Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 32
32
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
LffsstOl
mikilsvert að athuga hvort tegundir henti aðstæðmn
Eins manns göngutjald tekur lítinn vind á sig. Því lægra og ávalara því
minni hætta á aö það tjúki upp. Tjaldið fremst á myndinni er tvöfalt -
þ.e.a.s. tjald með himni yfir. Verðið er -5.330 kr. Næsta tjald er tveggja
manna og kostar 5.603 kr., i því er ein ávöl fíberstöng. Enn fjær er þriggja
manna kúlutjald með tveimur stöngum, það kostar 7.362 kr. Fjærst er svo
3-4 manna kúlutjald á 7.992 kr. með sérstökum rakaútbúnaði á toppnum.
Tjöldin eru öll úr nælonefni og fást hjá Seglagerðinni Ægi.
Á síðustu árum hefur úrval af tjöld-
um aukist mjög. Valmöguleikar eru
orðnir mjög margir hvað varðar teg-
undir og stærðir.
Það sem helst skal hafa í huga þeg-
ar tjald er valið er undir hvaða kring-
umstæðum á að nota það. Hvaða árs-
tíð, hvar skal nota tjaldið, fyrir
hversu marga o.s.frv.
Aðalatriöið er að tjöld haldi vatni
og vindi. Sumar tegundir eru jafnvel
ekki hentugar fyrir íslenskar að-
stæður - eru jafnvel sniðnar með það
í huga að halda flugum eða skordýr-
um í skefjum. Því skyldi vanda vaiið
og ganga vel úr skugga um slíkt.
Ógrynni af tjöldum eru á markaðn-
um, allt frá smáum eins manns tjöld-
um til stórra margskiptra hústjalda.
Þannig má nefna göngutjöld, jöklatj-
öld, tjöld með himni og hústjöld í
mörgum stærðum. í þessú sambandi
má einnig benda á það er vert að
kanna hvort varahlutir fást á við-
komandi sölustöðum.
Aðalatriði að tjald
haldi vatni og vindum
Mörg smærri tjöld eru sérlega
hentug við erflðar aðstæður. Jökla-
tjöld eru t.d. mjög skjólgóð og halda
vel vatni og vindum, þó þau séu mjög
létt. Hústjöld aftur á móti eru þung
og það stór að þau taka mikinn vind
í sig. Þeim hættir til að íjúka og getur
útilegan fengið snubbóttan endi af
þeim sökum.
í dag eru mörg tjöld seld þannig
að þau eru tvöfold. Með því móti er
innra tjaldið ávallt í skjóh. Þetta á
oftast viö um minni tegundir. Ytra
tjaldið á að vera algerlega vatnsþétt
- bil skal vera á milli ytra og innra
byrðis. Innra tjaldið er þá þannig úr
garði gert að það hefur vatnsþéttan
botn. Ef þess er gætt að festa hæla
tryggilega er lítil hætta á að tjaldið
fjúki. Litlu tjöldin eru þannig hönn-
uð að þau taka ekki vind í sig á þann
hátt að það raski legu þeirra. Sum
eru reyndar svo lág að þaö verður
að skríða inn í þau og leggjast.
Litlu tjöldin eru, eins og gefur að
skilja, léttust. Hér er oft um að ræða
aðeins 2-3 kg þunga. Efnið er mjög
þunnt og létt í sér, súlur eru þá
gjarna úr álefni sem er vandað og
eftirgefanlegt. Hættan á að þær
brotni er hverfandi. Dúkurinn er úr
þunnum fíberstyrktum dúk. Ef gat
kemur á efnið þá rifnar það aðeins
að næsta fíberþræöi. Botn þessara
tjalda er eiiinig 1 þynnra lagi. Þeir
sem kaupa minnstu tjöldin eru oftast
þeir sem vita að hverju þeir ganga,
vanir útilegu- eða göngugarpar sem
hafa ráð undir rifi hveiju.
Súlur gefa sig gjarna
Innflutt tjöld eru ekki hönnuð með
íslenskar aðstæður í huga. Veðurfar
t.d. í Evrópu er, eins og gefur að
skilja, allt annað en hér á landi. Því
henta margar tegundir síður á ís-
landi. Á meginlandi Evrópu er
kannski tjaldað til einnar eða tveggja
nátta í stílltu veðri. Þar eru veður-
spár einnig áreiðanlegri en hér á
landi.
Eriendis eru t.d. flugur mikill vá-
gestur þeirra sem vilja sofa í friði.
Tjöldin eru þá hönnuð með þetta í
huga. Súlur eru því ekki eins sterkar
og vera skyldi við okkar aðstæður.
Súlurnar halda tjaldinu uppi. Mik-
ilvægi þeirra er því mjög mikið. Því
brattari sem hliöar tjaddsins eru því
meira mæðir á þeim, ásamt dúknum.
Þar sem mikið blæs hættir dúk tíl
að nuddast utan í súlur eða órúnaöa
hæla. Þannig hafa tjöld rifnað upp á
skömmum tíma. Lítíð gat getur orðið
tíl þess að tjaldið rifni hreinlega upp
eins og dæmi sýna. í slíkum tilvikum
er lítið hægt að gera annað en að leita
gistiheimihs eöa jafnvel að pakka
saman og halda heim.
Tjaldað með afturhlutann
upp í vindinn
Oftast érú tjöld þannig úr garði
gerð að bakhlið þeirra er ávöl. Vind-
ur brotnar helst með því mótí. Það
hggur í augum uppi að snúa tjaldinu
þannig. En vindátt breytist gjama á
stuttum tíma. Það má því ætía að
ávöl tjöld hentí best hér á landi. Þau
eru lægst og kemur það niður á
plássi. Tjaldbúar verða að sitja en
geta aftur á móti verið öraggari um
sig.
Þegar farið er í útilegu er heppilegt
Tjöld meö svokölluðum fleygahimni er hægt aö fá i mörgum
stærðum hjá Seglagerðinni Ægi. Þau eru 3-5 manna og kosta
frá 7.283 kr. og upp í 34.687 kr. Dýrustu tegundirnar hafa him-
in úr bómullarefni. Veittur er 10% staögreiðsluafsláttur.
Notuð tjöld er hægt að kaupa hjá Sportleigunni við BSÍ. Tjöld-
in á myndinnl eru notuð og kosta 1.500-9.500 kr.
Tjaldborg framleiðir tjöld sem henta vel íslenskum aðstæðum.
Tjöldin á myndinni fást m.a. i Skátabúðinni og i Útilífi i
Glæsibæ. Til vinstri er 3ja manna tjald með myndarlegu yfir-
segli. Súluhæðin er 140 cm og breiddin 230 cm. Tjaldið vegur
11 kiló og kostar um 20.000 kr. Hægra megin er svo 3ja kílóa
göngutjald með yfirsegli. Rennilás er á báðum göflum - verð-
ið er II.900 kr.