Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
11
Utlönd
Er friður í nánd
í Kampútseu?
Mikill þrýstingur er nú á ríkis-
stjórn Kína frá stjórnarerindrekum
vestrænna sem og asískra ríkja um
að stjórnvöld þar í landi reyni að
hafa áhrif á áætlanir Rauðu kmer-
anna í Kampútseu eftir að brottflutn-
ingi herliös Víetnama þaöan lýkur
fyrir árslok árið 1990.
Rauðu kmerarnir
Rauðu kmerarnir, sem voru við
völd í Kampútseu á seinni hluta síð-
asta áratugar og studdir voru af Kín-
veijum, eru stærsti hópur skæru-
liðahreyfmgarinnar í Kampútseu.
Hreyfingin, sem í eru þrír hópar
skæruliða, var stofnuð í kjölfar inn-
rásar Víetnama árið 1978 en þeir
steyptu stjórn kmeranna af stóli.
Að sögn eins stjórnarerindreka
segjast Rauðu kmerarnir hafa yfir
60 þúsund manna herliði að ráða.
Reyndar draga margir í efa að herlið
þeirra telji fleiri en 30 þúsund en það
er svipaður fjöldi og herlið stjóm-
valda í Phnom Pehn. Rauðu kmer-
amir segja einnig að Kínverjar styðji
þá í baráttunni gegn innrásarliðinu
með vopnasendingum.
Þrýst á kínversk stjórnvöld
Búist er við að Sihanouk prins, sem
Bæði vestræn ríki sem og asísk vilja allt til vinna að Rauðu kmerarnir nái ekki völdum í Kampútseu á nýjan leik.
George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur ferðast um Asíu til aö vinna að viðræðum hinna stríðandi
afla í Kampútseu. Símamynd Reuter
Herlið Víetnama réðst inn í Kampútseu árið 1978 til að steypa stjórn Pol
Pots og Rauðu kmeranna af stóli.
sagði af sér leiðtogaembætti skæm-
höahreyfingarinnar nýlega, muni
leggja leið sína til Kína til að freista
þess að hafa áhrif á gang mála.
Einnig hafa erlendir embættis-
menn, þ.á.m. George Shultz utanrík-
isráöherra Bandaríkjanna, reynt að
beita Kína pólitískum þrýstingi.
Kínverska stjómin hefur fullvissað
þessa aðila um að Rauðu kmeramir
muni ekki hafa lykilhlutverki að
gegna í stjórn Kampútseu eftir að
víetnamska herhöið hverfi á braut.
Bandarískur embættismaður sagði
að stjórnin í Kína hefði gefið það til
kynna í viðræðum við Shultz að leið-
togar Rauðu kmeranna, þ.á.m. Pol
Pot, myndu draga sig í hlé þegar víet-
namskt herhð væri á brott. Opin-
berlega hefur kínverska stjórnin
ekkert látið hafa eftir sér um það.
Kínverjar vilja ekki Rauðu
kmerana
í tilkynningu frá kínversku stjórn-
inni þann 1. júh sl. hvatti hún til
þess að stofnuð yrði fjögurra fylkinga
Spilavíti
í Danmörku
Gizur Helgason, DV, Reersnæs:
í haust verður að öllum líkindum
lögð fram sú tillaga í danska þjóð-
þinginu að heimilaður verði rekstur
spilavíta á danskri grund. Vitað er
að flestir þingflokkanna eru jákvæð-
ir gagnvart frumvarpinu en þó hafn-
ar Kristílegi þjóðarflokkurinn algjör-
lega hugmyndinni.
Með stofnun spilavíta hyggjast
Danir auka ferðamannastrauminn
til Danmerkur en auk þess að koma
í veg fyrir aö þúsundir spilafíkinna
Dana sæki til útlanda til þess að seðja
fíkn sína.
í Danmörku er fjöldi ólöglegra
spilavíta en ekki er tahð að opnun
opinberra spilavíta muni útrýma
þeim ólöglegu því auk spenningsins
við spilaborðið fylgir spenningurinn
við framkvæmd hins ólöglega.
Hótel Sheraton í Kaupmannahöfn
hefur nú þegar lýst því yfir að uppi
á átjándu haéð séu 450 fermetrar sem
á örfáum mánuðum geti breyst í
spilavíti á heimsmæhkvarða.
Fyrir nokkrum árum lagði Fram-
faraflokkurinn fram tillögu um opn-
un spilavíta, sú tillaga náði ekki fram
að ganga, en nú virðist aftur á móti
meirihluti fyrir tillögunni.
Steinakrýl
er meira en
venjuleg
málning
málning't
Kópal
Dýrótex er
útimálning
sem
dugar vel
málning't
stjóm stríðsaðila eftir að Víetnam
drægi herhð sitt til baka. Tahð er að
með þessari thlögu gefí stjórnvöld í
Kína til kynna að þrátt fyrir ósk um
stjóm sem hliðholl sé Kínveijum vilji
þau ekki fá Rauðu kmerana við
stjórnvölinn á ný.
Margir telja að Kínverskum stjórn-
völdum muni ekki takast að hafa
hemil á Rauðu kmerunum. Þeir taka
sem dæmi að við fjöldamorð Rauðu
kmeranna á valdatíma sínum hafi
kínversk yfirvöld setið aögerðalaus
hjá. Talið er að Rauðu kmerarnir
hafi átt sök á dauða allt að einni
mihjón íbúa landsins.
Friðarviðræður hinna stríöandi
afla í Kampútseu hefjast í Jakarta í
Indónesíu á mánudag. Eftir að Si-
hanouk prins sagði af sér dró eitt-
hvað úr vonum manna um að við-
ræðurnar bæm árangur sem erfiði.
Þær eru þó skref í rétta átt því þetta
verður í fyrsta sinn sem allir aðharn-
ir hittast eftir innrás Víetnama.
Reuter
Veldu
Steinvara
2000
gegn
steypu-
skemmdum
r irmE
Júlí- heftið komið út
r dn irwsiE
MANEX
HÁR-
VÖRURNAR
HAFA
SÉRSTÖÐU
Próteinbætti Manex
hárvökvinn samanstendur af
22 amínósýrum sem inni-
halda nægilega lítil mólikúl
til að komast inn í hárslíðrið
og næra hárrótina með
hreint undraverðum árangri.
Virkni próteinbætta
hárvökvans er ótvíræð:
/
/
/
Hárvökvinn stöðvar hárlos í
allt að 100% tilvika.
Flasa hverfur í 100% tilvika.
í 73% tilvika hefur Manex
hárvökvinn endurheimt hár
í hársverði þar sem lífsmark
er enn með hárrótinni.
/
Með því að bæta hár-
vökvanum í permanent festi,
næst langvarandi ending
permanents í þunnu hári.
/
/
Próteinbætti Manex hár-
vökvinn dregur úr exemi í
hársverði.
Hárvökvinn lífgar og styrkir
hár sem er þurrt og slitið
eftir efnameðferð.
Manex hárltekninga-
vörumar samanstanda af
sjampó, hárnceringu, vítamín-
töflum og prateinhcettum
hárvökva og fást á flestum
rakara- og hársnyrtistofum
um land allt.
HEILDSÖLUBIRGÐIR
amörosía
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SÍMI 680630