Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 12
12
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988.
Erlendbóksjá
Smiðurinn
er blindur
THE BLIND WATCHMAKER
Höfundur: Richard Dawkins.
Penguin Books, 1988.
Hver er skýringin á tilveru okk-
ar? Býr þar aö baki einhver skap-
ari alls, líkt og úrsmiður að baki
hins flókna galdraverks sem
klukkan er? Á þeirri skoðun rísa
trúarbrögöin. Eða er einungis um
að ræöa þróun í samræmi við
náttúruleg lögmál framþróunar?
Richard Dawkins, einn þeirra
fræðimanna sem undanfarin ár
hafa hvað ákafast kynnt sjónar-
mið þróunarkenningarinnar,
sem Darwin setti upprunalega
fram, er ekki í nokkrum vafa. Aö
hans mati er úrsmiður tilveru
okkar blindur: með öörum orðum
náttúrukraftamir sjálfir.
Hann fullyröir í upphafi bókar-
innar að tilveran, sem margir
hafi áöur fyrr talið leyndardóm-
inn mesta, sé ekki lengur óráðin
gáta: þróunarkenning Darwins,
með viðbótum síðari tíma fræði-
manna, hafi svift hulunni frá svo
allir sem vilja megi sjá lausn gát-
unnar. Hann færir skýr og sann-
færandi rök fyrir máh sínu, enda
vel ritfær og afar baráttuglaður.
Talað við
tölvumar
COMPUTER LANGUAGES.
Höfundur: Naomi S. Baron.
Penguin Books, 1988.
Tölvur eru orðnar fastur þáttur
í daglegu lífi íslendinga eins og
íbúa annarra þróaðra ríkja. Þær
eru algengar á vinnustöðum, í
skólum og á heimilum.
Því fer aftur á móti fjarri að
þekking á eðh og starfsemi tölv-
unnar, umfram þaö sem einfóld-
ustu not krefjast, sé almennt fyr-
ir hendi. Enda er almenningi
nokkur vandi á höndum vegna
þess hversu htið hefur miöað í
átt th samræmingar hjá tölvu-
framleiðendum.
Á undanfómum árum hafa ver-
ið samin mörg forritunarmál fyr-
ir tölvur. Þau eru mjög misjöfn
að gerð og oft samin með lausn
óhkra verkefna í huga. Þaö er því
mikilvægt að gera sér grein fyrir
þeim möguleikum, sem fyrir
hendi eru, áður en lagt er út í
tímafrekt nám í tilteknu tölvu-
máh. Þessi ágæta bók gefur
greinargott yfirht yfir á þriöja tug
forritunarmála, skýrir hvemig
þau era uppbyggð og hvaða verk-
efni þau eru einkum fær um að
leysa betur en önnur tölvumál.
Þetta á bæði við um vel þekkt
forritunarmál, svo sem BASIC,
C, COBOL, FORTRAN, PROLOG,
Modula-2 og önnur sem em
kannski minna þekkt en í ýmsum
tilvikum heppilegri til að leysa
afmörkuð verkefni.
Vopn orða í söng-
ljóðum Bobs Dylan
LYRICS 1962-1985
Höfundur: Bob Dylan.
Paladin Grafton Books, 1988.
Eitt af því, sem öðm fremur laðar
fram í hugann andblæ sjöunda ára-
tugarins í Bandaríkjunum, eru söng-
ljóð Bobs Dylan. Hann kom fram á
sjónarsviðið þegar öldur mikilla
breytinga voru að rísa. Söngvar
hans, vopn orða vafin í tóna, urðu
hluti af því sem þá var að gerast
meöal ungu kynslóðarinnar, jafn-
framt því sem umbyltingarnar settu
mark sitt á söngva hans og ljóð.
Bob Dylan var einungis einn
margra alþýðusöngvara sem fram
komu á þessu tímabih. Hann reynd-
ist hins vegar þeirra frumlegastur
sem listamaður: þess vegna lifa
margir söngva hans enn í dag og það
ekki aðeins sem lind endurminninga
í hjörtum miöaldra hippakynslóðar.
í þessari bók hefur verið safnað
saman söngtextum Dylans frá árinu
1962, er hann hóf að semja lög og
texta, fram til ársins 1985. Hér má
lesa fyrstu tilraunir hans til söng-
ljóðagerðar, textana frá miðjum sjö-
unda ártugnum, sem ahir tengja
nafni hans, og síðari tíma söngljóð
sem mörg hver hafa ekki falliö í góð-
an jaröveg hjá gömlum aödáendum
hans.
Auk söngtextanna má hér einnig
lesa ljóðrænar greinar sem Dylan
ritaði th prentunar á kápuumslög
sumra hljómplatna sinna en þar seg-
ir hann oft jafnmikið eða meira um
hugsanir sínar og viðhorf en í söng-
ljóðunum sjálfum.
