Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988. 33 Lífsstfll að hafa tvenns konar tjaldhæla. Jarðvegur er misjafnlega grófur. Til eru ýmist pinnahælar eða flatir hæl- ar. Með þessu móti má haga seglum eftir vindi, en gæta þess samt aö hælar strjiikist ekki við dúkin. Raki inni í tjaldi Göngu- og jöklatjöld eru oft úr vatnsþéttu og vönduðu nælon- eða polyesterefni. Þessi dúkefni hafa þá kosti fram yfir t.d. bómullarefni að þau eru miklu léttari og auðveldari að bera. Vatnsþétt nælonefni eru aft- ur á móti svo þétt að þar geta skap- ast vandamál með loftstreymi. Orsök þessa vandamáls er sú að manneskjan andar frá sér um hálf- um lítra af vökva á nóttu hverri. Þannig anda íjórar manneskjur frá sér h'eilum tveimur lítrum o.s.frv. Með þessu móti verður loftið hlýrra - en rakara. Heitt loft leitar ávallt upp á við. Inni í tjaldinu er heitara en úti og því kemur saman heitt og kalt loft í efri hluta tjaldsins. Rakinn gufar ekki út. Þess í stað myndast dropar aö ofanverðu og jafnvel niður með hhðum innri tjalddúksins. Því kaldara sem loftið er utan tjalds því meiri raki myndast að innan- verðu. Mesta hættan á rakavanda- máli er þegar hitastig fyrir utan er við frostmark. Heimilið Mismunandi efni í tvöfoldum tjöldum er raki yfir- leitt ekki vandamál. Þessar tegundir hafa innra tjald sem „andar“ og hleypa þannig raka út í gegnum sig. Hann sest þá frekar innan á ytra tjaldið. Vatnsdroparnir, sem safnast fyrir af þeim sökum, liggja á dúknum og þorna þar upp eða renna niður aö botni. Þar sem kostur er á að lofta út er mikilvægt að sá möguleiki sé fullnýttur. Því betra loftstreymi því betri svefn. Vönduð tjöld hafa oftast vatnsþétt- an ytri himin. Nælon, trefjadúkur eða polyesterefni eru algengust. Bómullarefni verða aftur á móti þyngri í sér vegna þess aö þau safna í sig raka. Þannig tegundir eru ekki hentugar þar sem tjald er tekiö blautt eða rakt niður og pakkað saman. Efnið fer illa samanpakkað og rakt. Heldur er ekki fýsilegt að setja slíkt upp aftur að kvöldi á nýjum stað. Tjöld, sem gerð eru úr efnum með vatnsfráhrindandi efnum, eru því fýsilegri kostur. 100% polyesterefni hefur svipaða eiginleika og nælondúkur. Að vísu er það minna teygjanlegt og er oftast nokkru dýrara. Einnig eru til efni úr þriggja laga dúk sem stundum nefnist „gore-tex“. Það er vatns- og vindþétt og „andar" þar að auki - ekki er hætta á rakavandamáli hvað það snertir. Notkun og viðhald Áður en nýtt tjald er tekið í notkun er heppilegt að setja það upp heima við. Þannig má aðgæta hvort allt sé í lagi. Með því móti er einnig svigrúm til að útvega sér einhveija hluti áður en haldið er á vit náttúrunnar. Best er að vera vel kunnugur tjaldi sínu, í verslun skyldi ætíð spyrja sem allra mest um notkun útbúnaðarins - hvað tjaldið þolir af bleytu og vindi, hvernig hæla skal nota, hvort er hætta á að það rifni o.s.frv. Tjaldstaður veröur að sjálfsögðu aö vera eins þurr og kostur er. Blaut- ur eða rakur jarðvegur getur skapað rakavandamál og óþægindi inni í tjaldinu. Steinar og oddhvassir hlutir geta auðveldlega gert gat á botninn. I grasi leynast gjarna steinnibbur. Vert er að ganga úr skugga um slíkt við val á tjaldstæði. Tjaldhælar eru mjög mikilvægir þegar mikið mæðir á. Það borgar sig því að tryggja að bönd séu fest eins og gert er ráð fyrir. Því er líka mikil- vægt að svæðið í kring passi tjaldinu. Tjaldhæll of nálægt botni getur or- sakað gat sem stækkar þegar vindur blæs á dúkinn. Þegar tjaldað er skyldi ávallt skoö- að hvaða hliö eða hliðar tjaldsins taka á sig mestan vind. Bakhlutinn klýfur oftast