Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1988, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988.
35
Fólkífréttum
Einar Vilhjálmsson
Einar Vilhjálmsson spjótkastari
sigraði á heimsleikunum í Helsinki
30. júní með 82,68 m kasti og sigr-
aði þá heimsmethafann, fyrrv.
heimsmethafann, heimsmeistar-
ann, Evrópumeistarann, Norður-
landamethafann, þann spjótkast-
ara sem var skráður bestur 1987
og sigurvegarann í Grand Prix
keppninni 1987. Hann bætti árang-
ur sinn á Grand Prix mótinu í
Stokkhólmi 5. júlí og sigraði þá með
83,44 m kasti. Einar er fæddur 1.
júní 1960 í Rvík og byrjaði að taka
þátt í íþróttum í íþróttaskóla Hösk-
ujdar Goða Karlssonar og Vil-
hjálms Einarssonar 1965. Hann var
fyrirliði handknattleiksliðs Lind-
ome GIF í Svíþjóð 1974-1975, keppti
í körfubolta í Héraðsskólanum í
Reykholti 1975-1977 og varð ís-
landsmeistari og Rvíkurmeistari
með Fram 1978. Einar byijaði að
æfa spjótkast 1976, var í unglinga-
landsliðinu í handknattleik 1978-
1979 og varð stúdent frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti 1980. Hann
varð Norðurlandameistari ungl-
inga í spjótkasti 1980, bandarískur
háskólameistari 1983, 1984 og var
sigurvegari í landskeppni Norður-
landanna og Bandaríkjanna 1984.
Einar setti bandarískt háskóla-
meistaramet 1984 með 92,42 m og
varð í fimmta sæti í spjótkasti í
ólympíuleikunum í Los Angeles
1984. Hann var skráður í banda-
ríska tímaritinu Track and Field
News fimmti besti spjótkastari
heims 1984, 1985, sigraði á fjölda
Grand Prix'móta 1985 og var valinn
í úrvalslið Vestur-Evrópu til þátt-
töku í heimsbikarkeppninni 1985.
Einar setti Norðurlandamet á
Húsavík 1987, 82,96 m, bætti ís-
landsmetið tvívegis í 83,36 m og
84,66 m, er sá árangur sjötti besti
árangur frá upphafi með nýja
spjótinu. Einar lauk B.Sc. prófi í
líffræöi frá Texasháskólanum í
Austin 1985 og hefur verið þar í
hagfræði og stjómsýslufræðinámi
frá 1988.
Einar kvæntist 30. maí 1981
Halldóru Sigurðardóttur fóstru, f.
2. mars 1960. Foreldrar hennar eru
Sigurður Lárusson, verkamaður í
Grundarfirði, og kona hans, Elín
Dagmar Valdimarsdóttir. Dóttir
Einars og Halldóru er Gerður Rún,
f. 10. júlí 1985. Bræður Einars eru
Rúnar, f. 14. desember 1958, lektor
í heilsufélagsfræði, kvæntur Guð-
rúnu Kristjánsdóttur, lektor í
hjúkrunarfræðum; Unnar, f. 28.
október 1961, íþróttakennari viö
Menntaskólann á Egilsstööum,
kvæntur Hólmfríöi Jónsdóttur
íþróttakennara; Garöar, f. 21. sept-
ember 1965, framkvæmdastjóri
Vals; Hjálmar, f. 4. október 1972,
og Sigmar, f. 2. janúar 1977.
Foreldrar Einars em Vilhjálmur
Einarsson, skólameistari á Egils-
stöðum, og kona hans, Gerður
Unndórsdóttir. Vilhjálmur er son-
ur Einars, múrarameistara á Egils-
stöðum, bróður Þórarins, fóöur
Stefáns, aðalféhirðis Seölabank-
aps. Einar var sonur Stefáns, b. á
Mýrum í Skriðdal, Þórarinssonar,
b. á Randversstöðum í Breiðdal,
Sveinssonar, bróður Bjama, afa
Halldórs Halldórssonar prófessors.
