Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 12
tJtlönd MÁNUBAGUR: 15. ÁGÚST 1988. DV Friðargæslusvertir komnar Kanadískir hermenn á lelð til Persaflóa, þar sem þeir verða hluti frlðar- gaeslusveita Sameinuðu þjóðanna. Símamynd Reuter Friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna eru nú á leiö til írans og ír- aks, þar sem þær munu sjá um aö framfylgt verði vopnahléi í styijöld ríkjanna tveggja. Koma fyrstu hermennirnir úr sveitunum til landanna í dag og byrja aö búa um sig í eftirlitsstöðvum. Eiga sveitirnar að verða tilbúnar tÍL starfa þegar vopnahléið gengur í gildi, eftir íjóra daga. Hertar aðgerð- ir gegn PLO Velja nýjan leiðtoga Síðasta stórhlutverkid Ráöamenn í Burma eiga nú fyrir höndum erfitt og viðkvæmt verk- efni, sem er að velja sér nýjan leið- toga. Þetta er í annaö sinn á aðeins þrem vikum sem þeir þurfa aö kjósa sér forystumann og í þetta sinn fara þeir varlega, í þeirri vissu að mistök við valið gætu æst til enn harðari átaka í landinu. Ráðamenn í sósíaiistaflokki landsins hafa sett sér þau tima- mörk að vera tilbúnir með nýjan leiðtoga í lok þessarar viku. Hver sem þaö verður bíður hans erfitt verkefni. Hann þarf að koma á reglu í landinu að nýju, á sama tíma og hann vinnur traust al- mennings og þrýstir á um efna- hagslegar úrbætur. Síðasti leiðtogi landsins, Sein Lwin, sagði af sér í liðinni viku, eftir innan við þriggja vikna valda- tíö. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti á varpaði í gær flokksþing repúblikana í New Orleans og var forsetanum fagnað ákaflega. Þáttaka forsetans á flokksþinginu er líklega síðasta stórhlutverkiðsem hann leikur í banda- riskum stjórnmálum og í gær sýndi hann af sér stjömuleik, sem flokks- bræður hans óska aö George Bush, sem nú tekur við leiötogahlutverki Reagan innan flokksins, hefði til að bera. Reagan var ákaft fagnað þegar hann kom til þingsins. Stórar styttur af honum, Abraham Lincoln og Dwight Eisenhower prýða þingstað, auk mynda af helstu hetjum bandaríska frelsisstríðsins og Lísu í Undralandi. Reagan hvatti í gær flokkssystkin sín til að fylkja sér um framboð Ge- orge Bush varaforseta. Sagöi hann aö Bush hefði til að bera styrk, skarp- skyggni og kjark. „Framundan er ekki kosningabarátta heldur krossferð, krossferð fyrir framtíð Ameríku," sagði forsetinn í ræðu sinni í gær. Reagan mun halda kveðjuræðu sína á flokksþinginu í kvöid, á fyrsta formlega degi flokksþingsins. Harðar deilur rikja nú meðal repúblikana um hver skuli veröa varafor- setaefni Bush í komandi kosningum. íhaldssamir repúblikanar kreíjast þess að varaforsetaefnið verði úr þeirra rööum, helst Jack Kemp, þing- maður ffá New York. Aðrir flokksmenn telja vænlegra til árangurs að velja frjálslyndan repúblikana til framboðs með Bush. Bush ætlar ekki að tilkynna varaforsetaefni sitt fyrr en á fimmtudag, eftir að hann hefur veriö formlega tilnefndur sem forsetaefni flokksins. Yíirvöld í ísrael settu í gær ótíma- bundið útgöngubann á Gaza-svæð- inu í kjölfar mikilla rósta á herteknu svæðunum. ísraelsk stjórnvöld hafa nú hert mjög aðgerðir sínar gegn PLO, Frelissamtökum Palestínu, sem aukið hafa áhrif sín á svæðun- um. Aðgerðirnar felast m.a. í því aö fjárframlög erlendis frá hafa nú verið takmörkuð og eru starfsmenn hjálp- arstofnana undir eftirliti. Öllum íbú- um Gaza-svæðisins hefur verið bannað að yfirgefa heimili sín og þeir sem sækja vinnu til ísraels fá ekki að fara á milli nema á sérstökum tímum. Talsmaður ísraelsstjórnar sagöi einnig í gær að stjórnvöld myndu auka aðstoð sína við íbúa herteknu svæöanna og er sú ákvörðun enn einn liðurinn í hertri baráttu gegn áhrifum PLO. Talsmaðurinn sagði að yfirvöld í ísrael hefðu í hyggju að greiða þeim Palestínumönnum laun sem misstu fjárhagsstuðning Jórd- aníu í kjölfar ákvörðunar Husseins konungs um að slíta öll efnahagsleg