Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
2S
Lífsstfll
Það er ýmislegt sem þarf að varast ef maður vill vera skynsamur neytandi
Neytendablaðið:
Hinn skynsami neytandi
Nýútkomið Neytendablað hefur að
geyma kynstrin öll af þörfum
ábendingum til neytenda. Þar er
m.a. að fmna grein eftir Elísabetu
Þorgeirsdóttur um hinn skynsama
neytanda. Birtist hún hér á eftir:
Yfirsýn yfir fjárhaginn
Mikilvægt er að átta sig á hvernig
nýju skattalögin virka og áætla
hverjar tekjumar veröa eftir að
skattur hefur verið greiddur.
Veistu hvemigþú nýtir persónu-
afsláttinn best? Att þú rétt á hús-
næðisbótum, vaxtaafslætti, barna-
bótum eða barnabótaauka?
Haltu heimilisbókháld. Þá sérðu
í hvað peningamir fara og getur
kannað 'hvort hægt sé að minnka
einhvem útgjaldalið.
Þegar verslað er
Samkvæmt reglugerð ber selj-
endum að verðmerkja allar vörur
í verslunum, búðargluggum og
sýningarkössum. Ef um vörur á
útsölu er að ræöa skal einnig
greina upphaflegt verð svo hægt sé
að sjá hve mikill afslátturinn er.
Um vömr á útsölu og tilboösverði
gilda sömu lög og um aðrar vörur.
Komi fram galli á ábyrgöartima ber
að endurgreiða þær ef gallinn er
verulegur eða bæta á annan hátt.
Kaupandi er þá ekki skyldur til að
taka við innleggsnótu.
Fleygið ekki gömlum innleggs-
nótrnn. Þær fymast á fjórum árum
nema annað sé tekið fram á nótun-
um.
Að eyðileggja kreditkortið
Til hvers notar þú greiðslukortið
þitt? Ertu meðvitaður um hve
miklu þú eyðir eða læturðu freist-
ast til að kaupa ýmislegt sem þú
hefur í raun ekki efni á? Það kemur
að skuldadögum.
Hugsaðu um það í alvöru hvort
þér sé nauðsynlegt að eiga greiðslu-
kort. Þaö getur verið alveg eins
gott að kaupa stóra hluti með af-
borgunarskilmálum og khppa
kortið í sundur. \
Lagaleg réttindi
Meö skattgreiðslum þínum greið-
ir þú í sameiginlegan sjóð þjóð-
félagsins og átt rétt á góðri þjón-
ustu frá hinu opinbera. Ýmis lög
kveöa á um réttindi þín í þjóðfélag-
inu. Kynntu þér hvaöa rétt þú átt.
Kaupalögin og 5. kafli laga um sam-
keppni og óréttmæta viðskipta-
hætti vernda rétt þinn í viðskipt-
um.
Staðgreiðsluafsláttur
Þegar þú kaupir stóra hluti út í
hönd, t.d. sjónvarp, myndbands-
tæki eða ísskáp, áttu rétt á 5-10%
staðgreiösluafslætti. Seljendur eru
búnir að reikna með þessum af-
slætti í útsöíuverðinu. Neytenda-
samtökin hta svo á að þeir sem
staðgreiöa vöru eigi ætíð rétt á
staðgreiðsluafslætti þar sem
greiðslukortanotkim er orðin mjög
almenn. Þvi veröi að gera greinar-
mun á þeim sem staðgreiða og hin-
um sem fá aht aö sex vikna
greiðslufrest. . *
Neytendur
Það er mikils virði að fá kvittanir
fyrir vörum sem keyptar eru og
geyma þær minnst eitt ár. Það get-
ur valdið óþarfa leiðindum ef vara
reynist gölluð og geta ekki á auð-
veldan hátt sannað hvar og hvenær
hún var keypt og á hvaða verði.
Eru tryggingarnar í lagi?
Ertu tryggður fyrir öllu því sem
gæti hent þig? Notfærðu þér sam-
keppnina sem ríkir á milh trygg-
ingarfélaganna og láttu gera tilboð
í þær tryggingar sem þú hefur þörf
fyrir. Veldu síðan það félag sem
býður lægst verð og bestu trygging-
arnar.
Meðferð fatnaðar
Skynsamur neytandi kaupir ekki
fatnað án meðferðarleiðbeininga.
Seljandi ber ábyrgð á því að upplýs-
ingar á vörunni séu réttar. Upplýs-
ingar um hreinsunarmeðferð á
flíkum eru því mikil trygging fyrir
kaupandann.
Gætið ahtaf að því að meðferðar-
leiðbeiningar séu á þeim fatnaði
eða á öðrum efnum sem þið kaup-
ið. Ef svo er ekki fáið þá skriflega
yfirlýsingu seljanda um meðferð-
ina. Shkt getur- skipt sköpum ef
flíkin skemmist í þvotti eða efna-
laug.
