Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Síða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
Iþróttir
Frétta-
stúfar
Okonski tii Aþenu
Ekkert varö af því aö pólski
knattspymumaðurinn Mi-
roslav Okonski færi til belgísku
bikarmeistaranna Anderlecht,
eins og til stóö. í staöinn fer
hann til AEK frá Aþenu ög mun
gríska féiagið greiöa félagi
hans, Haraburger SV, um eina
milijón þýskra marka fyrir
þemian snjalla miöjumann.
Belanov ódýr
Forseti ítalska knattspymuliös-
ins Atlanta, Franco Landri, hef-
ur boriö til baka fregnir um að
félag hans greiði Sovétmönnum
i jarðolíu fyrir sóknarmanninn
snjalla, ígor Belanov. Landri
skýröi hins vegar frá því i gær
aö Atlanta greiddi sovéska
knattspymusambandinu 150
þúsund dollara (tæpar 7 millj-
ónir ísjenskra króna) fyrir Bel-
anov og aö hann fengi um 3.800
dollara (um 175 þús. ísl. kr) í
mánaðarlaun í þijú ár og bif-
reið aö auki. Kaupverð hans er
langt fyrir neðan þaö sem geng-
ur og gerist í ítölsku knatt-
spyrnunnL Juventus keypti t.d.
Ian Rush frá Iiverpool fyrir 4,6
milljónir dollara i fyrra.
Guetamala fyrir Mexíkó?
Gúetamala hefur veröiö boðiö
að taka sæti Mexíkó í knatt-
spyrnukeppni ólympíuleikanna
í Seoul. Mexíkanar voru á dög-
unum dæmdir í tveggja ára
bann frá öllum alþjóðlegum
mótum fyrir að tefla fram of
gömlum leikmönnum í heims-
meistarakeppni unglingalands-
liöa fyrr á þessu ári. Guetamala
varð í öðru sæti Mið-Ameríku-
riðils i undankeppni ólympíu-
leikanna og hefur nú frest til
sunnudags til að þiggja boðiö.
Danskt limleikafólk
Dagana 9.-19. júlí dvelur 34
manna fimleikahópur frá Köb-
enhavns Amts Fællesholdet hér
á landi á vegum Stjörnunnar í
Garðabæ. Hópurinn heldur
sýningu í íþróttahúsinu As-
garði í Garðabæ á sunnudaginn
kemur, 10. júli, kl. 20. Dagana
11. og 12. júli verða fimieika-
námskeið í Ásgaröi - fyrir 6-12
ára böm fyrir hádegi en ungl-
inga eftir hádegi. Námskeiðið
er opið fyrir iðkendur annarra
félaga en hópurinn mun einnig
sýna í Keflavík, Vestmannaeyj-
um og á Akureyri. Þessi hópur
hefur haldiö margar sýningar í
Danmörku að undanfómu við
góðar undirtektir, m.a. í Tívolí
í Kaupmannahöfn.
Dr. Squat á leiðinni
Dr. Frederick C. Hatfield, sem
gengur undir nafiiinu Dr. Squat
(hnébeygja), er væntanlegur til
Islands. Hann heldur námskeiö
í Æfingastööinni, Engihjalla 8 í
Kópavogi, dagana 15.-17. júli.
Áhersla veröur lögð á næring-
arfræði, kraftþálfun fyrir ýms-
ar greinar fþrótta, aerobic,
teygjuþjálfpn, endumýjunar-
fræði og grundvallaratriöi i
tækniþjálfun o.fi. Þar aö auki
mun hann leggja grunninn aö
þjálfun landsliösmanna Kraft-
lyftingasambandsins fyrir Evr-
ópumeistaramótið sem fram fer
hér á landi árið 1990.
Danskur fimleikahópur til
Islands
Danskur fimleikahópur, Köb-
enhavns Amts Fællesholdet,
sem samanstendur af 34 ein-
staklingum og sýnt hefur mjög
viöa í Danmörku að undan-
fómu við góðar undirtektir, er
á leið til landsins og mun sýna
í íþróttahúsinu á Digranesi á
• sunnudaginn kemur.
„Nýttum ekki
tækifærin“
- sagði Guðjón Þórðarson, þjátfari KA
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
„Það er lítið að segja og helst ekk-
ert. Við fengum færin til að vinna
leikinn en þau voru ekki nýtt sem
skyldi en um það snýst nú leikur-
inn,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálf-
ari KA, að leikslokum í samtali við
DV eftir 1-0-sigurÍeik Akumesinga á
KA í Mjólkurbikarkeppninni á Akra-
nesi í gærkvöldi.
