Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988. Fréttir Ferskfisksala á eriendum mörkuðum: Veitir upplýsingar af skornum skammti. Stefán Gunnlaugsson, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu og formaður fimmmenninganna. DV-mynd KAE. Á hveijum fóstudegi næstu níu vik- umar munu fimm menn setjast nið- ur í lokuðu herbergi í utanríkisráðu- neytinu og ákveða hvaða útgerðar- menn fá að flytja út fisk vikulega fyrir andvirði eitt hundrað milljóna króna. Samtals munu fimmmenn- ingarnir ráðstafa leyfum fyrir einn milljarð íslenskra króna. Nefndin vinnur eftir reglum utanríkisráðu- neytisins sem voru settar á í snatri þegar verð á ísuðum þorski lækkaði mikið í eina viku í júní á Bretlands- markaði. Markmið stjórnvalda var að fá hærra verð fyrir íslenskan ferskfisk erlendis. Með því að skammta fisk- kaupmönnum í Bretlandi 600 tonn af ýsu og þorski á viku var ætlast til að þeir greiddu íslenskum sjómönn- um og útgerðarmönnum hærra verð fyrir fiskinn. Það væri rökrétt að sjó- menn og útgerðarmenn yrðu yfir- völdum þakklátir fyrir miðstýring- una. En það er öðru nær. Útvegsmenn • eru sárreiðir stjómvöldum fyrir að ganga á rétt þeirra til að selja fiskinn sem þeir afla á mörkuðum sem löng hefð er fyrir. „Það er ekki glóra í þessum takmörkunum,” segir Magn- ús Axelsson, útgerðarmaður í Kefla- vík, í viðtali við DV í gær. Aflaskip- stjórinn Ásgeir Guðbjartsson á ísafiröi, segir fyrir viku í Morgun- blaðinu: „Okkur hefur gengiö það vel (í ísfiskútflutningi) að ég held að eng- ir, síst af öllu einhveijir flibbamenn í Reykjavík, kunni þetta betur en við. Ýmist í ökkla eða eyra Útgeröarmenn eru flestir tilbúnir til aö fallast á aö nauðsynlegt sé að skipuleggja útflutning á ferskum fisld þannig að sem best verð fáist fyrir hann. Á það er bent að Land- samband íslenskra útvegsmanna hefur um áraraðir haft umsjón með sölusiglingum íslenskra skipa og báta á markaði í Bretlandi og Þýska- landi. Eftir að gámaútflutningur á ísfiski stóijókst fyrir 2-3 árum hafði enginn einn aðili yfirsýn yfir þaö magn sem vikulega var flutt út. Að sögn eins gámaútflytjanda var nán- ast um sjálfsafgreiðslu að ræða í ut- anríkisráöuneytinu, en formlega varð að sækja um leyfi þangað. Af- skiptaleysi stjómvalda var algjört. Skipulagsleysið leiddi til offram- boðs af fiski stöku sinnum yfir sum- arið þegar vel veiddist og frystihús hér á landi ekki í stakk búin vegna manneklu til að taka við aflanum. í sumar keyrði um þverbak og þorsk- ur seldist á lágmarksverði í nokkrar vikur á Bretlandsmarkaði. Stjórn- völd gripu þá til aðgerða og ætluðu sér að helminga útflutning á fersk- fiski miðað við sama tíma í fyrra. Reglur voru samdar í flýti og tak- markanir í 3 mánuöi auglýstar. Fréttaljós: Páll Vilhjálmsson Skipulagsleysi snerist upp í miöstýr- ingu. Framkvæmd í ólestri Takmörkun stjórnvalda kom sem köld vatnsgusa framan í marga út- vegsmenn sem geröu ráö fyrir að geta selt sinn fisk á sama hátt og undanfarin ár. Aðeins þeir sem fluttu út fisk í fyrra gátu verið vissir um að fá útflutningsleyfi og þá aðeins fyrir helmingnum af þvi magni sem sömu aðilar seldu út í fyrra. Þetta þýöir aö nýgræðingar á þessu sviði eru settir út í kuldann og eru komn- ir upp á náð og miskunn utanríkis- ráðuneytisins. Þeir bátar sem undanfarin ár hafa veitt á erlenda markaði, en voru vegna bilana eða annarra orsaka ekki á veiðum í fyrrasumar, lenda á milli stafs og hurðar. Útgerðarmenn þessara báta verða að leita til skrif- stofumanna og fá sérstakt leyfi fyrir því