Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
15
Ýmislegt er óviðunandi
DV prentaöi 1. júlí sl. grein mína
„Þaö er margt gott á íslandi“. Ég
ætla ekki að draga neitt til baka -
gott er aö hafa heilsuvernd, gott er
að allir hafa aðgang aö menntun.
Hins vegar er ýmislegt óviðun-
andi og eins og sagt er „margt smátt
gerir eitt stórt". Hér eru ýmiss kon-
ar mál sem eru óviðunandi.
ísland í hugum manna er-
lendis
Á ferð minni í Bandaríkjunum í
júní sl. fann ég að fólk þekkti nafn-
ið „Reykjavík", fundarstað Reag-
ans og Gorbatsjovs, en þeir vissu
ekki aö landiö var ísland. Fyrsta
spuming var „Hve margir íbúar
eru á íslandi?" En þeir vildu varla
trúa mér að við værum tæplega
250.000 manns, þ.e.a.s. 1 pro mill,
samanborið við um 250 milljónir
Bandaríkjamanna.
En meiri varð undrun þeirra þeg-
ar þeir skildu að til var mál lands-
ins, „íslenska“, íslenskar bók-
menntir, listamenn, jafnvel íslensk
söngkona, María Markan, sem
hafði verið stjama í Metropolitan
Opera í New York. Til þess að halda
nafni íslands á lofti er rétt og nauð-
synlegt að skýra frá list og menn-
ingu íslands. En ríkið og borgin
gera lítið í þessum málum.
Listmunir borgarinnar
ekki hirtir
Á gönguferðum mínum sá ég
styttur í eigu Reykjavikurborgar.
Myndin sýnir styttu sem stendur í
Austurstræti við Útvegsbankann.
Styttan er ómerkt. Þar vantar nafn
höfundar, vinnuár og heiti stytt-
unnar. Styttan var óhrein, raf-
magnskassi var fast við stallinn og
auglýsingar hmdar á. Ég talaði við
deild gatnamálastjórans, símleiðis,
KjaHaiinn
Eiríka A. Friðriksdóttir
hagfræðingur
og fekk oviðunandi svar. Styttur
væm hreinsaðar eftir kerfi ein-
hverrar nefndar, óháð því hvar
þær væra o.s.frv.
Við Listasafn íslands era tvær
ótrúlega góðar styttur við innganga
(einn þeirra læstur) og vora þær
algerlega ómerktar. Eftir kvartanir
mínar vora hthr pappírsmiðar
hmdir á veggi innanhúss (en húsið
er aðeins opið 6 daga vikunnar kl.
11-17). Þar var skýrt frá að um
verk Sigurjóns Ólafssonar væri að
ræða en hann var einn af bestu
hstamönnum landsins.
Mig langar að leggja til að allar
höggmyndir, innan- og utanhúss,
verði greinilega merktar með
málmplötum eins og venja er er-
lendis.
Fyrir hverja er listahátíð?
Ég var spurö um þetta af starfs-
manni Listasafns íslands. „Er hún
fyrir erlenda feröamenn eða ís-
lendinga?" Svarið mitt var og er
fyrir hvora tveggja. En fólk á elh-
launum og fatlaðir á styrkjmn geta
ekki haft not af bestu sýningu
Listasafnsins - sýningu á myndum
Marcs Chagah. Ég hef haft áhuga
á ChagaU í mörg ár. Fyrst sá ég
glugga í Jerúsalem og 1983 stóra
sýningu í Louisiana í Danmörku.
Eg var þvi ánægð að sýningin hér
er til 14. ágúst. Eg keypti sýningar-
skrá fyrir 800 kr. (pappírskUju,
bundin er verðið kr. 1000). Að-
gangseyrir var kr. 300. Þegar ég
kom inn í salinn uppgötvaði ég að
myndimar voru aöeins merktar
meö númerum, ekki heiti eða
vinnuári (sem er áríðandi hjá
ChagaU). Aöeins með notkun sýn-
ingarskrár var hægt að fá þessar
upplýsingar. Auk þess var ekki
bent á að í kjaUara hússins var
myndband, mjög gott, jafnvel nauð-
synlegt fyrir þá sem vildu sjá Cha-
gaU-sýninguna.
í Bandaríkjunum var ég aUtaf
spurð hvort ég væri „eldri borg-
ari“ og fékk ég aðgang að mörgum
sýningum fyrir hálfvirði. En þetta
er ekki regla í Listasafni íslands.
Tekjur lífeyrisþega era samtals
aðeins kr. 26.684. Þvi er útilokað
að þeir geti komið á ChagaU-sýn-
inguna og greitt kr. 1100 (aðgang
kr. 300 og sýningarskrá kr. 800).
Styrkur hins opinbera tíl fatlaðra
er einnig aðeins kr. 26.684 mánað-
arlega. Afsláttur er kr. 100 fyrir
hóp, en félag eldri borgara fékk
engar upplýsingar, að því er ég
best veit. Þar sem hstahátiðin er
nú búin en sýning ChagaUs enn
opin, legg ég til að einn dagur vik-
unnar verði ákveðinn sem dagur
aldraðra, aðgangseyrir lækkaður í
kr. 150 og sýningarskrá lánuð eldri
eða fötluðum gestum.
Stólar ekki nothæfir fyrir
aldraða og fatlaða
Nokkuð fáir stólar era í forstofu
og í sal 4 (konkrethst) en þeir eru
svo lágir, án baks og arma, að eldra
fólk og fatlaöir geta varla staðið
upp. Rannsókn mín um heimaslys
(útgefin sept. 1987) sýndi einmitt
mörg slys vegna stóla. Væri ekki
hægt að vinna með sjúkraþjálfum
við hönnun innréttinga í stofnun-
um sem ætlaðar era almenningi?
