Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
Utlönd
Haustkosningar í Pakistan
Forseti Pakistans, Zia ul-Haq, til-
kynnti í morgun að þing- og héraðs-
stjórnarkosningar yrðu haldnar í
landinu þann 16. nóvember á þessu
ári.
Allt frá þvi í maílok hafa menn
verið að velta því-fyrir sér hvenær
efht yrði til kosninga því þá var
forsætisráðherra landsins, Mo-
hammad Khan Junejo, vikið írá og
neðri deild þingsins leyst upp. Þeg-
ar Zia ul-I-Iaq lét stjórnina fara frá
í maí iofaði hann kosningum innan
níutíu daga.
Forsetinn sagði ekki hvort stjórn-
málaflokkum yröi lejdð þátttalca í
kosningunum.
Loksins rigning
Kærkomiö regn féll á meginhluta þurrkasvæöanna í Bandaríkjunum
siðla mánudags og í gær og var þaö nokkur huggun sama daginn og
kunngerö var spá kunnra loftslagsfræðinga þess efnis að búast megi viö
því að næstu sextíu sumur-verði jafnþurr og þetta sumar.
Á miðhluta þurrkasvæðanna mældist úrkoman 5 til 10 sentfmetrar en
annars staðar komu aðeins góðar skúrir í kjölfar þrumuveðurs.
Samfara rigningunni hefur hitinn lækkað í bih. Þessu valda kuldaskil
á leiö suðvestur yfir Bandaríkin. Þegar þau hverfa er útlit fyrir áfram-
haldandi hita og þurrka. Samt er betra hljóö í bændum og um leið og
rigndi féll korn aftur í verði.
Stjórnvöld segja að þótt uppskeran verði íjóröungi minni i ár en í meöal-
ári séu kombirgðir nægar, bæði til innanlandsneyslu og til venjulegs
útflutnings.
Verstu fréttirnar eru frá frægum loftslagsfræðingum sem hafa með
tölvureikningi verið aö spá fyrir um raka í jarðvegi næstu áratugina.
Niðurstöðumar era ógnvekjandi. Næstu sextiu sumur verða lík þessu
sumri, heit og þurr. Þessu valda hin svonefndu gróðurhúsaáhrif sem stafa
af sívaxandi notkun eldsneytis úr jörðu. Notkun þess eykur koltvisýring
í andrúmsloftinu sem aftur kemur í veg fyrir að geislar sólarinnar nái
til jarðar og við það hækkar hiti á jörðunnL
LoftslagsfrakMngarnir ráöleggja aukna notkun kjarn- og sólarorku og
aö bændum i miðvesturríkjunum verði hjálpað til að rækta korn að vetr-
arlagi eða gjörbreyta vökvunaraðferðum.
ShuHz tlB Mið-Ameríku
Aö áliti skopteiknarans Lurie hetur sáttasemjarinn Shuttz nóg að gera
vlð að koma á friði i heiminum.
Utanríkisráöherra Bandarikjanna, George Shultz, mun í byrjun næsta
mánaðar hitta aö máli utanríkisráðherra Costa Rica, Guatemala, Hondur-
as og E1 Salvador í Guatemala.
í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu segir að ráöherram-
ir muni ræða friðartilraunir í Mið-Ameríku og aðferðir til að koma á
lýðræöi, öryggi og efnahagsumbótum á svæðinu.
Shultz fór til fyrmefndra flögurra landa í júní síðastliönum til að ráðg-
ast viö ráöamenn þar um hvemig mætti binda enda á stríðið milli sandín-
ista og kontraskæruhða í Nicaragua. Friðarviöræður milh þessara aðila
fóru út um þúfur í júni og Bandaríkjastjóm hyggst gera nýjar tilraunir
til þess aö reyna að sannfæra þingiö mn að taka upp á ný hemaðarað-
stoö við kontraskæruhða.
Shultz er nú á feröalagi í Asíu.
Bændur mótmæla
Til átaka kom í gær í Seoul í Suö-
ur-Kóreu þegar bændur efndu til
hópgöngu og reyndu að komast að
þinginu th að bera fram mótmæh
sín gegn fijálsari matvælainnllutn-
ingi frá Bandaríkjunum. Banda-
ríkjamenn liafa þrýst á yfirvöld í
Suöur-Kóreu um að opna markað-
inn og em bændur því uggaxidi um
hag sinn.
Er lögregla stöövaði fór bænda
réðust þeir að lögreglumönnunum
með lurkum.
Delvalle tll Panama
Eric Arturo Delvalle, forseti Panama, sem settur var af í febrúar eftir
að hann reyndi aö reka Noriega hershöfðingja, kom heim til Panama í
gær eftir níu daga ferð um Bandaríkin.
Reagan Bandaríkjaforseti lofaði DelvaJle stuöningi sínum viö að koma
á lýðræði í landinu. Reaganstjómin hefur hætt íjárhagsstuðningi sínum
við Panama og fryst bankainnstæður í Bandaríkjunum.
Delvalle hefur farið huldu höfði síðan í febrúar en honum er leyfilegt
að fara úr landi í tíu daga án þess að ráðfæra sig viö yfirvöld eða fá sam-
þykki þeirra.
Keutcr
Óeirðalögregla í Seoul í Suður-
Kóreu vamar bændum aðgöngu
að þinginu. Símamynd Reuter
Zia ul-Haq, forseti Pakistans.
