Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
35
dv Fólk í fréttum
Víglundur Þorsteinsson
Víglundur Þorsteinsson, formað-
in- Félags íslenskra iðnrekenda,
óttast aö iðnaðurinn verði settur
til hliðar er tekiö verður erlent fé
í endurskipulagningu útflutnings-
greinanna.
Víglundur Reynir er fæddur 19.
september 1943 í Rvík og lauk lög-
fræðiprófi frá HÍ1970 og var fram-
kvæmdastjóri sjálfstæðisfélaganna
í Rvík 1970-1971. Hann hefur verið
framkvæmdastjóri BM Vallá hf. frá
1971 og var bæjarfulltrúi á Seltjam-
amesi 1974-1978. Víglundur var í
stjóm Verslunarráðs 1977-1981 og
hqfur verið í stjóm Félags ísl. iðn-
rekenda frá 1978, formaður frá
1982. Hann var stjómarformaður
Útflutningsmiöstöðvar iðnaðarins
1979-1983, hefur verið í fram-
kvæmdastjóm Vinnuveitendasam-
bandsins frá 1983 og stjómarfor-
maður Vikurvara hf. frá 1986.
Víglundur kvæntist 14. desember
1963 Sigurveigu Ingibjörgu Jóns-
dóttur, f. 9. september 1943, þjóð-
félagsfræðingi og varafréttastjóra á
Stöð 2. Foreldrar hennar voru Jón
S. Helgason, stórkaupmaður í Rvík,
og kona hans, Hanna Alvilda
Helgason. Synir Víglundar og Sig-
urveigar em Jón Þór, f. 4. júlí 1964,
skrifstofumaður í Rvík, Þorsteinn,
f. 22. nóvember 1969, og Bjöm, f.
24. júní 1971. Systur Víglundar eru
Ásta Bryndís, f. 1. desember 1945,
hjúkrunarfræðingur á Seltjarnar-
nesi og formaöur Landssamtak-
anna Þroskahjálpar, gift Ástráði
B. Hreiðarssyni lækni, og Hafdís
Björg, f. 25. apríl 1955, sálfræðingur
í Árósum, gift Fleming Jensen
tölvufræðingi.
Foreldrar Víglundar em Þor-
steinn Þorsteinsson, fisksali í Rvík,
og kona hans, Ásdís Eyjólfsdóttir.
Þorsteinn var sonur Þorsteins, sjó-
manns í Rvík, bróður Guðríðar,
móður Andrésar Gestssonar
sjúkranuddara. Þorsteinn var son-
ur Guðlaugs, verkamanns í Rvík,
bróður Markúsar, afa Harðar
Ágústssonar listmálara og langafa
Markúsar Amar Antonssonar út-
varpsstjóra. Guðlaugur var sonur
Þorsteins, b. í Gröf í Hrunamanna-
hreppi, Jónssonar, bróður Jóns,
langafa Þorsteins Einarssonar
íþróttafulltrúa. Móðir Þorsteins
var Guðrún Jónsdóttir, b. í Galta-
felli, Bjömssonar, b. í Galtafelli,
Bjömssonar, b. í Vorsabæ, Högna-
sonar, lögréttumanns á Laugar-
vatni, Bjömssonar, bróður Si'gríð-
ar, móður Finns Jónssonar bisk-
ups. Móðir Jóns var Bryngerður
Knútsdóttir, systir Sigríðar, ömmu
Tómasar Guðmundssonar skálds
og Hannesar þjóðskjalavarðar og
Þorsteins hagstofustjóra Þorsteins-
sona.
Móðir Þorsteins Þorsteinssonar
var Ástríöur, systir Sigríðar,
ömmu Péturs Guðmundssonar,
flugvallarstjóra á Keflavíkurflug-
velli. Ástríður var dóttir Odds,
formanns í Brautarholti í Rvík,
Eyjólfssonar og konu hans, Guð-
rúnar, systur Þorkels, langafa Páls
Jenssonar prófessors. Guðrún var
dóttir Áma, b. í Guðnabæ í Sel-
vogi, Guönasonar og konu hans,
Steinunnar Þorkelsdóttur, b. í
Krýsuvík, Valdasonar. Móðir
Steinunnar var Þómnn Álfsdóttir,
b. í Tungu í Flóa, Arasonar, b. á
Eystri-Loftsstöðum, Bergssonar, b.
