Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Síða 2
0
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988.
Fréttir
Niðurfærslan er mjög erfið í framkvæmd:
Kemur til greina að fella
gengið samhliða niðurfærslu
- segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar
..Þaö er mögnlegt aö stefna að hálf-
urn árangrinum meö niðurfærsluleið
og hinum helmingnum nteö gengis-
fellingu. eöa uppfærsluleið. Þetta er
nteðal annars það sem við erum að
skoða og reikna út." sagði Þórður
Friðjónsson. forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar.
Þrátt fyrir að rikisstjórnin og ráð-
gjafarnefnd hennar kanni nú niður-
færsluleiðina gaumgæfilega er enn
margt sem mæhr gegn því að hún
verði farin. Það er ekki tilviljun að
allar ríkisstjórnir hafi hafnað henni
hingað til. Hún hefur aðeins einu
sinni verið reynd. árið 1959. þegar
framundan voru tvennar kosningar
og stórfelldir efnahagsörðugleikar.
Þegar viðreisnarstjórnin tók við að
kosningunum loknum var þessari
leið hafnað og gengið fellt. Það er því
hvorki hægt að segja að niðurfærslan
þá hafi tekist né mistekist.
..Kostir niðurfærsluleiðarinnar
era þeir að það er hægt að ná skjótum
árangri gegn verðbólgu ef vel tekst
til. Ókostirnir eru hins vegar þeir að
þessi leið er ákaflega torfarin í fram-
kvæmd. Þó að það sé gefin út tilskip-
un um lækkun launa er ekki víst að
laun verði lækkuð nema hjá tak-
mörkuðum hópi launþega. Þó mark-
aðslögmál ráði sjálfsagt alltaf launa-
kjörurn hjá einhverjum hluta laun-
þega þá má gera ráð fyrir að torveld-
ara verði að lækka laun þessa hóps
beint heldur en rýra kaupmátt þeirra
í gegnum gengisfellingu. Sömuleiðis
er ákaflega erfitt að færa niður verð-
lag. Það eru til í landinu birgðir af
innflúttri vöru og það er ekki einfalt
mál að lækka verð á þeim, svo tekið
sé einfalt dærni. Árið 1959 vora nið-
urgreiðslur stórlega auknar. Annað
vandamál varðandi niðurfærsluleið-
ina eru kaup- og verksamningar.
Fjölskylda. sem er að kaupa íbúð og
hefur gert kaupsamning í föstum
krónum, getur átt í erfiðleikum með
að kljúfa þessi kaup. Þó laun og verð-
lag lækki þá lækkar samningurinn
ekki. Sömu sögu er að segja af verk-
samningum. Þeir samningar, sem
gerðir voru fyrir niðurfærslu, verða
mjög hagstæðir verktakanum og á
sama hátt óhagstæðir verkkaupan-
um. Svona mætti lengi telja. Það era
mörg atriði framkvæmdalegs eðhs
sem era afskaplega erfið í niður-
færslunni. Það er náttúrlega skýr-
ingin á því að stjórnvöld hafa ekki
farið þessa leið hingað tiL,“ sagði
Þórður Friðjónsson.
Meðal þess sem er til skoðunar nú
er hversu langt stjórnvöld geti gengið
til þess að minnka áhrif niðurfærslu-
leiðarinnar á kaup- og verksamn-
inga. Slíkar aðgerðir gætu hæglega
stangast á við ákvæði stjórnarskrár-
innar um eignarrétt og verndun
hans. Meðal annars af þessum sök-
um stendur margt í veginum fyrir
því að hægt verði að leysa allan þann
vanda sem viö er að glíma með niður-
færsluleiðinni. Það er því jafnframt
til skoðunar að nýta hluta af báðum
leiðunum, niðurfærslu og gengisfell-
ingu.
Þórður sagðist ekki muna neitt
dæmi þess að niðurfærsluleið hefði
verið farin í löndum sem hafa sam-
bærilegt efnahagslíf og á íslandi.
