Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988. UtLönd Mona Lisa Paiestinu, mósaikmynd frá þriðju öid sem fannst nálægt ísra- elsku borginni Nasaret í fyrrasumar. Myndin hefur nu verið snyrt og mun verða til sýnis á safni í Jerúsalem. AndlvSslyfting Létust í flóðum á Spáni Aö minnsta kosti íjórir hafa látist og tólf er saknað eftir flóð sem uröu í kjölfar mikilla rigninga í Baskahéruöum á Spáni. Spænska lögreglan greindi frá þessu í morgun. Þrír létust er bíll þeirra fór á flot er á flóði yfir bakka sína. Einnig fannst lík sjö ára gamals bams í ánni. Flætt hefur yfir vegi og mörg þorp eru rafmagnslaus. Meðal þeirra sem saknað er er kona sem steyptist fi-am af brú þegar áin Nervion flaeddi yfir bakka sína nálægt borginni Amurrio. Ferdinand Marcos. fyrrum forseti Filippseyja. Simamynd Reuter Nefnd sú sem skipuð var til að rannsaka meint ólöglegt athæfi Ferdinands Marcosar, fyrrum for- seta Filippseyja, hefur nú sjálf ver- ið ásökuð um spillingu. Aquino forseti fyrirskipaöi end- urskoðun á stjórnun nefiidarinnar sem tekið hafði að sér sfjórnun fyr- irtækja sem verið var að rannsaka hver ætti í raun og veru. Talið er að um sé aö ræða um þrjú hundruð fyrirtæki og samkvæmt ásökunun- um á nefndin að hafa tekið til sín bankainnstæður, hlutabréf og ann- að ef talið var að Marcos eða félag- ar hans heföu átt hlut í fyrirtækí- unum. Ólafur Amaison, DV, New York: Stefnuskrá Demókrataflokksins fyrir forsetakosningamar í haust var afgreidd á flokksþinginu í Atlanta í gærkvöld. Það fór svo, eins og allir höfðu búist við, að tillögur Jesse Jacksons og stuðningsmanna hans voru'felldar. Stuðningsmenn hans lögðu fram tillögur um að hækka ■ tekjuskatt tekjuhárra einstakhnga upp í 70 pró- sent, stórfelldan niðurskurð í vam- armálum og að Bandaríkin tækju upp þá stefnu að beita ekki kjarn- orkuvopnum að fyrra bragöi. Þótt skoðanakannanir sýni að yfir- gnæfandi meirihluti þingfulltrúa sé sammála tveimur fyrstu tillögum Jacksons þá hlýddu stuðningsmenn Dukakis fyrirmælum leiðtoga síns og felldu þær. Dukakis er minnugur þess hvaða útreið Walter Mondale hlaut fyrir fjórum ámm er hann sagði bandarískum kjósendum að hann myndi hækka skatta þeirra kæmist hann í Hvíta húsið. Stefnuskráin að þessu sinni er um margt frábrugöin hefðbundnum stefnuskrám Demókrataflokksins í forsetakosningum. Venjulega hafa stefnuskrár flokksins veriö löng og ítarleg plögg og til dæmis var stefnu- skráin 49 blaðsíður árið 1984. Að þessu sinni er hún 7 blaðsíður og mjög almennt orðuð. Stjórnmálaskýrendur segja skýr- inguna á því hversu stutt hún er vera þá aö núna telji demókratar sig hafa raunverulegan möguleika á Eins og búist var við voru tillögur Jesse Jacksons felldar á flokksþingi demókrata þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni fylgi meirihluta þingfulltrúa með þeim. Símamynd Reuter sigri í kosningunum, öfugt við það sem oft hefur verið áður. Þess vegna vilji þeir ekki setja neitt í stefnu- skrána sem-kjósendum gæti mishk- að. Niðurstöðurnar segja margir vera þær að í stefnuskránni standi ekki neitt. Hún sé ákall til kjósenda um að kjósa nú Demókrataflokkinn og síðan muni flokkurinn láta þá í friði. Tillögur Jack- sons felldar Harkalegar árásir á Bush Simamynd Reuter Bandarískir og ísraelskir fomleifafræðingar fúndu í fyrrasumar raarg- hta mósaíkmynd í ísrael frá þriöju öld. Myndin, sem þykir undurfögur, hefur nú verið hreinsuð eftir kúnstarinnar reglum og mun verða til sýnis á ísraelsku safiú. Myndin er af konu og þykir hún minna á Monu Lisu Leoanardo da Vincis. Ekki er vitað hver konan er en að áhti fornleifafræðinga gæti hún verið gyðjan Afródíte. Grikldr láta undan Grikkir virtust í gær vera að draga í land með þá fullyrðingu sína aö ungur Frakki Jiefði verið viðriðinn árás skæruhða á gríska farþegaíeiju í síðustu viku með þeim afleiöingum að níu manns biðu bana og áttatíu særðust. Ásökun Grikkja hefúr valdiö rimmu á milh yfirvalda í Grikk- landi og Frakklandi en Frakkar hafa haldið því fiam aö ungi mað- urinn hafi verið feröamaður. Frakkinn lést á sjúkrahúsi eftir árás byssumannanna. Átta vitni höfðu borið að Frakkinn hefði tekið þátt í árásinni. Daginn eftir árásina héldu grísk yfirvöld því fram að ung frönsk kona hefði veriö viðrið- in tilræðið en það var síöan dregið til baka og hún nú