tengsl við herteknu svæðin. Harðvítug uppþot brutust út á her- teknu svæðunum í gær þegar ísra- elskum lögreglumönnum og Palest- ínumönnum lenti saman þegar þeir síðarnefndu héldu upp á nýtt ár. íbúar herteknu svæðanna efndu tii verkfalls og fjöldamótmæla í gær og aö sögn talsmanna sjúkrahúsa á Gaza-svæðinu særðust a.m.k. 35 í átökum við lögreglu. ísraelskir her- menn notuðu táragas til að dreifa miklum mantifjölda sem safnast Mótmæli gegn yfirráðum Israela á herteknu svæðunum héldu áfram í gær. Simamynd Reuter hafði saman á götum herteknu svæð- anna og íbúarnir grýttu hermennina og hentu að þeim bensínsprengjum. Rósturnar jukust þegar orðrómur um að ungur Palestínumaður hefði látist af völdum barsmíða ísraelskra logreglumanna barst um herteknu svæðin. Yfirvöld í ísrael segja að drengurinn hafi látist af völdum veikinda. Starfsmenn hjálparstofnana á her- teknu svæðunum sögðu í gær að einn íbúi Gaza-svæðisins hefði látist í gærmorgun af völdum skotsára er hann hlaut í átökum við lögreglu. Talið er að tala látinna sé nú komin yfir tvö hundruð og fimmtíu. Fundi fulltrúa PLO og Jórdaníu- stjórnar um framtíö herteknu svæð- anna lauk í gær. Samkvæmt upplýs- ingum frá háttsettum manni innan PLO hafa stjórnvöld í Jórdaníu ákveðið að halda áfram einhverjum stuðningi við þá 850 þúsund íbúa sem búa á vesturbakkanum og Gaza- svæðinu, a.m.k. enn um stund. Hófuðborg Kunduz- héraðs fallin ungmenna llggur á sjúkra- húsum i Rangoon vegna meiósla sem þau hafa hlotiö I átökum vió her og lögreglu undanfarió. ■ Símamynd Reuter Republikanar prýða flokksþing sitt með styttum af helstu forsetum sin- um, þeim Reagan, Lincoln og Eisenhower. Simamynd Reuter til að ná bprginni á sitt vald um leið og sovéskuhermennirnir hófu brott- flutning sinn og er talið að barátta skæruliða gegn afganska stjórnar- hernum í Kunduz sé prófsteinninn á hvernig hernum muni takast í bar- áttu sinni gegn skæruliðum þegar herafli Sovétríkjanna hverfur á braut. Brottflutningur herafla Sovétríkj- anna gengur vel, en um helmingur hersins á að vera á brott í dag. Seinni helmingur hermannanna á að vera á brott fyrir 15. febrúar á næta ári. Sovéska fréttastofan Tass sagði i gær að skæruliðar hefðu gert loftárás á Kabúl, höfuðborg Afganistan, að- faranótt sunnudags. Samkvæmt fréttum Tass létust flmm í árásinni. í árásum skæruliða á austurhluta Afganistan létust fjórtán til viðbótar og tuttugu særðust að sögn frétta- stofunnar. Yfirmenn sovéska heraflans og fulltrúar skæruliða hafa náð sam- komulagi um að skæruliðar ráðist ekki á þá sovéska hermenn sem eru á leiö yfir landamæri ríkjanna í suð- - urhluta Afganistan að sögn háttsetts vfirmanns í sovéska hemum. Yfirmaður sovéska heraflans í Afg- anistan, Boris Gromov, sagði í gær að skæruliðar hefðu náð á sitt vald höfuðborg Kunduz-héraðs sem er í um 60 kílómetra fjarlægð frá landa- mærum Afganistan og Sovétríkj- anna. Gromov sagði að skæruliðar hefðu náð borginni á sitt vald eftir að sovéskir hermenn yflrgáfu hana í síðustu viku í samræmi við ákvörð- un Sovétmanna um að flytja á brott herafla sinn frá Afganistan. Yfirmaðurinn sagði að sovéskir hermenn myndu ekki aðstoða afg- anska herinn við að ná borginni á sitt vald. Skæruliðar hófu aðgerðir Brottflutningi helmings sovéska heraflans frá Afganistan á að Ijúka í dag. Símamynd Reuter Gizur Helgason, DV, Reerstises: Atvinnuleysi vex enn í Dan- mörku og skapar heiftarlegar um- ræður í samfélaginu. Menn standa ráðþrota gagnvart atvinnuleysis- vofunni en fjöldi manns hefur samt tekið ráðin í sínar eigin hendur og fengiö sér vinnu í Svíþjóð. Ástand þessara nágrannaþjóða er eins ólíkt og hugsanlegt er á þessu sviöi. Svíar eru í mikilli þörf fyrir verkafólk á næstum öllum sviðum og þeir eru meira en fúsir til að ráða Dani tíl starfa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.