Athugið að ekki er alltaf hyggi-
legra að senda fatnað í hreinsun.
Margar hreinsanir firra sig ábyrgð
á því sem þær taka til meðferðar.
Þess vegna er mikilvægt að báðir
aðUar séu sammála um ástand
hlutarins áður en hann er settur í
hreinsun. Einnig er gott aö láta
efnalaugareigendur segja fyrir-
fram hvort þeir treysta sér til að
hreinsa þaö sem um er að ræða.
Ertu að byggja
eða endurbæta
Vinna við húsbyggingar á bygg-
ingarstað, jafnt nýbyggingar sem
endurbætur á eldra húsnæði, er
ekki söluskattsskyld.
Athugið hvort söluskatti hefur
verið bætt á reikninginn. ÖU tilboð
um aö sleppa söluskatti í shkum
tilfeUum gegn því að ekki sé gefin
kvittun eru út í bláinn og byggð á
misskUningi.
Kvittanir eru helsta haldreipi
neytandans ef vinnan er Ula af
hendi leyst eöa gaUar koma fram.
Athugið einnig að sá sem hjálpar
öðrum til að komast hjá skattlagn-
ingu er að kaUa yfir sig dýrari sam-
neyslu.
Að vera nýtinn
Góður neytandi fer vel með eigur
sínar, húsgögn, fatnað o.fl. Æthr
þú að kaupa eitthvaö nýtt skaltu
íhuga vandlega hvað þig vantar í
raun og veru. Láttu ekki auglýs-
ingar, vini eða annan utanaðkom-
andi þrýsting segja þér í hverju þú
átt að fjárfesta. Tískufatnaöur og
tískuhúsbúnaður er óhóflega dýr.
Oft er hægt að fá mun ódýrari hluti
sem eru engu síðri. Hefurðu efni á
aö eiga bUinn, sem þú ert að kaupa,
eða gætirðu skipt og fengið þér
ódýrari og spameytnari bU?
Kostnaður við bankalán
Ef þú ert með mörg lán með mis-
munandi kjörum í viðskiptabanka
þínum geturðu farið fram á að
bankinn semji við þig um hagstæð-
ari kjör. Það er dýrt aö taka lán
núttldags. Greiddu óhagstæðustu
lánin upp og vertu vel á verði um
hvar hagstæöust kjör em í boði.
Ef þú átt sparifé gættu þá vel að
hvar hagstæðast er að ávaxta það.
í matvöruversluninni
Gætiö að því þegar þið kaupið
matvæh hvort síðasti söludagur sé
runninn út. Ef svo er þá er það
brot á lögum. Ef kaupmaður hyggst
lækka verð tíl að losna við vöra,
sem eUa yrði honum ónýt, ber hon-
um aö gera það áður en síðasti sölu-
dagur er útrunninn. Bendið kaup-
manninum á ef þið sjáið slíka vöru
í verslun hans. Góður kaupmaður
er þakklátur fyrir shkar ábending-
ar.
Vörur í neytendaumbúðum eru
sumar án allra upplýsinga um
magn og samsetningu innihalds.
Umbúðir geta hæglega blekkt hvað
varöar magn innihalds. Berðu
saman verð á sömu vörutegund og
reyndu að finna út kílóverð. Oft er
um mikinn verðmun að ræða.
Kemur verkstæðisnótan
á óvart?
Þegar þú ferð með bíl eða aðra
hluti í viðgerð láttu þá verkstæöið
gefa þér skriflega yfirlýsingu um
hvað gera þarf við, hvað það muni
kosta og hvenær viðgerð verði lok-
ið. Gefðu upp símanúmer svo hægt
sé að ná í þig ef t.d þarf aö gera við
meira en áætlað var í upphafi.
Ef ekki er hægt að áætla veröiö
fyrirfram fáðu þá skriflega upp-
gefið hámarksverð. Inni í áætluðu
verðierefni, vinnaogsöluskattur. y
Gölluð vara
Samkvæmt lögum er árs ábyrgö
á öllum seldum vörum. Ef veruleg-
ur galli kemur fram á vörunni á
þeim tima má krefjast ógallaörar
vöm eöa riftunar kaupa og endur-
greiðslu verðsins ásamt hugsanleg-
um kostnaöi vegna gallans. Nauö-
synlegt er að gera seljanda viðvart
um leið og gallans verður vart.
Seljandi ber ábyrgð gagnvart
kaupanda. Það er því á misskiln-
ingi byggt þegar seljendur visa á
umboðsmenn eða framleiðendur.
Ef galli kæmi til dæmis fram á
strigaskóm hjá kaupanda í Kálfs
hamarsvík ætti hann erfitt um vik < f
gagnvart framleiðanda í Kóreu.
U pplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnað-
ar Qölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks------
Kostnaður í júní 1988:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.