Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 25
LAUGARDAGUR 2 JÚLÍ 1988.
25
Breidsíðan
Bókakaffi í miðbænum
Rjúkandi kaffi og
nýjustu blöðin...
Bókaormar fara ekki fram hjá
bókaverslunum þar sem þeir ferö-
ast um í veröldinni. Þeir sem lagt
hafa leiö sína í bókabúðir á er-
lendri grund kannast við svokölluö
bókakafS; bókaverslanir þar sem
hægt er að tylla sér niður, sötra
gott kaffi og slappa af; rétt á milli
þess sem bækur eru skoðaðar. Og
ekki er verra að geta kíkt í nýjustu
dagblöðin á meðan.
Um síðustu áramót var opnað
bókakafii í Reykjavík. Þar er lögð
aðaláherslan á að vera með nýjustu
dagblöð og tímarit víðs vegar úr
heiminum. Dagblöðin koma í Bó-
kakafii eins til tveggja daga gömul.
Um er að ræða blöð frá Noröur-
löndunum, Bretlandi, Bandaríkj-
unum; fjölda blaða frá Ítalíu,
Frakklandi og Spáni, sem og ann-
ars staðar að.
Ýmis tímarit er þarna að finna sem
ekki er hægt að nálgast annars
staðar hér á landi. Mikið úrval
hönnunar- og arkitektatímarita er
á boðstólum og svo má ekki gleyma
öllum íslensku landsmálablöðun-
um.
„Hjá okkur eru tímaritin og blöð-
in ódýrari en í öðrum bókaverslun-
um vegna þess að við flytjum þau
sjálf inn,“ sagði Helga Brekkan,
einn aðstandenda Bókakafiis, í
samtali við DV.
„Þá eru dagblöðin einnig komin til
okkar fyrr en í aðrar búöir.“
í Bókakafii er að finna gott úrval
ýmiss konar „neðanjarðarútgáfu“;
bóka og annarra verka sem lista-
mennirnir koma með sjálfir í búð-
ina og fá seld fyrir sig. Listamenn
hafa fengið verk sín sýnd á veggj-
um kafiíhússins þannig aö Bóka-
kaffi er líka listagallerí.
Að sögn Einars Guðjónssonar,
annars aðstandenda Bókakaffis,
hefur fólk vel kunnað að meta þetta
innlegg í kaffihúsalíf borgarinnar.
Staðurinn er mjög vinsæll af út-
lendingum, búsettum hér á landi,
enda gefst þeim þarna tækifæri til
að lesa glæný blöð frá heimalandi
sínu.
Annars er það alls kyns fólk sem
lítur inn og fær sér rjúkandi ex-
presso og með því - og gluggar í
blööin eða fær sér bók.
Þá hefur helgarblaðið hlerað aö
staðurinn sé í miklu uppáhaldi hjá
Sykurmolunum; þeir eru víst með-
al tryggustu fastagesta.
- RóG.
Unnur Dís, starfsmaður Bókakaffis, við afgreiðsluborðið.
DV-mynd JAK
w w
NYR VOLVO A OTRULEGU VERÐI!
70-200 þús. kr.
Útborgun 25%, eftirstöðvar á 18-30 mánuðum
Verðskrá júlí 1988. Gengi 28.06.
Gerð Dyr Hö Gírar Verð Verð Gerð Dyr Hö Gírar Verð Verð
16.maí í júlí 16.mai í júlí
340 DL Rio Hatchback 5 72 .4 710.000 640.000 240 GLI Station 5 121 5 1.145.000 1.033.000
340 GL Rio Hatchback 5 82 5 792.000 715.000 240 GLT Station 5 129 4 + 1 1.352.000 1.194.000
340 GL Rio Diesei Hatchback 5 54,5 5 805.000 727.000 740 GL 4 117 5 1.290.000 1.139.000
360 GL Rio Hatchback 5 102 5 836.000 755.000 740 GL 4 117 Sjálfsk. 1.354.000 1.196.000
360 GLT Rio Hatchback 5 111,5 5 947.000 855.000 740 GLI 4 121 5 1.240.000 1.148.000
340 DL Paloma 4 72 4 729.000 658.000 740 GLE 4 131 4 + 1 1.407.000 1.243.000
340GL Paloma 4 82 5 812.000 733.000 740 GLE 4 131 Sjálfsk. 1.574.000 1.390.000
340 GL Diesel Paloma 4 54,5 5 814.000 735.000 740Turbo 4 182 4 + 1 1.911.000 1.725.000
360GLPaloma 4 102 5 855.000 771.000 740 Turbo 4 182 Sjálfsk. 1.988.000 1.794.000
360 GLT Paloma 4 111,5 5 996.000 872.000 740GLStation 5 117 5 1.493.000 1.319.000
480 ES 3 109 5 1.361.000 1.307.000 740 GL Station 5 117 Sjálfsk. 1.568.000 1.385.000
240 DL 4 116 5 1.065.000 941.000 740 GLI Station 5 121 5 1.353.000 1.221.000
240 DL 4 116 Sjálfsk. 1.108.000 979.000 740 GLE Station 5 131 4 + 1 1.633.000 1.474.000
240 GL 4 116 5 1.083.000 957.000 740 GLE Station 5 131 Sjálfsk. 1.718.000 1.517.000
240 GL 4 116 Sjálfsk. 1.148.000 1.014.000 740TurboStation 5 182 4 + 1 2.089.000 1.885.000
240 GLI 4 121 5 1.058.000 958.000 740 TurboStation 5 182 Sjálfsk. 2.177.000 1.965.000
240 GLT • 4 129 4 + 1 1.237.000 1.093.000 760 GLE 4 155 Sjálfsk. 2.286.000 2.194.000
240 GL Station 5 116 5 1.230.000 1.086.000 760 GLE Station 5 155 Sjálfsk. 2.498.000 2.398.000
240 GL Station 5 116 Sjálfsk. 1.299.000 1.147.000 780 Bertone 2 156 Sjálfsk. 3.860.000 3.705.000
Ryðvörn alltaf innifalin í verði.
/3ife\
{VOLVOÍ % ORYGGI í - Í Umboðsaðilar Veltis: {VOLVOJ ^ ORYGGI J
Bilás sf., Þjóðbraut 1, 300 Akranesi.
Bílasala Vesturlands, Borgarbraut 56, 310 Borgarnesi.
Vélsmiðjan Þór hf., Suðurgötu 9, 400 ísafirði.
Opið alla daga
frá kl. 9.00 til 18.00
Laugardaga
frá kl.10.00 til 16.00
Vélsmiðja Bolungarvikur hf., Hafnargötu 53-61, 415 Bolungarvík.
Bókabúð Brynjars, Suðurgötu 1, 550 Sauðárkróki.
Þórshamar hf., bifreiðaverkstæði, 600 Akureyri.
Jón Þorgrímsson, Garðarsbraut 11, 640 Húsavík.
ClfeÍtir
Skeifan 15 - Sími 6916 00 - 691610
Volvo 240 GL, 5 gíra, m/vökvast.
Kr. 1.083.000,-
126.000,-
Verð m/ryðvörn kr. 957.000,-