiskveiðasjóðs, giftur Svövu Jóhannesdóttur; Salvar, f. 1925, d. 1986, var giftur Sigrúnu Einarsdóttur; Camilla, f. 1927, deildarritari á Landspítalanum, gift Kára Gunnarssyni, mjólkur- fræðingi og bílstjóra; Bragi, f. 1929, garðyrkjumaður, eigandi Eden í Hveragerði, giftur Karen Melk sagnfræðingi; Bryndís Ingibjörg, f. 1934, starfsmaður Reykjavíkur- borgar, gift Sölva Þ. Valdimars- syni, byggingam.; Kristín Rebekka, f. 1935, starfsmaður Landsbankans á ísafirði, gift Guðmundi T. Sig- urðssyni, framkvæmdastjóra og útgerðarmanni, Hnífsdal; Birna Guðrún, f. 1936, launafulltrúi hjá ísafiarðarbæ, gift Kristjáni Reim- arssyni, pípulagningameistara. Systir Svölu er Björk Ehn, rann- sóknarmaður hjá Hafrannsókna- stofnun, gift Pétri Péturssyni, for- stjóra Fiskafurða hf., Magnússon- ar, bankastjóra og ráðherra. Meðal systkinabama Einars má nefna Einar Kárason rithöfund, nýkjörinn formann Rithöfunda- sambands íslands, Sigríöi Stefáns- dóttur, bæjarfulltrúa á Akureyri, Gunnar Salvarsson, skólastjóra Heyrnleysingjaskólans og dag- skrárgerðarmann, og Sigurð Þór Salvarsson, fiölmiðlafræðing og starfsmann RÚV. Foreldrar Einars vom Einar Kr. Þorbergsson, sjómaður, verkamað- ur og síðast afgreiðslumaður hjá Kaupfélagi ísfirðinga, frá Bakka- seli í Langadal, f. 18. júlí 1891, d. 19. okt. 1985, sonur Þorbergs, hús- manns í Bakkaseli, Einarssonar, bónda á Neðri-Bakka, Franssonar og kona hans, Sigríður Valdimars- dóttir, f. 29. júlí 1899, d. 21. febrúar 1965, Sigurðssonar, Þorleifssonar frá Látrum í Mjóafirði. Kona Þorbergs var Guðrún Kristjánsdóttir, b. á Hamri í Naut- eyrarhreppi, Halldórssonar, bróð- ur Haralds, langafa Sverris Her- mannssonar, bankastjóra og fyrrv. ráðherra. Þorleifur frá Látrum var bróðir Örnólfs, langafa Valdimars Örn- ólfssonar leikfimikennara og Ótt- ars Proppé, fóður Óttars Proppé, framkvæmdastjóra Alþýðubanda- lagsins. Guðný Þórarinsdóttir Guðný Þórarinsdóttir, húsmóðir í Krossdal, Kelduneshreppi, er áttatíu og fimm ára í dag. Guðný fæddist í Þórunnarseli en ólst upp í foreldrahúsum í Kílakoti við Víkingavatn. Hún lærði hann- yrðir og orgelleik hjá Kirstínu, konu Ásgeirs Blöndal, læknis á Húsavík, og var svo um tvítugt einn vetm- á Kvennaskóla á Blönduósi. Guðný giftist 1927 Þórami Jó- hannssyni frá Krossdal og síðar b. þar, en Þórarinn lést 1970. Foreldr- ar Þórarins voru Jóhannes Sæ- mundsson, bróðir Friðriks á Efri- Hólum, og kona Jóhannesar, Sig- ríður Þórarinsdóttir frá Víkinga- vatni. Guðný og Þórarinn eignuðust fimm börn. Þau eru Jóhannes, starfsmaður hjá Kaupfélagi Þing- eyinga á Húsavík, f. 1928; Sigríður, húsmóðir á Húsavík og ljósmóðir, f. 1929; Ingveldur Vilborg, húsmóð- ir í Reykjavík, f. 1930; Þórarinn, prestur í Kinn og síðar skólasfióri í Skúlagarði, f. 1932, d. 1986, og Sveinn, b. í Krossdal, f. 1938. Guðný átti þrjú systkini en á nú einn bróöur á lífi. Systkini hennar vom: Sveinn, listmálari í Reykja- vík, f. 1899, en hann er látinn; Vil- borg, húsmóðir á Húsavík, f. 1901, en hún er einnig látin; og Björn, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 