sögð vera venju- legur ferðamaður. Unnið að slökkvistörfum um borð ? í grísku farþegaferjunni þar sem byssumenn réðust á farþega. Símamynd Reuter Fannst eftir sex vikur Fjögurra ára gömul bandarísk stúlka, sem rænt var fyrir sex vikum, fannst á lífi i litluhólfi undir altari i kirkju einni í Elk Grove í Kalifomíu. Stúlkan, Candi Talarico, sagði aö hún hefði horft á sjónvarp í prisund- inni en hólfið er um 1,5 metrar í þvermál. Ræningjar stúlkunnar höföu látið henni í té leikfðng, mat, sjónvarpstæki og teppi tii aö halda á sér hita. Lögreglan handtók og ákærði kirkjuvörðhm, sem er mállaus og heymar- laus, fyrir ránið á Candi og annarri stúlku sem saknaö halði veriö i nokkr- ar klukkustundir. Hún fannst bundin og kefluö i bíl kirKjuvarðarins. Lögreglan fékk upplýsingamar um ræningja Candi htlu frá nafnlausum aðila. Reuter Ólafur Amarson, DV, New York: Jesse Jackson lagði í ræöu sinni á flokksþingi demókrata í gærkvöldi áherslu á einingu flokksins og að nauðsynlegt væri að vinna sigur í nóvember. Hann eyddi ekki eins miklu púðri og aðrir ræðumenn á þinginu hingað til í að ráðast per- sónulega á George Bush varaforseta. Fyrri ræðuna í gærkvöldi hélt Ed- ward Kennedy, öldungadeildarþing- maður frá Massachusetts. Áður en hann talaði hélt John F. Kennedy yngri, sonur hins fallna forseta, stutta ræðu og kynnti foðurbróður sinn. Það er greinilegt að Kennedy- nafnið og Kennedyarfleifðin ber enn mikinn ljóma í hugum demókrata. Hinum unga John F. Kennedy, sem í gær flutti sína fyrstu ræðu á pólí- tískum vettvangi, var gifurlega vel fagnað og svo vel var Edward Kennedy fagnað að hann ætlaði varla að geta hafið ræðu sína. Kennedy gerði George Bush að umtalsefni og fann honum allt til foráttu eins og við var að búast. Nefndi hann mörg af þeim málum sem Reaganstjórnin hefur verið gagnrýnd hvað harðast fyrir og varp- aði fram þeirri spurningu hvar George Bush heföi verið þegar ákvarðanir voru teknar um þau. Demókratar hafa á þessu flokks- þingi ráðist mjög harkalega að Bush og oft virðist sem þaö sé þeim fyrst og fremst kappsmál að hann verði ekki forseti og að stuðningur þeirra viö Michael Dukakis sé ekki aðallega vegna þess að þeir vilji Dukakis sem forseta heldur til að koma í veg fyrir að Bush komist að. , Seinni ræðuna í gær flutti Jesse Jackson. Beðið hafði verið með mik- illi eftirvæntingu eftir þeirri ræðu. Jackson gerði það ljóst aö hann ætl- aði ekki að verða til vandræða og lagði aðaláherslu á að eining héldist í flokknum og til að svo yrði þyrftu menn að gera máiamiðlanir. Jackson lýsti því hins vegar yfir að hann yrði í framboði í dag þegar forsetafram- bjóðandi flokksins verður valinn. Slíkt er formsatriði því Michael Duk- akis hefur þegar tryggan meirihluta á flokksþinginu. Jackson var geysilega vel tekið en samt ekki eins vel og Kennedy á undan honum. Það er hins vegar ljóst að það var stór stund í hugum flestra þingfulltrúa er Jackson steig í ræðu- stólinn' í gær. Aldrei áður hefur svartur maður náð eins langt í bandarískum stjómmálum. Gnðarlegir efnahagsórð- ugleikar á Grænlandi Sumarliði ísleifsson, DV, Árósum Fjárhagur Grænlendinga er nú hætt kominn samkvæmt fréttum danska sjónvarpsins í gærkvöldi. Fái stjómin ekki 800 milljón króna lán til 20. ágúst nk. standa stjóm- völd þar frammi fyrir tómum sjóð- um. Ástæður erfiðleikanna eru marg- víslegar. Miklir erfiðleikar hafa verið í frystiiðnaði í landinu en þar eiga stjómvöld mikilla hagsmuna aö gæta og hafa styrkt atvinnulífið með miklum íjárhæðum. Græn- lenska stjómin á góða möguleika á að fá lán hjá erlendum bönkum. Enn sem komið er stendur þó á meðmælabréfi frá forsætisráð- herra Dana, Poul Schlúter, en þaö er forsenda fyrir lánveitingunni. Dregist hefur aö grænlenska stjórnin fengi meðmælabréfið vegna þess að hún og fulltrúar dönsku stjórnarinnar hafa ekki getað komið sér saman um inni- hald þess. Bréfiö þarf að vera þann- ig úr garði gert að það tryggi Græn- lendingum lánið. Á hinn bóginn vilja Grænlendingar ekki ábyrgjast greiðslu lánsins ef þeim tekst ekki að standa í skilum og vilja ekki að nokkuð slikt komi fram í texta bréfsins. Á því strandar. í-gærkvöldi skýrði fulltrúi græn- lensku stjórnarinnar frá því að samkomulag hefði náðst en danska stjórnin bar það til baka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.