Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 5
.LAlX}AftDA£^2.:>!£TLÍS1988. t 5 Fréttir Úrgangsoiía: Brennd eða endurunnin „Við endurviniium alla úr- gangsolíu sem fellur til,“ sagði Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri Olíu- verslunar íslands hf. „Við höfum yflr aö ráða einu olíuhreinsunar- stöð landsins þar sem öll úr- gangsolía er endurunnin. Endur- unna olían er síðan seld til síldar- og loðnubræðslustöðva eða notuð til upphitunar." Töluverð úrgangsolía fellur til á ári hveiju hjá oliufélögunum í landinu. Skiptir hún mörgtun tonnum á ári og viðhafa olíufélög- in mismimandi aðferðir til að losna við hana. Að sögn Óla er það mikiö og kostnaðarsamt verk að endurvinna alla úrgangsolíu sem til fellur. „Það er einn maður sem vinnur við að sækja alla úrgangsoliu sem til fellur en þetta verðum við að gera. Úrgangsolíu er aldrei hent.“ Að sögn Reynars Hannessonar hjá Olíufélaginu Esso er úrgangs- smurolíu frá smurstöðvum brennt í gufiikatli til kyndingar á verksmiðjusvæði félagsins. Annarri úrgangsolíu er einnig brennt, að sögn Reynars. Úr ol- íunni eru hreinsuð öll óhreinindi og vatn áður en hún er brennd þannig aö eftir brennslu er ekk- ert eftir nema duft. Þetta duft samanstendur af skaðlausum jarðefnum, sagði Reynar, og er dufflnu hent á haugana. -StB Ölduselsskófi: Foreldrafé- lagið hættir aðgerðum „Eftir að ákvörðun var tekin var reynt að hafa áhrif í þá átt að henni yrði breytt. Nú er Ijóst að engu verður um þokað. Hlut- verk foreldrafélagsins er og verö- ur að efla tengsl milli heiraila og skóla í þeim tilgangi að sem far- sælast skólastarf eigi sér staö. Farsælt skólastarf hefur verið leiðarljós foreldrafélagsins í þessu rnáli Við eigum enga aðra ósk heitari en að skólastarf geti hafist með eðlilegum hætti í haust því að við berum eingöngu hag barnanna fyrir bijósti," segir í greinargerð sem stjórn For- eldrafélags Ölduselsskóla skilaði á foreldrafundi í fyrradag. Foreldrafundurinn samþykkti einróma ályktim þar sem fundur- inn hai-maði að ráðherra og meirihluti fræösluráðs skyldi ekki mæta á fundinn og skýra afstöðu sína fyrir foreldrum og reyna aö lægja öldumar. Lýst er eindregnum stuöningi við með- ferð stjórnar og fulltrúaráðs fé- lagsins á málinu og sagt að hagur og umhyggja nemenda í Öldusels- skóla hafi verið ætíð höfð að markmiði. Fundurinn átelur síð- an harölega þau ummæli menntamálaráðherra aö foreldr- ar hafi veiið beittir einhvers kon- ar þvingunum viö undirskriftar- söfnunina og lætur síðan í ljós þakkir til fráfarandi skólastjóra, yfirkennara og kennara skólans. Að lokum er óskað eftir þvi við yfirkennara og kennara að þeir sjái sér fært aö starfa áfram við skólann þrátt fyrir breyttar að- stæður. í lok greinargerðarinnar segir að með henni ljúki formlega af- skiptum stjómar Foreldrafélags Ölduselssskóla af veitingu skóla- stjóraembættis við skólann. -JFJ Maður og hundur: Gangandi frá Reyðar- firði til Amarstapa fjáröflunarganga fyrir Krýsuvíkursamtökin Leifur Leópoldsson, 23 ára gam- all garðyrkjumaður, hóf göngu sína þvert yfir landið í gær. Lagði hann af stað frá fjörunni á Reyöarfirði klukkan 10 í gærmorgun og ætlar aö ná Arnarstapa á Snæfellsnesi um hádegisbil þann 6. ágúst. Mun hann þvi ganga um 560 kílómetra á 36 dögum, eða 15,5 kílómetra á dag. Fer gangan fram til að vekja at- hygli á Krýsuvíkursamtökunum, tilgangi þeirra og markmiðum og síðast en ekki síst að afla þeim fjár. Fer fláröflun fram samfara göngunni. Geta þeir sem áhuga hafa hringt til Krýsuvíkursamtak- anna og keypt einn eða fleiri kíló- metra. Kostar hver kílómetri 10 þúsund krónur þannig að söfnun- armarkmiðið er 5,6 milljónir króna. Mun sú upphæð nægja til að tengja hitaveituna og ljúka við fyrsta áfanga skólahússins í Krýsu- vík. Segir í fréttatilkynningu að með fjárframlögum leggi fólk sitt af mörkum til aö skapa unglingum í vímuefnavanda og aðstandendum þeirra nýja von um bjarta framtíð. Áöur en blaðið fór í prentun náð- ist ekki í aðstandendur göngunnar til að frétta hvernig gengi. Leifur Leopoldsson göngugarpur ásamt ferðafélaga sinum yfir há- lendi íslands, hundinum Vaski. L L PEUGEOT 405 Peugeot 405 er bíll ársins 1988 í Evrópu. Auk þess hlaut Peugeot 405 gullna stýrið í V-Þýskalandi í ár. Komdu, skoðaðu og fáðu að reynsluaka verðlaunabílnum. BlLAR TIL AFGREIÐSLU STRAX VERÐ FRÁ 699.800.- Opið 9-6 virka daga og 1-5 laugardaga JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 SÍMI 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.