Systir Þórarins var Þrúður, amma
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöf-
undar. Móðir Einars var Jónína
Einarsdóttir, b. á Jökulsá í Borgar-
firði, Ólasonar, bróður Jóns, fóður
Þorsteins M. Jónssonar, skóla-
stjóra á Akureyri.
Móðir Vilhjálms var Sigríður,
systir Árna, föður Tómasar seðla-
bankastjóra og Margrétar, móöur
Valgeirs Guðjónssonar söngvara.
Annar bróðir Sigríðar var Þórhall-
ur, afi Snorra Sigfúsar Birgissonar
tónskálds. Þriðji bróðir Sigríöar
var Hermann, afi Lilju Þórisdóttur
leikkonu. Sigríður var dóttir Vil-
hjálms, b. á Hánefsstöðum, Árna-
sonar og konu hans, Bjargar, syst-
ur Stefaníu, móöur Vilhjálms
Hjálmarssonar, fyrrv. ráðherra.
Björg var dóttir Siguröar, b. á Há-
nefsstöðum, Stefánssonar, bróður
Gunnars, afa Gunnars Gunnars-
sonar rithöfundar. Móðir Bjargar
var Þorbjörg Þórðardóttir, b. í
Kjama í Eyjafirði, Pálssonar, for-
föður Kjarnaættarinnar, langafa
Friðriks Friðrikssonar æskulýðs-
leiötoga.
Móöurbróðir Einars er Jón,
fyrrv. glímukóngur íslands og
formaður Atvinnuþróunarfélags
Suðurnesja. Gerður er dóttir Unn-
dórs bókara hjá Ríkisendurskoðun
Jónssonar Melsteðs, b. á Hallgils-
stöðum í Hörgárdal, bróður Hall-
dórs, fóöur Skúla tónskálds. Systir
Jóns var Guðrún, móöir Ólafs Dýr-
mundssonar ráðunautar. Jón var
sonur Stefáns vegaverksfjóra á
Akureyri Jónassonar og konu
hans, Margrétar Eggertsdóttur,
smiðs og b. á Fossi í Vesturhópi,
bróður Helgu, langömmu Björg-
vins, fóður Ellerts Schram. Eggert
var sonur Halldórs, prófasts á Mel-
stað, Ámundasonar, smiðs og mál-
ara í Syöra-Langholti, Jónssonar,
föður Guðrúnar, langömmu Jó-
hanns Hjartarsonar stórmeistara.
Móöir Margrétar var Halla Jóns-
dóttir, b. og stúdents á Leirá, Áma-
sonar. Móðir Jóns var Halldóra
Kolbeinsdóttir, prests og skálds í
Miðdal, Þorsteinssonar, langafa
Eiríks, langafa Péturs Sigurgeirs-
sonar biskups. Móðir Unndórs var
Albína Pétursdóttir, b. á Svertings-
stöðum í Eyjafiröi, Hallgrímssonar.
Móðir Gerðar er Guðrún Símon-
ardóttir, sjómanns á Stokkseyri,
Jónssonar og konu hans, Krist-
gerðar, systur Guðmundar, fóður
glímukónganna og lögregluþjón-
anna Gísla og Rúnars og afa Matt-
híasar Viðar Sæmundssonar bók-
menntafræðings. Kristgerður var
dóttir Gísla, b. á Urriðafossi, Guð-
mundssonar. Móðir Gísla var Jó-
reiður Einarsdóttur, systir Einars,
langafa Steinþórs Gestssonar á
Hæli, fyrrv. alþingismanns.
Afmæli
Stefán
Ingibjörg Árnadóttir
Aðalbjörnsson
Stefán Aðalbjörnsson verkamað-
ur, Vorsabæ 7, Reykjavík, er sjö-
tugur í dag.