1907. Foreldrar Guðnýjar voru Þórar- inn Sveinsson, b. í Kílakoti, og kona hans, Ingveldur Björnsdóttir, b. á Hálsi, Oddssonar. Fööurforeldrar Guðnýjar voru Sveinn Grímsson frá Víkingavatni og kona hans, Hólmfríður Sveinsdóttir, frá Hall- bjarnarstöðum. Magnús Ólafsson Magnús Ólafsson, Belgsholti I, Leirár- og Melahreppi, er sjötugur í dag. Magnús er fæddur að Þórustöð- um í Svínadal og er hann þriðji í röð átta barna hjónanna Þuríðar Guðnadóttur og Olafs Magnússon- ar. Á sínum yngri árum vann hann ýmis störf, svo sem við vélavið- gerðir og akstur. Árið 1946 kvæntist Magnús konu sinni, Önnu Ingibjörgu Þorvarðar- dóttur frá Stykkishólmi. Þau eign- uðust átta börn, fióra syni og fiórar dætur, en barnabörnin eru orðin 23. Fyrstu fiögur árin bjuggu þau í Stykkishólmi, en vorið 1950 keyptu þau jörðina Belgsholt í Leirár- og Melahreppi og hafa búið þar síðan, nú síðustu árin í félagi við son sinn. Magnús tekur ásamt konu sinni á móti gestum á heimili sínu á af- mælisdaginn. Eýþór Fannberg Eyþór Fannberg, Háaleitisbraut 103, Reykjavík, er sextugur sunnu- daginn 5. júní. Eyþór fæddist í Bolungarvík, sonur hjónanna Kristjönu G. Fann- berg og Bjarna J. Fannberg sem bæði eru látin og er hann einn eftir- lifandi af börnum þeirra hjóna. Hann fluttist til Reykjavíkur með foreldrum sínum árið 1942 og eftir nám í vélvirkjun og síðar nám við Vélskóla íslands útskrifaðist hann frá Rafmagnsdeild Vélskólans 1951. Lá þá leiöin til sjós og næstu 16 árin var hann vélsfióri og yfirvél- stjóri hjá Jöklum h/f. Eyþór fór til Noregs árið 1968 og kynnti sér m.a. tölvumál og í fram- haldi af því hóf hann störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykja- víkurborgar þremur árum seinna. Eyþór hefur starfað mikið að fé- lagsmálum, var formaður starfs- mannafélags Skýrsluvéla, í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar og formaður þess félags um tíma. Eyþór á fimm uppkomin böm og bamabörnin em orðin 13. Hann er tvíkvæntur og er seinni kona hans Þóra Kristinsdóttir, lektor við Kennaraháskóla islands. Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Arni Elfar Árni Elfar, tónlistarmaöur og myndlistarmaður, Móaflöt 7, Garðabæ, veröur sextugur á morg- un. Árni fæddist á Akureyri en flutti með foreldrum sínum tfi Reykja- víkur þegar hann var á þriðja árinu og hefur hann búið á höfuöborgar- svæðinu síðan. Hann gekk í MR og stundaði þar nám í tvö ár en hætti þá námi og helgaði sig tónlistinni. Árni byrjaði að spila með Óla Gauk og Steina Steingríms þegar þeir voru í Gaggó Vest en síðan hefur Árni spilað með flölda tón- listarmanna í árafiöld. Hann hóf að spila opinberlega fyrir alvöru hjá Birni R. Einarssyni 1947 og spil- aði hann síöan með flestum helstu hljómsveitum bæjarins. Árni spil- aði með Gunnari Örmslev og Hauki Morthens í Oddfellow-húsinu en þeir félagar fóru síðan í fræga ferö til Sovétríkjanna þar sem þeir gerðu stormandi lukku. Árni var með eigin hljómsveit ásamt Hauki Morthens á Röðli, og seinna í Glaumbæ, en spilaði með Karh Lilliendahl