Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988. Spumingin Lesendur Hver er myndarlegasti al- þingismaöurinn? Sigurður Þórðarson: Guðmundur Ágústsson fyrir Borgaraflokk. Kristin Hrund Andrésdóttir: Þor- steinn Pálsson forsætisráðherra. Hann lítur alltaf svo vel út. Svava Sigríður Kristjánsdóttir: Það er voðalegur vandi aö svara því, þeir eru allir myndarlegir. Það væri þá annaðhvort Steingrímur Hermanns- son eða Þorsteinn Pálsson. Ólafur Tryggvason: Ég kann ekki að svara því. Það er fullt af myndarleg- um labbakútum þama. Ragnar Sigurjónsson: Það er eng- in(n) nógu falleg(ur) til þess að fylla þann hóp. Eiga að hafa vigt Finnur hringdi: Ég átti leið út úr bænum um daginn í útilegu og bjóst við að þurfa að nota stóran prímus, sem ég var með mér, mikið. Hann var svona um það bil hálffullur, svo ég ákvað að bæta á hann á næstu bensínstöð. Fyrir valinu varð bensínstöðin við hliðina á Hótel Sögu. Þar keypti ég bensín og bað um áfyllingu á kútinn. Af- greiðslumaður á stöðinni tók við honum, fyllti hann strax og krafði mig síðan um rúmlega 400 krónur. Þá spurði ég hann hvort það kost- aði virkiiega svo mikið að fylla það sem á vantaði. „Þú borgar bara fyrir hann eins og hann væri tómur,“ sagði afgreiðslumaðurinn. Ég hef heyrt marga tala um það að venjan sé að prímusamir séu vigtaðir, og síðan borgað eftir því. Þetta svar afgreiðslumannsins kom því illa við mig og vildi ég ekki una þessum málalokum. Efdr mikið japl, jaml og fuður samþykkti þessi stirði afgreiðslumaður að „gefa“ mér 100 króna afslátt. Ég varpa fram þeirri spumingu hvort reglan sé virkilega þannig að Borga eigi fyrir allan kútinn, án tillits til þess hvort eitthvað hafi verið á honum fyrir. Ekki rétt afgreiðsla Lesendasíða DV hafði samband við Shell-stööina viö Skerjafjörð (um- rædd stöð við Hótel Sögu er Shell- stöð) og leitaði upplýsinga. Margar af Shell-stöðvimum hafa ekki vigtar, en það er verið að vinna í þessum málum og ætti að vera búið að koma vigtum á allar stöðvamar innan skamms. Reglan er sú að innihaldið sé vigtað og síðan borgað eftir því. Hvað ofan- greind viðskipti varðar hefði verið eðlilegra aö afgreiðslumaðurinn hefði áætlað innihald kútsins og rukkað samkvæmt því. Jónatan vill aö öryrkjar fái hjálp við kaup á verkamannabústöðum. Styrklr til öryrkja Jónatan Jónatansson skrifar: Mig langar til að spyija Öryrkja- bandalagið, Sjálfsbjörg og Trygg- ingastofnun ríkisins hvers vegna þeim öryrkjum sem vilja kaupa íbúð í verkamannabústöðum ér ekki hjálpað. Mér finnst að við eigum rétt á stuðningi frá lottóinu og Trygg- ingastofiiun ríkisins. Ég er einn af þeim sem langar til að halda minni íbúð, en ég get það ekki vegna þess að ég fæ engan stuðning. Það er ekki hægt fyrir öryrkja að lifa á rúmum 30 þúsund krónum á mánuði. Það er eins og okkur sé refs- að fyrir aö vera til. Ríkisstjómin mætti hækka örorkubætumar þann- ig að hægt væri að lifa af þeim. Við þurfum talsvert meira til að lifa á en heilbrigt fólk, þar sem við þurfum meira á allri aðkeyptri vinnu að halda, s.s. við viðhald á bílum o.fl. Ég veit að ráðherrar gætu ekki