sem öllum var frjálst fyrir mán- uði. Jafnvel þeir sem eiga rétt á sölu- kvóta geta ekki ákveðið sjálfir hve- nær á 3 mánaða tímabilinu þeir senda fisk úr landi. Hver gámur ték- ur á bihnu 12-14 tonn af fiski og þess eru dæmi að útgerðarmenn fái að- eins úthlutað leyfi til að flytja út sem nemur hálfum gámi í senn. Við það margfaldast flutningskostnaðurinn. Nefndin sem ákveður hverjir fá að flytja út kemur saman á fóstudegi til að stjórna því magni sem verður selt á markaði í Bretlandi tíu dögum seinna. Nefndin hefur enga mögu- leika á að vita hvaða verð fæst fyrir þann fisk. Verðið á Bretlandsmark- aði ræðst af mörgum þáttum og ís- lenskur þorskur er aðeins einn þeirra þátta. Það sem fer mest í taugarnar á mönnum er að stjórnvöld ákveða einhhða og með engum fyrirvara að setja upp skömmtunarkerfi á gæðum sem hingað til hefur verið frjáls að- gangur að. Útgerðarmenn, sem leita eftir leiðréttingu mála sinna vegna þess að reglur yfirvalda eru iha samdar, þurfa að væla í nefndar- mönnum og það þykir engum góður kostur. Leynimakk Þegar það bætist við að formaöur nefndar utanríkisráðuneytisins neit- ar að gefa upplýsingar um þaö hveij- ir fá leyfi til að flytja út og hverjum er hafnað fara hvers kyns sögusagn- ir af stað um samsæri sterkra aðila í sjávarútveginum og stjórnvalda um að hygla einum en hafna öðrum. Samkvæmt heimildum DV sam- þykkti fimmmannanefndin and- mælalaust að halda upplýsingum frá fjölmiðlum. Einn nefndarmanna sagði að þessum upplýsingum væri haldið leyndum vegna þess að í gúrkutíð freistist blaðamenn til aö blása upp fréttir sem engar eru. Með föðurlegu einræði vih nefndin forða blaöamönnum frá freistingum. Þaö er hins vegar ljóst að ráðstöfunin mun ekki draga úr getsökum fjöl- miðla og annarra um starfshætti fimmmenninganna í utanríkisráðu- neytinu. Framtíðarskipulag Það ber flestum hagsmunaaðilum saman um að núverandi ástand á ferskfisksölu erlendis sé óviðunandi. Hins vegar eru fáir sem bent hafa á leiðir til að ná jafnvægi þannig að hvorki verði offramboð á ísfiski né útflutningstakmarkanir. Það háði löngum útflutningi á ferskum fiski að lítið var um upplýs- inar um fiskmarkaði í Evrópu. Oft renndu útflytjendur blint í sjóinn þegar sendir voru farmar af fiski til að selja á öðrum mörkuðum en í Bretlandi og Þýskalandi sem löng reynsla er komin á. Núna er hins vegar hægt að kom- ast í samband við tölvubanka sem veita upplýsingar um verð á svo að segja öllum fiskmöikuðum Evrópu. í DV í síðustu viku var sagt frá htlu fjölskyldufyrirtæki í Kópavogi sem meö aðstoð gagnabanka hefur gert vel heppnaöar tilraunir til að selja ferskan fisk á mörkuðum sem íslend- ingar hafa htið sem ekkert sinnt. Með því að safna og vinna úr upplýsing- um um sveiflur á verði og framboði á einstökum mörkuðum er hægt að dreifa ferskfiski á það marga staöi að verðfall verður ekki vegna of- framboðs. í dag mælir Dagfari Berta er málið Deilan um Hannes Hólmstein og lektorstöðuna er að hjaöna. Birgir ísleifur stendur með pálmann í höndunum. Enginn ráöherranna hefur verið jafnmikið í sviðsljósinu og Birgir var útnefndur maður vik- unnar. Hér eftir eiga ráðherrar að hafa þá reglu í huga, ef þeir vilja vekja á sér athygh og komast á vin- sældahstann, að troða skjólstæð- ingum sínum í embætti með góðu eða illu. Þá er þeim borgið. Birgi er borgið eftir að hann skipaði Sjöfn sem skólastjóra í Öldusehnu og Hannes í lektorsstöðuna í Há- skólanum. Á íslandi þykja þeir bestir og skeleggastir sem ganga gegn reglum og lögum og segja kjósendunum