Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
RAKARAST0F4N
KLAPPARSTIG
Sími 13010
HARGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTIG
Simi12725
titf^ÞESSA VIKU
Skór i sumarlitum
100-150 pör, stærðir 35-41
Strigaskór, stærðir 29-41
Hvítir herraskór, allar st. frá
Ekta leðurkúrekastígvél, st. 37-43 frá
300
100
.495 kr.
.495
Ódýri skómarkaðurinn
Hverfisgötu 89, s. 18199 - Póstsendum
DAGVI8T BARJVA.
Daggæsla á einkaheimilum
Leyfísveitingar fyrir daggæslu barna á
einkaheimilum hefjast að nýju 1. ágúst -
1. október 1988.
Athugið að umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu Dagvistar barna í
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
Nánari upplýsingar í síma 27277.
Umsjónarfóstrur.
Fréttir
Þjóðgarðurinn í Asbyrgi:
A vakt allan
sólarhringinn
- segir Sigrún Kristín Barkardóttir landvörður
Gylfi Kristjánssan, DV, Aknxeyxi;
„Hér er bankaö á öllum tímum sól-
arhringsins og viö erum því alltaf
tílbúin og höfum reyndar oft vakta-
skipti," sagði Sigrún Kristín Barkar-
dóttir, landvöröur í Ásbyrgi í Keldu-
hverfi, er DV átti þar leið um. Sigrún
er þar landvörður ásamt sambýlis-
manni sínum, Kristni Garðarssyni.
Þau koma úr Miðfirðinum og eru í
Ásbyrgi annað sumarið í röð.
„Starfssvið okkar er margþætt,"
sagði Sigrún. „Það felst þó aðallega
í umsjón með svæðinu, við sjáum um
tjaldstæðin og að þar sé aílt í lagi,
við veitum mikið af upplýsingum,
höldum svæðinu hreinu og áfram
mætti telja.
Einnig forum við í skipulagðar
gönguferðir með þá sem þess óska.
Frá því í júní og fram í ágúst er eitt-
hvað um að vera á hverjum degi hjá
okkur á þessu sviði.“
- Hvemig hefur aðsóknin verið hér
í sumar?
„Hún hefur verið góð. Aðsóknin í
júní var t.d. mun meiri núna en á
sama tíma í fyrra. Bróðurpartur
þeirra sem hingað koma eru Islend-
ingar og þeir eru ávallt í miklum
meirihluta."
- Verður þú vör við að íslendingar
komi hingað með öðru hugarfari en
erlendir ferðamenn?
„Það eru oft önnur markmið sem
erlendir ferðamenn virðast hafa með
Sigrún Kristín Barkardóttir og Kristinn Garðarsson, landverðir í Asbyrgi.
DV-mynd gk
heimsókn sinni hingað. Útlending-
amir era mmi duglegri að fara í
gönguferöir og þeir spyrja meira um
það sem fyrir augu ber. íslending-
amir nenna varla í gönguferðir ef
þær taka lengri tíma en 10 mínútur,
þeir vilja frekar vera í útilegu og
hggja og slappa af.“
- Hvemig er umgengni fólks?
„Yfirleitt gengur fólk þokkalega
um. Þó hendir fólk frá sér sígarettu-
stubbum og sælgætisbréfum þar sem
það er statt hverju sinni og það skap-
ar óþrifnað. Þá er einnig alltaf nokk-
uð um að fólk tjaldi utan tjaldsvæða
og aki utan vegar og er full ástæða
til að biðja fólk um að gera slíkt
ekki,“ sagði Sigrún Kristín að lokum.
Nýtt skip smíðað
í stað Sólbaks?
Gytfi Kristjánsson, DV, Akureyxi
Sólbakur, einn togara Útgerðar-
félags Akureyringa hf., er nú kominn
á þann aldur að það þarf að fara aö
huga að smíði á nýju skipi í hans
stað.
„Það er einn af þeim möguleikum
sem er verið að kanna,“ sagöi Sverr-
ir Leósson, stjómarformaður Út-
gerðarfélags Akureyringa, er DV
spuröi hann hvort félagiö væri aö
láta athuga með að smíða skipið er-
lendis. „Menn era að velta vöngum
yfir þessu máh og sennilega skýrast
línumar eitthvað þegar kemur fram
á haustið,“ bætti Sverrir við.
Félagið auglýsti nýlega eftir fram-
kvæmdastjóra í stað Gísla Konráðs-
sonar sem láta mun af störfum á
næsta ári. Umsóknarfrestur rennur
út um miðjan næsta mánuð en þegar
mun eitthvað hafa borist af fyrir-
spumum til félagsins.
Sorpið
urðaðá
Akranesi
Sigurgeir Sveóatan, DV, Akranesi:
Sorpmálin á Akranesi hafa
lengi verið í ólestri en nú sér von-
andi fyrir endann á því. Ákveðið
hefur verið að urða sorpið sex
daga í viku og er reyndar byijaö
á þvi. Brunalyktin frá sorphaug-
unum ætti því aö hætta að angra
Skagamenn. Fyrir skömmu var
gengiö firá samningi milh bæjar-
ins og Skóflunnar hf. um uröun
á sorpinu.
Eru Islendingar hættir að fara út að borða?
Fara mörg veitingahús á hausinn á næst-
unni?
í þriðjudagsblaði DV verða vandamál veit-
ingahúsaiðnaðarins könnuð og margir
þekktir matreiðslumenn láta móðan mása.
Einar Olgeirsson, formaður Sambands veit-
inga- og gistihúsa, segir að mörg veitinga-
hús muni hökkva upp af með haustinu og
segirjað matreiðslumenn séu um það bil
að taka upp nýja stefnu. Fólkið í Austur-
stræti kvartar yfir of háu verðlagi og segist
heldur vilja borða heima hjá sér og þing-
mennirnir fara lítið út að borða að eigin,
sögn.
j
í!p*1P ImTI'ttB mw\\\ 1 i- 1 VHM •fnmiriiT ' kÉME
H MbIb JA »1
Sá einstaki atburður átti sér stað á dögun-
um að hestamenn lögðu upp í ferð sem
aldrei hefur verið farin áður, svo vitað sé.
En það var ævintýraferð um Hornstrandir.
í þessari ferð var m.a. brugðið á það ráð
að láta hesta synda í land til Hesteyrar frá
borði af m.s. Fagranesinu. Hestamenn lýsa
andrúmsloftinu áður en lagt var í ferðina
og segja margar skemmtilegar sögur. Ferð-
in var kvikmynduð og munu (slendingar
væntanlega sjá ævintýraferðina í sjónvarp-
inu á næstu vormánuðum eða þegar líða
tekurá haustið.