Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
Sandkom
Sauðárkrókur
Thailandi
dægrastyttmg
þeirrasem
Rjúgameö
Flugleiðum er
aölesatíma-
ritið„Viðsem
fljúgum“.í
blaðinueroft
aðfinnahiö
skemmtilegasta lesefni og úttektir á
stöðum sem ferðast má tii.
í nýjasta tölublaði er að finna kynn-
ingu á tveimur áfangastöðum Flug-
leiða. Annar er Frankfurt en hinn
Sauðárkrókur. Mikiðer lagtuppúr
greininni um Sauöárkrók, hún er vel
unnin og tekur mikið pláss. Um þetta
er ekkert nema gott að segja en það
er forsíðumynd tímaritsins sem vek-
ur athygli. Ekki er hægt að sjá betur
en að myndin sé frá Sauðárkróki en
Flugleiðaraenn leiðrétta slíkar rang-
hugmyndir því í upplýsingadálki
blaðsins segir aö forsíðumyndin sé
frá Thailandi!
Hólmsteinar
RáöningHann-
esarHólm-
steinsGiss-
urarsonar sem
lektors í srjóm-
málafræði hef-
urveriðmikið
Ífjölmiölaljós-
inuuppásið-
______________ kastið. Þrátt
fyrir að vera í eldlínunni gaf mennta-
raáiaráðherra sér þó tima til aö
skreppa í lax í Elliðaámar ásamt
nokkrum fyrrverandi borgarstjór-
um, eftir því sem sagan segir.
Borgarstióramir fyrrverandi
renndu fyrir lax og síðan var beðið
átekta. Fljótlega mtm hafa bitið á hjá
Birgi í sleifi og hann hófst handa við
að draga fiskinn inn. Þaö tókst eftir
nokkra stund hjá steinum nokkrum
sem þessi hópur mun hafa veitt við
og em kaUaðir borgarstjórasteinar.
Sagan segir að Geir Hallgrimsson
hafi sagt við Birgi þegar fiskurinn var
kominn á land: „Þú náðir þá honum
í Hólmsteinum þessum." Nú er
spurningin h vort steinarnir hafa hér
raeöfengiðnýtt nafii.
JesseJackson og
m Ntiþegar
1 flokksþing
m\ dcmókrata í
§1§11l iii §1 Bandaríkjun-
r I umstendur
H semhæstog
Pi flokkurinn
'át sl muntitnetoa
wJá'W forsetaíram-
U bjóöandaer
ekki úr vegi að líta stuttlega til eins
litrikasta forystumanns flokksins og
helstu baráttumála hans. Jackson
hefur raeðal annars barist hart gegn
atvinnuleysi og þá einkum meðal
svartra. Gárungarrarsegjaað Jack-
son sé búinn aö finna einfalda lausn
á þessu vandamáh sem allir geti sætt
sig við og efli þar að auki Ukamlegt
atgervi þjóöarinnar. Lausnin er sú
aö fjölga körftiboltaUðum í NBA-
atvinnudeildinni upp í 2000.
Þorsteinn og
Afríkubragðið
Einsogalþjóð
erkunnugt
neyddistÞor-
steinn Pálsson
forsætisráð-
herratilað
hætta viðheim-
sókn sína til
Bandaríkjaima
ímaíþarsem
sfjómaþurfti landinu. Eitthvað heftir
Reagan þótt sárt að geta ekki gefið
Þorsteini tíu dropa og heftir nú boðið
honum aftur í heirasókn 10. ágúst
Nti hafa menn sagt að Uf rflds-
stjómarinnar ráöist með haustinu og
Stemgrimur Hermannsson hefur
ne&t næstu 2~3 vikur. Á þeim tíma
raun Þorsteinn halda tfl Bandarfkj-
anna og þá velta menn því fyrir sér
hvort hann þurfi aftur að hætta við
ferðina vegna stjómmálaástandstos
hér heimafyrir eða hvort beitt vcröi
því sem vinsælt hefur verið í Afriku,
ystumaöur hennar er erlendis.
Umsjón Jónaa Fr. Jónsson
Fréttir__________________________________________________________________pv
Brúin yflr Jökulsá á Dal:
Glæfraleg aðkeyrsla
vekur ugg vegfarenda
„Þarna er glæfraleg aðkeyrsla báð-
um megin og blindhæðir, sérstaklega
frá Egilsstöðum. Ef maður kemur
akandi austan frá þá er farið yfir
blindhæð og svo beygt meðfram
gljúfrunum um 200 metra kafla áður
en farið er í vinkilbeygju inn á brtina.
Þar er ekkert grindverk, aðeins
símastaurar á stangli sem reknir
hafa verið niður. Ef það springur á
bílnum eða ef mjög hált er, þá getur
farið svo aö bílferðin endi í beljandi
ánni á gljúfurbotninum. Þú syndir
ekkert yfir að bakkanum þar vegna
straums, þti berst á fleygiferð niður
eftir ánni,“ sagði Hörður Jónasson
verslunarmaður við DV.
Sagði hann furðu sæta að aðkoman
að þessari brú skuli ekki vera betur
tir garði gerð þar sem þetta sé þjóð-
vegur númer eitt. Þama fari margir
um.
„Ég hef heyrt að Vegagerðin vilji
ekki setja upp grindverk þarna þar
sem þá verði snjómokstur mun erfið-
ari. Mér er bara spurn hvort sé dýr-
mætara, snjómokstur eða mannslíf?"
