Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Page 43
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988. 55 Bókanir í utanlandsferðir: Þegar sólin sást tók salan kipp RiitvilMinrniH Aiil J yiirmiMír r\rr vi/llr Dumbungur, súld, rigning og rok. Þessi orö lýsa best því veöri sem Sunnlendingar hafa búið viö undan- famar vikur. DV haföi samband viö nokkrar ferðaskrifstofur og flugfé- lögin til aö kanna hvort almennur fólksflótti væri frá rigningarsvæðinu til útlanda. Hjá Samvinnuferðum svaraöi Helgi Daníelsson því aö nokkuö bæri á auknum fyrirspurnum en ekki væri það mjög mikið. Sagði hann aö mjög mikið væri bókaö í feröir í júlí og ágúst og fá sæti væra eftir í sólar- landaferðir. í aðrar ferðir væra til miðar en nú væri háannatíminn þannig aö í margar ferðir er uppselt. Siguröur Skagfjörö Sigurösson, sölustjóri Flugleiða hér á landi, sagði aö hjá þeim hefði sala veriö eðlileg ef undan era skildir þeir dagar sem sólin heföi sýnt sig. Þá hefði sölufólk orðið vart við ákaflega sterk viðbrög og aukningu í sölu. Hann sagði að bókanir í sumar hefðu verið góðar og að hann væri bjartsýnn á sumarið í þeim efnum. Brynja Runólfsdóttir hjá Pólaris sagði að mikið hefði verið hringt síð- ustu daga og væri greinilegt að fólk væri búið aö fá nóg af tíðarfarinu sunnanlands. Áberandi væru fyrir- spumir og kaup á styttri ferðum og einhver kippur hefði komið í lengri ferðimar. Uppbókað er í margar af sólarlandaferðum Pólaris en þó era til sæti í nokkrar ferðir. Ég ætla að fá miða í næstu ferð Knútur Óskarsson, forstjóri Úrvals, sagði aö sala hefði tekið töluverðan kipp á síðustu dögum. Allt benti til þess að hún yrði svipuð og í fyrra og færi þaö fram úr sínum vonum, LífsstíIL Þeir íslendingar, sem búa sunnanlands, hafa verið vel vökvaðir i vor og sumar. Nú er svo komið að margir panta sér far til útlanda, svona rétt til að kynna sér hvernig sólin litur út. sérstaklega með tilliti til undanfar- innar gengisfelhngar og verkfalla. Sagði hann að þessi tvö atriði hefðu í raun haft mikil áhrif á ferðakaup fólks og rigningartíðin nægði ekki til að vinna það upp. Uppselt er í marg- ar ferðir hjá Úrvali en sem annars staðar eru til sæti í einstaka ferðir. Magnús Oddsson hjá Arnarflugi sagði að tíðarfarið hefði htil áhrif á bókanir í áætlunarflug flugfélagsins. Það væri ómöglegt að segja hvort aukning væri sökum veðurs eða ann- ars. Áætlunarflug sagði hann að gengi vel og sala væri mjög góð. Helgi Magnússon, forstjóri Útsýn- ar, sagði að engin spurning væri um að tíðarfarið heíði veruleg áhrif á eftirspum. Mikið væri hringt og komið og fólk segði gjarnan „ég ætla að fá miða í næstu ferð“. Bókanir sagði hann að heföu verið mjög góðar í sumar. Hjá Útsýn er enn hægt að fá keypt sæti í einstaka sólarlanda- ferðir. Hjá Atlantic sagði Engilbert Gísla- son markaðstjóri að veðriö hefði ekki haft mikil áhrif á söluna. „í raun held ég að þeir góðu dagar, sem kom- ið hafa á milli, ýti heldur á að fólk kaupi ferðir. Þegar þessir dagar hafa komið er brjálað aö gera,“ sagði hann. Hjá Atlantic er eins og annars staðar enn hægt að komast í einstaka ferðir. -E(? I fararbroddi tæknilegra framfara SUBARU yu í \ r iUíil í I; ('1i1 _r__l_j _j j_l_ SUBARU er þeim kostum búinn að vera meira en bara fjöiskyldubíll. Það orð fer af fjórhjóladrifna fjölskyldubílnum frá SUBARU að hann geti brugðið sér í margskonar hlutverk. - Hann hentar jafnvel í tvísýna skíðaferð og leikhúsferð, við sjávarsíðuna og innkaupaferðir - smærri flutninga og fjallaferðir, eða við hinar margbreytilegu aðstæður íslensks þjóðfélags um land allt. AÐALHLUTVERK: SUBARU Ingvar Helgason hf. ~ .. _S Sýningarsalurinn, Rauðagerði Sími: 91 -3 35 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.