Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
13
dv Útlönd
Hótuðu að
grýta vanfæra
konu
Sumajdiði fate&Bon, DV, Árósum:
Mun fleiri ilóttamenn hafa nú
sótt um hæli í Danmörku en á
sama tíraa í fyrra, aö því er segir
í skýrslu frá danska útlendinga-
eftirlitinu. Hefur danski Rauði
krossinn átt í vandræöum meö
aö hýsa flóttamennina á meðan
beðið hefur verið eftir úrskurði
um hvort þeir fái að vera áfram
í landinu.
Aukinn fjöldi þeirra sem sækir
um hæji er ein skýring á hvers
vegna viðhorf í garð flóttamanna
hafa breyst. Reynt er að tak-
marka fjölda þeirra sera mest,
reglum er fylgt út í æsar og fólki
vísað úr landi ef það uppfyllir
ekki nauðsynleg skilyrði.
Framfaraflokkurinn, sem.sérs-
taklega hefur beitt sér. fyrir því
að takmarka fjölda útlendinga í
landinu, einkum múhameðstrú-
armanna, hefur lika ýtt undir
þessi viðhorf. Aukna andstöðu
hér í landi gegn flóttamönnum
og innflyfjendum má meðal ann-
ars sjá af sífellt meira fylgi flokks-
ins í þeim skoðanakönnunum
sem geröar hafa veriö að undan-
fórnu.
Mál ungrar sýrlenskrar flótta-
konu hefur vakiö athygli. Hún
flúði frá heimalandi sínu vegna
þess að hún óttaðist um líf sitt
þar. Bræöur hennar höfðu hótað
að grýta hana til bana vegna þess
að hún var vanfær. Bamsfaöir-
ínn var unnusti hennar en það
var ekki nóg því þau voru ógift.
Þar meö hafði hún sett blett á
heiður fjölskyldunnar sem ekki
yrði afmáöur á annan hátt en
þann aö taka hana af lífi.
Stúlkan reyndi aö komast gegn-
um Þýskaland og Danmörku til
Svíþjóðar þar sem hún á ættingja.
Henni var vísaö frá í Svíþjóö en
í Danmörku fékk hún leyfi til að
dvelja að minnsta kosti á meöan
hún fáeddi bamiö. En umþóttun-
artíminn var ekki langur. Hún
fékk aö vera í landinu í fjórar
vikur. Eftir að fæöingin var af-
staöin var henni vísað aftur til
Þýskalands þrátt fyrir aö hún
hefði engan vísan dvalarstaö eða
vissi um hæli þar og hefði ekki
einu sinni fæðingarvottorð fyrir
barnið.
Þessi málsmeðferö er nú gagn-
rýnd harkalega hér í Danmörku
og yfirvöld sökuð um að koma
ómannúðlega fram. Hafa gagn-
rýnendur meðal annars bent á
að lágmark hefði verið að konan
hefði fengið að vera í landinu í
24 vikur eða sama tíma og konur
hér fá í fæðingarorlof. Eftir að
flölmiðlar vöktu athygli á málinu
hafa margir boðist til að taka á
móti konunni ef hún fær heimild
til aö koma aftur til landsins.
Áskrifendur!
Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin.
Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna.
Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti.
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnstmaigt:
t Þærlosaáskrifendur
viðónæðivegna inn-
heimtu.
t Þæretuþægilegur
greiðslumáti sem
tryggir skilvísar
greíðslur þráttfyrir
annireðafjaivistir.
• Þærléttablaðberan-
um stöifín en hann
heldurþóóskertum
tekjum.
f Þæraukaöiyggi.
Blaðberarerutil
dæmisoftmeðtölu-
verðarfjárhæðirsem
geta glatast.
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga,
laugardaga kl. 9-14
í síma 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.
_ __________________________
Iteb________________________________________________________
Skop......................................2
Gervihnettir, gersemar geimaldar............3
Hringrás eilífra endurtekninga..............10
Hve lengi endist Gorbasjov?...................17
Planta andskotans...............................23
Ráðabrugg í Níkaragúa............................33
Föst í jökulsprungu................................42
Hugsun í orðum..................................... 48
Oft hef ég fundið almættishönd drottins...............50
Með skrímsli í skrokknum............................... 61
Viðvörun: Reykingar geta skaðað kynlífið..................85