í Brattholti, Sturlaugssonar, ætt-
fóður Bergsættarinnar.
Ásdís er dóttir Eyjólfs, verka-
manns í Rvík, Brynjólfssonar, b. í
Miðhúsum í Biskupstungum, Eyj-
ólfssonar, hálfbróöur Ingunnar,
konu Böðvars Magnússonar á
Laugarvatni. Móðir Ásdísar var
Kristín, systir Finnboga, fóður
Kristins, framkvæmdastjóra
Tímans. Kristín var dóttir Árna,
b. í Miðdalskoti í Laugardal, Guð-
brandssonar, b. í Miðdal, bróður
Áma, langafa Júlíusar Sólness og
Hrafns Pálssonar, deildarstjóra í
heilbrigðisráðuneytinu. Annar
bróðir Guðbrands var Jón, afi
Margrétar Guðnadóttur prófessors
og Guðnýjar, móður Guðlaugs
Tryggva Karlssonar hagfræðings.
Guðbrandur var sonur Áma, b. á
Galtarlæk, Finnbogasonar, bróður
Jóns, afa Guðrúnar, ömmu Þórs
Jakobssonar veðurfræðings og
Boga Ágústssonar fréttastjóra. Jón
var einnig faðir Jóhanns, langafa
Ingólfs Margeirssonar ritstjóra.
Móðir Guðbrands var Margrét
Jónsdóttir, b. á Ægissíðu, Jónsson-
ar. Móöir Jóns var Guðrún Brands-
dóttir, b. á Felli í Mýrdal, Bjama-
sonar, b. á Víkingslæk, Halldórs-
sonar, ættföður Víkingslækjarætt-
arinnar.
Móöir Áma var Sigríður, systir
Ófeigs, afa Tryggva Ófeigssonar
útgerðarmanns. Annar bróðir Sig-
ríðar var Vigfús, afi Grétars Fells
rithöfundar. Sigríður var dóttir
Ófeigs, b. í Fjalli á Skeiðum, Vigfús-
sonar og konu hans, Ingunnar Ei-
Viglundur Þorsteinsson.
ríksdóttur, b. og dbrm. á Reykjum
á Skeiðum, Vigfússonar, ættfóður
Reykjaættarinnar, langafa Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups, föður
Péturs biskups.
Móðir Kristínar var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Ranakoti í Stokks-
eyrarhreppi, Jónssonar og konu
hans, Guðfmnu Bjarnadóttur,
vinnumanns í Efri-Gegnishólum,
Sigurðssonar. Móðir Bjarna var
Margrét Aradóttir, systir Álfs í
Tungu.
Afmæli
Kristján Reykdal
Kristján Reykdal, ökukennari og
leigubílstjóri, Sjávargötu 17, Njarð-
vík, er sjötugur í dag.
Kristján fæddist að Heiði í Sléttu-
hlíð í Skagafirði en ólst upp á
Reykjarhóli í Vestur-Fljótum hjá
Eiríki Ásmundssyni, b. þar og odd-
vita, og sambýliskonu hans, Önnu
Sigríði Magnúsdóttur.
Kristján lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1940.
Hann rak um skeið trilluútgerö
með mági sínum, var á síldveiðum
fyrir Norðurlandi nokkur sumur
og skurðgröfustjóri á Skagaströnd
sex ár en hann hefur verið öku-
kennari frá 1946.
Kristján var á biblíuskóla hjá
Filadeífíu í Stokkhólmi 1950 en
hann hefur starfað sem sunnu-
dagaskólakennari viö starf Hvíta-
sunnusafnaðarins á Skagaströnd, í
Njarðvík, Grindavík og Garði. Þau
hjónin voru meðal stofnenda Fílad-
elfíusafnaðarins á Sauðárkróki.
