Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
17
Lesendur
„Aldrei var nein ástæða til örvæntingar vegna veitingar skólastjórastöðu við ölduselsskóla," segir m.a. í bréfinu.
- ölduselsskóli í Reykjavik.
Deilumar um Ölduselsskóla:
Farsæl lausn
Foreldri skrifar:
Sem foreldri og óbeinn aöili að því
sem kallað hefur verið aðgerðir eða
afskipti vegna deilna um veitingu
skólastjóraembaettisins við ofan-
nefndan skóla þykir mér vænt um
að nú hefur þessum afskiptum veriö
hætt og vonandi allar deilur vegna
skólastjóraembættisins og veitingar
þess úr sögunni.
Það er hins vegar eftirtektarvert
og dæmigert fyrir okkur íslendingá
hvernig viö látum oft stjórnast af
stundarbræði og tilfinningum yfir
hlutum sem engin ástæða er í raun-
inni til aö að gera veður út af. Og í
Týnt
veski
Ólafur hringdi:
Ég týndi veskinu mínu um síð-
ustu helgi, sennilega laugardag,
og líklegur staður er í Artúns-
hverfi. Vekið er svart með
mynstraðri plastáferö. Ökuskir-
teini mitt o.fl. er í veskinu, auk
talsverðrar peningaupphæðar. -
Þetta er mér mikið áfall og kemur
sér vægast sagt illa.
Efþú, sem fannst veskið, treyst-
ir þér ekki til að skila þvi til mín,
þá skilaðu því á lögreglustöðina.
Einnig getin- þú skilað því á ein-
hverja bensínstöðina, helst ná-
lægtÁrtúnshöfða. -Eneinfaldast
væri að hringja í mig í síma
671625 og spyrja um Ólaf. - Fund-
arlaun veröa veitt.
þessu tilfelli var aldrei nein ástæða
til örvæntingar, því hér var málið
ekki stærra en svo að valið stóð milli
tveggja hæfra umsækjenda um
skólastjórastarf, sem var úrskurðað
öðrum þeirra í vil af þeim aðila sem
lögum samkvæmt úrskurðar í slík-
um málum, þ.e. ráðherra.
Eftir stendur því það að engin
ástæða var til fyrir foreldrafélagið
að hafa afskipti af gangi mála. Undir-
skriftum hafði verið safnað í fljót-
heitum og í fljótræði af eldheitum
stuðningsmönnum annars umsækj-
andans, sem áreiðanlega hefur ekki
sjálfur óskað eftir þeim framgangs-
máta,- Þetta mál ætti að geta oröiö
gott „skólabókardæmi" (eins og
venjan er að segja nú á tímum) um
hvemig ekki á að standa að málum,
sem eru í eðli sínu viðkvæm en verða
ávallt torleystari við svona frum-
hlaup.
Mestu skiptir þó að nú hefur fund-
ist farsæl lausn og formlega hefur
lokið afskiptum stjórnar Foreldrafé-
lags Ölduselsskóla af veitingu emb-
ættis skólastjóra við skólarin. Ég
vonast til að foreldrar eigi eftir að
hafa hin bestu samskipti við skóla-
stjóra, yfirkennara og aðra kennara
þessa góða skóla.
Hreykin(n) í
hreinum bíl
•f
Guðm. Þorsteinsson skrifar:
Ég er einn þeirra sem þvo bílinn
oftast sjálfir á bensínstöðvum en fara
svo inn á milli á bílaþvottastöðvar
hér og þar á höfuöborgarsvæðinu til
að láta taka bílinn betur í gegn, eins
og það er kallað. Ég held að ég hafi
nú prófað flestar þær stöðvar sem á
þessu svæði eru og bjóða þær upp á
talsvert mismunandi þjónustu.
Fyrir nokkrum dögum fór ég svo á
eina sem ég hafði reyndar fariö á
áður en átti leið fram hjá og skellti
mér með bílinn inn. Þetta var í Bón-
og bílaþvottastöðinni Bíldshöfða 8,
við hliðina á Bifreiðaeftirliti ríkisins.
Ég verð að segja að þarna er að mínu
mati besta þjónustan á þessu sviði.
Bæði eru þarna góð tæki og þjónust-
an frábær. - Veröið er líka talsvert
lægra en maður á að venjast á svona
inniþvottastöð. Þama greiðir maður
600 kr. fyrir þvott, bón og þurrkun
og allt unnið samviskusamlega, án
þess að maður hafi á tilfinningunni
að maður verði að flýta sér og koma
sér í burtu.
Ég lét líka þvo mótorinn en sú þjón-
usta býðst ekki á öðrum þvottastöðv-
um svo að ég viti til. Það kostaði 500
kr..og vélin var eins og ný á eftir.
Þetta hef ég aldrei látið gera áður en
sé ekki eftir því. Þarna á bíláþvotta-
stöðinni geta viðskiptavinir sest nið-
ur á meðan þeir bíða og stendur þeim
til boða ókeypis kaífi en að kaupa sér
annað það sem þéim líkar.
Ég hef sjaldan farið eins ánægður
frá bílaþvottastöö og í þetta skiptiö.
Það getur skipt máli fyrir ökumenn
að vera í hreinum bíl og í umferðinni
er gott að geta verið hreykin(n) af
ökutæki sínu en það er maður ekki
nema að bíllinn sé hreinn.
Forstöðumaður
óskast
Svæðisstjórn Vesturlands óskar að ráða forstöðu-
mann við dagvistun fatlaðra á Akranesi frá og með
1. september nk. Þroskaþjálfamenntun eða sambæri-
leg menntun áskilin, reynsla í stjórnun æskileg.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí nk.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri svæðisstjórnar
á skrifstofutíma í síma 93-71780.
Svæðisstjórn Vesturlands
Gunnlaugsgötu 6A, Borgarnesi
3 GLÆSIVAGNAR
TIL SÖLU
CADILLAC
árg. 1983-1985-1986 verða tii sýnis að Suðurgötu 14,
sími 11219, á daginn eða 686234 eftir kl. 19.00.
.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greióa
með korti.
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
sima, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
£
„Eruð þið ekki hrædd við þessa litlu, slím-
ugu marhnúta?“ gætu þessir litlu græn-
lensku pottormar hafa verið að segja er
þeir hittu ferðamannahóp frá islandi í
heimabæ sínum, Kap Dan, á eynni Kúlúsúk
fyrir stuttu. Þessi ferðahópur lagði það á sig
eftir tveggja tíma flug að ganga í 45 mínútur
til þessa litla þorps sem enginn akvegur ligg-
ur að. Sumir urðu fyrir vitrun og öðrum of-
bauð. Þau voru misjöfn áhrifin sem heim-
sókn þessi hafði á ferðafólkið. Fyrir alla varð
hún upplifun sem seint mun gleymast. í
Lifsstíl á morgun verður sagtfrá þessari
dagsheimsókn til næstu nágranna okkar sem
þó eru svo fjarlægir okkur í menningu sinni
og lifnaðarháttum.
Á flestum fótaaðgerðastofum er
boðið upp á allar almennar fóta-
aðgerðir og fótsnyrtingu. Þar eru
líkþorn fjarlægð, neglur þynntar,
sérsmíðaðar spangir á niður-
grónar neglur og gefnar ráðlegg-
ingar varðandi naglalosun, fót-
sveppi, naglasveppi og annað er
lýtur að umhirðu fótanna.
DV-heimsótti eina fótaaðgerða-
stofu í Reykjavík og forvitnaðist
um starf fótaaðgerðafræðinga.
Um afrakstur þeirrar heimsóknar
má lesa í
Lífsstíl á morgun.