Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
Lífsstfll
Hvemig við leysum vökvunarvandamálið í fríinu:
Nokkrar aðferðir til
að vatna stofu-
plöntum á meðan
Ef enginn fæst til að vökva á meðan farið er í fríið eru þó
til nokkrar leiðir til að láta pottaplöntur sjá um sig sjálfar.
Yfirleitt er einhverju vatnsríku undirlagi (s.s. blautum dag-
blöðum) komið fyrir undir pottana. Þá er mikilvægt að vökva
moldina vel svo vatnið þar komist í samband við vatnsborð
undirlags.
Nokkur brögð eru að því að
vatn sé sett þannig að yfírborð-
ið nái upp eftir potti. Ef þetta
gerist er næsta víst aö ræturnar
fúni. Það er með pottablóm eins
og trjáplöntur - of mikil vökvun
leiðir til fúa rótanna, sem ekki
er hægt aö bæta fyrir.
Hægt að útbúa tjald
með slongum
Tjald, sem fellt er upp líkt og
regnhlíf, er hugmynd upprunn-
in frá Skandinavíu. Þetta líkist
litlu gróðurhúsi með opi fyrir
loft. Okkur er ekki kunnugt um
að þetta sé selt hér á landi. Þaö
ætti þó ekki að vera flókið að
útfæra þessa hugmynd með
gagnsæju plasti. Dæmi eru um
að pottablóm hafi þrifist undir
þessum kringumstæðum í fjór-
arvikur.
Því stærra sem tjaldið er því
fleiri plöntur komast fyrir. Opið
á tjaldinu gefur súrefni en þaö
er ekki svo stórt að útgufunar
gæti eins og ella. Mjórri plast-
slöngu er komiö fyrir í hvem
pott og leitt úr stærra íláti sem
veitir vatninu. Vatnsborðið má
ekki vera hærra en yfirborð
moldarinnar, annars er hætta á
ofvökvun. Passa verður að
stilla tjaldinu eða opi þess ekki
þar sem sólarljóss gætir til aö
hindraútgufun.
-ÓTT.
Ertu að fara í frí og færð eng-
an til aö vökva stofuplönturnar
á meðan? Til að leysa þennan
vanda eru til nokkur ráð. Best
er auðvitað að fá „blómapíu“
fyrir sig meðan á fríinu stend-
ur. Þá verður minnst breyting
á og plönturnar geta staðið á
sínum stað. Ef þær eru skildar
eftir og þeim ætlað að sjá um
sig sjálfar verður að fjarlægja
þær úr mesta sólarljósinu.
Þannig verður útgufun ekki
eins mikil og ella - þannig end-
ist vatnið sem fyrir er betur.
Plöntur þurfa mismikla vökv-
un. Því er erfitt að alhæfa nokk-
uð í þessu sambandi. Nokkrar
leiðir em þó til sem gefið hafa
góða raun - sérstaklega ef fólk
er ekki lengur en 1-2 vikur í
burtu. Hér á eftir eru nefndar
nokkrar leiöir til að leysa vökv-
unarvandamálið ef enginn fæst
til að vökva í fjarveru eiganda.
Bent er á að setja sig í samband
við sérfrótt fólk ef til kemur.
Plönturnar látnar
sjúga upp vatn
Sólin gerir það að verkum að
útgufun verður mikil. Því er
ætíð heppilegast að safna plönt-
um saman á stað þar sem sólar
gætir ekki of mikið. Einnig
verður að aðgæta að hafa ekki
of dimmt, því einhverrar birtu
verður að gæta. Prýðis aöferð
er aö breiöa út plastdúk á gólfiö
og leggja rök dagblöð eða svamp
ofan á. Þannig sjúga plöntumar
vatnið upp í gegnum botngatið.
Ef þess er kostur má einnig
koma fyrir rúmgóðu íláti með
bleyttum vikursandi. Undirlag
skal vera vel blautt. Vökvið síð-
anvelípottinn.
Ef plastdúkur er notaður er
hentugt að sveigja jaðrana upp
að brúnum ystu pottanna. Að
þessu loknu er herbergishiti
lækkaður. Á þennan hátt geta
plöntur staðið skaðlaust í tvær
tilþrjár vikur.
Lítið gróðurhús sem hleypir inn birtu en takmarkar útguf-
un. Nokkrum pottaplöntum er hér komið fyrir inni í gagnsæju
regnhlífarlaga plasti. Rifa er höfð svo loft komist inn. Síðan
er t.d. plastslöngum stungið í hvern pott sem leiddar eru
úr vatnsíláti. Þess verður að gæta að vatnsborð ílátsins sé
ekki hærra en moldin í pottunum. Þessi aðferð hefur gefist
vel á Norðurlöndum. Þannig hafa plöntur séð um sig sjálfar
í 3-4 vikur.
Óhætt er að skilja pottablóm eftir í blómasvampi í 7-10
daga. Svampurinn (oasis) er bleyttur vel og plantan vökv-
uð. Síðan sýgur hún vatn upp í gegnum botngat pottsins.
Frágangur svalakassa
og útiplantna
A íslandi er lítil hætta á sól-
ríku veðri svo vikum skiptir.
Ráðstafanir gegn ofþornun úti-
plantna em þó oft viöhafðar ef
fariö er í burtu. Þannig má
grafa potta niður í mold að fullu
og breiöa þunnt torf yfir. Útguf-
un verður því í lágmarki þegar
vökvað hefur veriö. Með þessu
móti nær rigningin einnig að
síga niður ef til þess kemur.
Þessi aðferð hentar reyndar
ekki plöntum með loðin blöð.
Ullarþráður getur séð
um vökvun
Þykkur ullarþráður er afar
hentugur til að sjá plöntum fyr-
ir vatni. í þessu tilfelli er notað
stórt vatnsílát, s.s. þvottabali. Á
botninn er lagt eitthvað þungt
t.d. múrsteinn(ar) sem pottarn-
ir eiga að standa á. Því næst er
þykkur ullarþráður þræddur í
gegnum moldina og niður í
gegnum botngatiö. Til þess er
hægt að nota stóra nál eða þ.u.l.
Síðan er sett vatn í balann sem
nær að yfirborði steinanna.
Plantan er vökvuð og hringrás
vatnsins kemst af stað. Þráður-
inn sér svo plöntunni fyrir
vatni með því að sjúga það í
gegnum sig upp eftir pottinum.
Dagblöð og blóma-
svampur
(oasis) koma að góðu
gagni
Baöherbergi bjóða upp á mis-
jöfn birtuskilyrði. Ef gardínur
eru dregnar frá eða íjarlægöar
gefst þó oft kostur á prýðis birtu
fyrir pottaplöntur. Baðkarið er
nefnilega heppilegast við ýmiss
konar vökvimaraðgerðir. Ef
birtan er ekki nægileg má alltaf
nota þvottabala.
Dagblöð eru afar hentug til
að vökva með. Þetta hljómar
furðulega en satt engu að síður.
Leggið nokkur lög af gömlu
dagblöðunum, sem þið eruð
hætt að lesa, í botninn á baðkar-
inu. Því þykkari sem bunkinn
er því betra. Setjið svo pottap--
lönturnar, sem þið ætlið að yfir-
gefa, ofan á blöðin. Að því loknu
er bleytt vel í bunkanum og
blómin vökvuð. Með því móti
næst samruni milli vatns í potti
ogblaðabunka.
Heimilið