Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
Viðskipti___________________________________dv
Fallegur sumarbústaður selst
á bilinu 2 til 2,5 milljónir
- lúxusbústaðir í Grafningi dýnistu bústaðir landsins
Mjög góöur sumarbústaður á fall-
egum stað stutt frá Reykjavík selst á
bilinu 2 til 2,5 milljónir króna að sögn
fasteignasala. Verðið er að sjálfsögðu
eins misjafnt og bústaðirnir eru
margir. Dýrustu bústaðirnir eru við
Þingvallavatn, sérstáklega í Grafn-
ingnum og vestan við Valhöll. Á
þessum stöðum eru hiklaust settar 4
lil 5 milljónir á toppbústað, sannkall-
aðan lúxusbústað. Lítil sala er ann-
ars á sumarbústöðum um þessar
mundir, segja fasteignasalar.
Er sumarbústaður góð
fjárfesting?
„Sumarbústaður er að mínu mati
ekki góð flárfesting. Þeir sem eiga
Peningamarkadur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 23-26 Sp.lb
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 23-28 Sp.Ab
6mán. uppsogn 24-30 . Sp.Ab
12mán.uppsógn 26-33 Úb
18mán. uppsogn 39 Ib
Tékkareikningar. alm. 9-15 Ib.S- b.Ab
Sértékkareiknmgar 10-28 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsogn 2 ‘ Allir
6mán. uppsogn 4 Allir
Innlán með sérkjörum 20-36 Lb.Bb,- Sp
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7,25 Úb.Bb,- Ib Úb
Sterlingspund 7-9,50
Vestur-þýskmork 2,75-4,25 Úb
Danskarkrónur 7.25-8,50 Vb.Ab,- Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 38-39 Ab
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 41 Allir
Vióskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 39-42 Lb.Bb,- Sb
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9,25 Vb.lb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 36-41 Úb
SDR 8,50-9.25 Lb.úb,-
Sp.Bb
Bandaríkjadalir 9,75-10.50 Bb.Úb,- Sp
Sterlingspund 12-12.75 Úb.Sp,- Bb
Vestur-þýsk mörk 5,25-7,25 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 52,8 4.4 á mán
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júlí 88 38,2
Verótr júlí 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júli 2154 stig
Byggingavisitalajúlí 388 stig
Byggmgavísitalajúlí 121,3 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi8%1.júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1,6930
Einingabréf 1 3,131
Emingabréf 2 1,809
Einingabréf 3 1,994
Fjolþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1.340
Kjarabréf 3,122
Lífeyrisbréf 1.574
Markbréf 1,633
Sjóósbréf 1 1,504
Sjóósbréf 2 1,326
Tekjubréf 1,497
Rekstrarbréf 1,2299
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr. •
Eimskip 269 kr.
Flugleiðir 240 kr.
Hampiöjan 116 kr.
lónaðarbankinn . 168 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 120 kr.
Útgeróarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabrétum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaöarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
sumarbústað fá í langflestum tilvik-
um ekki fyrir kostnaðinum sem þeir
leggja út í. Á móti kemur á hinn bóg-
inn ánægjan yfir að eiga bústað og
geta drifið sig í sveitina um helgar,"
segir Ingvar Guðmundsson, for-
stöðumaður fasteignasölu Kaup-
þings.
Staðurinn skiptir miklu máli í
verði sumarbústaða. Langflestir
setja vegalengdina í bústaðinn og
umhverfið mest fyrir sig. Þannig er
vinsælt að hafa grasivaxna ílöt og
skógivaxið land í kringum bústað-
inn. Lækur í gegnum landið og að
þaö liggi að vatni er sérstakur
ánægjubónus.
Toppbústaður í Kjós
á um 2 milljónir
Fikrum okkur út frá Reykjavík.
Byijum í Kjósinni. Við Meðalfells-
vatn er krökkt af bústöðum. Þeir eru
mjög misfallegir. Verðið er ennfrem-
ur mjög breytilegt. En fallegur bú-
staður, um 50 fermetra, selst á rúm-
lega 2 milljónir króna.
I næsta nágrenni, Eilifsdal, eru
bústaðir. Þar er fallegur bústaður
sagður fara á þetta 1.800 þúsund
krónur til rúmlega 2 milljónir króna.
Ekki er um eignarlóðir að ræöa held-
ur leigulóðir.
Þrastaskógur og Grímsnesið
Förum næst austur fyrir fjall, í
Þrastakóginn, Grímsnesið og
Múraralöndin. Þar er verðið mjög
misjafnt. Hrörlegur bústaður á ekk-
ert sérstökum stað selst ekki á háu
verði. En góður og fallegur bústaöur,
kominn með rafmagn og jafnvel heitt
vatn, eins og tíðkast í Grímsnesinu,
selst á bilinu 2 til 3 milljónir króna.
Aö sögn eins fasteignasala var mun
meiri eftirspum eftir sumarbústöð-
um hér á árum áður. „Þá biðu menn
með heftið á lofti, tilbúnir að greiða
fyrir gott land. Þaö er liðin tíð.“
Fasteignasalar eru á einu máli um
að Grafningurinn við Þingvallavatn
og svæðið vestan megin við Valhöll
sé dýrasta sumarbústaðasvæði á ís-
landi. En eins og áður þurfa bústað-
irnir að vera mjög fallegir og góðir
til að seljast á toppverði.
Lúxusbústaður í Grafningi
á 5 milljónir
Stór lúxusbústaður í Grafningi
með bátaskýli, báti, girtu landi, gras-
flöt og skógi og með góðu útsýni yfir
vatnið, kemur yfirleitt ekki inn á
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
fasteignasölur og þess vegna er erfitt
að segja nákvæmlega til um verðið
og miða þannig við nýlegar sölur, en
þær segja mest um markaðsverðið
hveiju sinni.
„Ég efast ekki um að settar yrðu
um 4 til 5 milljónir króna, jafnvel
hærra, á slíkan bústað. Það væri það
verð sem eigandi bústaðarins vildi
fá fyrir hann,“ segir Ingvar Guð-
mundsson hjá Kaupþingi.
Bújarðir í samkeppni
við sumarbústaði
Aö sögn Ingvars er farið að bera á
því að góðar bújarðir séu farnar að
keppa við sumarbústaðina. „Þegar
hægt er að fá ágæta 100 hektara bú-
jörð í Rangárvallasýslu, Dölum,
Snæfellsnesi og víðar með þokkalegu
íbúöarhúsi og útihúsum á þetta 3 til
4 milljónir króna fer fólk aö hugsa
sig um hvort það eigi frekar að fá sér
jörð en bústað.“
„Góð 100 til 150 hektara jörð með
nýlegu og góðu íbúöarhúsi, útihús-
um, hlöðu, ræktuðum túnum og jafn-
vel aðgangi að veiðivatni eða sjó, er
seld á þetta 7 til 10 milljónir. Þess
vegna er það að gerast að fjölskyldu-
meðlimir í stórum fjölskyldum leggi
saman í púkkið og kaupi slíkar jarð-
ir í stað þess að kaupa sinn hvern
bústaðinn."
Tilbúinn bústaður frá
verksmiðju kostar á bilinu
milljón til 2 milljónir
Verð á nýsmíðuðum um 50 fer-
metra bústað hjá trésmíðaverkstæð-
um hggur á bilinu 1 milljón til 2 millj-
ónir eftir byggingarstigi bústaðanna.
Þannig selur Einingaverksmiðjan
Þinur í Kópavogi, sem er dótturfyrir-
tæki Húsasmiðjunnar, 53 fermetra
bústað sem afhendist í einingum sem
tilbúnar eru undir einangrun, loftið
er panelklætt, á rúmlega milljón.
Á hinn bóginn kostar samsettur
bústaður, með innihurðum, eldhús-
innréttingu, einangrun og allur pan-
elklæddur að innan, kominn á flutn-
ingavagn um 1.650 þúsund krónur.
Fylgi skyggni og um 15 fermetra pall-
ur með honum er verðið í kringum
1.750 þúsund krónur.
Flestir kaupa
ósamsetta bústaði
„Flestir kaupa bústaðina ósam-
setta á rúmlega eina milljón króna.
Þrír vanir smiðir eru um 2 til 3 daga
að skvera bústaðnum upp. Algengast
er að menn fái vini og kunningja til
að hjálpa sér eina helgi við að reisa
bústaðinn. Eftir það finnst mörgum
ágætt að dúlla sér í sveitinni við aö
fullgera bústaöinn. Það er hluti af
verunni þar,“ segir Jóhannes Péturs-
son, verksmiðjustjóri Þins.
Lóðaréttindi á helstu bústaðalönd-
unum í nágrenni Reykjavíkur kosta
um 100 þúsund krónur. Á hverju ári
er svo borguð leiga. Eignarlóöir á
bilinu hálfur til einn hektari í Gríms-
nesinu eru á hinn bóginn seldar á
um 350 þúsund krónur. Þá er gjarnan
vegalagning, vatn, rafstrengur og
skipulag inni í verðinu.
Fyrir 1960 áttu fáir bústaði
Þúsundir sumarbústaða eru í ná-
grenni höfuðbpgarinnar. Þaö sýnir
að vdnsælt er á íslandi að eiga sumar-
bústað og komast í sveitina um helg-
ar og í miðri viku. Jafnvel er svo
komið að sumir dvelja sumarlangt í
bústaðnum yfir sumarið og aka í
vdnnuna til Reykjavíkur.
