Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Page 32
44
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Lífsstm
Neytendur
Lágt verð
- og góðar vörur
Erlendir sveppir eru nákvæmlega eins og þeir ísiensku, neðsti hlutinn
af rótinni er hreinsaður burt og hægt að nota þá beint i matinn. Kílóið
af þessum sveppum kostar aðeins kr. 120.
Rækjur í stærðarflokknum 51-60
stykki í pundi kostuðu 400 kr. kg,
og voru þá lækkaðar úr 480 krón-
um. Litlar rækjur, líkar þeim sem
við þekkjum kostuöu í dag 560 kr.
kg, lækkaðar úr 720 krónum. Þær
eru alveg tilbúnar til neyslu.
Hörpuskelfiskurinn kostar um
400 kr. kg. Var í dag lækkaður úr
hvorki meira né minna en 720 kr.
kg. Þessi skelfiskur er af stærðinni
20-30 stk hvert pund.
Svo er hér mjög gott úrval af alls
kyns tilbúnum fiski sem auðvelt
er aö matreiða annað hvort í ör-
bylgjuofnum eða á hefðbundinn
hátt. Undarlega lítfll verömunur er
á slíkum fiski og ómatreiddum.
Ekki er meðlætið dýrara
Og hvað skyldi það, sem hafa
þarf meö fiski og kjöti, kosta, græn-
metið og ávextimir. Það eru bara
smámunir miðað viö það sem þetta
kostar heima á íslandi.
Ég minnist þess, að er ég skrifaði
um óheyrilegt verð á íslenskum
sveppum í fyrra, sagði sveppafram-
leiðandi mér að tilkostnaðurinn viö
íslenska sveppaframleiðslu væri
rosalega mikill. Þess vegna yrðu
sveppirnir að vera svona dýrir.
Hann sagði einnig að á íslandi
væri neðsti parturinn af rótinni
jafnan skorinn af, sem ekki væri
gert erlendis. Hægt væri að nota
íslensku sveppina án þess að skera
af þeim nokkurn skapaðan hlut.
Þá vissi ég auðvitað ekki hvernig
þetta væri gert erlendis. En ég veit
það nú. Erlendu sveppimir eru
nákvæmlega eins og þeir íslensku,
bæði hvað varðar bragð og útlit,
nema verðiö. Það er mjög frábrugð-
ið.
Hér kosta fyrsta flokks sveppir
120 kr. kg. Reyndar er það lækkaða
verðið í miðvikudagsblöðunum. En
það lækkaði úr 160 krónum.
Agúrkur hér eru önnur tegund
en heima, styttri og digrari. Bragð-
ið er hins vegar svipað, ef ekki eins.
Nú er komin ný uppskera frá Texas
og kostar 48 kr. kg. í annarri versl-
un er boðið upp á fjögur stykki fyr-
ir tæpar 40 krónur. Þaö er senni-
lega svipað magn og tvær íslenskar
agúrkur.
Nú em einnig nýkomnir á mark-
að glænýjir púrrulaukar, ræktaðir
í Colorado. Búntið af þeim kostar
sem svarar tíu krónum.
Tómatarnir kosta hér um 70 kr.
kg. En viðurkennast verður að þeir
eru yfirleytt ekki nærri því eins
góðir og íslensku tómatarnir, sem
mér finnast bestu tómatar sem ég
hef smakkað, austan hafs og vest-
an.
Flest annað grænmeti er mjög
svipað á bragðið og það íslenska
en kostar ekki nema brot af því sem
þaö íslenska kostar.
Ávaxtaverð er hér mjög lágt. Nú
eru jarðarberin komin niður í tæp-
ar 50 kr. kg. Bananarnir slá hins
vegar allt út því þeir kosta ekki
nema 23 kr. kg„ það em Chiquita
bananar. Hér eru ekki á boðstólum
Uncle Tuca bananar, sem mér hafa
alltaf þótt mjög lélegir, enda hefur
mér alltaf verið sagt að þeir séu
annar flokkur af Chiquita bönun-
um. Hér em aftur á móti til „ónafn-
greindir" bananar. Þeir em mun
minni en hinir „nafntoguðu" og
kosta helmingi minna, en eru alveg
ágætir.
Verðskynið meira hér
Verðskyn fólks virðist vera meira
hér en heima á íslandi. Ég held að
það sé ekki hvað síst þessum miklu
matarauglýsingum í hverri viku að
þakka. Raunar em matarauglýs-
ingarnar tvisvar í viku því um
helgar fylgir bunki af auglýsinga-
blööum meö dagblöðunum. Þá
fylgja einnig heilu „bækurnar" af
alls kyns afsláttarmiðum. Fólk not-
ar þessa miða, en það er heilmikil
stúdía út af fyrir sig að læra að
notfæra sér þá. En það kemst upp
í vana eins og hvað annað.
