Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Utlönd
Roberto Suarez Gomez, kókain-
kóngurinn sem handtekinn var á
dögunum í Bólíviu.
Simamynd Reuter
Eiturlyfjasalar Qýja nú Bólivíu í
kjölfar handtökunnar á manninum
sem sagöur hefur veriö einn helsti
kókaínsalinn í landinu. Roberto
Suarez Gomez var handtekinn á
búgarði nálasgt landamærum Bras-
ilíu í síðustu viku. Hans haíöi veriö
leitað af lögreglunni síöustu fimm
árin þar sem hann haföi veriö
dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir
sölu og dreifingu á kókaíni.
Handtaka hans fór firam um leið
og ný lög um refsingu við eitur-
lyfjasölu gengu í gildi. Eiturlyfla-
salar geta nú búist við allt að þijá-
tíu ára fangelsi. Einnig er ræktun
kókajurtarinnar bönnuð i fyrsta
skipti í sumum hlutum landsins.
Prem fær umboðið
Árekstur við kafbát
Allt bendir til þess aö forsætis-
ráöherra Thailands, Prem Tinsul-
anonda, fái umboð til þess að
mynda sjöttu samsteypustjórn sína
í dag með stuðningi að minnsta
kosti þriggja helstu stjórnmála-
flokkanna.
Prem, sem hefur vérið skipaöur
forsætisráðherra frá árinu 1980,
hefur ekki sagt hvort hann rauni
þiggja boð stærsta flokksins á hinu
nýja þingi um að vera í forsvari
fyrir nýrri stjórn eftir kosningam-
ar í gær.
Leltað að þeim sem saknað er eftir árekstur kafbáts og fiskibáts við
Japan i iaugardaginn. Simamynd Reuter
Tuttugu og sjö manns er saknað og þrír eru látnir eftir að sportveiði-
bátur og kafbátur rákust á á Tókyóflóa síðdegis á laugardaginn.
Um borð í sportveiðibátnum voru þrjátíu og níu farþegar og niu manna
áhöfn og sökk báturinn við áreksturinn. Einn farþeganna lést á sjúkra-
húsi og kafarar hafa fundiö tvö lík nálægt flaki skipsins. Taliö er að þeir
tuttugu og sjö, sem saknað er, hafi allir lokast inni í káetu bátsins. Þeir
sem komust líts af voru uppi á þiifari þegar áreksturmn varð.
Kafbáturinn sigldi ofansjávar til hafnarborgarinnar Yokosuka eftir að
hafa tekiö þátt í flotaæfmgum. Veöurskilyrði vom góð þegar áreksturinn
varð.
Porsætisráðherra Thailands, Prem
Tinsulanonda, á kjörstað í per.
Símamynd Reuter
Dukakis leiðir
Michael Dukakis, forsetaefni
demókrata í Bandarfkjunum.
Sfmamynd fleuter
Ný skoðanakönnun sýnir að Mic-
hael Dukakis leiðir með 17 prósent-
um í baráttunni um forsetaemb-
ættið.
Niöurstöður skoðanakönnunar-
innar, sem birtust á laugardaginn,
sýna að Dukakis nýtur stuðnings
55 prósenta aðspurðra en Bush
hlýtur 38 prósent atkvæða. Þeir
sem spurðir voru töldu Dukakis
vera fremri Bush á öllum sviðum
nema ef til vill í utanrikismálum.
Bush verður útnefiidur forseta-
efiii repúblikana í næsta mánuði á
flokksráðstefnu í New Orleans.
Venjan er aö forsetaframbjóð-
endur hljóti mikið fylgi kjósenda
strax eftir að þeir haía verið út-
nefndir.
Blökkumenn skotnir
Lögreglan í Suður-Afríku skaut í gær til bana fjóra blökkumenn og tólf
lögreglumenn særðust eftir að tveimur handsprengjum var varpað að
vegartálma úr bíl.
Bíllinn var stöðvaöur á veginum milli Lichtenburg, um tvö hundruð
kilómetra fyrir suövestan Jóhannesarborg, og Mafikeng. Lögreglumenn
skutu aö farartækinu eftir að fimm lögreglumenn höfðu særst þegar
sprengjan sprakk. Voru þrír blökkumenn skotnir til bana en sá fjóröi var
skotinn er hann tók upp handsprengju. Er hann féll til jarðar sprakk
sprengjan og særöust þá sjö lögreglumenn en enginn alvarlega.
Mikið magn sprengiefna íannst í bílnum.
Rfiuter
Utanrikisráðherra Iraks, Tareq Aziz, til vinstri, og utanrikisráðherra Irans, Ali Akbar Velyati, koma til höfuðstöðva
Sameinuðu þjóðanna í dag til viðræöna við de Cuellar, aðalritara SÞ. Simamynd Reuter
Enn barist við
botn Persaflóa
Utanríkisráðherra írans, Ah Ak-
bar Velyati, og utanríkisráðherra ír-
aks, Tareq Azis, koma til höfuð-
stöðva Sameinuðu þjóðanna í New
York í dag til að ræða við Perez de
Cuellar, aðalritara Sameinu þjóð-
anna um friðarhorfur eftir átta ára
stríð írana og íraka De Cuellar mun
ræða við ráðherra beggja landanna
í einrúmi en kvaðst vonast til að
beinar umræður ftdltrúa landanna
gætu átt sér stað.