Mótmæla stefnu
forsetans
Óeirðalögregla í Lima, höfuðborg Perú, handtók að minnsta kosti 230 manns
á fyrsta degi allsherjarverkfalls í landinu.
Símamynd Reuter
Til átaka kom milh lögreglu og
verkafólks í Lima, höfuðborg Perú, á
fyrsta degi tveggja daga allsherjar-
verkfalls þar í landi. Stærsta verka-
lýðsfélag Perú, Samband verka-
manna, boðaði verkfalhð í strássi við
bönn stjórnvalda til að kreíjast hærri
launa og mótmæla stjórnarstefnu
Alans Garcia, forseta Perú.
Lögreglan handtók a.m.k. 230
mánns á fyrstu klukkustundum
verkfallsins og átta manns særðust,
þar af tveir af völdum byssuskota
lögreglu. Öflug sprengja sprakk í
höfuðstöðvum landbúnaöarráöu-
neytisins en enginn slasaðist.
Verkfalhð kemur í kjölfar ákvörð-
unar námaverkamanna í Perú þess
efnis að hætta vinnu um óákveöinn
tíma. Verkalýðsfélagiö, sem telur um
eina og hálfa mihjón manna, vill fá
hækkun kaups til að halda í við sí-
vaxandi verðbólgu í Perú en áriö
1987 náði hún um 230 prósentum.
Verkalýðsfélaginu og ríkisstjóm-
inni ber ekki saman um þátttöku í
verkfallinu. Formaður verkalýös-
félagsins sagði aö þátttaka hefði ver-
ið 100 prósent en vinnumálaráðherra
Perú sagði að 90 prósent verkamanna
á landsbyggðintii og 85 prósent
verkamanna í höfuöborginni hefðu
mætt til vinnu. í höfuðborginni voru
flestar verslanir og verksmiðjur lok-
aðar og almenningsfarartæki vora
ekki í gangi.
Reuter
Aðgerðum Armena frestað
Um hálf milljón Armena safnað-
ist saman til fundar í Jerevan, höf-
uðborg Armeníu, í gærkvöldi í kjöl-
far ákvörðunar forsætisnefndar
æðstaráðs Sovétríkjanna þess efnis
að Nagorno-Karabakh-hérað yrði
ekki fært undir stjórn Armeníu
eins og íbúar þess höföu krafist.
Að sögn fréttamanna var aðgerð-
um íbúa gegn ákvörðun yfirvalda
frestað í sólarhring. Mannfjöldinn
dreifðist um klukkan tíu í gær-
kvöldi að staöartíma til að fólk
fengi tækifæri til að fylgjast með
sjónvarpsfréttum af fundi æðsta-
ráðsins um málefni Nagorno-Kara-
bakh.
Fréttir af fundi æðstaráðsins, þar
sem kröfu íbúa Nagorno-KaraLakh
og Armeníu var alfarið hafnað,
bárust seint til almennings. Al-
menningur vissi ekki um niður-
stöður fundarins í u.þ.b. sólar-
hring. Talið er að þessi þögn hafi
stafað af áhyggjum stjórnvalda um
að nýjar róstur brytust út.
Mikhail Gorbatsjov, aðalritari
sovéska kommúnistaflokksins,
sagði að fólk „hefði gengiö af göfl-
unum“ vegna þessa máls og kvað
tíma vera kominn til að kveða nið-
ur óeirðirnar vegna kröfu Armena
og íbúa Nagorno-Karabakh en
fyrstu átök vegna þeirra hófust fyr-
ir fimm mánuðum.
Reuter
Róstur blossa upp
í Jerúsalem
Róstur í Jerúsalem blossuðu upp á
nýjan leik í gær þegar 16 ára Jerúsa-
lembúi af arabaættum var borinn til
grafar. Unglingurinn lést af völdum
skothríðar ísraelskra lögreglumanna
ög er það í fyrsta sinn sem arabi,
búsettur í Jerúsalem, er skotinn til
bana síðan óeirðir blossuöu upp í
borginni fyrir sjö mánuöum.
Atvikið átti sér stað í Beit Hanina
hverfinu í eldri hluta Jerúsalem sem
lögregla segir að sé utan síns lög-
sagnammdæmis. Telur lögreglan að
hermenn hafi átt þátt í atvikinu.
í kjölfar skothríðarinnar blossuðu
upp róstur í borginni. Mörg hundmð
unglingar söfnuðust saman til mót-
mælagöngu gegn ísraelum og slasað-
ist einn ísraelskur lögreglumaður
alvarlega.
Að minnsta kosti 236 Palestínu-
menn hafa látið lífið síöan óeiröirnar
hófust á herteknu svæðunum í des-
ember síðastliðnum. Unglingurinn,
sem lést í gær, er fyrsti palestínski
íbúi Jerúsalem sem deyr. Nokkur
friður haíði ríkt milh Palestínu:
manna og ísraela í Jerúsalem en
dauði unghngsins varð til þess aö
róstur blossuðu upp á nýjan leik.
Reuter
Þúsundir söfnuðust saman þegar fyrsti Palestínumaðurinn í Jerúsalem, sem
myrtur hefur verið af ísraelum síðan róstur hófust, var borinn til grafar.
Simamynd Reuter