Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 22
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ .1988.
RHPI l.TTlí. P 9TTf)/\nf? ATmT * t
Gamanleikkona allra tíma á skjánum í kvöld:
Rauðhærð, íyndin og ótta-
legur hrakfallabálkur
- Lucy Ball rifjar upp bestu brotin
an sjötta áratuginn til að leika á
Broadway. Síðar kom hann fram í
þáttum í sjónvarpi og leikstýrði
minnst tveimur bíómyndum. Lík-
legast eru ekki margir sem muna
eftir leikaranum í dag.
Red Skelton kemur einnig fram í
þættinum í kvöld. Hann var öllu
frægari en Lamas, rauðhærður
gamanleikari. Meðal frægustu
hlutverka hans, og reyndar alvar-
legs eðlis, var Dr. Kildare. Meðal
kvikmynda sem Skelton lék í voru:
Lady Be Good (1940), DuBarry Was
a Lady (1943), I Dood It (1943), The
Show-Off (1947), Three Little Words
(1950), Public Pigeon Number One
(1957) og Those Magnificent Men
in Their Flying Machines (1965).
Sjálfsagt þekkja margir af elstu
kynslóðinni þessar myndir sem
sýndar voru hér á uppgangstímum
bíóhúsanna.
ELA
Gamanleikkonuna Lucy Ball
þekkja allir sjónvarpsáhorfendur.
Hún er á skjánum á nýjan leik í
kvöld þar sem rifjuð eru upp
skemmtileg brot úr þáttum hennar
I Love Lucy sem gerðir voru á
sjötta áratugnum. Áður hefur sjón-
varpið sýnt einn slíkan þátt en þeir
verða þrír. Það voru Lucy og dóttir
hennar, Lucie, sem völdu þátta-
brotin.
„Þetta eru skemmtilegir þættir
ogfyndnir," sagði Ólöf Pétursdóttir
þýðandi í samtali við DV. í þættin-
um koma fram þijú brot úr þáttum
Lucy sem eiga það sameiginlegt að
hafa ekki veriö sýndir í sjónvarpi
í yfir tuttugu ár. I fyrsta þættinum
fara hún og eiginmaðurinn, Ricky,
(Desi Amaz) til Alaska þar sem þau
hyggjast kaupa landareign. Þau fá
ekki inni á gistiheimih og lenda á
hrakhólum í ekki allt of skemmti-
legu veðri. Með þeim eru hjónin
Viv og Fred. Þetta er ævintýraferð
þar sem þau rekast á leikarann
fræga, Red Skelton, sem leikur
sjálfan sig.
í næsta broti em hjónin í Japan
þar sem þau gista á glæsilegu jap-
önsku hóteli. í næsta herbergi við
þau er leikarinn frægi, Robert
Comming, sem einnig leikur sjálf-
an sig. Þær Lucy og Viv em auðvit-
að upprifnar yfir því að svo frægur
maður skuli búa á hótelinu. í síð-
asta þættinum fer Lucy í frí án
Ricky í skíðaparadís. í stað þess að
viðurkenna hversu hún saknar
hans reynir hún að gera hann af-
brýðisaman. Þar kemur fram leik-
arinn Fernando Lamas.
Rekin úr skóla
Án efa geta margir skemmt sér
yfir Lucy Ball og hennar heimsku-
pörum og uppátækjum. Reyndar
var Lucy mjög ung er hún upp-
götvaði hæfileika sinn að koma
öðmm til að hlæja. Hún var fædd
6. ágúst 1911 í Jamestown í New
York og vantar því aðeins mánuð
í aö verða 77 ára. Hver skyldi trúa
því? Lucy er sögð skærasta stjarna
gamanleikara í sögu sjónvarpsins.
Hún stundaði nám í leiklistarskóla
John Murray Anderson en var rek-
in þaðan. Ekki er vitað um ástæð-
una en Lucy fékk engu að síður
strax smáhlutverk í kvikmyndum.
Var það helst að þakka hve vel hún
leit út. Yfirleitt var hún í hlutverk-
um stúlkna sem ekki voru með of
háa greindarvísitölu.
Lucy Ball skortir ekki greind.
Þegar hún kynntist fyrri eigin-
manni sínum Desi Amaz (þau giftu
sig árið 1940) fóm þau að huga að
eigin þáttagerö. Fyrsta þáttaröð
þeirra, I Love Lucy, var sýnd í sjón-
varpi árið 1951. Þá fór Árnaz með
hlutverk eiginmannsins. Úr þeim
þáttum er verið að sýna í sjón-
varpinu í kvöld.