Stefán fæddist að Skólavörðustíg
24A i Reykjavík og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hann hóf störf á
eyrinni fljótlega eftir fermingu og
starfaði þar í fjögur til fimm ár en
hefur lengst af starfað hjá Vatns-
veitu Reykjavíkur þar sem hann
hefur verið bílstjóri og unnið við
vatnslagnir. Stefán hefur alla tíð
verið búsettur í Reykjavík.
Kona hans var Sigurlaug, f. að
Varmá í Mosfellssveit 10.1.1928, d.
10.5. 1977, dóttir Guðmundar Sig-
urðssonar og Helgu Einarsdóttur.
Stefán og Sigurlaug eignuðust sjö
börn. Þau era Fanney, húsmóðir í
Reykjavík, f. 6.2. 1946, gift Sigurði'
Inga Sigmarssyni, málm- og skipa-
smið og verkstjóra hjá Stálsmiðj-
unni, en þau eiga fjögur börn; Lauf-
ey, húsmóðir í Reykjavík, f. 22.5.
1950, gift Magnúsi Ólafssyni, sölu-
manni hjá Sigurplasti, en þau eiga
þrjú böm; Eygló, húsmóðir í
Reykjavík, f. 8.6. 1952, sambýlis-
maður hennar er Gunnar Erlends-
son sendibfisljóri og eiga þau tvö
börn; Aðalbjörn sendibílstjóri, f.
22.6. 1955, kvæntur Björgu Krist-
insdóttur, en þau eiga tvö börn;
Anna Björg, húsmóðir á Húsavík,
f. 16.7.1958, gift Halldóri Hákonar-
syni sjómanni og eiga þau þrjú
börn; Guðmundur rafsuðumaður,
f. 20.1.1961; og Guðni Falur, verka-
maður í Reykjavík, f. 5.2.1963. Sam-
býliskona hans er Sigurbjörg Ól-
afsdóttir. Hann á tvö börn.
Stefán átti sjö systkini en á nú tvö
á lífi.
Foreldrar Stefáns voru Aðalbjörn
Stefánsson prentari, formaður HÍP
og ritstjóri Æskunnar, f. á Garðsá
í Eyjafirði 28.12. 1873, d. 18.6. 1938,
og seinni kona hans, Þorbjörg
Grímsdóttir, f. 8.7.1889 og varð hún
því níutíu og níu ára í þessum
mánuði.
Aðalbjöm var sonur Stefáns,
vinmunanns að Garðsá og síðar b.
að Kotá í Eyjafirði, Jónassonar, b.
að Sigtúnum, Stefánssonar og konu
hans, Guðrúnar Jónasdóttur, b. að
Mýrarlóni, Jónssonar. Þorbjörg
var dóttir Gríms Jakobssonar, sjó-
manns í Seh í Reykjavík, og Katrín-
ar Eyjólfsdóttur.
Stefán verður ekki heima á af-
mæhsdaginn.
Ingibjörg Guðrún Amadóttir,
Lindargötu 5, Sauðárkróki, er átt-
ræð í dag.
Ingibjörg fæddist að Stóra-
Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi og
ólst þar upp að hluta tfi, en að hluta
til hjá systur sinni í Reykjavík. í
Reykjavík stundaöi Ingibjörg
píanónám.
Hún giftist 20.7. 1930 Hafliða
Gíslasyni, rafvirkja í Reykjavík, f.
28.5. 1902, en foreldar hans voru
Gísh Geirmundsson, útvegsb. á
Stafnesi og Þórann Jakobína Haf-
hðadóttir.
