Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Qupperneq 36
48
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Raoul
Wallenberg
- Svíinn sem bjargaöi þúsundum
gyöinga í síðari heimstyrjöldinni
- heföi oröiö 76 ára á þessu ári.
Af því tilefni ákvað fjölskylda
hans aö stofna styrktarsjóö með
rúmlega tveimur milljónum
króna svo aö megi skrásetja það
starf sem hann vann á sínum
tíma viö aö bjarga gyðingum frá
gasklefum nasista. Fjölskyldan
stjórnar nokkrum af aðaliðnfyr-
irtækjum Svíþjóðar, ogað hennar
sögn munu peningarnir renna til
háskólans í Uppsölum og óþekkts
háskóla í Bandaríkjunum.
Diana
Ross
mun fá um 70 milljónir fyrir ekki
neitt. Mikiö æviminningaæöi
gengur nú yfir, og hafa bæöi El-
ísabet Taylor og Michael Jackson
slegist í þann hóp. Nú hefur
Diana Ross einnig lofaö, og
reyndar skrifaö undir sámning
þess efnis, að rita sínar æviminn-
ingar. Hún lofar að bókin veröi
góð en án allra persónulegra
smáatriða. Og þaö fmnst mörgum
vera heldur súrt.
Dudley
Moore
minntist eitt sinn á þaö viö konu
sína aö hann saknaði píanós
nokkurs sem hann haföi oft spil-
aö á sem drengur. Kvinnan ákvaö
að gera eitthvaö í máhnu og hóf
dauðaleit aö gripnum. Henni
tókst að hafa uppi á píanóinu og
koma því yfir Atlantshafið, frá
Englandi til Bandaríkjanna. Mun
nú píanóið skipa mikinn virðing-
arsess á heimili þeirra hjóna.
DV
Horfði ekki á sjón-
varp í heilt ár
- og vann veðmál
Jenny Machalleck var sjónvarpssjúklingur, en tókst aö halda sig frá því í
heilt ár og vann þar með veðmál við foreldra sína.
Hinn fyrrum sjónvarpssjúklingur,
Jenny Machalleck, sem er 12 ára,
sýndi og sannaði að það er töggur í
henni þegar hún vann rúmlega 20.000
króna veömál viö foreldra sína með
því að hórfa ekki á sjónvarp í heilt ár.
„Ég var algjör sjónvarpssjúkling-
ur. Ég var vön því aö eyða sex tímum
á dag fyrir framan kassann - það eru
42 tímar á viku. Á venjulegum degi
kom ég heim úr skólanum um fjögur-
leytið, kveikti á imbanum og sat fyr-
ir framan hann þangað til ég fór í
rúmið. Ég gerði heimaverkefnin og
borðaði þegar auglýsingarnar voru,“
sagði Jenny.
En einn daginn urðu foreldrar
hennar svo þreyttir á þessum vana
dótturinnar að þau veðjuðu við hana
rúmlega 20.000 krónum að hún gæti
ekki verið án sjónvarps í heilt ár.
Hún tók veðmáhnu og fór í bindindið
frá og með 2. mars 1987.
„Fyrstu tvær vikurnar voru erfið-
astar,“ sagöi Jenny. „Strax eftir
skóla fyrsta daginn ætlaði ég ósjálf-
rátt að kveikja á sjónvarpinu, en
mamma var fyrir aftan mig og minnti
mig á veðmálið. Rétt sem snöggvast
fékk ég hræðhega gæsahúð. Eg var
að fara yfir um. AUt líf mitt hafði
snúist um sjónvarpið, hvað átti ég
nú að gera?“
Grét inni í herbergi
„í fyrsta skipti gerði ég mér grein
fyrir hversu háð ég var orðin sjón-
varpinu. Til að bæta gráu ofan í svart
þá átti að sýna uppáhaldsmyndina
mína þetta kvöld, Karate Kid. Frá
þeirri mínútu sem byijað var að sýna
myndina og þangað th henni lauk,
sat ég inni í herberginu mínu og
hugsaði um hana. Ég reyndi að gera
heimaverkefnin, en ég gat engan veg-
inn einbeitt mér. Mér leið svo hla að
ég byrjaði að gráta.
Annað kvöldið var htlu skárra. Ég
kom heim úr skólanum í slæmu
skapi og þegar mamma reyndi að
hressa mig við þá varð ég bara enn
verri. Hvers gat ég hlakkað th án
sjónvarpsins? Lífið var eintóm leið-
indi. En smám saman aðlagaðist ég
aðstæðunum. Og þegar ég var orðin
vön að horfa ekki á það, komst ég
að því að í raun saknaði ég þess ekki
svo mikið. Ég fór að eyða meiri tíma
með gæludýrunum mínum og hund-
urinn minn varð hæstánægður því
ég fór meira út að ganga með hann,“
sagði Jenny.
