Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Side 16
16
Spumingin
Lesendur
li
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Hvern telur þú eiga sök á
samstarfsörðugleikum
innan stjórnarinnar?
Kristján Brynjólfsson: Því get ég ekki
svaraö. Einn hefur þaö sem annan
brestur og enginn þeirra má teljast
mestur.
Sigurður Jóhannsson: Ég er ekki
með neina skoðun á því.
Bryndís Kristinsdóttir: Það veit
ekki.
eg
svara því. Það gekk vel meðan Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkurinn voru í
stjóm svo ætli það sé þá ekki Al-
þýðuflokkurinn.
Magnús Þorsteinsson: Ég held þeir
eigi aflir sokina. Enginn þeirra þorir
að taka á vandanum.
Adda Gerðiu- Árnadóttir: Ég veit það
ekki, því get ég ekki svarað.
Radarvarar:
Eigendur ekki lögbrjótar
Björn Björnsson skrifar:
Ég mótmæli ummælum rannsókn-
arlögreglumanns hér í blaðinu ný-
verið á þann veg að „eigendur radar-
vara séu lögbijótar (í umferðinni),
annars væru þeir ekki með þá í bif-
reiðum sínum“. Ég er með einn slík-
an í bifreið minni og tel ég að hann
hafi hjálpað mér til þess að halda
niðri hjá mér hraðanum heldur en
hitt með því að vekja betur athygli
mína á umferðinni.
Umræddur lögreglumaður ætti að
aka um Reykjanesbrautina úr og í
Breiðholtið þegar menn eru á leiö í
eða úr vinnu og einnig á öðmm tím-
um. Það er frekar reglan en undan-
tekning að umferðin þar og víöa er
almennt á 70-80 km hraða (leyft há-
mark er 60 km), sem sagt nánast all-
ir lögbrjótar. Jafnvel strætisvagna
hef ég mælt æðandi á 90 km hraða
og stundum sér maöur lögreglubíla
akandi langt yfir löglegum hraða í
venjulegu eftirliti.
Ég hélt að flestir væm búnir að
átta sig á því að radarvarar eru
gagnslausir í hraðakstri, sérstaklega
þegar lögreglumenn kveikja ekki á
mæli sínum fyrr en sést til farartæk-
isins, sem mæla á hraðann á. Ég vísa
því ummælum og alhæfingu lög-
reglumannsins á bug.
Kísilflögur en ekki psoriasis
Þórólfiir Már Þórólfsson hringdi: hann hefur séð einhveijar flögur í Mikið er um kísil í lóninu og eðh- leita sér upplýsinga um þessi mál
Ég er psoriasissjúklingur og er búningsklefum eða í lóninu sjálfu legt er að hann festist á mönnum þáeropinskrifstofaFélagspsorias-
mjög hissa á skrifum .jfyrrverandi þá er að öllum líkindum um kísil- eða komist undir sundfBt og getur is- og exemsjúklinga aö Baldurs-
baögests" sem birtust í Iesenda- flögur að ræöa sem era afls ekkert með þeim hætti borist inn í sturtu- götul2ámiflikl. 13ogl7.Aðlokum
dálki DV á mánudaginn. Þar kvart- óhollar, eru reyndar taldar vera klefa. Ég hef reyndar fengið mikla skora ég á „fyrrverandi baðgest“
ar hann um sóðaskap og meðal með lækningamátt. Það era senni- lækningu af böðum mlnum í Bláa að svara mér og skrifa þá undir
annars psoriasisflögur sem eiga aö lega ekki nema 10-15 manns með lóninu og tel mikinn lækningamátt nafhi þvi ásakanir hans eru til-
vera úti um afla búningsklefa. Skrif psoriasis sem stunda lónið aö stað- fólginn í þvi. Það eru reyndar fleiri hæfulausar því það fer aflt fram
„fyrrverandi baðgests“ einkennast aldri svo það er fjarri lagi að bún- en psoriasissjúklingar sem fá batá raeð mikilli snyrtimennsku við
af fordómum og vanþekkingu. Ef ingskiefar séu þaktir húðflögura. með böðum í lóninu. Ef fólk vill Bláa lónið.