-gse
Arsafmæli Kringlunnar:
Sumir duttu í
lukkupottinn
- og komu ríkari úr verslunarferöinni
Kringlan átti ársafmæli um helg-
ina. Zóphanias Sigurðsson, tækni-
stjóri Kringlunnar, sagði að af-
mælisdagskráin hefði tekist mjög
vel. Um 35 þúsund manns komu á
föstudag og laugardag í Kringluna.
Atriðin á dagskránni voru fjöl-
mörg. Hafnfirska blásarasveitin
lék og gömludansahljómsveitin
Neistar lék danslög fyrir eldri kyn-
slóðina. Blöðrar, sirkus og ofur-
hugar styttu gestum stundir.
Fyrirtæki í Kringlunni gáfu af-
slátt af vöruverði í tilefni dagsins
og ýmis kynningarstarfsemi var í
gangi. íshöllin opnaði einn stærsta
ísbar í heimi og bauð gestum að
bragða á nýjum jógúrtis. Ferðaget-
raunir, peningavinningar og ýmiss
konar lukkupakkar urðu til þess
að margir viöskiptavinir komu
fjáðari úr verslunarferðinni en
þegar þegar þeir lögðu af staö. -EG
Skákþing Islands hafið:
Stuttar og snarpar skákir
Fymsta umferð á skákþingi ís-
lands hófst í gær í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Leiknar voru sex
skákir sem allar voru stuttar og
snarpar og leikjafjöldi á bilinu
32-37. Ekkert var gefið eftir enda
til mikils að vinna því sigurvegar-
inn fær 130.000 krónur í sinn hlut.
Sá sem lendir í öðru sæti fær 90.000,
sá þriðji fær 50.000, en alls fá 8 efstu
menn vinning.
í fyrstu umferð urðu úrslit þessi:
Hannes Hlífar Stefánsson - Ágúst
Sindri Karlsson 1-0
Jón L. Ámason - Róbert Harðarson
1-0
Þröstur Þórhallsson - Þráinn Vig-
fússon 1-0
Karl Þorsteins - Ásgeir Þór Árna-
son 1-0
Jóhannes Ágústsson - Davíð Ólafs-
son Ví-'A
Margeir Pétursson - Benedikt Jón-
asson 1-0
Önnur umferð skákþingsins hefst
klukkan 18.00 í Hafharborg en alls
veröa tefldar ellefú umferðir.
JFJ
Gudmundur Arni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, leikur fyrsfa leik-
inn á skákþingi íslands fyrir Margeir Pétursson, handhafa meistaratitils-
ins. Mótherji Margeirs I fyrstu umferð var Benedikt Jónasson en hafði
ekki erindi sem erfiði. DV-mynd JAK
Stór hópur barna tók á móti forseta Islands, frú Vigdisi Finnbogadóttur, við
komu hennar til Siglufjarðar í tilefni af 70 ára afmæli kaupstaðarins. Stúlk-
an, sem færði forsetanum blómvönd, varð fyrir nokkrum vonbrigðum. „Þetta
er bara venjuleg kona,“ sagði hún þegar hún sneri aftur til hópsins.
DV-mynd Guðmundur Daviðsson
Siglufiaröarkaupstaöur sjötugur:
Afmælisgestimir
skiptu hundruðum
Um helgina vora sjötiu ár liðin síð-
an Siglufjarðarkaupstaður fékk
kaupstaðarréttindi. Bæjarbúar
minntust afmælisins með ýmsum
hætti. Hæst bar komu forseta ís-
lands, frú Vigdísar Finnbogadóttur.
Forsetinn flutti ræðu í Siglufjarðar-
kirkju. Þá vora einnig meðal gesta
menntamálaráðherra, Birgir ísleifur
Gunnarsson, og Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra.
Bæjarsjóði var afhent afmæhsgjöf,
fjárhæð sem var þrjár milljónir
króna, sem nota skal til uppbyggingar
á skíðalyftu. Eins og menn muna
misstu Siglfirðingar skíðalyftu sína í
snjóflóðum síðastliðinn vetur þannig
að þessir peningar voru kærkomnir.