Kristján kvæntist 18.5. 1940 Jó-
hönnu Ögmundsdóttur frá Sauöár-
króki en foreldrar hennar voru
Ögmundur Magnússon söðlasmið-
ur og kona hans, Kristín Pálsdóttir.
Kristján og Jóhanna eignuðust
flögur börn. Þau em: Sigurjón
Reykdal vélstjórl, f. 26.1. 1941, en
hann á tvo syni og tvo fóstursyni,
var fyrri kona hans Guðrún Jó-
hannesdóttir en seinni kona hans
er Makkew Seelark og búa þau í
Njarðvík; Ásmundur Reykdal,
verkstjóri, f. 27.7. 1945, en hann á
tvo syni og tvo fóstursyni, giftur
Stellu Stefánsdóttur og búa þau í
Reykjavík; Ingibjörg K. Reykdal,
húsmóðir í Keflavík, f. 12.2. 1948,
gift Margeiri Margeirssyni for-
stjóra en þau eignuöust íjórar dæt-
ur og einn son sem lést 5.11. 1980;
Anna S. Reykdal, húsmóðir á
ísafirði, f. 30.4. 1949, gift Snæbirni
Halldórssyni skrifstofumanni en
þau eiga einn son og átti hún tvo
syni fyrir.
Kristján á tvo hálfbræður, sam-
mæðra. Þeir eru Símon Jónsson
smiður, f. 5.11.1922, og Guðmundur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
í Reykjavík, f. 13.4.1934.
Foreldrar Kristjáns voru Krist-
ján Jónsson listmálari, f. að Torfu-
Kristján Reykdal.
felli í Saurbæjarhreppi 19.4. 1893,
og kona hans, Ingibjörg Jónsdóttir,
f. á Reykjarhóli í Haganeshreppi
3.10. 1895.
Foreldrar Ingibjargar voru Jón
Guðvarðarson, b. á Reykjarhóli, og
kona hans, Guðbjörg Magnúsdótt-
ir.
Kristján og Jóhanna taka á móti
gestum á heimili sínu, Sjávargötu
17, Njarðvík, klukkan 5 síðdegis.
Hrafn Jóhannsson
Hrafn Jóhannsson, bæjartækni-
fræðingur á Seltjarnarnesi, Viöi-
hvammi 10, Kópavogi, er fimmtug-
ur í dag.
Hrafn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hann
lauk prófi í múrsmíði við Iðnskól-
ann 1962 og í byggingatæknifræði
frá Odense teknikum 1967.
Hrafn starfaði í Danmörku
1967-69 og á Grænlandi frá 1970-71
en kom þá heim og starfaði hjá
Vatnsveitu Reykjavíkur frá
1972-73. Hann var síðan deildar-
stjóri flugvallardeildar hjá Flug-
málastjórn 1973-81 og hefur verið
bæjartæknifræðingur Seltjarnar-
ness frá 1.6.1981.
Hrafn er í stjórn Skógræktarfé-
lags Kópavogs og starfar í Lions-
klúbbi Seltjarnarness.
Kona Hrafns er Arndís Finnsson
hjúkrunarfræðingur, f. í Reykjavík
5.6.1943, dóttir Sveinbjarnar Finns-
son, fyrrv. verðlagsstjóra, og konu
hans, Thyru Finnsson
Hrafn og Arndís, sem áttu silfur-
brúðkaup í gær, eiga fimm börn.
Þau eru: Sveinbjöm búfræðingur í
Reykjavík, f. 19.3. 1964; Marta
menntaskólanemi, f. 1.5.1968; Guð-
laug menntaskólanemi, f. 17.7.1969;
Kristín Inga, f. 26.4. 1973; og Olga,
f. 23.12. 1975.
Hrafn á þrjár systur. Þær eru:
Elva, f. 26.12.1936, kennari og leið-
sögumaður í Reykjavík; Gíslunn,
f. 19.11. 1940, húsmóðir á Reyðar-
firði, og Þórunn Margrét, f. 19.9.