Lucy ól dóttur þeirra um svipað
leyti og þættirnir byijuðu en þegar
sonur þeirra, Desi yngri, fæddist
árið 1954 var þess getið í öllum
heimsblöðum. Þá var Desi Amaz
betur þekktur sem Ricky Ricardo
en þaö var nafnið sem hann notaði
í þáttunum. Þau Lucy og Desi
Amaz skildu árið 1960 og varð þá
nokkurt hlé á þáttunum um Lucy.
Þau höfðu stofnað meö sér fyrir-
tæki, sjónvarpsþáttaframleiðslu,
Desilu. Þá sýndi það sig hversu
gott fjármálavit Lucy hefur því hún
keypti hlut Amaz á þijár milljónir
dollara. Fyrirtækið var mun meira
virði enda seldi Lucy það ekki
löngu seinna til Gulf og Western á
sautján milljónir dollara.
Hélt áfram að leika
Eftir skilnaðinn lék Lucy um
tíma á Broadway í söngleiknum
Wildcat en sneri sér aftur að sjón-
varpi 1962. í millitíðinni hafði hún
gifst Gary Morton og hefur hjóna-
band þeirra haldist síðan. Lucy
gerði nýja þætti, The Lucille Ball
Show, sem síðar fengu nafnið
Here’s Lucy. Meö henni var leik-
konan Vivian Vance, sem alla tíö
hefur haldið tryggð við Lucy. Þætt-
imir gengu allt til ársins 1974.
Lucy var ekki á því að gefast upp
og sneri sér aö kvikmyndaheimin-
Lucy Ball er að nalgast áttrætt. Hér
og Andy Griffith, betur þekktum sem
um í Hollywood. Hún gerði nokkr-
ar gamanmyndir, t.d. Critic’s Cho-
ice með Bob Hope, Yours, Mine and
Ours með Henry Fonda og söng-
leikinn Mame.
er hún ásamt dóttur sinni, Lucie,
Matlock.
Lucy bjó í Beverly Hills ásamt
eiginmanninum Gary Morton
framleiðanda og börnum sínum frá
fyrra hjónabandi. Dóttir hennar
reyndi fyrir sér í „show business"
og Lucy hélt vemdarhendi yfir
börnum sínum. Eftir að hafa starf-
aö með CBS sjónvarpsstööinni í
þrjá áratugi undirritaði Lucy
samning við NBC sjónvarpsstöðina
upp á milljónir dollara. Árið 1980
var sýndur fyrsti þátturinn með
Lucy hjá NBC. Árið 1984 tók hún
sér frí, fluttist til Manhattan og
sagðist ætla að vera nær barna-
bömum sínum. Alhr vissi að sonur
hennar, Desi, átti við eiturlyfja-
vandamál að etja og hefur Lucy
einnig séð ástæðu til aö hjálpa hon-
um úr vandræöum sínum.
Allir undrandi
Lucy Ball gerði marga stórundr-
andi, jafnvel sína nánustu vini, er
hún undirritaði samning við ABC
sjónvarpsstöðina. Þar átti hún að
sjá um vikulega þætti sem áttu að
fara í gang 1986
Lucy, sem nú nálgast áttrætt
þyrfti ekki að vinna úti því sannar-
lega er hún ekki á flæðiskeri stödd
fjárhagslega. Hún á íbúð í miðborg
New York, hús í Beverly Hills og í
Palm Springs. Árstekjur hennar
nema minnst um 17 milljónum
dollara.
Eftir miklar áhyggjur af syni sín-
um Desi Arnaz rættist úr fyrir hon-
um á síðasta ári og riýlega kvæntist
hann ballettdansmey. Lucy getur
því átt áhyggjulausa daga þaö sem
eftir er en það hefur einmitt þótt
undravert hversu konan hefur get-
aö skemmt öðrum öll þessi ár þrátt
fyrir miklar áhyggjur af börnum
sínum.
Fyrir þá sem hafa gaman af að
spá í gömlu leikarana, sem fram
koma í þættinum í kvöld, skal þess
getið að Femando Lamas var mjög
þekktur Hollywoodleikari á sjötta
áratugnum. Hann var fæddur árið
1915. Fyrsta mynd hans hjá MGM
kvikmyndaverinu, sem reyndar
var söngleikurinn Rich, Young and
Pretty, var frumsýnd árið 1951.
Lamas hafði mjög fallega rödd og
h'afði reyndar bæði verið þátta-
gerðarmaður í útvarpi og leikið í
evrópskum og suður-amerískum
myndum er hann sneri til Holly-
wood. Röddin og útlitið gáfu hon-
um annað tækifæri og þá í kvik-
myndinni The Merry Widow sem
frumsýnd var 1952 og Rose Marie
árið 1954. Lamas náði nokkmm
vinsældum í kvikmyndum sínum
en sneri þó frá Hollywood um miðj-
kona Lucy Ball fer á kostum í
hverjum þættinum af öörum.
Þáttabrotin, sem sýnd verða í
kvöld, eru yfir tuttugu ára.