Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Gunnar Bjómsson um væntanlegan safnaðarfund í Fríkirkjunni:
Ern að dvaga að halda
fundinn vegna hræðslu
„Þetta er dularfullur dráttur á
þessum safnaðarfundi því sam-
kvæmt lögum safnaðarins ber að
halda slikan fund svo fljótt sem auð-
ið er. Þær ástæður, sem safnaðar-
stjórnin ber fyrir- sig, eru því tylliá-
stæður. Þau eru að draga þetta vegna
hræðslu og vonast til þess að málið
lognist út af,“ sagði séra Gunnar
Björnsson, sem safnaðarstjóm Frí-
klrkjunnar hefur sagt upp starfi.
Gunnar sagði að þau ummæli ísaks
Sigurgeirssonar, stjómarmanns í
Fríkirkjusöfnuðinum, að fólk þyrfti
að greiða sín gjöld til að geta setið
fundinn væm villandi og til þess fall-
in að fæla fólk frá því að mæta. „í
dag skuldar enginn kirkjunni eins
og ísak talar um. Hið opinbera inn-
heimtir gjaldið til kirkjunnar og eftir
að staðgreiðslukerfið var tekið upþ
fær kirkjan ávísun í hverjum mánuði
frá hinu opinbera. Upphæðin á ávis-
uninni er fjöldi safnaðarmeðlima
margfaldaður með kirkjugjaldinu
sem var 141 króna í janúar, visitölu-
tryggt,“ sagði Gunnar.
Miðað við 1. desember?
Gunnar sagði að í sínum augum
væri ljóst að þeir hefðu atkvæðisrétt
sem gengið hefðu í söfnuðinn á þessu
ári, en ekki væri hægt að miða við
skrá Hagstofunnar frá 1. desember.
„Þegar ég var kjörinn Fríkirkjuprest-
ur 1982 vom ýmsir sem vildu styðja
mig og mættu og kusu. Þeir gengu inn
í söfnuöinn á sömu mínútunni og
þeir kusu prestinn. Þá var sama fólk
við völd. Nú hentar það þessu fólki
að reka prestinn og þá em reglumar
hertar og fara á að krefjast persónu-
skilríkja af fólki," sagði Gunnar.
ísak Sigurgeirsson sagði að hingað
til hefði verið miðað við safnaöar-
skrána frá 1. desember. Hins vegar
væri búið að biðja um nýja skrámið-
að við safnaðarmeðlimi í júlí. Um það
hvort þeir fengju að greiða atkvæði
sem gengiö hefðu í söfnuöinn síðustu
daga sagði ísak: „Það verður athugað
hvort slíkt er leyfilegt. Við ætlum
ekki að níðast á neinum heldur erum
friðsöm og seinþreytt til stórræða
enda hefur það sýnt sig í þessu máli.“
Magnús Guðjónsson biskupsritari
sagðist ekki vita hvernig kosninga-
rétti hjá Fríkirkjusöfnuðinum væri
háttað en hjá þjóðkirkjunni gætu all-
ir safnaðarmeðlimir, sem komnir
væru yfir 16 ára aldur, greitt at-
kvæði á safnaðarfundum.
Mætir kannski til messu
„Ég vildi helst af öllu mæta til
messu en hef ekki lengur lykil að
kirkjunni. Hins vegar hef ég ekki
viljað taka mark á þessari uppsögn
og lít á hana sem lögleysu. Það er
hins vegar eðlilegt aö messur hafi
legið niðri að undanförnu því að ég
hef verið í sumarfríi. Hvort ég mæti
þegar það verður búið, því hef ég
ekki velt fyrir mér,“ sagði Gunnar
Bjömsson.
Gunnar sagði að undirskriftasöfn-
un stuðningsmanna hans gengi vel
og 2000 safnaðarmeðlimir væm bún-
ir að skrifa undir. „Þetta hefur geng-
ið hægar vegna sumarleyfa en nú
verður tekið við undirskriftum á
tveimur stöðum og í bíl í Austur-
stræti. Þetta verður samt betur aug-
lýst,“ sagði Gunnar.
Um þaö hvort Gunnar ætlaði að
sækja um prestsembættið að nýju
sagöi hann: „Já, ég hef gefið út þá
yfirlýsingu og mun gera það, þó að
ég hafi ekki ennþá sent bréfið."
-JFJ
Harður árekstur varð á mótum Snorrabrautar og Eiríksgötu seinni partinn
í gær. Bíil, sem kom norður Snorrabraut á leið inn á Eiríksgötu, beygði í
veg fyrir annan er var á leið i suðurátt. Við áreksturinn kastaðist sá er
beygði á þriðja bilinn, sem beið á Eiríksgötu, og þaðan inn á lóð Landspít-
alans. Var tvennt flutt á slysadeild. hlh DV-mynd S
Th í stað þ í vegabréfunum:
Getur leitt til
vandræða eriendis
„Það er léleg afsökun hjá hinu
opinbera að skjóta sér á bak við
tæknileg vandamál. Það er gert ráð
fyrir þ-i í öllum ritvélum og tölvum
sem fluttar em inn hér og sjá
tæknimenn um að framkvæma
nauðsynlegar breytingar. Það er
meira en skrýtið að íslenskt vega-
bréf skuli ekki hafa íslenska stafi,“
sagöi Atli Öm Jónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Kreditkorta hf.,
sem eru meö Eurocard, við DV.
Hann sagði að greiðslukortin
væm með íslensku letri. Samræmi
yrði að vera milli nafnsins, sem
skráð er á kortið, og undirskriftar-
innar.