Sonur Ingibjargar og Hafliða er
Gísli Geir, rafvirkjameistari í
Reykjavík, f. 27.9. 1931, kvæntur
Ólöfu Jónsdóttur, en þau eignuöust
þrjú böm. Þau era: Ingibjörg Ýr,
húsmóðir í Reykjavík, f. 2.1. 1953,
gift Guðmundi Trausta Magnús-
syni vélvirkja, en Ingibjörg á íjögur
börn; Jón Níels, kerfisfræðingur í
Hafnarfirði, f. 30.8. 1954, kvæntur
Erlu Aradóttur, en þau eiga tvö
börn; Vilborg Kristín, húsmóðir í
Reykjavík, f. 8.10.1957, gift Sigurði
Friðrikssyni verkamanni, en þau
eiga tvö börn. *
Seinni manni sínum, Gunnari
Guðmundssyni, rafvirkja og b. á
Reykjum á Reykjaströnd, giftist
Ingibjörg 1.8.1936. Gunnar fæddist
27.6.1898, d. 30.7. 1976, sonur Guð-
mundar Guðmundssonar, b. í
Sveinskoti í Skarðhreppi í Skaga-
firði, og Ingibjargar Bjömsdóttur.
Ingibjörg og Gunnar hófu búskap
að Reykjum 1937 og bjuggu þar til
1965 er þau fluttu til Sauðárkróks
en þar hefur Ingibjörg búið síðan.
Sonur Ingibjargar og Gunnars er
Árni, fiskeftirhtsmaður á Sauðár-
króki, f. 9.9. 1936, kvæntur Elísa-
betu Beck Svavarsdóttur, en þau
eignuðust fimm börn. Þau era:
Gunnar Ingi, verkamaður í Hafn-
arfirði, f. 21.11. 1960, en sambýhs-
kona hans er Hrafnhildur Þórðar-
dóttir sölumaður; Steindór, sjó-
maður á Sauðárkróki, f. 20.12.1961,
en sambýhskona hans er Jóna
Björk Sigurðardóttir og eiga þau
einn son; Pála María, skrifstofu-
maður í Reykjavík, f. 25.7.1964, en
hún á einn son; Gyöa, búsett í
Reykjavík, f. 15.10.1966, en sambýl-
ismaður hennar er Tómas Hah-
grímsson viðskiptafræðinemi og
eiga þau eitt barn; Vala, nemi á
Sauðárkróki, f. 19.4. 1969; og Jón
Gauti, nemi á Sauðárkróki, f. 29.5.
1973. Dóttir Áma frá því fyrir
hjónaband er Helga Sigríður, hús-
freyja að Sámsstöðum í Eyjafirði,
f. 26.9. 1956, gift Pálma Gíslasyni,
b. á Sámsstöðum, en þau eiga fjög-
ur börn.
Ingibjörg átti tíu systkini. Þau
eru: Ingunn, húsfreyja í Reykjavík,
f. 25.1. 1895, d. 15.5. 1977, föður-
amma Hans Kristjáns Ámasonar,
fjármálastjóra Stöðvar 2, og Ing-
unnar, hótelstýra hjá Hótel Stef-
aníu; Þórarinn, b. að Stóra-Hrauni
og síðar fuhtrúi í Reykjavík, f. 8.8.
1898; Kristín, húsfreyja í Færeyjum
og síðar í Reykjavík, f. 15.1. 1900,
d. 21.5. 1982, móðir Karin Waag,
konu Hannesar Jónssonar sendi-
herra, og föðuramma Hjálmars
Waag Árnasonar, skólameistara í
Kefiavík; Anna, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 26.7.1901, móðir Bjama Páds-
sonar, skólastjóra í Kópavogi, og
Árna Pálssonar, prests í Kópavogi,
fóður Þorbjarnar Hlyns, prests á
Borg á Mýrum; Þóra, húsmóðir í
Reykjavík, f. 28.2. 1903, móðir
Kristrúnar Eymundsdóttur, konu
Hahdórs Blöndals alþingismanns,
og Kartrínar, forseta bæjarstjómar
á Húsavík; Sigurður, fulltrúi í
Reykjvík, f. 15.6.1904, d. 19.10.1978;
Magnús, b. að Stóra-Hrauni, f. 11.5.