Úm hélgina gerðu írakar árás á
suður- og miðhluta vígstöðvanna í
því skyni að bæta stööu sína fyrir
komandi friðarviðræður. írakar
sögðu herhð sitt á fórum þar eö
markmiði þeirra hefði verið náö, en
þeir hefðu handtekið rúmlega 8.500
Irana. Ah Khameini, forseti írans,
sagði að þar eð óvinurinn hefði enn
á ný stigið á íslamska jörð væri eina
svarið að grípa til vopna.
Utanríkisráöherra Irans sagði að
nýjustu árásir íraka hefðu steypt
friðarhorfum í óvissu, en barist hef-
ur veruð síðustu sjö daga. írakar
hafa krafist þess að íranar komi til
beinna viðræðna en íranar hafa neit-
að þeirri kröfu og segja að slíkt sé
aðeins hægt eftir að vopnahlé gangi
í gildi. Bæði löndin hafa samþykkt
vopnahlésályktun SÞ en bæði saka
hvort annaö um að ganga ekki heils-
hugar að samningaborðinu.
Tvær nefndir á vegum Sameinuðu
þjóöanna munu heimsækja írak og
Iran í þessari viku tii aö meta ástand-
ið. Að loknum þeim ferðalögum
kvaðst de Cuellar vonast til að geta
sagt til um hvenær vopnahlé tæki
gildi. Reuter
Angólafundur
í Höfðaborg
Utanríkisráðherra Suður-Afr-
íku, Pik Botha, staðfesti í gær að
fulitrúar Suður-Afríku, Angóla og
Kúbu hefðu hist í Höfðaborg á
fóstudaginn og á laugardaginn
heíðu farið fram viðræður um frið
í Angóla og sjálfstæði Namibíu.
Fulltrúar Bandaríkjanna voru við-
staddir.
Embættismenn í Suður-Afríku
höíðu áður neitað að segja af eða á
um hvort viðræður hefðu farið
fram. Fyrsta tilkynningin um við-
ræðumar kom frá stjóminni í
Höfðaborg á sunnudagsmorgun.
Fundur viðræðuaöila hafði verið
boðaður næst þann 2. ágúst og vek-
ur því/undurinn í Höfðaborg tals-
verða athygh. Fundurinn 2. ágúst
fer þó fram í Genf í Sviss eins og
áformað hafði veriö.
Á fundinum fyrir helgi var aðal-
lega rætt um hvenær kúbönsku
hermennimir ættu aö halda heim
frá Angóla og einnig hvenær suð-
ur-afrísk yfirvöld drægju herhö sitt
til baka frá suöurhluta Angóla.
Reuter
Verkfallinu lokið
margir heföu snúið aftur til vinnu.
í viötali við sovéska sjónvarpið
sögðu þó nokkrir íbúanna að þeir litu
ekki á synjun stjórnarinnar í Kreml
sem lokasvar. Þeir hafa farið fram á
að fá að sameinast Armeníu og lúta
ekki lengur yfirráðum Azerbajdz-
han.
Málgagn sovéska kommúnista-
flokksins, Pravda, sagði í dag að
meðlimir Karabakh nefndarinnar
hefðu lýst því yfir að ákvörðun
stjórnarinnar í Kreml væri óaðgengi-
leg og hefðu varað viö að hún gæti
haft ófyrirsjáanlegar aíleiöingar. í
Pravda sagði þó að íbúamir hlustuðu
ekki lengur á nefndarmenn. Undan-
farna daga hefur nefndin sætt gagn-
rýni í sovéskum fjölmiðlum. Nefndin
var skipuð í febrúar síðastliðnum til
stuðnings viö kröfur Nagorno-Kara-
bakhs um að fá að sameinast Arme-
níu. ' Reuter
íbúar í Nagomo-Karabakh fóru til
vinnu sinnar í morgun í fyrsta skipti
í tvo mánuði. Hafði flokksforingi
kommúnistaflokksins í héraðinu far-
ið þess á leit við þá. Frétt þessi birt-
ist í blaöinu Sovetsky Karabakh.
í höfuðborg héraðsins, Stepana-
kert, var umferð í morgun eðlfleg en
ritstjóri'blaðsins gat ekki í viðtali viö
fréttastofu Reuters sagt um hversu
Ungur Armeni fluttur lifshættulega slasaður á sjúkrahús eftir átök milli ör-
yggisvarða og mótmælenda við Jerevanflugvöll. Mynd þessa komust frétta-
menn yfir á fjöldafundi i kirkjugarði Armena í Moskvu. Simamynd Reuter