Hðrður sagði að lítið plan væri við
brúarendann Egilsstaðamegin og þar
hleyptu rtitumar ferðamönnum tit
til að skoða gljtifrin. Skapaðist við
það hætta, bæði vegna þess að ekk-
ert grindverk væri við gljúfrin og
vegna þess að aöstaða til aksturs
þarna væri nógu þröng fyrir.
Hjá vegaeftirbti Vegageröarinnar
fékk DV þær upplýsingar að þar sem
símastaurar væm reknir niður með
nokkuð þéttu bili og væru með end-
urskinsmerkjum, ættu bílar ekki að
geta farið í gljtifrið. Aðspuröur hvort
erfiðleikar við snjómokstur hindr-
Aðkeyrslan að brúnni yfir Jökulsá á Dal séð austan megin frá. Aðkeyrslan
þykir óskemmtileg og glæfraleg. Biliö milli símastauranna, sem reknir hafa
verið niður meðfram aðkeyrslunni, er um sex metrar og ekki mikil vörn í
þeim. Erfiðleikar við snjómokstur eru sagðir hindra uppsetningu girðingar.
DV-mynd Ægir Kristinsson
uðu frekari öryggisráðstafanir, sagði
hann það af og frá að öryggi fólks
kæmi á eftir snjómokstri í mikil-
vægi. Slíkt gæti opinbemm stofnun-
um ekki dottið í hug. Viðmælandi
DV viðurkenndi þó að grindverk við
aðkeyrsluna myndi skapa meira ör-
yggi-
Girðing truflar snjómokstur
Hjá Einari Þorvarðarsyni, um-
dæmisverkfræöingi Vegagerðarinn-
ar á Reyðarfirði, fengust þær upplýs-
ingar að girðing eða „leiðari" á löng-
um kafla meðfram gljúfrinu myndi
ekki hjálpa mikið. Myndi hún líka
gera erfitt fyrir með snjómokstur og
yrði því aldrei til friðs.
„Menn fara varla út af þarna. Það
er smákantur að hlaupa upp á ef
staurarnir halda ekki. Menn kvarta
frekar þegar komið er að brúnni að
norðan. Þá er htin í hvarfi og því
kemur htin ailt í einu í ljós. Menn frá
vegaeftirlitinu gera tillögur um
merkingar og þeim fannst ekkert at-
hugavert við aðkeyrsluna."
Lögreglan á Egilsstöðum sagði að
fólk væri lítt hrifið af aðkeyrslunni
og hafi lögreglu að sunnan þótt hún
óskemmtileg. Mætti merkja hana
betur. Óhöpp hafi ekki oröið þar enn,
en bílar heföu oft skransað þar í
hálku. Þama hafi ensk kona fallið í
gljúfrið fyrr í sumar, en rúturnar
stoppuðu oft þarna til að sýna ferða-
mönnum gljtifrin. Mætti sjálfsagt
gefa sérstaka umsögn um aðkeyrsl-
una, en vegamál á Austurlandi væru
þannig að þessar aöstæður skæm sig
ekkert sértstaklega úr. Þaö væri af
nóguaðtaka. -hlh
Reykvískur húsasmiður keypti
graskögglaveríksmiðju
- foreldrar hans hafa séð um reksturinn í sumar
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Síðastliðið vor keypti ungur Reyk-
víkingur, Óli Óskarsson htisasmíða-
meistari, graskögglaverksmiðjuna í
Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafells-
sýslu. Verksmiðjan var eign ríkisins
en hætt var þar allri framleiðslu þeg-
ar ekki var talinn lengur grundvöllur
fyrir rekstri hennar.
Þegar verksmiöjan var auglýst til
sölu, ásamt húsum og búnaði, gerði
Óli tilboð í eignina. Samningar um
kaupin náðust eftir nokkra mánuði
og nti er graskögglaverksmiðjan
komin í gang á ný og framleiðslan
gengur vel.
Foreldrar Óla, þau Arnfríður ís-
aksdóttir og Óskar Ólason, hafa séð
um reksturinn í vor og sumar þar
sem Óli en enn bundinn við verk-
efni, sem hann er með við Blöndu-
virkjun. Aö þeim loknum mun hann
sntia sér að rekstri verksmiðjunnar.
Við hana starfa átta manns í sumar
og er unnið á þremur átta tíma vökt-
um.
600 hektara tún
Mikil vinna var í vor við að yfir-
fara og gera við vélar og áhöld og
Graskögglaverksmiðjan í Flatey á Mýrum.
DV-mynd Ragnar
sagði Óli aö verksmiðjan væri nokk-
uð vel btiin vélum. Helst þyrfti þó
að hafa tvöfaldan vélakost því öll
vinna byggðist á vélum og ef eitthvað
bilar og varahlutir eru ekki á staðn-
um stöðvast öll vinna. í Flatey er 600
hektara tún en í mikið af því þarf að
vinna og sá í aftur vegna óræktar.
Enginn kvóti fylgir
Nú eru aðeins þrjár grasköggla-
verksmiöjur eftir í landinu svo sölu-
horfur á framleiðslunni ættu að vera
góðar. Þegar Óli var spurður af
hverju hann hefði lagt út í þetta sagði
hann.
„Ef maður vill btia í þessu landi dug-
ir ekki að leggja allt niður og gefast
upp og ég er bjartsýnn á að þetta
gangi allt vel.“
Ekki reiknar Óli með að koma upp
bústofni í Flatey þar sem enginn
kvóti fylgir jörðinni. Hann lætur sér
bara nægja þau fjögur hreindýr sem
sest hafa að í Flatey og eru hin róleg-
ustu í túninu.
Óli Oskarsson ásamt foreldrum sínum, Arnfríði og Óskari.