Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Side 20
20
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988.
KENNARI - EGILSSTAÐIR
Egilsstaðirervaxandi bær og liggurvel við samgöng-
ur. I Egilsstaðaskóla eru 290 nemendur og 22 kennar-
ar. Okkur vantar einn kennara í viðbót. Margvísleg
kennsla kemur til greina. Við erum að vinna að mót-
un skólastefnu og nýjungum í kennsluháttum meðal
annars í 9. bekk. Ódýrt húsnæði í boði.
Upplýsingar gefur skólastjóri,
sími 97-11146 eöa 11632.
REYKJMIÍKURBORG m
Acuctein Stádíci Mr
BYGGINGADEILD
BORGARVERKFRÆÐINGS
óskar að ráða skrifstofumann. Starfið felst í tölvu-
skráningu reikninga, ritvinnslu, móttöku skilaboða,
skjalavörslu og fl.
Um heilsdagsstarf er að ræða.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Byggingadeildar,
Skúlatúni 2, sími 18000.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
HÚSVÖRÐUR
óskast í fullt starf fyrir 72 íbúða sambýlishús. Aðeins
umgengnisgott og reglusamt fólk kemur til greina.
Húsvörður annast minni háttar viðhald og hefur
umsjón með umgengni og ræstingu.
Góð íbúð fylgir starfinu.
Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson, húsnæðis-
fulltrúi í Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar,
Síðumúla 34, sími 685911.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf, sendist Starfs-
mannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á
eyðublöðum sem þar fást fyrir 20. ágúst nk.
-MnrMn
Th
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURB0RGAR
FELAGSRAÐGJAFAR -
FORSTÖÐUMAÐUR UNGLINGAATHVARFS
Laus er staða forstöðumanns í unglingaathvarfi.
Áskilin er félagsráðgjafamenntun eða ö.nnur mennt-
un á sviði sálar- eða uppeldisfræði, ásamt starfs-
reynslu í meðferðarmálum.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirmaður fjölskyldu-
deildar í síma 25500.
Umsóknir berist fyrir 26. ágúst.
Umsóknum skal skilað til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, á umsóknareyðublöð-
um sem þar fást.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirt'jldum fasteignum
ferfram á skrifstofu embættisins,
Strandgötu 52, Esk'ifirði,
á neðangreindum tíma:
Skólavegur 58, Fáskrúðsfirði., þingl.
eig. db. Ragnars Jónassonar en talinn
eig. Guðjón Jóhannsson, fer fram á
eigninni sjálfri mánudaginn 22. ágúst
nk. kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru
Ámi Halldórsson hrl., Búðahreppur,
Byggingarsjóður ríkisins, Grétar Har-
aldsson hrl.,_ Magnús M. Norðdahl
hdl., Róbert Ami Hreiðarsson hdl. og
Skúli Pálsson hrl.
Fjósbygging á lóð íbh. Eskifjörður,
þingl. eig. Bjami Björgvinsson, fer
fram á eigninni sjálfii mánudaginn
22. ágúst nk. kl. 13.00. Uppboðsbeið-
endur em Ámi Halldórsson hrl. og
Ólafúr Axelsson hrl.
Síldarverksmiðja á Djúpavogi, þingl.
eig. Búlandstindur hf., fer fram á eign-
inni sjálfri mánudaginn 22. ágúst nk.
kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur em Björn
Jósef Amviðarson hdl., Eggert B. Ól-
afsson hdl., Innheimta ríkissjóðs,
Landsbanki Islands og Póstgíróstofan.
BÆJARFÓGETINN Á ESKIFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN1SUÐUR-MÚLASÝSLU
Menning
Nýr Teningur:
Of margir fletir
á einum Teningi
í Teningi sem kominn er út í
nokkuð breyttri mynd er aö finna
efni af ýmsum toga. Fjölbreytnin
er sannast sagna helst til mikil,
þama ægir öllu saman.
Fyrsti flötur Tenings er ágæt
grein Berglindar Gunnarsdóttur
um gamla manninn í perúanskri
ljóðagerö, César Vallejo. Þarft verk
að kynna hann íslenskum lesðnd-
um enda er það rækilega gert hér
því greininni fylgja þýðingar á tíu
ljóðum eftir skáldið. Eru þau í þýð-
ingu Berglindar, Sigfúsar Bjart-
marssonar, og Gunnars Harðar-
sonar.
César Vallejo tilheyrir þeirri
kynslóð skálda og rithöfunda sem
lögöu grunninn að absúrdisma og
súrrealisma. í hugarheimi Vallejo
er mannskepnan ein og yfirgefm í
vondum heimi. Þetta, ásamt upp-
gjöri Vallejo viö kristindóminn,
setur mjög mark á skáldskap hans.
Ljóöin tíu sem birtast í Teningi
bera þessu merki. Vallejo skortir
hins vegar hinn gráa húmor sem
einkennir svo marga absúrdista og
súrrealista.
Að ljúfum ljóðalestri loknum er
stokkið yflr í höggmyndalist ívars
Valgarðssonar. Birt er viðtal sem
þeir Eggert Pétursson og Ingólfur
Arnarson áttu við listamanninn
um verk hans. Ágæt innsýn í
vinnuforsendur myndhöggvarans,
en heldur erfiður lestur eftir ljóðin
á undan. Þarna kemur einmitt
fram galli Tenings. Stokkið er úr
einu í annað og hefur lesandinn
ekkert ráðrúm til að skipta um gír.
Þessu mætti breyta t.d. með kafla-
skiptingu í ritinu eða annarri upp-
rööun. En nóg um það.
Næsti áfangi á ferð lesandans er
mjög svo grafískt ljóð Mary Guð-
jónsson um snjó. Orðin svífa niður
Perúanska Ijóðskáldið César
Vallejo.
síðuna rétt eins og snjókom í logni
og skapa angurværa vetrar-
stemmningu. Þetta er áhrifamikil
aðferð til aö vekja hugarástand og
vandmeðfarin. Mary veit hins veg-
ar upp á hár hvað hún 'er að gera.
Skemmtilegt innskot.
Magnús Gezzon á næsta flöt.
Þetta er prósaljóð upp á eina síðu
og fjallar það um tremmann hans
Jakobs. Magnús veður úr einu í
annaö, úr kirkjugaröi í brúðkaup
sem endar með skelfmgu. Þetta er
lifandi texti og skemmtilegur þótt
ekki sé verið að lýsa fogru mannlífi.
Menningarlíf í Mið-Ameríku
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir á
næsta leik. Hún hefur þýtt viðtal
sem kúbanski blaðamaöurinn
Bemardo Marqués átti við Tomás
Borge, en hann er innanríkisráð-
herra í stjórn Sandinista í Nic-
aragua. í viötalinu er rætt um
menningarmál Mið-Ameríku út frá
þeirri forsendu að bylting sé menn-
ingarviðburður. Þetta viðtal, þó
stutt sé, spannar flestar listgreinar
sem blómstra í álfunni og er fróð-
legt aflestrar.
Enn heldur Teningur sig við
Mið-Ameríku. Birt er þýðing Guð-
bergs Bergssonar á ljóði eftir nig-
aragúíska erkiklerldnn Ernesto
Cardenal. Cardenal er einn af boð-
berum frelsunarguðfræðinnar og
menningarmálaráðherra í sandin-
istastjórninni í Nicaragua. Að auki
er Cardenal í hópi magnaðri ljóð-
skálda Mið-Ameríku. í Teningi er
birf eitt frægasta kvæði skáldsins,
Beðið fyrir Marilyn Monroe.
Hin dapurlega ævi stjörnunnar
er yrkisefni skáldsins og er þetta
svo sterkur skáldskapur að það
borgar sig að kaupa Tening, þótt
ekki væri nema til að koma hönd-
um yfir þetta ljóö.
Úr örlögum Normu Jean í viötal
viö myndlistarmann. Helgi Þorgils
Friðjónsson ræðir norræna mynd-
list við Norbert Weber sem rekur
gallerí í Norður-Þýskalandi. Weber
þessi virðist mikill áhugamaður
um norræna myndlist og lætur
móðan mása. Viðtaliö er hins vegar
ekki á nokkurn hátt aðgengilegt
þeim sem ekkert vita um viðfangs-
efnið þannig að hinn almenni les-
andi er engu nær eftir lesturinn.
Friðrika Benónýs hefur þýtt
nokkur ljóða Sylviu Plath og eru
þau birt í Teningi. Sylvia dregur
upp sterkar myndir í ljóðum sínum
og er óspör á kenningarnar. Þetta
er magnaöur skáldskapur og heföi
verið vel þegiö að fá smá greinar-
korn um skáldkonuna.
Myndlist í Mið-Evrópu
Hallgrímur Helgason á viðtöl við
tvo listamenn, annan svissneskan
og hinn austurrískan. Þessi viðtöl
eru létt aflestrar, en meir hefði
mátt byggja á myndum því um-
fjöllunarefnið er jú myndlist þess-
ara manna.
Ástráöur Eysteinsson skrifar
grein um merka skáldkonu, Louise
Erdrich. Greinin er ýtarleg og
áhugavekjandi. Sá sem les slíka
grein fer strax að leita að bókum
eftir Erdrich og því ekki verið að
teygja lopáhn.
Og bókmenntirnar taka það sem
eftir er ritsins. Peter Handke fær
. umfjöllun nafna síns Gunnarsson-
ar og Eyjólfur Kjalar Emilsson birt-
ir kafla úr þýðingu sinni á Ríki
Platóns. Ekki beint nýtt efni né eru
þessir höfundar með öllu óþekktir
hér á landi.
í lokin er aö finna eins konar
prósa og nægir þar að nefna ljóða-
leik Sjóna Sands og nútíma þjóð-
sögu eftir Björgúlf Ólafsson. Þá'
kemur myndræn lýsing á timbur-
mönnum eftir Óskar Árna Óskars-
son. Létt efni og skemmtUegt.
Gott bókmenntaefni
Eins og sést af framansögðu er
þó nokkuð um áhugavert bók-
menntaefni í Teningi. Og það er
raunar sterkasta hlið blaösins.
Þarna skapast svigrúm tU að kynna
skáld og rithöfunda og birta sýnis-
horn af vinnu þeirra. Að öðru efni
Tenings ólöstuðu þá ber þetta af.
Smáljóð hinna og þessara skálda
skilja aö kafla í tímaritinu og veita
hvOd í lestri.
Ernesto Cardenal biður fyrir örlögum Marilyn Monroe, en hún er dæmi
um persónu sem drukknar í eigin ímynd.