Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 24
24 Breiðsíðan LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ1988. ____________________ Ungir leikarar sýna í Hollandi og Vín: - segir Magnús Geir Þórðarson, 14 ára leikstjóri Magnús Geir Þórðarson: Ég hef alltaf ætlað að verða leikari og stend við það. DV-mynd JAK „Þetta er erfitt en líka svakalega skemmtilegt. Sérstaklega hefur verið mikið að gera hjá okkur síðustu tvær vikurnar en það er þess virði.“ Svo sagði Magnús Geir Þórðarson, fjórt- án ára leikari og leikstjóri, sem nú er staddur ásamt leikhóp sínum, Gaman Leikhúsinu, í Hollandi. „Okkur var boðið að koma í fyrra á leiklistarhátíð í Hollandi ásamt fimmtán öðrum leikhópum frá íjórt- án löndum. Við vorum eini hópurinn sem starfar án aöstoðar fullorðinna. Aðrir hópar voru með minnst fimm fullorðna með sér,“ sagöi Magnús Geir. „Gaman Leikhúsið vakti at- hygli sem varð til þess að okkur er boðið að koma aftur og sýna en einn- ig fengum viö boð frá Austurríki." Magnús Geir sagöi að eftir hálfs mánaöar dvöl í Hollandi fari hópur- inn til Vínar og muni dvelja þar í nokkurs konar leiklistarskóla. „Auk okkar í Gaman Leikhúsinu fara þrír krakkar frá Hólmavík, sem við mun- um hitta í Amsterdam þann 16. júlí. Þó að um leiklistarhátíð sé að ræða í Vín setjum við ekki upp sýningu þar heldur sitjum í leiksmiðju frá 10-12.30 og æfum leikrit eftir hádegi. Dagskráin er öll fyrirfram ákveðin og skipulögö og í lokin verður sett upp sameiginlegt leikrit allra gesta og heimamanna," sagði Magnús. „Við veröum hálfan mánuð í Vín og aldurstakmarkið er 12-14 ára.“ Magnús rétt sleppur með þar sem hann er orðinn 14 ára en hann hefur verið í leiklist frá 8 ára aldri. „Ég byrjaði í Barnaleikhúsinu Tinnu en þegar það lagði upp laup- ana ákváðu nokkrir af nemendum úr Tinnu að setja upp eigiö leikhús án fullorðinna. Það gekk vel, nema hvað við höfum verið á hrakhólum með húsnæði. Nú síðast höfum við haft aðstöðu í Melaskóla." Sjö félagar úr leikhópnum fara í ferðalagið og varð að miða leikritið við sem fæsta leikara. „Farmiðarnir eru svo dýr- ir,“ útskýrði Magnús Geir. „Við er- um félagar í Bandalagi íslenskra leikara og áður en fórum lásum við fjölda leikverka. Eftir mikla yfirlegu ákváðum við að taka söngleikinn Kötturinn fer sínar eigin leiðir sem byggður er á gamalli sögu Rudyards Kipling. Ólafur Haukur Símonarson gerði íslenskt handrit og samdi texta við lög Gunnars Þórðarsonar.“ Krakkarnir eru búnir að æfa söng- leikinn frá því um miðjan febrúar og voru með „generalprufu“ í Bæjar- bíói í Hafnarfirði sl. þriðjudagskvöld. „Æfingin gekk stórkostlega vel og við fengum mjög góðar viðtökur. Við erum viss um að söngleikurinn verð- ur auðskildari en leikrit með miklum texta þar sem við eigum að flytja verkið á móðurmálinu,“ sagði Magn- ús Geir. „Sumir okkar eru frábærir söngvarar." Magnús Geir hefur mikla reynslu miðað við aldur því hann hefur leik- ið í þremur kvikmyndum, Hrafninn flýgur, Reykjavík, Reykjavík og í skugga hrafnsins. Einnig hefur Magnús leikið í nokkrum sýningum Þjóðleikhússins og í sjónvarpsleik- ritum. „Ég hef alltaf ætlað mér að verða leikari og það á ekki eftir að breytast. Það kemur ekkert annað tiT greina. Ætli ég fari ekki í mennta- skóla þegar ég hef lokið námi í Haga- skóla og síðan í Leiklistarskólann. Mér sýnist allt stefna i að að Leiklist- arskólinn verði háskóli því stúdents- próf er nauðsynlegt til inngöngu," sagði þessi fullorðinslegi unglingur. Hópurinn hélt á vit ævintýranna í fyrradag og verður gaman aö fylgjast með móttökum ungmennanna í út- löndum. Egill Eðvarðsson hjá Hugmynd hefurhaftþað verkefni með höndum aö gera myndband fyrir ABBA-söngkonuna frægu, Ag- nethu Faltskog. Egiil erað leggja síöustu hönd