1946, starfsmaöur bæjarfógeta á
Norðfirði.
Foreldrar Hrafns voru Marta
Tryggvadóttir, f. 22.8.1907, d. 1981,
og Jóhann Þorsteinsson, litasér-
fræðingur hjá málningarverk-
smiöjunni Hörpu, f. 23.8. 1906, d. í
apríl sl.
Jóhann var sonur Þorsteins
Gíslasonar, b. í Miðhúsum í Hvol-
hreppi, og konu hans, Þórunnar
Hrafn Jóhannsson.
Guðmundsdóttir frá Bakka í Land-
eyjum.
Marta var dóttir Tryggva Jó-
hannssonar, útgerðamanns í Hrís-
ey, og konu hans, Margrétar Gísla-
dóttur.
Hl hamingju með daginn
85 ára 60 ára
Jóakim Magnússon, Faxabraut 13, Keflavík. Ólafia Jónsdóttír, Klapparstíg 17, Reykjavik. Lilja Guðbjamardótrir, Álftamýri 12, Reykjavík. Jón Hjörleifsson, Borgarvegi 44, Njarðvík. Gunnar Sturla Gestsson,
80 ára Krummahólum 8, Reykjavik. Hann er erlendis þessa dagana.
Ragnar G. Kristjánsson, Brával- lagötu 44, Reykjavík. Björn Stefánsson, Strandgötu 32, Neskaupstað.
50 ára
75 ára
Sigurður Guðmundsson, Háaleit- isbraut 125, Reykjavík. 40 ára
Marta Hannesdóttir, Sólvalla- götu 60, Reykjavík. Kristbjörg Eiðsdóttír, Böggvis-
braut 3, Dalvik. Jón R. Sævarsson, Búhamri 36,
70 ára Vestmannaeyjum. Pálmi Stefánsson, Skólavegi 88A, Búðahreppi. Grétar Gissurarson, Eiðistorgi 7, Seltjamarnesi. Kristín Marie Sigurðsson, Hjalla- braut 39, Hafnarfirði.
Elís P.G. Viborg, Bannahlíö 36, Reykjavík. Lilja L. Knudsen, Hofsvallagötu 17, Reykjavík.
Edith Ásmundsson
Edith Ásmundsson húsmóðir,
Meistaravöllum 27, Reykjavík, er
sextug i dag.
Edith fæddist í Stettin í Austur-
Þýskalandi en foreldrar hennar
eru Paul Gerhardt, f. 22.1.1900, og
Minna Gerhardt, f. 23.4. 1894.
Edith átti fimm systkini en á nú
einn bróður á lífi, Herbert.
Hún kom frá Lubeck til íslands
sem landbúnaðarverkakona 1949
og fór þá að Haga á Barðaströnd.
Árið 1951 kom hún svo til Reykja-
víkur og sama ár giftist hún Erni
Ásmundssyni, f. á Djúpavogi, 4.5.
1932.
Edith starfaði í ísbirninum í
fjölda ára en sl. átta ár hefur hún
starfað í borðstofunni á ElliheimO-
inu Grund í Reykjavík.
Edith og Örn eignuðust sex börn.
Þau eru: Þórunn, f. 18.11.1951, gift
Ásgeiri Jóhannssyni, en þau eiga
eina dóttur; Ásdís, f. 20.4.1953, gift
Unnsteini Björnssyni, en þau eiga
þrjár dætur; Erna, f. 7.8. 1955, gift
Gunnari’Þór Jakobsen, en þau eiga
tvö böm; Anna María, f. 28.6.1958,
Edith Ásmundsson.
gift Hermóði Gestssyni, en þau eiga
tvö böm; Páll Ingóífur, f. 6.7.1960,
kvæntur Halldóru Ingadóttur, en
þau eiga tvær dætur, og Guöjón
Pétur, f. 21.4.1962, kvæntur Svövu
Bjamadóttur, en þau eiga eina dótt-
ur.