„Ég er ekki nógu ánægöur með
leikinn í heild, en hver er svo sem
ekki ánægður að skora sigurmark?“
sagði Aðalsteinn Víglundsson sem
skoraði sigurmarkið í leik Akumes-
inga og KA á Akranesi í gærkvöldi.
Leikur liðanna var oft harður og
fast spilaður og dómgæslan var í
höndum Óla Ólsen og var hann ekki
í öfundsverðu starfi í þessum leik.
Hann hefði þó mátt vera örlítið rögg-
samari. Skagamenn byrjuðu vel og
strax á 6. minútu bjargaði Haukur
Bragason, markvöröur KA.mjög vel
er hann hirti knöttinn af tám Karls
Þóröarsonar sem var kominn í mjög
gott marktækifæri. Þremur mínút-
um síðar er Karl enn á ferðinni en
fast skot hans frá vítateig fór í hliöar-
netið.
Heimir Guömundsson komst í gott
færi en skot hans fór hárfínt fram-
hjá. Eftir þetta var nokkurt jafnræði
með liðunum en Skagamenn þó ívið
sterkari það sem eftir liíði fyrri hálf-
leiks.
Skagamenn byrjuðu síðari hálf-
leikinn með svipuðum hætti og þann
fyrri og á 60. mínútu er dæmd óbein
aukaspyrna inni í vítateig KA og upp
úr henni átti Mark Duffield hörku-
skot sem Haukur markvörður varði
meistaralega í horn. Þremur mínút-
um síðar bjargaði Friöfinnur í horn
eftir aö Karl var kominn í ágætt færi.
Síðan tóku KA-menn mikinn fjör-
kipp og pressuðu mjög stíft og á 68.
og 70. mínútu fengu þeir sín bestu
færi en Skagamenn björguöu í bæði
skiptin á línu eftir skógarferð Ólafs
í marki Skagamanna. A 73. mínútu
náði Antony Karl ekki fastri fyrirgjöf
Þorvalds Örlygssonar á markteig.
Skagamenn náöu aö rétta úr kútn-
um og á 87. mínútu skoraði Aðal-
steinn sigurmark Skagamanna eftir
firnafasta fyrirgjöf frá Heimi og voru
Skagamenn að vonum ánægðir í
leikslok eftir að hafa tapað á Akur-
eyri fyrir nokkrum dögum í 1. deild-
arkeppninni.
Áhorfendur 899.
Völsungar eru
heillum horfnir
Jóhannes Siguijónssan, DV, Húsavflc
Leiftur, Ólafsfirði, sló Völsung út
úr bikarnum meö 3-1 sigri á Húsa-
vík. Sigurinn var sanngjam, Völs-
ungar léku betur úti á vellinum en
Ólafsfirðingar voru beittari upp við
markið og nýttu sín færi.
Fyrri hálfleikurinn var tíðinda- og
tilþrifalítill og þaö var ekki fyrr en á
44. mínútu sem verulega dró til tíö-
inda. Þá dæmdi Guömundur Har-
aldsson dómari vítaspymu á Leiftur
og kom sá dómur leikmönnum og
áhorfendum mjög á óvart. En Guð-
mundur var ekki í nokkrum vafa og
Jónas Hallgrímsson skoraöi af öryggi
úr vítinu og hefur nú skorað úr yfir
30 vítaspymum fyrir félagið og aldrei
mistekist. Á 47. mínútu dæmdi Guð-
mundur svo víti á Völsunga þegar
boltinn hrökk í hönd vamarmanns.
Strangur dómur en Gústaf Ómarsson
fullnægði dóminum og skoraði, 1-1.
„Þetta ætlar aö verða einhver
lengsta vítaspyrnukeppni sögunnar
fyrst þeir em byijaöir á henni í fyrri
hálfleik," sagöi einn húmoristi í hópi
áhorfenda.
Völsungar höfðu yfirhöndina
framan af seinni hálíleik en á 65.
minútu tóku Ólafsfirðingar forystu
gegn gangi leiksins. Tveir Ólafsfirð-
ingar voru kolrangstæðir þegar bolt-
inn var sendur inn fyrir, línuvöröur
virtist blindaður af sóhnni og Steinar
Ingimundarson þakkaði pent fyrir
sig og skoraði.
.Völsungar gáfust eiginlega upp við
þetta andstreymi og á 90. mínútu
bætti Þorsteinn Geirsson við þriöja
marki Leifturs eftir að Völsungs-
vöminn hafði opnast illa. Og á 93.
mínútu skoruðu Ólafsfirðingar
reyndar fjórða markið en þá hafði
Baldur Scheving línuvörður endur-
heimt sjónina og dæmdi rangstöðu.