„í löndum þar sem miklir glæpir
eru þýðir lítið að „ræða málin" eins
og hér heima. Þar verða hlutirnir
að stemma. Þómnn undirritar ekki
með Th. íslensk nöfn á því að skrifa
með íslensku en ekki einhverju al-
þjóðlegu, óskilgreindu máli.“
DV hafði einnig samband við Visa
ísland og gjaldeyrisdeild Lands-
bankans vegna þessa og þar tóku
menn undir orð Atla Amar.
„Ég er undrandi á að sjálft lög-
reglustjóraembættið skuli láta
þetta viðgangast. Þetta getur skap-
að vandræði. Þ er séríslenskur bók-
stafur og fólk á skýlausa heimtingu
á að fá nafnið sitt ritað rétt í vega-
bréfið,“ sagði Leifur Steinn Eiríks-
son hjá Visa ísland.
Hjalti Zóphóníasson, skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
sagði að það væri vissulega baga-
legt að th væri ritað í stað þ. Hann
sagðist háfa haldið að þessu hefði
verið kippt í liðinn.
„Það hafa borist örfáar kvaríanir
til mín út af þessu. Samband við
framleiðanda ritvélanna hefur ver-
ið ýmist í okkar höndum eða lög-
reglustjóra. Það tekur tíma aö lag-
færa þessa hluti og það kostar líka
peninga. Annars hafa margir vanið
sig á að skrifa th í stað þ í útlönd-
um, svo vandamálið er kannski
ekki svo alvarlegt.“
Hjalti viöurkenndi að ósamræmi
væri milli öryggisins sem gætt
væri við gerð nýju vegabéfanna í
Reykjavík og á Akureyri og stafa-
mglingsins.
-hlh
- sjá einnig baksíðu
Sambandið tapaði hálfum
milljarði á sex mánuðum
allt eigið féð bundið í dótturfyrirtækjum og Sambandinu haldið á floti á lánsfé
Sambandið tapaði á fyrstu sex
mánuöum þessa árs hátt í 500 milþ-
ónum króna. Þegar það leggst við
220 milljón króna tap síðasta árs
er nær allt eigið fé Sambandsins,
utan það sem bundið er í dótturfyr-
irtækjum þess, uppurið. Fyrirtæk-
ið þarf því að tjármagna nær alla
starfsemi sína með lánsfé.
„Auövitað er þetta mjög alVarlegt
þegar flánnagnskostnaöurinn er
eins og hár og raun ber vitni. Þetta
er kannski einn aöalvandinn sem
við höíúm við að glíma í þessum
rekstri,“ sagði Guðjón B. Ólafsson.
Afhátt í 500 milljón króna tapi ræð-
ur mestu 492 múfjón króna gengis-
munur sem færður er til gjalda á
rekstrarreikning. Ástæðan er
hækkun erlendra skulda fýrirtæk-
isins vegna gengisfellinga í febrúar
og maí. Sjálfur rekstOr fyrirtækis-
ins gekk mjög illa. Hann skilaöi
neikvæðri fjármunamyndun upp á
60 milljónir króna. Með öörum orð-
um þurfti aö taka ný lán að upphæð
um 60 milijónir króna til þess að
halda rekstrinum útt. Þar veldur
mestu taprekstur í verslun og þeim
iönaði sem eftir er í Sambandinu. í
fyrra varð fjármunamyndunin nei-
kvæð um 96 milljónir á árinu öllu.
Að sögn Guöjóns B. Ólafssonar
ræðst þetta mikla tap vegna gegnis-
fellinganna af því aö Sambandiö
skuldar mikið 1 erlendri mynt,
bæði langtíma- og skammtímalán.
„Það skekkir stöðuna meira þeg-
ar gengið er fellt mikiö á svona
stuttu tímabili en ef þetta fengi að
jafna sig út yfir lengra tímabil. Við
erum með ansi mikið af erlendum
lánum. Þau er á miklu hagstæðari
Kjörum en gefast hér innanlands.
En á mótt koma þessir gengisfell-
ingaskellir af og til. Þegar gengis-
fellingar koma á svonu stuttu tíma-
bili skekkja þær myndina óraun-
hæfL Þetta svertir myndina meira
en efni standa tii“
Sambandið sótti um heimildir til
erlendrar lántöku að upphæð um
300 milijónir króna snemma í vor.
Viðskiptaráðherra hefur nú sam-
þykkt heimildir upp á 200 milljónir
króna. Sættir Sambandiö sig við
þessa niðurstöðu?
„Við óskuðum eftir 300 milljón-
um. Sú ósk stendur eftir þó okkur
liafi verið úthlutað þessum 200
milljónum."
En nú er einnig mikið tap á
rekstrinum og 60 milljónir renna
út úr fyrirtækinu á sex mánuðum.
Er ekkert í rekstri Sambandsins
sem horfir til betri vegar eftir tapið
ífyrra?
„Það hefúr ekkert gerst í ytri
rekstrarskilyrðum í landinu sem
er til bóta. Þaö eru margir hlutir
sem eru í gangi hér innanhúss. En
það eru hlutir sem sumpart eru
eitthvað byijaöir aö skila sér og
smnpart munu ekki skila sér fyrr
en seint'á þessu ári eöa því næsta.“
Á stjórnarfúndi Sambandsins á
mánudag var ákveðið aö skipa
nefnd til að fara ofan í rekstur fyr-
irtækisins.
. „Þetta er kannski í þriðja sinn á
síöustu fimm árum sem sett er á
laggimar nefnd til þess að skoöa
skipulag samvinnufyrirtækja al-
mennt,“ sagði Guðjón B. Ólafsson.
-gse