Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988. Popp Ómar Óskarsson lætur frá sér heyra að nyju - sólóplata hans, Rækjukokkteill, er að koma út Einhverjir muna eflaust enn eftir Ómari Oskarssyni. Hann lék á gítar með einni alvinsælustu hljómsveit áttunda áratugarins, Pehcan, þeirri sömu og var endurreist í nokkrar vikur síðasthðinn vetur. Fram til þess hafði Ómar haldiö sig frá sviðs- ljósunum að mestu leyti í tólf ár. En nú kveður hann sér hljóðs aö nýju með sólóplötunni Rækjukokkteil sem er að koma út þessa dagana. „Ég flækist dáhtið um tónlistarlega á plötunni. Rígnegh mig ekki við neina eina stefnu en held þó að mér og þeim sem leika með mér á plöt- unni hafi tekist að hafa á henni góð- an heildarsvip," segir Ómar. Hann hljóðritaði plötuna í Stöðinni hjá Axel Einarssyni, gömlum félaga sín- um úr poppinu frá því fyrir mörgum árum. Þeir sem leika með Ómari á Rækju- kokkteilnum eru Ásgeir Óskarsson trommuieikari, Birgir J. Birgis hljómborðsleikari og Jón Ólafsson sem stjórnar upptökum auk þess að leika á bassa. Ómar sér sjálfur um ahan gítar og söng. Fyrir rúmum áratug sendi Ómar Óskarsson frá sér pötuna Middle Class Man. Þar hafði hann flesta þekktustu söngvara þjóðarinnar með sér og allir textar voru á ensku. En ekki að þessu sinni. „Það eru breyttir tímar núna,“ seg- ir Ómar Óskarsson og glottir. „í gamla daga ætluðum viö bara aö nota gamla ísland sem stökkpah til heimsfrægðarinnar. Þá var ótækt aö Omar Oskarsson samdi söngleiki og söng í kirkjukór vestur á fjörðum. Hann er nú kominn í poppið að nýju. DV-mynd S syngja íslenska texta við rokklög. Æth frumorsökin hafi annars ekki verið - eftir á aö hyggja - lélegur orðaforði og það að við réðum ekki við formiö." Helsti textahöfundur Rækjukokk- teilsins er Hafliði Magnússon, Bíld- dælingur sem Ómar kynntist er hann bjó vestra. „Hafliði er fimmtugur unglingur, skáld gott sem fylgir bragfræðinni. Ég held að ljóðaunnendur ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með text- ana,“ segir Ómar. „Ég á sjálfur nokkra texta á plötunni sem Hafliði las yfir og lagfærði hér og þar. Viö fókuserum á samfélagið. Fjöllum kannski um það á dálítið hráslaga- legan hátt. Ef mér tekst að selja svo mikið af plötunni aö ég þurfl ekki að borga með henni er ég ákveðinn í að gera aðra plötu og dálítið mildari. Það hefur safnast það mikið í kistuna af lögum að ég á nóg til um þessar mundir." Þó að Ómar Óskarsson drægi sig úr poppinu um tíma var tónlistin þó alltaf nálæg. Hann og Hafliði, sem fyrr er nefndur, sömdu saman söng- leiki. „Svo tók ég upp á því aö syngja bassa í kirkjukór og síðast en ekki síst lék ég í danshljómsveit í fyrra, Rokkkvörninni hans Sigurðar Páls- sonar á Patreksfiröi." En á ekki aö stofna hljómsveit til að fylgja nýju plötunni eftir? Ómar kveður néi við því. „Það var með herkjum að ég fékk mig til að spila nokkrum sinnum með Pelican í vetur,“ segir hann. „Ef und- irtektirnar við plötunnni verða góðar neyðist ég kannski til að spila eitt- hvað. Það verður bara að ráðast.“ ÁT Stuðkompaníið sendir frá sér „tólftommu" Stuðkompaníið er komið á kreik að nýju. í gær kom út platan „tólf- tomma“ sem er, eins og nafnið bendir til, tólf tomrau plata. Á henni eru lögin Þegar allt er orðið hljótt og Framadraumar. Á plöt- unni eru tvær útgáfur hvors lags um sig, stuttspfl og langspil. Það var Nick Cathcart Jones upp- tökuraaður sem útbjó lengri útgáf- ur laganna tveggja. Jones þykir glúrinn í þvi fagi. Utbjó meðal ann- ars dansútgáfu lagsins So Macho raeð Sinittu, sera er eitt hið mest selda sinnar tegundar í Bretlandi. Það er hljóraplötuútgáfan Steinar sem gefur plötu Stuökompanísins út. Eftir viku kemur sams konar plata út með Greifunum. Aörar plötur, sem Steinar senda frá sér í júlí, eru safnplatan Bongóblíða og Syngjandi sveittir með Sálinni hans Jóns míns. Á Bongóblíðu verða meðal annars lög með fjórum hljómsveitum sem hafa staðið sig vel í Músíktilraunum Tónabæjar. Þaö er að segja Greifunum, Stuð- kompaníinu, Jójó, sem sigraði í vor, og hljómsveitinni Herramönn- um. Hún hefúr afrekað þaö að lenda í ööru sæti keppninnar tvö ár í röð. Þá kemur Sálin hans Jóns míns til með að eiga lag á safnplöt- unni og loks má nefna að þar syng- ur Magnús Kjartansson dreifbýlis- slagarann vinsæla I’m Gonna Get You við íslenskan texta Páls Berg- þórssonar, Vel líst mér á þig. ÁT Stuðkompaníiö lætur loksins frá sér heyra á ný. Yummi Yummi - metsöluplatan í Danmörku í ár Danir eru væntanlega glaðir þessa dagana. Þeir eru búnir að fá Yummi Yummi og nú hafa þeir eitthvað að raula það sem eftir er sumars. Yummi Yummi er nýjasta plata rokkarans Kims Larsen. Það var ljóst áður en platan kom út að hún næði metsölu. Á útgáfudegi, þrettánda júní, höfðu Medley útgáfunni Dan- mörku borist 150.000 fyrirframpant- anir. Síðasta plata Larsens, Midt om natten, seldist í um 400.000 eintökum. Það verður að teljast gott miðað við að í Danmörku búa um fimm milljón- ir manna. Popp Ásgeir Tómasson kæmi einnig við hér. Við höfum hljómkerfið og ljósin. Vantar bara rokkið. ÁT Kim Larsen er ekki einungis vin- sæll í Danmörku. Norðmenn og Svíar eru einnig áhugasamir og trúað gæti ég því að nokkrir íslendingar tryggðu sér eintak af Yummi Yummi stæði þaö til boða í hérlendum plötu- verslunum. Larsen er nú lagður upp í sína árlegu hljómleikaferð um Dan- mörku. Talið er að þegar henni lýkur leggi rokkarinn leið sína tfl ná- grannalandanna. Þaö væri ekki úr vegi fyrir hljómleikahaldara að kanna jarðveginn meö aö Larsen Vinsældir Kims Larsen í Danmörku virðast lítt fara dvínandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.