Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Side 19
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
19
Fréttir
Alþýðusamband Norðuriands:
„Skipað á bekk
meðSamstöðu“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Með setningu þessara ósvífnu
laga var íslenskri verkalýðshreyf-
ingu í raun skipað á bekk með Sam-
stöðu í Póllandi og verkalýðshreyf-
ingu margra landa þriðja heimsins,"
segir m.a. í ályktun miðstjómar Al-
þýðusambands Norðurlands um
setningu ' bráðabirgðalaga ríkis-
stjómarinnar.
„Miðstjórn Alþýðusambands
Norðurlands telur að gengisfeliingin
í maí sl. og setning bráðabirgðalaga
ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar í
kjölfar hennar sé einhver ósvífnasta
árás á íslenska verkalýðshreyfingu
frá upphafi hennar og einstök lítils-
virðing við það lýðræði sem núver-
andi stjórnarflokkar hafa talið sig
sérstaka málsvara fyrir.
Verkalýðshreyfing, sem býr við
þau skilyrði að vera sífellt svipt
samningsrétti sínum þegar lélegum
stjómvöldum hefur mistekist við
stjóm efnahagsmála þjóðarinnar, er
gagnslítið baráttutæki og lítið betur
sett en ríkisrekin verkalýðshreyfing
austantjaldslanda. Spyrja verður
hvort það sé markmið núverandi
stjórnarflokka að svo sé. Með setn-
ingu bráðabirgðalaganna, sem bönn-
uöu frjálsan samningsrétt, var þeim
hluta launafólks, sem þá hafði samið,
gert að una bótalaust þeirri óðaverð-
bólgu og dýrtíö sem geisar. Með þeim
var enn frekar teygt á því launamis-
rétti sem fyrir var. Bráðabirgðalögin
hindraðu ekki á nokkurn hátt að
launaskrið betur settra hópa ætti sér
stað en bættu aðeins aðstöðu at-
vinnurekenda til að mismuna verka-
fólki í launum.
Miðstjóm Aiþýðusambands Norð-
urlands krefst þess að ríkisstjómin
nemi bráöabirgðalögin þegar úr
gildi. Efnahagsvandinn verður ekki
leystur með því að svipta verkafólk
þeim grundvallarmannréttindum að
búa við frjálsan samningsrétt eða
nema gerða kjarasamninga úr gildi.
Almennt verkafólk hefur ekki skap-
að þann efnahagsvanda sem ríkis-
stjórnin notaði sem forsendu fyrir.
setningu bráðabirgðalaganna. Hún
ætti að líta sér nær,“ segir m.a. í
ályktuninni.
Akureyri:
Borga þarf fyrir veiði-
leyfin við Leiruveginn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Veiðimönnum við brúna yfir Eyja-
fjarðará viö Leiruveginn hefur fækk-
að mjög að undanfómu, eða eftir að
farið var að selja réttinn til að veiða
þar.
Áður mátti oft sjá veiðimenn á öll-
um aldri þar í tugatali viö veiðar á
kvöldin og um helgar. Bændur, sem
eiga veiðiréttinn í Eyjafjaröará, töldu.
sig hins vegar vera að missa spón
úr aski sínum og óánægja þeirra
leiddi til þess að farið var að selja
leyfi til veiða þarna sem ekki var
gert áður.
Skiptar skoðanir eru hins vegar
um réttmæti þess að selja leyfi til
veiða á þessum stað. Margir telja að
þama sé ekki um ósa Eyjafjarðarár
að ræða, þeir séu mun innar og því
sé þama einungis um að ræða sil-
ungsveiði í sjó sem ekki þurfi að
greiða fyrir.
&
SlVUÖ*
IVýja kotasælan
kætír bragðlaukana
enda krydduð með lauk
Sæluunnendur fá nú enn nýjan valkost; það er komin ný tegund af
kotasælu, með rauðíauk og púrru.
Indæl og bragðmikil viðbót við
kotasæiufjölskylduna - hæfir
vel á brauð, sem meðlæti,
í salöt eða beint úr dósinni!
Og fyrir þá sem vilja passa
upp á iínurnar er nýja kota-
sæian auðvitað laukrétt val.
Vestmannaeyjar:
togari í
stað Ófeigs
Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Nýlega var gengið frá samningum
um smíði á nýjum bát í Malmö í Sví-
þjóð og kemur hann í stað Ófeigs III.,
sem eyðilagðist eftir strand við Þor-
lákshöfn sl. vetur.
Að sögn Viktors Helgasonar út-
gerðarmanns verður nýi báturinn 7,3
m á breidd og 26 m á lengd, fram-
byggður. Aðalvélin verður 1200 ha.
Alfavél, spil frá Rapp og báturinn
verður búinn öllum nýjustu fiskleit-
ar- og siglingatækjum. Báturinn er
einungis búinn til togveiða, lítill tog-
ari. Fiskmóttaka er fyrir 20 tonn og
124 kör komast í lest.
Kaupverð bátsins er 91 milljón
króna á núverandi gengi og aíhend-
ing áætluð 15. mai 1989. Tilboð í bát-
inn bárust víða að, bæði innanlands
og utan. Ólafur Friðriksson skipa-
tæknifræðingur teiknaði bátinn og
sagðist Viktor Helgason vera mjög
ánægður með vinnu hans. Gott sam-
starf hefði verið á milh þeirra og
ánægjulegt að hafa þessa þjónustu
hér í Vestmannaeyjum.
Við lánum allt að helmingi kaupverðsins í 12 mánuði með föstum 9.9% ársvöxtum. | FRAMTlÐ VIÐ SKEIFUNA
ENGIN VERÐTRYGGING! Athugið, að greiðslubyrði lánanna léttist eftir því sem á líður! SlMAR: 685100, 689622.
Öll verð eru háð gengisbreytingum. Ryðvörn og skráning er ekki innifaJin i verði.
essemm/: