Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Page 38
50
- MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Cybill
Shepherd
kærir sig lítið um að eiginmaöur
hennar, læknirinn Bruce Oppen-
heimer, skuli alltaf taka af sér
giftingarhringinn þegar hann fer
í vinnuna. Cybill er ákaflega af-
brýðisöm og vill alls ekki að
sjúklingar hans haldi að hann sé
enn á lausu.
Corbin
Bemsen
var í Róm á dögunum og leist þá
svo vel á eina ítaiska að hann
bauð henni út. Tók hann fegurð-
ardisina út að borða á fínan veit-
ingastað og gerði svo ráö fyrir að
hann gæti notið máltíðarinnar og
félagsskaps stúlkunnar án þess
að til stórtíðinda drægi. En ekki
varð honum að ósk sinni því þeg-
ar þau höfðu snætt í nokkum
tíma þá hrópar snótiní upp yfir
sig svo hátt að allir heyrðu, „Þú
borðar eins og svín. Þú veist ekki
einu sinni hvemig á að nota gaff-
al. Corbin býður ekki þessari út
aftur á næstunni.
Roger
Moore
hefur nú lagt drykkju á þurrum
martíni á hilluna, en sjá má Ja-
mes Bond einatt með martíníglas
í hendi. Fyrrum 007 er nú nýkom-
in frá Suður-Frakklandi þar sem
hann lagði af um 10 kíló. Til að
ná þessum árangri lagði hann
niður ýmsa slæma vana og fór í
líkamsrækt á hverjum morgni.
Sést hann nú á veitingastöðum
Ríveríunnar með salatdisk fyrir
framan sig og vatn í glasi. Maður
lifir jú bara einu sinni og betra
aö fara vel með það sem maður
hefur.
Glímt við krókódílinn
Þar sem nú er nýfarið að sýna hér
á landi framhald myndarinnar um
Krókókdíla Dundee, þá er ekki úr
vegi að fjalla aðeins um leikkonuna
Lindu Kozlowski. í viðtali við banda-
ríska blaðið US sagði hún frá gerð
myndarinnar og samstarfi sínu við
Paul Hogan. Reyndar neitaði hún að
um annað en samvinnu hefði veriö
að ræða milli hennar og Paul, en
annað þykir þó hafa sannast.
Þegar Linda var spurð hvemig
Paul Hogan væri í raun og veru,
sagði hún að hann gæti verið mjög
þögull og það kæmi fólki oft á óvart
því það byggist viö að hann væri sí-
fellt að segja brandara.
Linda sagði að allir hefðu átt von
á að hún myndi „fríka út“ í Ástralíu.
Því hefði þó verið öfugt farið því hún'
kynni mjög vel við sig úti í náttúr-
unni. Ef báðar myndimar em taldar
saman, þá eyddi hún samanlagt hálfu
ári nálægt Darwin í Kakadu-þjóð-
garðinum sem innfæddir leigja rík-
inu. „Það var dásamlegt,“ sagði hún,
þegar hún talaði um yfirgefnu nám-
una þar sem leikaramir og aðstoðar-
fólkið dvaldist. „Maður vaknaði
snemma á morgnana í hreinu og
tæm lofti og svo mikil ró hvíldi yfir
öllu. Ég hafði alltaf tíma og orku til
að fá mér göngutúr."
Fyrir utan krókódílana þá var líf
Lindu í Ástralíu ekki svo ólikt því
sem það er í Los Angeles. Stundum
Paul Hogan og Linda Kozlowski í þeirri geysivinsælu mynd Krókódíla
Dundee.
hoppar hún upp í svarta Saabinn
sinn og keyrir til Santa Barbara þar
sem hún eyðir nokkmm dögum í að
fara í útreiðartúra og gönguferðir.
Venjulega er hún ein á ferð.
Það tók ekki langan tíma fyrir
Lindu að fá hlutverk í fyrstu mynd-
inni um Krókódíla Dundee. Hún var
ráðin sex vikum og fimm prufum
eftir að hún kom fyrst til Hollywood,
Það hefur ekki sakað að Dustin Hoff-
man, sem lék með henni í myndinni
Death of a Salesman, mælti með
henni.
Því miður virðist sem enginn hafi
séö nýjustu mynd Lindu, Pass the
Ammo, sem fjallar um svik sjón-
varpspredikara. Sú mynd var þó gerð
áður en upp komu hneykslismál í
kringum sjónvarpspredikara í
Bandaríkjunum.
í haust mun hún svo birtast í smá-
syrpunni, Favorite Son. Þar leikur
hún hjákonu og blaðafulltrúa ungs
öldungadeildarþingmanns se'm eng-
inn annar en Harry Hamlin úr Laga-
krókum leikur.
Linda gerði ekki ráð fyrir aö enn
ein myndin um Krókódíla Dundee
yrði gerð, þar sem Paul Hogan sagði
aö svo yrði ekki. Persónur þeirra eru
enn saman í lok myndar riúmer tvö,
en Paul er búinn að fá nóg og vill
snúa sér að því að leika önnur hlut-
verk. Linda hefði þó ekkert á móti
því að leika í þriðju myndinni.
Dansarinn og leikarinn Patrick
Swayze reyndi eitt sinn að svipta
sig lífi. Hann fékk fyrir nokkrum
árum ígerð í hnéð og varð að gang-
ast undir uppskurð. Þetta olii hon-
um miklu þunglyndi þvi hann sá
fram á að geta ekki dansaö framar.
