Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Page 40
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27Ó22
MIÐVIKUDAGUR 27. JULÍ 1988.
Vegir rofha
vegna flóða
_ í Vopnafirði
Vegir rofnuöu vegna flóða í V opna-
firði í gær. Þrír bæir einangruðust
þegar Sunnudalsvegur fór í sundur
á tveim stöðum og um tíma leit út
fyrir að minkabúið á Svínabökkum
yrði vatnselgnum að bráð.
Eftir úrhellisrigningar undanfarna
tvo daga óx vatn svo í Selá og Hauksá
að elstu menn muna varla annað
eins. Að sögn Einars Friðbjamarson-
ar, verkstjóra Vegagerðar ríkisins,
er sjaldgæft að vatnavextir verði
slíkir sem raun varð á í gær. Sunnu-
dalsvegur rofnaði við brýmar yfir
Selá og Hauksá, á öðrum staðnum
myndaðist um tuttugu metra skarð
en eitthvað minna á hinum.
■*jr Með naumindum tókst að bjarga
minkabúinu á Svínabökkum, sem
hggur við Hauksá. Taldi Einar að
einhverjar skemmdir hetðu orðið á
húsum en dýrin öll sloppið lifandi.
Einar sagði að unnið yrði að því í
dag að koma einangruðu bæjunum
þrem í vegasamband áftur og bjóst
hann við að það tækist upp úr hádegi.
pv
^ Vegir lokuðust
vegna veðursins
Vegna veðursins, sem geisað hefur
norðanlands með roki og rigningu,
hafa vegir orðið illa úti á nokkrum
stöðum.
Féll aur og grjót á veginn í Ólafs-
fjarðarmúla og Siglufjarðarveg. Um
niuleytið í morgun vann Vegagerðin
að því að opna Siglufjarðarveg. Lög-
reglan á Siglufiröi sagði við DV í
morgun að þó vegurinn opnaðist yrði
hættulegt að keyra hann meðan enn
rigndi. Gæti hrunið á veginn hvar
sem væri.
Ólafsfjarðarmúh var lokaður og
ekki útiit fyrir að hann opnaðist fyr-
ir umferð fyrr en úrkoma minnkaði
' veralega eða stytti alveg upp.
Á veginn norður Strandir, norðan
Bjarnarfjarðar, féh einnig aurskriða.
Að sögn vegaeftirlitsins er hefih á
leið norður og hefst hann handa við
að opna veginn um leið og veður leyf-
ir.
-hlh
LOKI
Ætli göngugarpurinn á hálend-
inu gangi í veðraskilunum?
Tveggja manna frá Siglufirði saknað:
Báturinn fannst
mannlaus i morgun
- skorðaður milli steina undir Strákafjalli
Tveggja manna, sem fóru á
gúmmíbát með utanborðsraótor
frá Siglufirði síðdegis í gær, hefúr
verið leitað frá því um hálftíuley-
tið í gærkvöldi.
Bátur mannanna fannst í fjör-
unni undir Strákafjalh í morgun
en ekkert hefur spurst til þeirra.
Mennirnir, sem báðir eru á þrít-
ugsaldri, lögðu upp frá Siglufirði
um hálfijögurleytið í gær og var
ekki vitað nákvæmlega hvert
þeir ætluöu að fara, Vitavörður-
inn í Sauðanesvita sá til mann-
anna á bátnum um sexleytið þar
sem þeir virtust vera á leið til
lands. Veður var þá farið að
versna með roki og úrkomu. Þeg-
ar ekkert hafði spurst til mann-
anna um hálftíuleytið í gærkvöldi
var ákveðið að hefja leit að þeim.
Var veður þá orðið slæmt.
Var farið á bátum með strönd-
inni en mikið brim var og sást
htið þegar lýst var upp í fjörurn-
ar. Þótti ekki þorandi að leita
mikið frá sjó vegna veðursins og
vora fjörur því gengnar. Stóð leit
yfir í aha nótt og fannst bátur
mannanna um hálfáttaleytið í
morgun þar sem hann var skorð-
aður mihi steina í fjörunni undir
Strákafjalh, um fimm khómetra
frá Siglufirði.
í morgun hafa björgtmarsveit-
irnar Strákar, Grettir og Skag-
firðingasveitin leitað mannanna
stanslaust með hjálp þyrlu. Að
sögn björgunarsveitarmanna var
haugabrim í fjörunum í morgun
og þvi ekki hægt að greina neitt
þar. Virtist vindinn vera að herða
aftur og því erfitt um vik fyrir
leitarfólk. Eins var töluvert grjót-
hrun úr fjöhunum sem gerði ih-
mögulegt að vera á ferh þar sem
leitaö var.
Að sögn manna í björgunarmiö-
stöðinni voru hátt í 50 manns viö
leit í morgun.
-hlh
GUMBATUR
FINNST Á
jöíðiaP^.
Siglufjörðui
^^
Ólafsfjörður
Togarinn Asgeir RE-60 siglir úr Reykjavíkurhöfn í gær meö fullfermi af þorski sem seldur verður í
Hull á mánudaginn. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Slydda á
hálendinu
Spáð er norðan- og norðaustan-
átt, viöast kalda eða stinnings-
kalda.
Rigning eða súld veröur um
norðanvert landið en þurrt og
sums staðar léttskýjað um landið
sunnanvert.
Á hálendinu er gert ráð fyrir
slyddu eða jafnvel snjókomu á
stöku stað.
Siglta
Bretland
Togarinn Ásgeir RE-60 sigldi í gær
áleiðis til Huh í Bretlandi með full-
fermi af vænum þorski. Að sögn
skipstjóra, Guðmundar Björnssonar,
veiddist aflinn á átta dögum. Hann
sagði magnið vera um 190 tonn, svo
til eingöngu þorskur.
Skipið mun selja á mánudaginn í
Huh og kvaðst Guðmundur ekki ótt-
ast lágt verð.
Nokkrar sveiflur hafa verið á Bret-
landsmarkaði undanfarið og eftir
metsölur í síðustu viku lækkaði
verðið á þorski og ýsu í þessari viku.
pv
Helgarveðrið:
Sól sunnan-
lands en hálf-
skýjað nyrðra
„Það má skipta landinu í tvennt
varðandi veður á landinu, frá Snæ-
fehsnesi og að Dalatanga. Sunnan
megin verður bjart yfir en hálfskýjað
norðanlarids,“ sagði Eyjólfur Þor-
bergsson veðurfræöingur um helgar-
veðrið.
Eyjólfur spáir því að slagviðrið,
sem var í gær og nótt sunnanlands,
gangi niður á næsta sólarhring en
um helgina verði hæg norðlæg átt
og sól sunnanlands. Hiti verði á bh-
inu 8-14 stig og 3 vindstig. Norðan-
lands verður sennilega hálfskýjaö
inn til landsins en skýjað og úrkomu-
vottur við ströndina.
í nótt snjóaði á hálendinu og víða
fyrir norðan gránaði í íjöh. Ástæður
þessa um mitt sumar sagði Eyjólfur
vera að lægð væri fyrir austan landið
sem drægi loft að sér að norðan en
þar væri loftiö 1-3 gráðu heitt.
JFJ