Sjúkraþjálfarar þekkja þarfir aldr-
aðra og fatlaðra. Það er nauðsyn-
legt að hafa í huga að á íslandi era
margir eldri menn og fatlaðir sem
hafa áhuga og þekkingu á hst, og
rétt þeirra til að njóta listarinnar
ber að virða í verki.
í Listasafni ASÍ var sérstaklega
góð málverkasýning, „Fiórar kyn-
„Myndin sýnir styttu sem stendur
í Austurstræti við Útvegsbank-
ann.“
slóðir", 4.-17. júh. Tekiö var tillit
ti aldraöra og fatlaðra. Þeir greiddu
aðeins kr. 100 í aðgangseyri, þ.e.a.s.
helming, og sýningarskrá innifalin.
HjólastóU handa hreyfihömluðum
er til notkunar.
Eiríka A. Friðriksdóttir
„Styttan er ómerkt. Þar vantar nafn
höfundar, vinnuár og heiti styttunnar.
Styttan var óhrein, rafmagnskassi var
fast við stallinn og auglýsingar límdar
á.“
Umhverfisvemd eða sölubrella?
„Sums staðar erlendis er sérstakur
endurkaupaskattur á bjór- og gos-
drykkjadosum. Slíkan skatt mætti
hæglega taka upp hér.“
Nýjasta bragöið til aö fá böm tU
að kaupa meira af gosdrykkjum er
að heita verðlaunum fyrir að safna
svonefdum fhpum sem rifnir era
af gosdrykkjadósum þegar þær era
opnaðar. Gosdrykkjaverksmiðja
ein og fáeinir poppfjölmiölar hafa
bundist tryggðaböndum um þetta
verkefni og kynna það sem, nei,
ekki ráð tU að geta selt meira kók
heldur sem „átak í umhverfis-
vemd“.
Engar dósir við vegina
Vitaskuld væri það miklu ein-
faldara að framleiða aUs ekki gos-
drykki í einnota umbúðum af
neinu tæi ef markmiðið væri um-
hverfisvemd. Eða þá að gera dós-
irnar þannig úr garði aö flipa væri
ekki hægt að skUja frá dós. Og hvað
verður um dósimar sjálfar þegar
flipunum hefur veirð safnaö?
I stað hinna hefðbundnu varða
við foma fjallvegi era nú vegir
landsins varðaöir gosdrykkjadós-
um í 50-100 gerðum. Þeir sem dós-
unum henda era ábyrgir fyrir því
en ekki gosdrykkjaseljendur. Dósin
biður aUs ekki um að henni sé hent
út um bUgluggann. Kannski dettur
hún þó bara.
Fjölmiðlaþátturinn
Svo eru það þessir íjölmiðlar fyr-
ir sunnan sem era að vekja athygli
á göfuglyndi sínu í umhverfismál-
um með þátttöku í hinni nýju sölu-
herferö kók. Hver þeirra er um-
hverfissinnaðastur? Hver þeirra
vill stuöla best og mest að náttúru-
vemd? Er hægt að hugsa sér stærra
átak í umhverfismálum en söfnun
flipa af gosdrykkjadósum?
Auðvitað er enginn þessara aöUa
hvorki eingöngu né mest að hugsa
um umhverfismál, hvorki fjölmiöl-
amir né gosdrykkjaframleiðendur.
Allir eiga þeir í harðri samkeppni
sem byggist ekki síst á því að afla
KjaUaiinn
Ingólfur Á.
Jóhannesson
landvörður i Mývatnssveit
sér velvildar meðal landsmanna.
Af því að það þykir yfirleitt frekar
sóðalegt að henda rash er með
þessum hætti hægt að afla velvUd-
ar þeirra sem láta sig slíkt varða
um leið og böm verða áköf við
þessa söfnun vegna verðlaunanna
sem heitið er fyrir fhpana.
Aftur á móti ættu fjölmiðlarnir
að vera vandari að virðingu sinni,
en samkeppni allt of margra einka-
fjölmiðla er einfaldlega of hörð tU
þess að um shkt sé hægt að fást.
Hin hliðin
Að sjálfsögðu er þetta „átak“ ekki
með öUu neikvætt, ef það er. þá
nokkuð neikvætt. Það leiðir huga
að þvi að henda ekki flipunum,
sama þótt gosdrykkjaframleiðand-
inn sé náttúrlega einkum að hugsa
um að komast fram úr keppinaut-
unum og útvarpsstöðvarnar að
sýna að þær séu betur hugsandi en
hinar.
En hvers vegna er þá ekki dósin
öU keypt? Af henni aUri eru miklu
meiri spjöU, og þá myndi fólk á ferð
í bfi kannski stoppa tU að hirða
dósimar sem duttu eða fuku hjá
öðram. Sums staðar erlendis er
sérstakur endurkaupaskattur á
bjór- og gosdrykkjadósum. Slíkan
skatt mætti hæglega taka upp hér
og væri hann miklu mikUvægari
sem umhverfisvemd en „átakið“
fyrmefnda. Fyrirtækin gætu líka
gefið sérstaka upphæð tU náttúru-
verndar fyrir hverja dós sem þau
tappa á eða byggt upp endur-
vinnslukerfi.
Látum þó í minnsta lagi hlutina
heita réttum nöfnum - gosdrykkja-
sala á htið skylt við umhverfis-
vernd.
Ingólfur Á. Jóhannesson
„Nýjasta bragðið til að (á börn til að kaupa meira a( gosdrykkjum er að heita verðlaunum tyrir að safna
svonefndum flipum sem rifnir eru af gosdrykkjadósum þegar þær eru opnaöar."