vindinn best. Vindurinn er stærsti óvinur útilegufólks. Því borgar sig að leita vel að skjólgóöum stað - við kletta, í lautum eða á milli trjáa svo sem minnst mæði á. Varahlutir geta bjargað miklu Auka tjaldútbúnaður getur orðið að ómetanlegu gagni þar sem langt Þriggja herbergja tjald? Tjaldið fremst á myndinni er hústjald með stórum gluggum, gardinum og skipt- ist að innanverðu niður í þrjú innri „herbergi". í fortjaldi hústjalda er yfirleitt ekki tjaldbotn. Inni í tjöldum sem þessum skapast góð aðstaða og hiti. Þess ber þó að gæta að stór tjöld sem þessi taka mikinn vind i sig og hættir því til að fjúka. Verðiö fyrir 6 manna hústjald af þessari gerð er 39.995 kr. - 4ra manna kost- ar 29.995 kr. Létt tjöld henta best fyrir göngufólk. Þessi tjöld eru seld í Skátabúðinni og hafa tvær fíbersúlur á þverveginn. Fremsta tjaldið er 3ja manna og kostar 15.990 kr. Það vegur 3,7 kg. Tjaldið í miðjunni er einnig 3ja manna, það hefur þykkari botn og vegur 4,4 kg, verðið er 17.880 kr. Fjærst er svo 2ja manna 3ja kílóa tjald sem kostar 18.900 kr. Þessar tegundir eru allar úr nælonefni. er til byggöa. Þannig má nefna auka- tjaldstöng, hæla sem henta misjöfn- um aðstæðum, bætur og svokallaða tappa að ógleymdu saumaefni. í því sambandi getur terelynþráður veriö hentugur og saumnál. Bómullar- þráður með polyesterkjama er einn- ig heppilegur. Bómullin er vafin utan um kjarnann og þrútnar hún út þeg- ar þráðurinn blotnar. Tjald getur byrjað aö leka. Þetta skyldi ávallt hafa í huga þegar tjald er keypt. Mögulega geta bætur fylgt með en sé svo ekki er vert að útvega sér vaxefni eöa annað slíkt. Á sölu- stöðum eiga upplýsingar um þetta að vera fyrir hendi. Aö lokinni notkun verður að þurrka tjaldið og láta lofta vel um þaö. Einhver kann aö halda að ekki þurfi að gera slíkt með vatnsfrá- hrindandi efni. Þó skal aðgát höfð. Jafnvel þótt dúkurinn sjálfur sé þurr geta saumar og efni í rennilás enn verið blaut. Það ætti því að vera regla hvers og eins tjaldeiganda að huga vel að frágangi áður er pakkað er niður eða sett í geymslu. Tjöld eru seld og leigð Verð á tjöldum er æriö mismun- andi enda tegundir margar. Einnig er hægt að leigja sér tjald eða kaupa notað. Að sögn verslunarmanna standa íslensk tjöld sig prýðilega í sam- keppni viö innflutt. Þeim á að vera hægt að treysta vel þvi það eru þau tjöld sem eru framleidd fyrir okkar erfiðu aöstæður. Ávöl nælontjöld eru orðin nokkuð vinsæl. Þau eru létt og meðfærileg. Verð fyrir álíka tjöld af þessu tæi getur verið mismunandi. Það er vegna þess að botn þeirra er misjafn- lega þykkur og kemur það helst fram í þyngd þeirra. Hins vegar geta tjöld úr afar þunnum dúk verið ákaflega slitsterk. Hvað varðar viðgerðarþjónustu geta verslunareigendur yfirleitt bent fólki á hvar hægt er að fá gert við tjöld. í sumum tilfellum, þegar saum- ur hefur rifnaö, bæta seljendur kaup- endum skaðann. Hvað þetta snertir höfum við upplýsingar um að ís- lensku tjöldin standi sig ákaflega vel í þessu sambandi. Þetta er vert að hafa í huga strax við innkaup. Allur er varinn góður. 2ja, 3ja og 4ra manna APOLLO nælontjöld. Verð frá kr. 7.800, stgr. Kúlutjöld, 2ja og 3ja manna. Verð frá kr. 6.600 stgr. Bakpokar frá kr. 2.500, 8 geröir / tilefni 75 ára afmælis bjóðum við 10% staðgreiðsluafslátt af öllum vörum. Mik- ið úrval afstólum og borðum í útileguna. Hringdu og við sendum þér bækling. Sendum i póstkröfu um land allt. SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLÓÐ 7 - SÍMI 621780 DALLAS, 4ra mani Verð 29.995 stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.