1906, d. 12.5.1982, faöir Árna Magn-
ússonar, skólastjóra í Reykjavík;
Guðmundur Snæbjöm, kaup-
maður í Reykjavík, f. 24.9.1910, fað-
ir Sigurðar myndhstarmanns í
Amsterdam; Einar pípulagninga-
meistari í Reykjavík, f. 27.2. 1913;
og Gyöa, húsmóðir í Reykjavík, f.
12.5.1915, d. 19.10.1964, móðir Eyj-
ólfs Einarssonar hstmálara í
Reykjavík, föður Einars, fríkirkju-
prests í Hafnarfirði.
Foreldrar Ingibjargar voru Árni
Þórarinsson, prófastur að Stóra-
Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi, f. í
Götu í Hrunamannahreppi, 20.1.
1860, d. 3.2.1948, og kona hans El-
ísabet Sigurðardóttir, f. 22.2. 1877,
d. 22.5. 1958.
Árni var sonur Þórarins Árna-
sonar, jarðyrkiumanns í Syðra-
Langholti, og konu hans, Ingunnar
Magnúsdóttur, alþingismanns í
Syðra-Langholti, Andréssonar.
Móðir Ingunnar var Katrín Eiríks-
dóttir, b. og dbrm. á Reykjum á
Skeiðum, Vigfússonar, ættföður
Reykjaættarinnar. Ehsabet var
dóttir Sigm-ðar Kristjánssonr, b. í
Syðra-Skógarnesi, og konu hans,
Guðríöar Magnúsdóttur.
80 ára_______________________
Ólöf Sigurðardóttir, Ægisíðu 52,
Reykjavík.
75 ára
Hrefna Jónsdóttir, Ránargötu 5A,
Reykjavik.
70 ára
Hailur Jónasson, Lindarbrekku,
Seyluhreppi.
Björn Gunnarsson, Sæbergi, Akur-
eyri.
Eyþór Kristjánsson, Sæunnargötu
8, Borgarnesi.
Hulda Pálína Vigfúsdóttir, Eskihlíð
10, Reykjavík.
Kristján J.M. Jónsson, Seljalands-
vegi 54, ísafirði.
Gunnþór Kristjánsson, Skarðshhð
29B, Ákureyri.___________________
60 ára___________________________
Ruth Ingimarsdóttir, Rauðamýri
20, Akureyri.
Ingibjörg Guðbjörnsdóttir, Skipa-
sundi 12, Reykjavík. Hún verður
ekki heima á afmælisdaginn.
Héðinn Hjartarson, Hjaltabakka 10,
Reykjavík.
50 ára________________________
Elísa J.E. Kjærnested, Hhðarvegi
26, Njarðvík.
Ragna Pálsdóttir, Ásgarðsvegi 16,
Húsavík.
Þórhallur Eiríksson, Unufelli 29,
Reykjavík.
Guðrún Hjaltadóttir, Birkilundi 15,
Akureyri.
Ljótunn Indriðadóttir, Höfðavegi
19, Húsavík.
Tómas Pálsson, Litlu-Heiði, Mýr-
dalshreppi.
40 ára
Unnur Haraldsdóttir, Leynisbrún
10, Grindavik.
Egill Þórðarson, Smyrlahrauni 66,
Hafnarfiröi.
Jón Þengilsson, Heiðarlundi 8E,
Akureyri.
Ingimundur Andrésson, Brunnum
IV, Patreksfirði.
Hannes Einarsson, Ásgarði 10,
Keflavík.
Anna Þorsteinsdóttir, Heiöarhorni
5, Keflavík.
Gunnar Rafn Jónsson, Skála-
brekku 17, Húsavík.
Helga Kr. Bjarnason, Álagranda 12,
Reykjavík.
Helena Svavarsdóttir, Víðihhð 7,
Sauðárkróki.