Meðal annars var haldið kaffisam-
sæti í stóra tjaldi. Þar gátu bæjarbú-
ar og gestir fengið kaffi og með því.
Þá var efnt til hátíðarkvöldverðar á
hótelinu þar sem forseti og ráðherrar
vora heiðursgestir. Að honum lokn-
um var dansgólfið rýmt og bæjarbú-
ar skemmtu sér við dans fram eftir
nóttu.
Knútur Jónsson bæjarritari taldi
bæði Siglfirðinga og gesti hafa
skemmt sér vel á þessum afmælis-
degi og sérlega ánægjulegt hafi verið
að fá burtflutta Siglfiröinga í heim-
sókn. Þeir skiptu hundraðum sem
heimsóttu Siglufjörð á afmælinu.
-EG
Jón Baldvin
ósammála
Þórði
„Ég er ekki sammála Þórði. Ég
er þeirra skoöunar aö það sé
tæknilega óframkvæmanlegt að
fara bæði niöurfærslu- og upp-
færsluleið,“ sagöi Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra.
- Hvers vegna?
„Ég vil fyrst heyra rökin fyrir
því hvers vegna menn vilja grípa
til tveggja aðgerða sem hvor um
sig fer í öfúga átt við hina.“
- Þú vilt þá meina að niðurstað-
an yrði núll?
„Já.“
-gse
Stjómarherínn
nær Kunduz á ný
Þegar DV var að fara í prentun í
morgun bárast fréttir af því að
stjómarherinn í Afganistan heföi
náð höfuðborg Kunduz-héraðs á sitt
vald á nýjan leik.
Skæruliöar börðust fyrir því að ná
borginni á sitt vald þegar Sovétríkin
fluttu herlið sitt á brott úr héraðinu
og í gær viðurkenndi yfirmaður so-
véska heraflans að borgin væri fallin.
Najibullah, forseti Afganistan, til-
kynnti svo í, morgun að stjómar-
herinn hefði á ný náö yfirráöum í
borginni.
Bridge í Búlgaríu:
17. sæti af 21
Evrópumóti yngri spilara í bridge
lauk nú um helgina með sigri
Frakka. íslensku strákamir hófnuðu
í 17. sæti af 21 en fyrirfram var ekki
búist við að liðið myndi blanda sér í
toppbaráttuna. Lokastaðan í keppn-
inni varð þannig að Frakkar urðu
efstir með 398 stig, ítalir í öðru sæti
með 393, Norðmenn 388, Svíar 378,
Grikkir 360,5 og Pólverjar í sjötta
sæti með 348 stig.
Reykjavík í gær:
Sjö olvaöir
við akstur
í gær tók lögreglan í Reykjavík sjö
ökumenn fyrir meinta ölvun við
akstur. Sex ökumenn vora teknir
fyrir að aka of hratt. Þá urðu sex
árekstrar í Reykjavík í gær og einn
útafakstur. Engin slys urðu á fólki.
-sme
Sjóður til að-
stoðar ungum
söngvuram
Áttatíu og sex ára gamall Vest-
ur-íslendingur, Anna Nordal að
nafni, hefur gefið veglega upp-
hæð til styrktar efnilegum söng-
nemendum á íslandi.
Anna Nordal er fædd í Kanada
og eru foreldrar hennar Lárus og
Rósa Nordal. Hún byrjaði aö læra
söng á yngri árum en varð að
hætta sökum efnaleysis. Með
stofnun sjóðs, þar sem 15.000
kanadiskir dalir (um 570 þúsund
íslenskar krónur) era stofnfram-
lag, vonast Anna til að geta stutt
við bakið á efnalitlum söngnem-
endum hér á landi.
Sjóöurinn verður ávaxtaður
eins og best þykir og munu síöan
veittir styrkir úr honum sem
samsvara ársvöxtum. Að sögn
Júlíusar Viflls Ingvarssonar, sem
ásamt Kristni Hallsyni er i sjóð-
sfjórn, mun þetta vera fyrsti sjóð-
urinn, gefmn af einkaaðila, sem
hefur að markmiði að aðstoða
unga söngvara. -EG