á myndbandið en söngkonan gerir sér miklar vonir um að lagjðl Wasn’t the One eigi eftir að ná vinsældum í kjölfar þess. Nýja plata söngkonunnar, I Stand Alone, hefur ekki selst mjög vel og eyddi Agnetha því á fjóröu milljón í tveggja daga upp- töku í Stokkhólmi. Og það var sem sagt íslendingurinn sem fékk verkið... ☆ ☆ ☆ Amar Páll Hauksson, sem starf- að hefur sem aðstoðarfréttastjóri Bylgjunnar frá stoftiun hennar, hefur nú ákveðið að færa sig eins ogfleirifréttamenn stöðvarinn- ar. Hann er nú á leið á ríkissjón- varpið höfum við heyrt en Bjami Westmann, fyirum fréttamaður Bylgjunnar, hefur þegar flutt sig yfir. Áður hafði Ámi Snævarr flutt sigaf Bylgjunni til Sjón- varpsins. Sérstætt nú þegar allir kappkosta að starfa hjá einka- geiranura... ☆ ☆ ☆ Cybill Shepard hefur sagt frá því að fyrsta ástin hennar hafi verið rokkkóngurinn Elvis Presley. Það var i Memphis árið 1966 og hún var aðeins 16 ára en Elvis næstum helmingi eldri. Cybill hafði sigrað í keppninni Ungrú Memphis og var kosinljós- myndafyrirsæta ársins þegar El- vis uppgötvaði hana. Hann bauð henni stöðugt út með sér og tók hana með sér á eigin tónleika. í eitt skipti fór hún með til Las Vegas. Cybill segist hafa elskað tónlistina hans en rokkkóngur- inn var of gamall fyrir henar smekk... ☆ ☆ ☆ Menn hafa mismundandi áhuga- mál eins og gengur. William Las- ken frá Kaliforníu hefur safnaö fimm hundruð bindum í öllum litum, munstrum og gerðum. Sumar gerðirnar léti enginn fs- lendingur sjá sigmeð. Bindineru flest frá fjórða og fimmta ára- tugnum og öll úr silki. Nýmóðins bindum úr brakandi polyester og plasti hefur Lasken ekki áhuga fyrir, Einfaldur smekkur enda segist Lasken eingöngu safna bindum vegna þess hve honum finnistþaufalleg... ☆ ☆ ☆ Mick Jagger hefur harðbannað sextán ára dóttur sinni, Jade, að leika í kvikmyndinni Naked Tango. Bianca, fyrrverandi kona Jaggers ogmóðir stúlkunnar, var á sama máli og faðirinn. Ástæð- una sögðu þau vera að skólinn hefði forgang og myndin ekki við þeirrahæfi. DV-myndbrot vikunnar Spenntir vöðvar, kröftuglegur vöxtur, litlar buxur og brúnn kroppur. Myndbrot vikunnar eru að þessu sinní tekin á vaxtarræktarmóti. Kroppur- inn kemur frá Finniandi en litið vitum við meira um hann. Vaxtarrækt hefur á undanförnum árum heiilað æ fleiri, jafnt konur sem karla. Þó eru kannski enn fleiri sem gaman hafa að því að sýna vel æfðan kropp- inn eins og berlega kom i Ijós á Norðurlandamótinu i vaxtarrækt sem haldið var hér á iandi i vor. Jóhann A. Kristjánsson, Ijósmyndari DV, myndaði marga kroppana á mótinu, t.d. þennan sem reyndist þó ekki sigurvegari þegar upp var staðið. Myndin er engu að siður skemmtileg og fær að skreyta Breiðsíð- una að þessu sinni. -ELA Þú ert 2000 krónum ríkari Nokkrar KR-stúlkur voru á sundæfingu í Vesturbæjarlauginni í vikunni er Ijósmyndari DV var þar á ferö. Heppnin var með einni stúlkunni því hún er nú tvö þúsund krónum rikari. Vinningsins má vitja á ritstjórn DV, Þverholti 11. Nú í nokkur skipti hafa börn og unglingar lent í hringnum hjá okkur, enda er ungviðið alltaf skemmtilegt myndefni hjá Ijósmyndurum. Tvö þús- und krónurnar ættu lika að koma sér vel hjá þessum aldurshópi sem er undir því aldurstakmarki að fá vinnu. Þessi unga stúlka, til vinstri á mynd- inni, er því sú heppna þessa vikuna. í siðustu viku var það sjö ára drengur frá ísafirði sem lenti i hringnum. Ljósmyndari DV náði mynd af honum þar sem hann var að skalla bolta á fótboltanámskeiði á íþróttavellinum á ísafirði. Hann heitir Halldór Pálmi Bjarkason og sagðist vera mjög stoltur af heppni sinni að lenda í hringn- um, ekki síður en að geta skallað boltann jafnflott og raun bar vitni. ELA/DV-mynd JAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.