íbúi í Kópavoginum er ekkert á móti því að Viðihvammurinn verði lagfærð-
ur og malbikaður.
Gatnagerðarmál
í Kópavogi:
Ófremdarástand
Sigrún Ásgeirsdóttir hringdi:
Eg var að lesa grein í mánudags-
blaði DV um gatnagerðarmál í Kópa-
vogi og kom fram að tengigatan Eski-
hvammur hafi verið iagfærð vegna
þrýstings frá íbúum Hvammahverf-
is. Kópavogsbúi kvartaði undan því
að þessi gata skyldi hafa forgang
fram yfir aðrar mannmargar götur,
en eins og allir sjá er þetta tengigata
og gegnir hún því öðram lögmálum
en íbúðargata. Auk þess vil ég benda
umræddum Kópavogsbúa á að Eski-
hvammur telst varla nýleg gata, því
hún er um 30 ára gömul.
En það var ekki það sem ég ætlaði
aðallega aö ræða um. Ástand í gatna-
gerðarmálum Kópavogsbúa er óvið-
unandi, og stendur bærinn langt að
baki Reykjavík í þessu efni. Mér
fmnst skrítið að sjá það að fram-
kvæmdir skulu hafa verið gerðar við
Eskihvamm vegna þrýstings frá íbú-
um. Er það eina ráðið til að bót á
fáist? Aö mynda þrýsting? Ef það er
eina leiðin til að eitthvað verði gert,
er ég tilbúin að taka virkan þátt í
þrýstihópi og jafnvel ganga í hús til
að afla málstaðnum fylgi. Ég bý í
Víðihvammi og sú gata nálgast það
helst aö vera hestatroðningur, svo
ifla er hún farin.
Fyrirspum til Fatalands
María Guðbrandsdóttir hringdi:
Ég er hér með fyrirspum til for-
ráðamanna fyrirtækisins Fata-
lands. Fataland auglýsti í vetur
teiknimyndasamkeppni og átti að
skila inn teikningum fyrir 15. apríl
á þessu ári. Meiningin var síðan
að vera með sýningu á verkum
krakkanna í einni af verslunum
fyrirtækisins.
Eftir það hefur ekkert spurst til
keppninnar og ómögulegt er að fá
upplýsingar um hana þar sem allir
símar hjá fyrirtækinu eru lokaöir.
Þess vegna sný ég mér til lesenda-
síðu DV og bið forráðamenn versl-
unarinnar að svara því hvað orðið
hefúr um keppnina. Ef þeir vilja
ekki svara þessu þá ættu þeir að
sjá sóma sinn í að senda krökkun-
um teikningamar til baka þar sem
mikil vinna var lögð í þær.
Eigandi verslunarinnar Kúnigúnd styöur Hrafn Bachmann i Kjötmiðstööinni
í því aö neita aö borga Stef-gjaldiö.
Höfundarréttargjald:
Alger vitleysa
Sigurveig Lúðvíksdóttir hringdi:
Eg styð Hrafn Bachmann kaup-
mann algerlega í því að neita aö
borga svokallað höfundarréttargjald
fyrir tónlistarflutning í verslunum,
eins og kom fram í frétt í DV í síð-
ustu viku. Það eru samtök tónlistar-
manna (S.T.E.F.) sem hyggjast inn-
heimta þetta gjald. Það er hreint út
sagt út í hött að borga svona gjald,
og ég veit bara ekki hvar þessi vit-
leysa endar. Það er orðið nánast
hægt að skattleggja mann fyrir hvað
sem er. Ég er með útvarp hér inni í
búð hjá mér, en ég rek verslunina
Kúnigúnd, og mér dettur ekki til
hugar að greiða Stef-gjaldið þó að ég
hafi útvarpið á hjá mér.