Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
19
Sviðsljós
Heimsins stærsta heimili, St. Emmeram-kastalinn i Regensburg i Vestur-Þýskalandi.
517 herbergi á emkaheimili
Þaö yrði ekki erfitt aö villast á
heimsins stærsta einkaheimili, því
það hefur 517 herbergi, 300 klukkur,
rúmlega 900 glugga og 146 starfs-
menn sem sjá um aö allt sé í lagi.
Höll þessi er St. Emmeram-kastali
í Regensburg í Vestur-Þýskalandi.
Hefur kastalinn nærri því jafnmörg
herbergi og finnast í Buckingham-
höllinni í Bretlandi, eða langtum
fleiri en nokkurt hótel hefur. En
munurinn á Buckingham-höll og St.
Emmeram er sá aö hölhnn tilheyrir
bresku krúnunni og má því ekki selj-
ast, en eigandi kastalans er marg-
milljarðamæringurinn prins Jó-
hannes von Thurn und Taxis. Hafa
Það tekur prins Jóhannes von Thurn
und Taxis um tuttugu mínútur að
ganga frá skrifstofu sinni og til bóka-
safnins.
honum verið boðnar 6,8 milljaröar
fyrir slotið en prinsinn aíþakkaði
boðið hæversklega.
Eigandinn eyðir um 188 milljónum
á ári i viðhald og annan kostnað.
Heimili þetta mun vera svo stórt að
hægt væri að breyta því í húsnæði
fyrir aö minnsta kosti 150 fjölskyld-
ur. Tekur það prinsinn um 20 mínút-
ur að ganga frá skrifstofu sinni, sem
er í einum tuminum, og til bóka-
safnsins.
Ef einhver gerðist svo hugrakkur
að leggja í það að ganga frá einum
enda til annars í öllum fjórum hlut-
um kastalans þá tæki það rúmlega
þrjá tima. Þá er tekið með að gengn-
ar séu allarfjórar hæðimar, kjallar-
arnir, háaloftin og stigarnir.
Þrjátíu og sex baðherbergi
Hér er sumt af því sem finna má í
húsinu:
Um 95 herbergi fyrir íjölskyldu
prinsins. Þar á meðal er leikfimisal-
ur, geymslur, fimm borðstofur, eld-
hús (í fleirtölu), þvottaherbergi,.
svefnherbergi þjóna, keilusalur og
einka-kapella.
Um 120 herbergi eru notuð fyrir
starfsliðið sem skrifstofur og íleira.
Gestasvítumar em 10 og hefur hver
þeirra fimm svefnherbergi. Auk þess
er 21 venjulegt gestaherbergi. Á efstu
hæðinni eru svo önnur 90 herbergi
sem sjaldan em notuð. Einnig em
þarna 19 forstofur og 15 veislusalir.
Og til þess að veislugestir geti nú
Þeir eru vissulega glæsilegir, veislusalirnir fimmtán í kastalanum
létt á sér em 36 baðherbergi í húsinu.
Ekki er allt upptalið enn. í viðbót
við það sem komið er eru um 100
önnur herbergi sem geyma dýrmæti
eins og 50 antiksófa, 225.000 bækur
og 4.800 antik-klukkur, sem ekki em
notaðar. Punkturinn yfir i-ið er svo
vínkjallarinn sem inniheldur um
150.000 flöskur af gæðavíni.
Eignin, sem hefur framgarð á
stærð við fótboltavöll, var í upphafi
klaustur fyrir 1300 ámm. Fjölskylda
prinsins byggði svo þessi glæsilegu
húsakynni og fékk aðeins litill hluti
klaustursins að halda sér. Hefur
eignin að mestu leyti verið óbreytt
frá þvi að byggingu hennar lauk á
nítjándu öld.
Fasteignasali einn sagði að húsið
væri svo stórt og sérstakt að næstum
ómögulegt væri að verðleggja það.
Blautt í vætu
Það er margt skrýtið i kýrhausnum. Þetta viðvörunarskilti má sjá við
þjóðveg á Flórída og stendur á þvf, (lauslegri þýðfngu, „Varúð, vatn á
veginum f rigningu"!
Skóregla
Þessi skemmtilega mynd var tekin i Bílaborg á dögunum. Þarna eru á
ferðinni inniskór starfsmanna fyrirtækisins sem bíða í röð og reglu eftir
að vera færðir ylvoigir á iljar eigenda sinna. Þaö má segja að það sé
skóregla á hlutunum á þessum stað. DV-mynd RS
Ólyginn
sagði...
Paul
McCartney
hefur nú rétt til þess að kalla
sig doktor McCartney. Háskólinn
í Sussex í Brighton útnefndi hann
heiðursdoktor fyrir hina óvenju-
legu tónlistarhæfileika hans.
Paul tók á móti doktorsgráðunni
íklæddur rauðri slá og með svárt-
an hatt eins og venjaer við slíkar
athafnir.
Cher
tók á móti óskarsverðlaunun-
inn fyrir nokkmm mánuðum.
Ástæðan fyrir heiðrinum mun
hafa verið leikur hennar í Moon-
stmck. Cher er þó sjálf ekki í
. vafa um aö allar fegrunaraðgerð-
imar sem hún hefur gengist uftd-
ir hafi haft þar áhrif á því útlitið
hafi ekki spillt fyrir. Það hefur
líka kostað hana talsvert, því
samtals er hún búin að eyða 1,9
milljónum í skrokkinn á sér.
Meðal annars borgaði hún 700.000
krónur fyrir bijóstin á sér og
200.000 krónur fyrir andlitið.
Joan
Collins
hefur nú sett fram kröfu við
framleiðendur Dynastyþáttanna,
sem fær John Forsythe til að
hrista höfuðið. Joan vill að síð-
asti þáttur syrpunnar á þessu ári
endi með því að Blake Carrington
yfirgefi Krystle og hann og Alexis
gangi hönd í hönd saman út í
sólarlagið. John sagð^að áhorf-
endur kærðu sig ekki um slíkan
endi og það gerði hann ekki held-
ur.