BjömsáumÞór
- Víkingur sigraði Þór 1-2
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
Víkingurinn Björn Bjartmars var
maðurinn sem sá um aö afgreiða
Þórsara út úr Mjólkurbikarkeppni
KSÍ á Akureyrarvelli í gærkvöldi.
Hann skoraöi bæði mörk Víkings
sam sigraöi 2-1 og Þórsarar geta ein-
ungis nagað sjálfa sig í handarbökin,
enda áttu þeir afspymuslakan leik
og sigur Víkings var fyllilega sann-
gjam.
Víkingar sluppu þó fyrir hom und-
ir lokin en þá fengu Þórsarar tvö
hættuleg færi. Kristján Kristjánsson
skaut í stöng Víkingsmarksins aö
innanyeröu af stuttu færi og á síð-
ustu sek. leiksins varði Guðmundur
Hreiðarsson meistaralega skot frá
Guðmundi Val Sigurðssyni, beint úr
aukaspymu, sló boltann í þverslána.
Bjöm Bjartmars skoraöi fyrra
mark Víkings á 28. mín. Boltanum
var nikkað til hans eftir sendingu inn
í vítateig og hann afgreiddi hann í
netið. Síðara mark Víkings kom svo
á 63. mín, Björn fékk sendingu frá
hægri og skoraði af stuttu færi. 2-0
fyrir Víking og Þórsarar sýndust
ekki líklegir til aö gera neitt í málinu.
. Þeim tókst þó að minnka muninn
10 mín. fyrir leikslok og var Siguróli
Kristjánsson þar aö verki. Boltinn
barst út úr teignum til hans eftir
hornspyrnu og hann skoraði með
góðu skoti í hornið.
Víkingur vann sanngjaman sigur
og heföi hæglega getaö unnið stærri
sigur miðað við marktækifæri. Aft-
asta vöm liðsins var sterk í leiknum
og Guömundur öruggur í markinu
þar fyrir aftan. Þórsarar vom hins
vegar afspymuslakir nema á allra
síðustu mín. leiksins og þaö er engin
afsökun fyrir þá þótt Jónas Róberts-
son hafi veriö meiddur og Halldór
Áskelsson hafi farið veikur út af eft-
ir 30 mín. leik. Liðið var einfaldlega
lélegt og er þaö vægt til oröa tekið.
Mjólkurbikarinn -16 liða
Sanngjarn Fra
í mjög góðui
- Fram sigraði ÍBV1-2. Ómar Torfason sko
Friðbjöm Ó. Valtýsson, DV, Vestmeyjum:
MgBSPIIP., **
> *
Sfsfjllp^
X 'V> f *
/ A
• Viöar Þorkelsson, Fram, sést hér í baráttu um knöttinn við fyrrum félaga sinn
inni skorar Ómar Torfason sigurmark Fram með skalla.
Bikarmeistarar Fram í knattspyrnu
héldu velli er þeir mættu frískum Eyja-
peyjum í .ÍBV í leik liðanna í 16 liða úr-
slitum bikarkeppninnar í Eyjum í gær-
kvöldi. Leikurinn var mjög skemmtileg-
ur á að horfa og hefur sá er þetta ritar
vart skemmt sér betur í annan tíma á
knattspymuleik hér í Eyjum. Framarar
halda áfram í keppninni en Eyjamenn
eru úr leik.
Það var Pétur Amþórsson sem skoraöi
fyrsta mark leiksins fyrir Fram strax á
15. mínútu og setti það heimamenn
nokkuð út af laginu. Pétur skaut miklu
þrumuskoti frá vítateigi. Liðin skiptust
síðan á að sækja og áttu bæði nokkuð
af færum. Heimamenn, sem fjölmenntu
á völlinn, fögnuðu mjög á 32. mínútu er
Ólafur Árnason jafnaöi metin fyrir ÍBV
meö glæsilegu marki. Ólafur skaut
þrumuskoti frá vítateigi og átti Birkir
enga möguleika á aö verja skot hans sem
hafnaði nánast efst í samskeytunum.
Ómar Torfason
kominn á bragðið
Ómar Torfason, sem varö markakóng-
ur 1. deildar síðast er hann lék meö
Fram, skoraði fyrsta mark sitt fyrir
• Pétur Arnþórsson skoraði fyrra
mark Fram í Eyjum í gærkvöldi með
miklu þrumuskoti frá vitateig.
DV-mynd Brynjar Gauti