í mínum huga eru ýmsir textar,
sem Dylan samdi á sjöunda áratugn-
um, langbestu verk hans. Andblær
þess tíma lifnar í minni viö lestur
söngljóða á borð við The Times They
Are A-Changin’, Mr. Tambourine
Man, Like a Rolling Stone, Tombs-
tone Blues, Highway 61 Revisited,
Desolation Row og margra fleiri.
Þrátt fyrir breytta tíma hefur Bob
Dylan haldið áfram að semja lög og
texta. Söngljóö hans frá síðari árum
sýna að hann hefur margt vel gert
að undanförnu. Það kann að hafa
leitt til vanmats á síðari verkum
hans hversu nátengdur hann er í
hugum margra þeim hömlulausu
vorleysingum sem hófust í banda-
rísku þjóðlífi og flæddu yfir hvert
þjóðfélagið af öðru á sjöunda ára-
tugnum.
Leyndarmál í fortíðinni
PEARLS
Höfundur: Celia Brayfield.
Penguin Books, 1988.
Perlur eru ein af þessum sjö hundr-
uð blaðsíðna skáldsögum um konur
sem rísa upp úr erfiðleikum og leggja
undir sig heiminn. Slíkar sögur virð-
ast njóta mikiha vinsælda nú á dög-
um og verða gjaman að framhalds-
myndaflokkum í sjónvarpi.
Áð þessu sinni eru það systur, Cat-
hy og Monty, sem yfirstíga alls kyns
vandamál í peningamálum og ásta-
málum og komast í fremstu röð, hvor
á sínu sviði: Cathy sem drottning
fiármálaheimsins og Monty sem
gyðja rokksins.
En þegar þær hafa nú loks náð á
toppinn eftir margar og þungar
þrautir beinist athygli þeirra að
leyndarmálum í fortíðinni. Það kem-
ur sem sé i ljós aö ekki er allt sem
sýnist um uppruna þeirra.
Sagan er lipurlega skrifuð og ágæt-
is afþreyingarlesning þar sem bland-
aö er saman spennandi atburðarás,
sem reyndar nær allt aftur til síðari
heimsstyrjaldarinnar, og hispurs-
lausum lýsingum á ástarævintýrum
söguhetjanna.
Metsölubækur
Bretland
Söluhæstu kiljurnar:
1. James Herbert:
SEPULCHRE.
2. Edward Rutherfurd:
SARUM.
3. Wilbur Smith:
RAGE.
4. Virginia Andrews:
THE GARDEN OF SHADOWS.
5. Susan Howatch:
GLITTERING IMAGES.
6. Bruce Chatwin:
SONGLINES.
7. Maeve Binchy:
ECHOES.
8. Calherlne Cookson:
THE PARSON'S DAUGHTER.
9. Saily Beauman:
DESTINY.
10. Milan Kundera:
THE UNBEARABLE UGHTNESS
OF BEING.
Rit almenns eðlis:
1. Rosemary Conley:
THE HIP AND THIGH DIET.
2. Frances Edmonds:
CRICKET XXXX CRICKET.
3. wilfred Thesigcr:
THE UFE OF MY CHOICE.
4. PROMS '88
5. Geoffrey Boycott:
BOYCOTT: THE AUTOBIO-
GRAPHY.
6. Bob Ogiey:
IN THE WAKE OF THE HURRI-
CANE.
7. FARMHOUSE KITCHEN COOKING
FOR ONE AND TWO.
8. Anthony Burgess:
LITTLE WILSON AND BIG GOD.
9. Rlchard Dawkins:
THE BLIND WATCHMAKER.
10. Nancy Kohner:
HAVING A BABY.
(Byggt á The Sunday Times)
Bandaríkin
Metsölukiljur:
1. Stephen Klng:
MISERY.
2. Scotf Turow:
PRESUMED INNOCENT.
3. Doris Mortman:
FIRST BORN.
4. Jude Deveraux:
THE AWAKENING.
5. Johanna Lindsey:
TENDER REBEL.
6. Louis L’Amour:
THE HAUNTED MESA.
7. Oavld Dvorkin:
TiMETRAP.
8. Danielle Stcel:
FINE THINGS.
9. Douglas Adams:
DIRK GENTLY'S HOLISTIC
DETECTIVE AGENCY.
10. Robert A. Heinleln:
TO SAIL BEYOND THE SUNSET.
11. Marge Plercy:
GONE TO SOLDIERS.
12. Lawrence Sanders:
THE TIMOTHY FILES.
13. Wayland Ðrew:
WILLOW.
14. Alexandra Ripley:
NEW ORLEANS LEGACY.
15. Pat Booth:
THE SISTERS.
16. Dale Brown:
FLIGHT OF THE OLD OOG.
Rit almenns eðlis:
1. Bernie S. Siegel:
LOVE, MEDICINE & MIRACLES.
2. Ravi Batra:
THE GREAT DEPRESSION OF
1990.