á Loftleiðum og hljóm- sveit Ragnars Bjarnasonar á Hótel Sögu frá 1966-72 er hann hætti að spila fyrir dansi. Ámi hefur ætíð spilað á básúnu en hann er jafn- framt óviðjafnanlegur píanóleik- ari. Hann hefur spilað á básúnu í Sinfóníuhljómsveit íslands frá 1956. Árni stundaði nám í Handíða- skólanum í Reykjavík 1938-39 en hann hefur í síauknum mæli lagt fyrir sig teikningar og síðan list- málun nú síðustu árin. Hann hefur teiknað mikið skopmyndir, mannamyndir og húsamyndir, en myndir eftir Árna hafa oft birst í Lesbók Morgunblaðsins. Hann hef- ur haldið allmargar kaffihúsasýn- ingar sem hann nefnir svo en sl. haust hélt hann sýningu hjá Scand- inavia Society í New York. Kona Árna er Kristjana, f. 7.8. 1940, dóttir Magnúsar Steingríms- sonar og Zanny sem er látin, dóttur Axels Clausen verslunarmanns. Sonur Árna frá fyrra hjónabandi er Árni Þór rafsuðumaður í Reykjavík, f. 6.7. 1958, kvæntur Hrönn Þorsteinsdóttur banka- starfsmanni. Dóttir Krisfiönu er Zanny Sigurbjörnsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 18.8.1962, gift Bjarna Pálssyni bakara, en þau eiga eina dóttur, Katrínu. Ami og Krisfiana eiga saman fiögur böm. Þau eru: Elisabet Þómnn Elfar, f. 11.2.1966, nemi í foreldrahúsum; Benedikt Elfar, f. 29.11.1967, nemi í foreldra- húsum, og tvíburarnir Agnes og Ömólfur, f. 31.8.1974. Foreldrar Áma vom Benedikt Elfar Ámason, guðfræðingur, söngvari og leikfangasmiður, og Elísabet Þórunn Krisfiánsdóttir. Föðurforeldrar Árna voru Ámi Stefánsson, b. í Litla-Dal í Eyja- firði, og kona hans, Ólöf Baldvins- dóttir, b. á Siglunesi, Magnússonar. Árni var sonur Stefáns, prests á Hálsi í Fnjóskadal, Árnasonar og fyrri konu hans, Guörúnar Rann- veigar Randversdóttur, b. í Ytri- Villingadal Þórðarsonar. Hálfbróð- ir Árna var Stefán Baldvin, b. og alþingismanns í Fagraskógi, faðir Davíðs skálds. Móðurforeldar Árna Elfars vom Kristján Gíslason, stórkaupmaður á Sauðárkróki. og kona hans, Björg Eiríksdóttir, b. á Blöndudalshólum, Halldórssonar, stúdents á Úlfsstöð- um, Sigurðssonar, prests á Hálsi, Árnasonar. Kristján var afi Sól- veigar Axelsdóttur, konu Gísla Konráðssonar, stjómarformanns Útgerðarfélags Akureyringa. Kristján var einnig afi Bjargar, ekkju Agnars Kofoed-Hansen. Kristján var sonur Gísla Ólafsson- ar, b. á Eyvindarsstööum í Blöndudal, og konu hans, Elísabet- ar, dóttur Pálma, b. á Sólheimum, Jónssonar, og konu hans, Óskar Erlensdóttur. Bróðir Elísabetar var Erlendur, hreppsfióri og dbrm. í Tungunesi, afi Sigurðar skólameistara, fóður Örlygs og Steingríms listmálara. Annar bróðir Elísabetar var Jón, alþingismaður í Stóra-Dal, faðir Þorleifs alþingismanns og Pálma, foður Jóns á Akri, alþingisforseta, fóður Pálma á Akri, alþingismanns og fyrrv. ráðherra. Systir Elísabet- ar var Ingibjörg, móðir Pálma á Litla-Búrfelli, fóður Ingvars al- þingismanns, móöurafa Ingvars Gíslasonar alþingismanns. Ami tekur á móti gestum á heim- ili sín, Móaflöt 7, Garðabæ, á af- mælisdaginn milli klukkan 15 og 19. KT~

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.