lifaö á 30 þúsund krónum á mánuði, þess vegna er það skammarlegt að ætla okkur að lifa á þessum peningum. Lagavalið gott Reykvíkingur skrifar: Mikið er rás 2 orðin skemmtileg á milli kl 10 og 16 á daginn. Lagavalið er stórkostlegt hjá þeim Evu og Sig- urði. Loksins heyrist tónlistin sem ég hélt að væri bönnuð í útvarpi. Dag eftir dag hljóma lög Led Zeppelin, Deep Purple, Uriah Heep, David Bowie o.fl. o.fl. Ég er sko alls ekki sú eina sem er ánægð með þennan þátt, því mikið af fólki á mínum aldri hefur lýst yflr hrifningu sinni á þess- um þætti. Þessi áheyrendahópur er enda af stærstu árgöngum landsins, þ.e. fólk fætt á árunum 1957-63. Þeir á Stjöm- irnni og Bylgjunni mættu taka tíllit til þess. Fyrir nokkra gafst ég upp á blúndulummudiskóstöövunum Bylgjunni og Stjömunni, en ég ætla ekki að eyða púðri á þær í þessu bréfi. Það mætti halda að rás 2 væri eina fijálsa útvarpsstöðin á landinu. Sigurður Gröndal er annar stjórnenda þáttarins „Á milli mála“ sem fluttur er á milli 10 og 16 á rás 2. Finnur var ekki ánægður með verðiagningu gass sem sett var á prímus á bensínstöð, en hann var krafinn um fullt gjald, þegar aðeins var sett á um helming kútsins. 15 ára bið Halldóra spyr hvort íslensk tjöld og tjaldhimnar séu ætluð fyrir íslenskar aðstæður. íbúar í Krummahólum hringdu: Nú orðiö er gengið vel og dyggi- lega frá svæðum á milli húsa þegar þau eru í byggingu, þau tyrfð, gróð- ursett í þau eða gengið frá þeim á annan hátt En engin regla er án undantekninga. Svæði sem af- markast af Krummahólum, Vest- urhólum, Orrahólum og Norður- hólum í Breiöholtinu hefur verið ófrágengiö í heil 15 ár. Þaö er mjög sóðalegt og verður oft aö drullu- svaði í rigningum. Upphaflega stóð til að byggja á þessu svæði, eftir því sem við kom- umst næst, en síðan tekin sú stefna að gera ráð fyrir að þarna verði grænt svæði. Þarna er meðal ann- ars margra ára grunnur sem versl- unin Hólagarður lét grafa fyrir væntanlega verslun sína, en Hóla- garðsmenn ákváðu svo að hafa verslunina annars staðar, svo ekki var meira framkvæmt þar. Svæðið hefur mikið verið notað sem bíla- stæöi fyrir trukka, sjálfsagt af illri nauðsyn. Við íbúar á þessu svæði höfum margfarið fram á að frá þessu svæði verði gengiö, en við tölum greinilega fyrir daufum eyrum. Við erum búin að bíða í 15 ár eftir þessu og erum því orðin langþreytt. Þess má geta að meira ber á þessu en annars hefði verið, vegna þess að öll svæði i kring eru snyrtileg og vel frágengin. Lélegur tjaldhiminn Halldóra Jónsdóttir skrifar: Fyrir rúmri viku keypti ég mér tjaldhimin hjá Seglagerðinni Ægi á gamla 5-manna tjaldið mitt. Til gam- ans ákvað ég að tjalda úti á túni hjá bróður mínum og prófa nýja tjald- himininn minn. Á þessari rúmu viku hafa homin með kósunum fokiö upp af tjaldsúlunum og stungist á þá göt og annar kósinn er farinn af. Auk þess hafa ekki færri en 6 teygjur slitnaö af tjaldhimninum og hælarn- ir, sem eru mjóir og vesældarlegir, hafa fokið upp sitt á hvaö. Mér. er spum, eru tjöld og himnar ekki ætluð fyrir íslenskar aðstæður?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.