Fyrir árið 1960 voru sumarbústaðir
nánast eingöngu í eigu ríkra ætta í
höfuðborginni. Nú eru þeir almenn-
ingseign.
-JGH
Verðbréfaþing
íslands
- kauptilboð vikunnar
FSS = Fjárfestingarsjóður Slátur-
félags Suðurlands, GL = Glitnir,
IB = lðnaðarbankinn, Lind = Fjár-
mögnunarfyrirtækið Lind, SIS =
Samband íslenskra samvinnufé-
laga, SP = Spariskírteini ríkissjóðs
Hæsta kaupverð
Einkennl Kr. Vextir
FSS1985/1 135,92 10,0
GL1986/1 159,77 11,9
GL1986/291 109,68 11,0
GL1986/292 98,72 11.0
IB1985/3 172,33 10,5
IB1986/1 146,19 10,4
LB1986/1 110,87 11,2
LB1987/1 108,11 10,8
LB1987/3 100,97 11,0
LB1987/5 96,60 10,7
LB1987/6 116,35 13,0
LB.SIS85/2A 173,82 13,4
LB:SIS85/2B 154,56 11,2
LIND1986/1 130,19 11,7
LYSING1987/1 104,13 12,3
SIS1985/1 231,35 9,6
SIS1987/1 144,58 11,4
SP1974/1 17010,36 9,8
SP1975/1 11864,13 9,8
SP1975/2 8853,84 9,8
SP1976/1 8178,52 9,8
SP1976/2 6503,23 9,8
SP1977/1 5796,99 9,8
SP1977/2 5030,84 9.8
SP1978/1 3930,47 9,8
SP1978/2 3213,93 9,8
SP1979/1 2659,37 9,8
SP1979/2 2087,21 9.8
SP1980/1 1792,72 9.8
SP1980/2 1439,97 9,8
SP1981/1 1189,12 9,8
SP1981/2 908,70 9,8
SP1982/1 822,35 9,8
SP1982/2 630,65 9,8
SP1983/1 477,79 9.8
SP1983/2 ■ 321,09 9.8
SP1984/1 323,54 9,8
SP1984/2 320,71 9.8
SP1984/3 309,22 9,8
SP1984/SDR 287,43 9.8
SP1985/1A 273,91 9.8
SP1985/1SDR 202,63 9,8
SP1985/2A 214,43 9,8
SP1985/2SDR 177,56 9.8
SP1986/1A3AR 188,80 9,8
SP1986/1A4AR 194,52. 9,8
SP1986/1A6AR 195,26 9.8
SP1986/1D 160,48 9,8
SP1986/2A4AR 167,18 9,8
SP1986/2A6AR 164,77 9,8
SP1987/1A2AR 152,36 9.8
SP1987/2A6AR 118,65 9.8
SP1987/2D2AR 134,02 9,8
Taflan sýnir verð pr. 100 kr. nafn-
verðs og hagstæðustu raunávöxt-
un kaupenda I % á ári miðað við
viðskipti 25.7. '88. Ekki ertekið
tillittil þóknunar.
Viðskipti á Verðbréfaþingi fara
fram hjá eftirtöldum þingaðilum:
Fjárfestingarfélagi Islands hf.
Kaupþingi hf„ Landsbanka Is-
lands, Samvinnubanka Islands
hf., Sparisjóði Hafnarfjarðar, Út-
vegsbanka Islands hf., Verðbréfa-
markaöi Iðnaðarbankans hf. og
Verslunarbanka Islands hf.
Fallegur og góður sumarbústaður skammt frá Reykjavík, gjarnan með grasflöt og kjarri, er að jafnaði á bilinu 2 til
2,5 milljónir. En verðið er mjög hreyfanlegt. DV-mynd EJ
Sláturfélagið hætt sútun
Sláturfélag Suöurlands, SS, hef-
ur stjlt Loöskinni hf. á Sauöárkróki
allar sútunarvélar sínar á 40 millj-
ónir króna. Þar meö er Sláturfélag-
ið hætt sútun. Fyrirtækin hyggjast
ennfremur taka upp víötækt sam-
starf á sviði gæruverkunar og sút-
unar og á Sláturfélagið nú 17 pró-
sent hlutaíjár í Loðskinni.
Hlutafjáreign Sláturfélagsins í
Loðskinni er til komin vegna kaup-
anna á sútunarvélunum. En Loð-
skinn grelöir umræddar 40 milljón-
ir með 16 milljón króna skulda-
bréfi og hlutabréfiun í Loðskinni
að upphæö 12 milljónir.
Sláturíélagiö mun selja Loö-
skinni hf' allar kindagærur sínar
næstu 10 árin. Það leggur Loð-
skinni til söltunarhús sín í Rangár-
vallasýslu og mun Loðskinn reka
þar söltunar- og klippistöð til aö
forvinna gærur Sláturfélagsins.
-JGH