Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
7
Fréttir
Þungbrýnn og munnljótur starir
karlinn ó heiðinni á ferðamenn
sem fara um Ijallveginn á milli
Patreksfjarðar og Barðastrand-
ar. En engum gerir hann mein
þvi hann er óvígur eftir að hönd-
ín var hoggin af og iiggur i brot-
um við fótstallinn. Vegagerðar-
menn hlóðu og steyptu kariinn á
vesturbrún Kleifarheiðar og seg-
ir ekki hver sé fyrirmyndin.
- DV-mynd pv
Ríkisstjómin
ekki í kreppu
- segir Jón Sigurðsson
„Ég veit ekki hvort þetta gefur til-
efni til yfirlýsinga af hálfu Alþýðu-
flokksins. Þessar tvær til þrjár vik-
ur, sem hafa verið nefndar, eru vikur
sem margir eru lausir við og fjar-
staddir. Mér skilst að forsætisráð-
herra fari meðal annars til Banda-
ríkjanna í ferðalag á þessum tíma.
Æfli þetta sé ekki of skammur tími,“
sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra þegar DV bar undir hann um-
mæli Steingríms Hermannssonar ut-
anríkisráðherra um þann tíma sem
ríkisstjómin hefur til þess að koma
sér saman um aðgerðir í efnahags-
málum.
- En er ríkisstjórnin ekki í kreppu
þessa stundina?
„Ég kannast ekki við það,“ sagði
Jón. -gse
Ættarmót í
Ófeigsfirði
Regína Thoiarensen, DV, Selfossi;
Ófeigsfj arðar-ættarmót á Strönd-
um verður haldið 22.-24. júlí næst-
komandi og er reiknað með miklu
íjölmenni á það. Ef ég þekki rétt til
þá verður sungið þar mikið af ætt-
jarðarljóðum því Ófeigsíjarðarfólk
er mikið söngfólk og bráöskemmti-
legt.
Pétrn- Guðmundsson er kominn í
Ófeigsíjörð með sína fjölskyldu enda
er hann þar á hverju sumri við dún-
tekju og að hirða reka á ættaróðali
sínu. Elín móðir hans, sem er nýlega
orðin ekkja, er einnig komin til að
undirbúa móttökumar fyrir hópinn
stóra sem væntanlegur er. Þar eiga
alhr að halda til og margt verður til
skemmtunar. Matur mikill og senni-
lega verður selkjöt þar á borðum og
selshreifar.
Að sögn Halldóru Sveinbjömsdótt-
ur, sem er einn mesti stólpi Ófeigs-
fjarðarættarinnar, verður ættartala
Öfeigsijarðar gefin út og afhent gest-
um 22. júlí þegar mótið hefst. Rútu-
ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni
og einnig fer fólk í einkabílmn og
flugvélum. Það er ósk mín að sól og
logn verði meöan á mótinu stendur,
því veðráttan hefur aUtaf sitt aö segja
á Ströndum sem annars staðar. Góöa
ferð og skál.
Jon anægður með
tillögur bankanna
„Það sem ég tel velkomið í þessu
er að bankamir velta því nú fyrir sér
hvemig viðskiptum með ríkis-
skuldabréf sé best farið. Þær hug-
myndir sem þeir nefna um ríkisvíxl-
ana, sem ég tel reyndar að ættu að
eiga við um öll ríkisskuldabréf,
benda til þess að hægt sé að ná sam-
komulagi viö aðila á verðbréfamark-
aði um að þeir starfi sem ábyrgir
aðilar. Þeir taki að sér að selja fyrir
ákveðnar fjárhæöir á ákveðnu tíma-
bih og ef þeim tekst ekki að koma
bréfunum í lóg þá hggi þeir uppi með
þau sjálfir. Þetta tel ég mjög tíma-
bært og nauðsynlegt að ræða og það
verður gert á næstunni," sagði Jón
Sigurðsson viðskiptaráöherra.
- Þú ert tilbúinn til þess að beita
þér fyrir því aö bindiskylda ban-
kanna verði hækkuð þar til niður-
staða hefur fengist úr þessum við-
ræðum?
„Ég hef heimilað Seðlabankanum
að beita frekari innlánsbindingu um
aUt að tveimur af hundraði. Þetta er
ekki ákvörðun. Ákvörðunin er hjá
Seðlabankanum. Þeir sendu mér
ekki tiUögu um hækkun bindiskyldu,
eins og áöur hefur verið, heldur ósk-
uðu þeir eftir heimild. Þá heimild
fengu þeir. En það er rétt athugaö
að þetta er einn þáttur af mörgum í
peningamálamyndinni."
-gse
* Hleðslutæki
* Árar
* Pumpa
Innifalið í verði:
* Gúmmibátur fyrir tvo
* Rafmótor
* Rafgeymir
GUMMIBATUR
MEÐ
MÓTOR
VERÐ KR. 14.600
STAÐGR. KR. 13.870
Sendum i póstkröfu
Kreditkortaþjónusta
Ármúla 40 - Simi 35320
/M4R
D
HJOLHYSi - FARANGURSVAGNAR
SÝNING Á LAUGARDAG, KL. 10-16
Fólksbílakerra nrieð segli og fullum Ijósabún- Farangursvagnar með Ijósum. - Þyngd að-
aði. - Gott tæki til allra flutninga. - Burðar- eins 100 kg. Verð kr. 42.300,-
geta 400 kg. Verð aðeins kr. 48.800,-
VÉLAR OG ÞJÓNUSTA “!si 2 sími 83266 - 686655