Keypti Patrick þá stórt og mikið
mótorhjól og keyrði eins og btjál-
aður maður því hann hugöist binda
enda á lif sitt á þessari jörð. Það
var svo eiginkona hans, Lisa, sem
kom vitinu fyrir hann aftur.
Patrick og Lisa hafa verið gift i
tólf ár og er hjónaband þeirra hon-
um mjög mikilvægt. Hann sagðí að
áöur en hann hitti Lisu hefði hann
verið eiginhagsmunaseggur en hún
kenndi honum aö bera virðingu
fyrir lífinu og öðrum. Hefði það
ekki veriö fyrir hana þá væri hann
ekki lifandi í dag.
Patrick er ekki enn orðinn góöur
i hnénu en dreymir um að gera
dansmynd með konunni sinni, sem hugóist stytta sór aldur þar sem
hann reyndar hitti í dansskóla hann hélt eitt sinn að hann gæti
móður sinnar. aidrei dansað framar.
Kínverjar hafa nú ákveðið að
Jackie Collins, systir Joan, skuli
brennd á báli. Ekki verður það þó
hún sjálf sem lendir á bálkestinum
heldur bækur hennar og þá sérs-
taklega bókin „The Gambler“. Hef-
ur stærsta bókaútgáfufyrirtækinu
í Kína verið skipað af yfirvöldum
að losa sig við bókina og hefur því
einnig verið skipað að borga háar
fjárhæðir í sekt fyrir dreifingu á
klámi.
Bókaútgáfufyrirtækið, sem hing-
að til hefur notið fyllsta trausts
kommúnistastjómarinnar, er
stærsta fómarlamb herferðar sem
stjómin hefur hafið gegn bókum
er hún álítur vera klám. Flestar
bækumar em vestrænar og hafa
þær verið þýddar og gefnar út í
Kína í algjöra leyfisleysi. Þarf fyr-
irtækið að borga 495.000 krónur
fyrir að hafa prentað og gefið út
bókina í 370.000 eintökum.
Blaðið The Peoples Daily, sem
gefið er út í Kína, sagði að „The
Gambler" innihéldi svo mikið klám
að það hefði eyðilagt líkamlega og
andlega heilsu ungs fólks. Bókin
hefði því mjög slæm áhrif.
Annað útgáfufyrirtæki hefur ver-
ið sektað um 720.000 krónur fyrir
að hafa gefið út bandarísku bókina
„Fun Club“. Ríkisrekin útgáfufyr-
irtæki í Kína kvarta mikið yfir því
að það borgi sig hreinlega ekki að
gefa út ódýrar, kínverskar bók-
menntir meðan hægt sé að fá mun
hærra verð og virkilega græða á
þýddum bókum eftir vestræna höf-
unda.
Kína er ekki samningsaðili að
neinum alþjóðlegum útgáfuréttar-
samningum og útgefendur þar
prenta og gefa út erlend ritverk án
þess að hafa leyfi höfunda og án
þess aö borga prósentur af sölu-
gróða.
„Þurfum ekki konungdæmi"
- segja Norðmenn
Sonja, krónprinsessa Norðmanna,
er í slíku uppáhaldi hjá löndum sín-
um að þeir standa oft lengi í röðum
um götur og torg til þess eins að geta
hana augum litið.
En það er ekki alltaf sem hinum
tignu er heilsað með veifandi fánum
og húrrahrópum. Það fékk norska
konungsfjölskyldan að reyna nýlega
þegar Margrét Danadrottning og
Hinrik maður hennar voru á ferð í
Noregi. Stór hópur ungs fólks safnað-
ist saman í Karls Jóhanns-götu og
hrópaöi slagorð gegn kóngafólkinu,
en fyrst og fremst var það að mót-
mæla því að þingið skyldi hafa boðið
kóngafólkinu til stórveislu þegar
efnahagslíf landsins er á hraðri nið-
urleið.
Í þinginu sjálfu eru ekki allir jafn-
sammála um það að landsmenn hafi
ánægju af því að búa í konungsríki.
Grete Knudsen, sem situr á þingi
fyrir Verkamannaflokkinn, verður
addrei þreytt á að tala um hversu illa
krónprinsessan standi sig. Ef hún
fengi að ráða myndi Noregur verða
að lýðveldi um leið og Ólafur Noregs-
konungur er allur. Grete er með
miklar stríðsyfirlýsingar og telur
Noreg ekki hafa neina þörf fyrir
Harald, hvað þá að hafa Sonju fyrir
drottningu. Fyrir þessi orð sín fékk
hún mikið lófaklapp frá stuðnings-
mönnum sínum í þinginu.
Það sem sérstaklega hefur angrað
Grete er að hinn almenni skattborg-
Ekki eru allir sarnmála um gagn
konungdæmis fyrir Noreg og vilja
sumir ieggja það niður um leið og
Ólafur fellur frá.
ari skuli borga fyrir rekstur keppnis-
báts Haralds svo aö hann geti sýnt
norska fánann í alþjóðlegum mótum.
Hún telur Sonju einnig vera ákaflega
óheppna í orðavali og kunna ekki að
koma fyrir sig orði. Sonja sé því óhæf
um aö ræða um mikilvæg mál og
slíkt eigi ekki að líðast meðal kon-
ungsfólks.
Og svo er bara aö sjá hvað Norð-
menn gera.
Jackie Collins nýtur mikilla vinsælda í hinum vestræna heimi fyrir bæk-
ur sinar en eitthvað finnst Kínverjum hún vera opinská í ýmsum lýsing-
um sínum og hafa þeir því ákveðiö að brenna ritverk hennar.