Ég er rétt að læra á afsláttarmið-
ana. í einni innkaupaferðinni, þar
sem keypt var fyrir 28 dollara
fékkst 4 dollara afsláttur út á af-
sláttarmiða úr helgarblöðum.
Heima á íslandi eru það ekki nema
einstaka verslanir sem auglýsa
verð á vörum sínum. Það er
kannski í og með ástæðan fyrir því
hve verðskyn fólks er brenglað þar.
Ég sá viðtal á Neytendasíðunni
um daginn. Rætt var við innkaupa-
stjórann í Hagkaupi um græn-
metisneyslu og innflutning. Hann
taldi aö verðsamanburöurinn færi
illa meö grænmetisinnflutninginn
því allir vildu véra með lægsta
verðið.
Hér keppast menn um að vera
með sem lægst verð og jafnframt
með sem allra besta vöru. Það hlýt-
ur að vera þaö sem fær viðskipta-
vinina til að versla í viökomandi
verslun.
Lágt verð og góð vara.
Hér í Bandaríkjunum kosta bananar ótrúlega lítiö. Þessir eru á 23 krónur kílóið.
Anna Bjamason, DV Denver
Á miðvikudögum fylgja mikfl
auglýsingablöð með dagblöðunum
hér. Auglýsingablöðin eru fyrst og
ffemst frá matvöruverlsunum.
Þeir sem kaupa inn til heimilanna,
hvort sem það eru konur eða karl-
ar, grandskoða þessi blöð og kaupa
svo inn eftir þeim.
Ólíkt höfumst við að
Það er svo sannarlega annað að
lesa þessar matarauglýsingar held-
ur en þær sem ég sé í blöðum frá
íslandi og heyri um í samtölum við
fólk að heiman. Ég hitti á dögunum
konu sem var að koma að heiman
Tómatarnir eru ekki nærri eins góðir og þeir íslensku.
Hér er fiskur ekki daglega á borð-
um, þótt margir borði fisk af heflsu-
farsástæöum. Til Colorado verður
að flytja fisk um langan veg því
fylkið er landlukt inni í miðju meg-
inlandi Norður Ameríku. Hér er
samt á boðstólum ferskur fiskur
úr Kyrrahafinu, „Red Snapper“
heitir hann, og kosta flökin kr. 239
kg. Sama verð er á „Golden King-
clip“ sem er hvítur fiskur, líkur
þorski eða ýsu í útliti. Sá kemur frá
Chfle. Þá er hér tii smálúða frá
Grænlandi og kosta flökin kr. 280
kg.
Rækjur og krabbar eru hér í
miklu úrvali. í matarblöðunum í
dag voru auglýstar hráar rækjur
(41-50 stk. pr. pund) á 320 kr. kg.
og var hún enn í hálfgerðu „sjokki“
eftir að hafa farið í matvöruversl-
anir þar.
Eftir því sem mér er tjáö kostar
lambalæri í matinn handa fjöl-
skyldu nú um tvö þúsund krónur.
í blaðinu hér í dag var einmitt aug-
lýst lambalæri og kostar kílóið sem
svarar 160 krónum. Læri sem veg-
ur 2,5 kíló myndi því kosta um 400
krónur.
Svínakótelettur með beini kosta
í dag 120 krónur í einni versluninni
og 160 krónur í annarri. Þessar
kótelettur voru þá lækkaðar úr 232
krónum en voru alveg fyrsta flokks
í útliti.
Heil svínasteik kostar sem svarar
kr. 135 hvert kíló, nýr svínahrygg-
ur kostar 120 kr. kg. og er þá búið
að skera úr honum pöruna.
Hér er hægt að fá sérlega gott
nautakjöt í öllum hugsanlegum
fituflokkum. Verðið er hlægilegt
miðað við verð á íslensku nauta-
kjöti. Verðið er frá 160 kr. kg. á
beinlausdum hringskornum fram-
parti og er þá tekið fram að ekki
sé búið að hreinsa burt fitu. Fitu-
hreinsað „roast" kostar um 200 kr.
kg. og þykkar T-beins steikur kosta
um 240 kr. kg.
Kjúklingar, sem eru daglegur
matur fólks hér, eru svo ódýrir að
með ólikindum er. Sem dæmi má
nefna að kjötmiklir efri hlutar af
læri, (mjaðmir), kosta 55 kr. kg.
Hægt er að fá hvaða hluta kjúkl-
ingsins sem óskað er, bæði með eða
án beina og eru þeir allir jafn ódýr-
ir. Pundið fyrir minna er dollar,
sem þýðir að kílóið er undir 80
krónum.
Fiskurinn ekki
daglegur matur
Sú var tíðin heima á íslandi aö
fiskur var daglegur matur fólks.
Þótt fiskur hafi hækkað í verði á
íslandi er hann sennilega enn ódýr-
ari en kjötmeti.