Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1988, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988.
3
LífsstQJ
Illgresi er hægt að losna
við á 2-3 vikum með eitri
Ef fjölærar plöntur eru í beðum þar
sem eitrað er, verður að vera breitt
yfir þær fyrst um sinn. Þessar plönt-
ur má einnig stinga upp og setja ann-
ars staðar um stundarsakir.
Mold bætt við og
áburður borinn á
Þegar illgresi er ijarlægt fer alltaf
talsvert meö af mold. Því er stutt
niður að rótum trjáa. Þá er ráðlegt
að bæta við mold. Þessi tími ársins
hentar einnig vel fyrir áburðargjöf.
Með reglulegri áburðargjöf er jarð-
vegur best í stakk búinn til að vinna
gegn óþrifum sjálfur. Vel nærður
jarðvegur verst best ágangi illgresis.
Þegar líða tekur að hausti er þó
rétt að forðast mikla áburðargjöf.
Áburður stuðlar að vexti gróöurs.
En það getur veriö hættulegt þegar
skammt er í aö fari að kólna. Þannig
geta tré í örum vexti kalið á þaustin.
Til að forðast slíkt er hægt að fá efni
sem nefnist kalí. Þaö efni stoppar
vöxt trjánna og undirbýr gróðUrinn
fyrir veturinn.
Órækt og mosi
í grasflöt
Þaö er mismunandi hvaða tegundir
illgresis hafa fest rætur sínar í görð-
um. Hjartaarfl, vegarfi og krossgras
eru algengar tegundir. Einnig má
nefna hófflfil sem hefur djúpstæðar
rætur og verður töluvert hávaxinn.
Þessar tegundir eiga auðvelt með að
sá sér. Því er mikilsvert að komast
fyrir frekari sáningu þeirra sem
fyrst. Þessum tegundum er hægt að
eyða með eiturúðun.
Mosavöxtur á grasflötum er al-
gengur hér á landi. Hann breiðir
helst úr sér þar sem birta nær ekki
niöur, eða þar sem lítið er gengið um.
Mosi myndast helst þar sem næringu
(áburð) skortir. Þannig nær svörður-
inn ekki að anda og mosinn myndast.
Sandur hefur löngum þótt góð
hjálp gegn mosa. Hann síast niöur
Látið ekki illgresi vaxa ykkur í augum. Aðalatriðið er að byrja á verkinu. Því fyrr því betra.
Ef nota skal örgresiseitur leitið þá gaumgæfilega upplýsinga um notkun þess.
Einn stærsti ókostur þess að eiga
garð er illgresi. Til að losna við eða
forðast slíkt eru til nokkrar leiðir.
Þar má nefna eitur sem dreift er á
svæði þar sem gras eöa arfi hefur
fengið að vaxa óáreitt í langan tíma.
Talsvert er um slík beð, t.d. þar sem
garðurinn hefur verið í órækt í lang-
an tíma.
Einhvers staðar verður aö byrja
þegar á að „taka garðinn í gegn“.
Þetta.vex mörgum í augum. Aðalat-
riðið er þó að byrja. Slá grasið og
ráðast síðan á illgresið í beðum. A
þessu eru ýmsar lausnir, s.s. illgres-
iseitur. Meðferö slíkra efna krefst
varúðar og mikilsvert að kynna sér
notkun þeirra hjá söluaðilum. Nota
rétt efni þar sem við á og fara ná-
kvæmlega eftir leiðbeiningum. Það
eru nefnilega mörg dæmi um að tvö-
faldur skammtur sé notaður, gróðri
til mikillar óþurftar. Mosi er algeng-
ur í grassverði. Hann má losna við
t.d. með því að bera sand á svo lofti
um yfirborð grassvarðarins.
Eiturefni vinna á illgresi
með tímanum
Það sem ber helst að hafa í huga
þegar eiturefni eru notuð er að
blanda rétt og fara nákvæmlega eftir
leiöbeiningum. Þess verður að gæta
að úða þeim aöeins á þegar lygnt er,
svo efnið berist ekki annað. Örgresis-
efni, eins og Roundup, vinna þannig,
að þaö er borið á blöð arfans eða
grassins í beðum. Þannig kemst efnið
niöur að rótum. Því er óhætt að bera
þetta á í beðum þar sem tré eru. Stofn
tijánna skaðast ekki. Aðalatriðið er
að eitrið berist ekki í laufblöð
trjánna.
Að 2-3 vikum liðnum fara blöð ill-
gresisins að gulna. Þetta er þó mis-
jafnt eftir tíðarfari. Þegar blöðin eru
orðin laus í sér er tími til kominn
að fjarlægja óræktina. Þá er ráðlegt
að koma haugum á staði þar sem
ekki er hætta á að smiti meö vindi.
Nokkrar tegundir eru til af eitri sem vinnur á illgresi. Sumar
henta betur á vorin, aörar henta þessum árstíma. Mikilvægt
er að fylgja leiðarvisi nákvæmlega.
Iligresi eða hátt gras, sem hefur náð að vaxa
í beðum, er hægt að losna við með eitri. Örgre-
sið sýgur eitrið í gegnum blöðin og deyr niður
að rót.
DV-myndir BG
Þar sem eiturefni eru notuð í görðum verður
að gæta fyllstu varúðar. Mikilvægt er að fylgja
leiðarvísum nákvæmlega. Dæmi eru um að
tvöfaldur skammtur sé notaður til að flýta fyr-
ir eyðingu illgresis. Slikt er aðeins til óþurft-
ar. Þess verður einnig að gæta að nota eitur
aðeins í logni. Stofn trjáa skaðast ekki af ill-
gresiseitri - það virkar aðeins í gegnum græn
blöð.
og eykur loftstreymi. Til að leggja
enn frekari áherslu á áð eyða mosa
er heppilegt að blanda súlfaefni sam-
an við sandinn. Þessu er dreift með
því að mylja súlfa niður í eina fótu
af sandi. Síðan er þessu dreift á flöt-
ina. Á meðalstóran garð dugar
hnefastór köggull af súlfa. Þessu er
síðan fylgt eftir með því að bæta enn
meira af sandi á flötina. Einn rúm-
metri af sandi hentar á 150-200m-
flöt.
Því oftar sem slegið er, því meiri
rækt kemst í grasiö. Þannig er óhætt
að slá á 5-7 daga fresti. Og því meira
sem gengið er um garðinn því erfið-
ara á mosinn uppdráttar.
Vorið hentugast til
illgresisverka
Best er að komast fyrir óþrif á vor-
in. Þá er einnig besti tíminn fyrir
áburöardreifingu. Ef yfirborð jarð-
vegs er laust í sér festir arfi síður
rætur. Þrátt fyrir eiturefni og annað
slíkt má alltaf gera ráð fyrir að til
þess komi að reita þurfi illgresi ein-
hvern tíma sumars. Best er auðvitað
aö halda sér við efnið og klóra eða
stinga jarðveg upp reglulega.
Ráð garðyrkjumanna 'um góða
rækt garðagróðurs hljóma yfirleitt á
þann veg að áburöur sé borinn á
samviskusamlega. Einu sinni til tvi-
svar á yorin og svo aftur um mitt
sumar. í þurrkum er svo mikilvægt
að vökva. Því meira sem vinds gætir
því meiri veröur útgufun. Vel nærð-
ur gróður er undirstaða góðrar rækt-
ar.