Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Qupperneq 32
32
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
Lífsstm
„Andlit'' húss
gert aðlaðandi
- lítið þarf til að gera snyrtilegt að fallegu
tnngangur að húsum veröur fallegri blómum skrýddur. Þóti timburklæöning gefi þessu húsi hlýlegt yfirbragð
breytist svipurinn mjög til hlns betra þegar blómaskreytingar eru komnar. Þarna má sjá ýmislegt, svo sem
ker meö rósum, þurrkaðan blómvönd, berberisrunna (fremst), bonsaitré, t.v., bergfléttu upp aó þakskeggi
og pelargóniur. Því færri litir því hreinni svipur. Skreytingar eru frá Blómálfinum við Vesturgötu.
Ekki þarf mikið til að gera heim-
reið húsa aðlaðandi. Þannig geta
eitt eða tvö blómaker og hangandi
blómapottar við inngang skipt
sköpum.
Ef hugmyndaflugið er látið reika
má fmna marga hluti sem henta
vel sem blómaker. Tréker, semlíkj-
ast hálftunnu, eru mjög falleg.
Einnig má nota trékassa, gamla
mjólkurbrúsa, steinrör og leirker.
Svokallaðir U-steinar, sem eru um
70 kilóa þungir, geta verið hvar sem
er. Þeir kosta um 500 krónur.
DV skoðaði á dögunum aðkomu
nokkurra húsa. Svo virðist sem ís-
lendingar séu mjög svo famir að
hafa hugann við að skreyta við hús
sín. Á mörgum stöðum er frágang-
ur til fyrirmyndar. Víðast hvar er
mjög snyrtilegt um að Utast. Að
öðru leyti má sjá að ekki þarf mik-
ið til að snyrtileg aðkoma verði fal-
leg aðkoma.
Við fengum einnig eigendur
Blómálfsins viö Vesturgötu til að
leggja okkur lið við að skreyta inn-
gang við hús í Skeijafirðinum.
Mismunandi útlit við raðhús
í vesturbænum
Talandi dæmi um það hve lítið
þarf til að gera aðkomu húss aölað-
andi Við rákumst á raðhúsaröð í
vesturbænum sem er talandi dæmi
um það hver lítið þarf til aö gera
aðkomu húss aðlaðandi. Þar hefur
nýlega verið byggt. Búið er að mála
og ganga frá húsunum. Lóðimar
eru samt talsvert hráar enn. Þegar
litið var yfir svæðið sáust varla
nokkur óhreinindi.
Þegar betur var að gáö var búið
aö skreyta inngang við eitt hús-
anna. Þrjú blómaker við inngang-
inn og annað viö glugga geröu þetta
hús tvímælalaust það snotrasta við
Þótt ótrúlegt megi virðast er frágangur við þetta hús unninn fyrir tveim-
ur árum. Blómakerin með einitrjánum setja fallegan svip á þennan inn-
gang.
Tvö blómaker og hengipottar
bjóða gesti velkomna. Án þessara
einföldu gróðurskreytinga væri
sjálfsagt kuldalegt um að litast.
þessa götu. í eitt keranna var búið
að planta um 150 cm háu tré sem
gaf heildarútlitinu meira líf. Þegar
litið var á aðra innganga var ótrú-
legt að sjá hve mikill munur verður
við svo htlar framkvæmdir.
Einfalt og hlýlegt
Við Óðinsgötu varð á vegi okkar
sérlega einfold skreyting. Tvö tré-
ker stóðu hvort sínum megin við
tröppuinngang og tveir hengipottar
voru þar fyrir ofan í mismunandi
hæð. Þetta þarfnast ekki mikillar
umhirðu. Einfaldleikinn er allsráö-
andi. Gróðurkerin eru höfð í sama
lit og gluggakarmar og hurðarlist-
ar. Gróðurinn með grænu og hvítu
ívafi setti fallegan svip á húsiö með
svarta litnum.
Skammt frá stendur bleikmálaö
hús en bleikur litur er ekki algeng-
ur á húsum. Gróðurinn tekur sig
engu að síður vel út við það. Þarna
var blómabeð sem hallast frá hús-
inu. Á milli eru tröppur úr hellu-
steini. í glugga hússins voru svo
svipsterkar blómstrandi potta-
plöntur. Þessi samsetning hefur
sérstakan en fallegan blæ. Meira
að segja voru sum blómin í beöinu
í sama lit og húsið - bleik.
Inngangur við hús í
Skerjafirði skreyttur
Til að sýna fram á hvemig hægt
er að skreyta inngang við hús fall-
ega fengum við þær Hjördísi Reyk-
dal Jónsdóttur og Fjólu Guð-
mundsdóttur, eigendur Blómálfs-
litum ekki blandað saman. Hér er
auðvitað um smekksatriði að ræða.
Því er þó ekki að neita að einfaldur
stOl getur óneitanlega veriö fall-
egur. -ÓTT.
Ekki þarf mikið til aö gera inngang-
inn aðlaðandi. Þarna hefur nokkr-
um leirkerum verið komið fyrir.
Þótt lóðin sé ekki frágengin hefur
þetta mikið að segja fyrir heildar-
svip hússins.
ins, til liðs viö okkur. Þær völdu
sér gamalt en nýklætt timburhús
til að skreyta við.
Inngangurinn var heldur óhrjá-
legur í fyrstu. Þó má segja að timb-
urklæðningin hafi gefið staðnum
hlýlegt viðmót.
Stúlkumar tóku nú til við að
Hér er samspil bleiks litar og samlitra blóma í þeði við þetta hús.
prýða innganginn. Sem uppistaða
var notað stórt tréker með gulleitri
rósaplöntu. í horni við innganginn
var svo bergfléttu komið fyrir
þannig að hún hékk niður. Þessi
tegund getur einnig klifrað upp eft-
ir tré- eða steinsúlum. Þama vom
einnig þurrkuð blóm - slíkt þarfn-
ast þó skjóls.
Upp við steinahleðslu, sem mynd-
ar útigrill og borð í senn, var síðan
sett svokallaö berberistré. Þessi
tegund mun ekki vera á markaðn-
um nú en veröur til sölu víða næsta
sumar. Tegundin hentar vel við
aðstæður sem þessar. Hún hefur
rauðleitan blæ. Framarlega við
innganginn var sett bonsai-tré.
Þetta er smaékkuð mynd af birkitré
sem fer afar vel viö inngang eða á
svölum.
Að lokum var svo nokkrum pel-
argóníuplöntum komið fyrir á
borði eða stöllum og á stéttinni. Þó
hér séu nokkrar tegundir skreyt-
inga samankomnar var of mörgum
Ef garður snýr ekki að suöri getur
verið heppilegt að hafa sumar-
blómin við inngang hússins. Þarna
eru notaðir einfaldir trékassar.
Einnig eru bastkörfur uppi við
rennuna og pottar á tröppunum.