að éta það sem úti frýs. Af þessu máh sést einnig aö þaö er ekki alltaf sá sem fer með aöal- hlutverkið sem um er deilt. Birgir stal senunni frá Hannesi og nú er þaö sama að gerast í deilunni í Frí- kirkjusöfnuðinum. Séra Gunnar Bjömsson var í fyrstu blórabög- gullinn. Safnaöarstjórnin sagði honum upp og auglýsti stöðuna. Presturinn fékk á sig vammir og skammir, og þá sér í lagi eiginkona hans sem var á tímabili á góðri leið með að stela senunni frá eigin- manni sínum. En eftír því sem á deilu þessa hefur hðið er ljóst að þar er ahs ekki deht um prestinn. Kona nokkur í safnaöarstjóminni, Berta Kristinsdóttir að nafni, er heldur betur komin í sviðsljósið. Berta er máhð. Það sem réð úrshtum var opið bréf sem fyrrverandi formaður safnaðarstjómar sendi frá sólar- ströndum. Veslings maðurinn var kominn í frí og lá á baðströndinni og átti sér einskis ihs von þegar hann fékk fregnir af hávaðanum í söfnuðinum. Brá hann skjótt við, dreif sig upp á hótel og sendi með hraöpósti ítarlega greinargerð um málavöxtu. Þar dró hann ipjög taum prestsins en málaði hins veg- ar dökka mynd af Bertu þessari sem er upphaf og endir á deilunni. Henni er kennt um óviðeigandi af- skiptasemi af viðhaldi á íbúð prestsins, sem kom í veg fyrir að prestshjónin gætu lagfært hjá sér tohettiö, og öh er hennar iðja í lík- ingu við hryðjuverkastarfsemi að mati safnaðarformannsins fyrrver- andi. Séra Gunnar mun hafa haft það á orði að það þyrftí að losa söfnuð- inn við þessa manneskju og ákveð- ið á einhverju stigi málsins að af- lífa Bertu við fyrsta hentuga tæki- færi og má af þessu sjá að stríðiö í Fríkirkjusöfnuöinum var öhu hat- rammara en stríðið við Persaflóa, því þar er fólk drepið af gáleysi og raunar búið að semja um vopnahlé th að forða frá frekari mannvígum. í Fríkirkjusöfnuðinum ganga hryðjuverkamenn hins vegar laus- ir og eru þar að auki með guðs orð á vörunum meðan hryöjuverkin eru framin. Það er ekki von að menn hafi tíma th að stunda sólböð á bað- ströndum þegar þeir eru að kljást við ribbalda af þessu tagi. Óneitan- lega fyhist maður aðdáun á þeim trúaráhuga safnaðarformannsins að unna sér ekki hvhdar fjarri ætíj- arðarströndum og Fríkirkjunni tíl aö skrifa bersöghssögur af starfinu í Fríkirkjunni og glæpaverkum einstakra stjómarmeðlima safnað- arins. Hinn helmingurinn af Frí- kirkjusöfnuðinum, sá sem er að koma klerknum fyrir kattamef, tekur hins vegar upp hanskann fyrir Bertu og segir hana í fremstu röð áhugamanna um kristhegt starf í landinu, sem kemur væntan- lega fram í því göfuga verkefni aö losa söfnuðinn við prest, sem vih losa sig við sóknarbömin. Að minnsta kosfi hefur klerkurinn ekki breytt eftir kenningunni að heiðra skaltu skálkinn svo hann skaði þig ekki. Klerkurinn hefur ofsótt Bertu fyrir áhuga hennar á safnaöarstarfmu og nú er Berta aö verða sams konar píslarvottur og Birgir ísleifur. Það er stundum sagt að kirkju- starfi á íslandi fari hnignandi. Af ritdehum þeirra í Fríkirkjusöfnuð- inum er ljóst að þessu er öfugt far- ið. Mættu aörir kirkjusöfnuðir taka Fríkirkjuna sér th fyrirmyndar enda hefur færst gífurlegt líf í aht safnaðarstarf eftir að sér Gunnar var rekinn. Obbinn af safnaðar- meðhmum hefur skrifað í blöðin, jafnvel af sólarströndum. Væri ekki ráð fyrir fleiri söfnuði að reka presta sína? Það er greinhega í þágu kristindómsins. Ef Birgir Isleifur er maður vikunnar þá er Berta Kristinsdóttir kona ársins. Við þurfum fleiri hryðjuverka- menn í kirkjusöfnuðina. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.