Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Page 3
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988.
3
Fréttir
Hitaveita 1 Ölfusi:
Hreppsbúar stofna hítaveitu
„Hitaveitan veröur sett upp í sum-
ar og haust og mun taka til starfa á
árinu. Núna er verið að framleiða
hitaþolin plaströr í hana en lagna-
lengdin alls verður 23 kílómetrar.
Vatnið verður tekið upp úr borholum
við Gljúfurholt og leitt til þeirra 35
aðila sem eiga aðild að félaginu,"
sagði Guðmundur Karl Guðjónsson,
tæknifræðingur á Verkfræðistofu
Suðurlands hf., sem hefur haft yfir-
umsjón með framkvæmdunum.
Guðmundur segir að rekja megi
aðdraganda þessa um tvö ár aftur í
tímann en þeir sem aðild eiga að
verkinu hafa stofnað með sér hita-
veitufélag sem heitir Austurveita,
Ölfusi, og kemur til með að greiða
stofnkostnaðinn sem mun verða um
24 milljónir króna. Fyrst í stað er
áætlað aö rennsli veitunnar muni
verða um 8 sekúndulítrar af 80 gráða
heitu vatni og möguleiki er á aukn-
ingu síðar.
- En hver er sparnaðurinn við að
ráðast út í þessa framkvæmd?
„Húsin eru núna að langmestu og
nánast eingöngu rafkynt. Hag-
kvæmni hitaveitunnar kemur fram
í því að afborganir af lánum af þess-
ari fjárfestingu liggja nálægt kostn-
aði við raforkukaup í dag og eftir tíu
ár, þegar þau hafa verið greidd,
stendur eftir viðhald og rekstrar-
kostnaður. Verðmæti jarðanna eykst
einnig vegna þessara framkvæmda,
svo og þægindi, aö ógleymdum aukn-
um möguleika á kyndingu viðar á
jörðum síðar,“ sagði Guðmundur
Karl Guðjónsson. -JFJ
Þú getur arðið hluthafi og notið góðs af.
Amarflug á uppleið
Síðustu misserin hafa verið hagstæð Arnarflugi.
Ný rekstrarstefna hefur reynst farsæl og kom
félagið út með hagnaði á síðasta ári.
Reiknað er með að árið 1988 verði farþegar 50%
fleiri en árið á undan.
Nú gefst þér tækifæri til þess að taka beinan þátt
í áframhaldandi uppbyggingu og markaðssókn
Arnarflugs.
Þú styrkir nauðsynlega samkeppni
Með því að gerast hluthafi í Arnarflugi styrkir þú
samkeppni um flug til og frá
íslandi. Með samkeppni fá neytend-
ur meira val og betri þjónustu.
Hlutafé og hlunnindi
95% afsláttarferðir
Það geta fylgt því hlunnindi að
vera hluthafi í félaginu. Þau eru
mest hjá þeim sem gerast hluthafar
fyrir eina milljón eða meira; þeir
fá m.a. eina ferð með 95% afslætti
á hverju ári í 5 ár. Hlutaféð má greiða á allt að
10 árum.
Arnarflugsklúbburinn
Hlunnindi þeirra sem gerast hluthafar fyrir a.m.k.
25.000 kr. felast m.a. í eins árs aðild að Arnarflugs-
klúbbnum. Félagar í honum eiga kost á meiri þjón-
ustu og afslætti á tilteknum hótelum og bílaleigum,
aðgangi að setustofum félagsins, fríum drykkjum o.fl.
Hlutafjárframlag getur lægst orðið kr. 5.000.
Heimilt er að greiða hlutaféð með raðgreiðslum, t.d.
kr. 10.000 á mánuði í 10 mánuði.
Leitaðu nánari upplýsinga um
kaup á hlutabréfum í Arnarflugi.
Hafðu samband við söluskrifstofu
Arnarflugs og KLM Austurstræti
22, sími 623060 eða Svein Guð-
mundsson á aðalskrifstofunni
í síma 29511.
ARNARFLUG
- félag í samkeppni!
Hörpuskjól
- varanlegt skjól.
Skúlagötu 42, Pósthólt 5056
125 Reykjavik, Sími (91)11547
HARPA lífinu llt!