3. Allan Bloom:
THE CLOSING OF THEAMERIC-
AN MIND.
4. Patty Duke, Kenneth Turan:
CALL ME ANNA.
5. M. Scotf Peck:
THE ROAD LESS TRAVELEO.
6. E.D. Hírsch Jr.
CULTURAL LITERACY.
7. Joseph Campbell, Bill Moyers:
THE POWER OF MYTH.
8. Nlen Cheng:
LIFE AND DEATHIN SHANGHAI.
9. Bill Cosby:
FATHERHOOD.
10. Judith Viorst:
NECESSARY LOSSES.
{Byggt á New York Times Book Review)
Danmörk:
Metsölukiljur:
1. Elspeth Huxley:
FLAMMETRÆERNEITHIKA (3).
2. Milan Kundera:
TILVÆRELSENS ULIDELIGE
LETHED. (2).
3. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERENE. (1).
4. Jean M. Auel:
HULEBJORNENS KLAN. (4).
5. Jean M. Auel:
HESTENES DAL. (6).
6. isabel Allende:
ANDERNES HUS. (5).
7. Helle Stangerup:
CHRISTINE. (8).
8. Anais Nin:
DAGBOG 1931-1934. (7).
9. Andersen-Nexö:
PELLE EROBREREN. (9).
10. Göran Tunström:
TYVEN. (-).
(Tölur Innan svlga tékna röfi bfikar vikuna
á undan. Byggt á Politiken Sondag.)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
HYPHOTHERAPY
For EVER YúNt
*****
WMIITIS
HÖWIIDEVEIOFED
ÖÖW ITCflS HELF18!)
WBERE10 FIKD TREðTMEKT
Lækningar á
huga og líkama
OSTEOPATHY FOR EVERYONE
Höfundur: Paul Masters.
HYPNOTHERAPY FOR EVERYONE
Höfundur: Ruth Lever.
Penguin Books, 1988.
í þessum bókum eru tvær ólík-
ar tegundir lækninga skýröar af
sérfræöingum fyrir leikmönnum.
Önnur aðferðin beinist að vöðv-
um, beinum og liöamótum líkam-
ans, hin að huganum.
Dálækningar hafa löngum
valdiö miklum deilum meðal
leikra sem læröra. Reyndar
munu fleiri kannast við dá-
leiðsluaðferðina sem skemmtun
en lækningatæki, enda eru dá-
valdar vinsælir en umdeildir
skemmtikraftar.
í bókinni er saga dáleiðslunnar
rakin, gerð grein fyrir þeim deil-
um sem henni hafa fylgt, út-
skýröar ýmsar svokallaðar rang-
hugmyndir almennings um dá-
leiðslu (m.a. fullyrt að dávaldur
geti ekki látið sjúkling gera neitt
þaö sem sé algjörlega andstætt
vilja hans) og bent á þá sjúkdóma
sem meðhöndla megi á árangurs-
ríkan hátt með dáleiðsluaðferð-
um. Einnig er fiallað um hina
umdeildu djúpu dáleiðslu þar
sem hinir dáleiddu rekja gjarnan
„minningar" frá fyrri lífum sín-
um á jörðinni.
Bókin er greinilega samin af
þekkingu á viöfangsefninu og trú
á dáleiðslu sem aðferð til að auka
í vissum tilvikum andlega og lík-
amlega vellíðan og draga úr sárs-
auka.
Hin bókin fiallar á hliðstæðan
hátt um bein- og liðskekkjulækn-
ingar sem notið hafa vaxandi vin-
sælda á undanförnum árum. Þar
em nuddaðferðir notaðar til þess
að draga úr eða eyða verkjum, til
dæmis í baki og hálsi.
í bókinni er sögulegur bak-
grunnur þessara lækninga rak-
inn en síðan fiallað um tiltekin
vandamál og þær aðferðir sem
notaðar eru við lausn þeirra.
Þannig eru sérkaflar um verki í
hálsi og öxlum og tveir kaflar um
bakverki ýmiss konar. Einnig er
sérstaklega fiallaö um nokkur
þau atriöi daglegs lífs sem miklu
máli skipta fyrir líkamlega vellíö-
an, svo sem fæðuval, stöðu eða
setu við vinnu og áreitni í starfi
og einkalífinu.
Bækurnar gefa góöa hugmynd
um meginatriði þessara ólíku að-
ferða. En enginn lærir af þeim
að lækna sig sjálfur. Þær geta
einungis orðið lesendum til al-
menns fróðleiks og nokkurrar
leiðbeiningar um hvort ástæða sé
fyrir þá að leita til sérfræðinga í
þessum fræðum með kvilla sína.
OSTEOPATHY
For EV'ERYúNt
WBftHTiS
HOWIT DEVEIDPED
BBWiICaiiHElPYÖU
WHERETO HND TREATMEHT
yif|p|
IfÍ « «88 M