Gleymdi að kveikja
á sjónvarpinu
Hún fór einnig að eyða meiri tíma
í námið og hækkaði ahar einkunn-
irnar. Hún fór að lesa bækur af bóka-
safninu, byijaði að skrifast á við
pennavin í Frakklandi, lærði að
sauma og prjóna og byijaði jafnvel
að læra að fljúga flugvél föður síns.
Á endanum, þann 2. mars 1988,
borgaði veðmáhð sig. Fyrsta kvöldið
sem Jenny mátti horfa á sjónvarpiö,
þá gleymdi hún að kveikja á því. Nú
horfir hún aðeins á sjónvarpið ef það
er verið að sýna eitthvað sem hún
vill ahs ekki missa af.
Jenny viðurkennir að þaö hafi ver-
ið erfiðara fyrir sig að fara í sjón-
varpsbindindi heldur en að hætta að
naga neglurnar. Ef foreldrar hennar
myndu veöja aftur við hana, þá
myndi hún sko aldehis hugsa sig tvi-
svar um áöur en hún tæki veðmál-
inu.
Nær Karolína völdum í Mónakó?
Sú saga gengur nú fjöhunum
hærra að Karólína Mónakóprins-
essa muni taka við af föður sínum,
Rainier fursta, og stinga þar með
bróður sinum ref fyrir rass: Er sagt
að fólk yrði mjög ánægt ef svo yrði,
því með Karólínu kæmi aftur sá
glæsheiki sem einkenndí móður
hennar.
Hin 31 árs prinsessa þykir þegar
hafa sigrað einn keppinaut, Iru
Von Furstenberg, lagskonu föður
Tallð er mjög Ifklegt að Karólina
taki viö af föður sínum.
síns. Og nú mun hún vera ákveöin
í að sigra' einnig bróður sinn, sera
þrítugur að aldri hefur ekki sýnt
neina viðleitni í að ganga í hjóna-
band.
Frá því aö móðir hennar dó fyrir
6 árum hefur Karóhna unnið hörð-
um höndum við að endurheimta
mannorð sitt og losna við gömlu
villtu ímyndina. Ekki hefur hún
farið hiö minnsta út af sporinu hin
síðari ár og hún hefur alveg tekið
móður sina sér th fyrirmyndar.
Karólína hefur því áunnið sér virð-
ingu meðal þotuhðsins í Mónakó.
Hefur persónutöfrana
Alhr virðast sammála um að Karó-
lína hafi þá persónutöfra sem th
þarf í embættinu og að hún hafi
hingaö th staðið sig mjög vel. Bróð-
ir hennar sé aftur á móti alveg grút-
/ leiðinlegur og hafi hann ekki komið
fram opinberlega nærri því jafnoft
og systir hans.
íbúar Mónakó bíða nú bara eftir
að Rainier gefi út tilkynningu um
að hann segi af sér og aö dóttir
hans, Karólína, taki við. Hingað th
hefur sonur ahtaf gengið fyrir sem
eftirmaður, en Rainier getur lög-
legá látið ríkið ganga til dóttur. Og
eftir því sem sagt er, er hann nú
handviss að Karólína sé rétta
manneskjan th að taka við af hon-
um.
Rainier fursti veit hversu vinsæl
og dáð Karólína er í Mónakó og
hversu óvinsæh bróðir hennar er.
Eini aðili fjölskyldunnar sem ekki
keraur til greina er Stephanie, sem
býr í Bandaríkjunum og þykir
fremur villt.
Albert metnaðarlaus
Sumir segja að Rainier heföi þegar
verið búinn að segja af sér ef Karó-
lína væii karlmaður. En hvað er
að aumingja Albert? Hann er sagð-
ur vera metnaðarlaus og áii stolts.
Hann hefur aldrei verið í föstu
sambandi og þykir fremur auðveld
bráð. Albert hefur margoft verið
ljósmyndaður með amerískum
Ijóskum, en aldrei hefur neitt orðið
úr neinu. Ein þeirra sagði jafiivel
að hann væri veimhtíta.
En fortíð Karólínu getur reynst
henni Þrándur í Götu. Hjónaband
hennar og glaumgosans Phhlippe
Junot er enn ght, því kaþólska
kirkjan hefur ekki enn veitt þeim
skihiað. Junot bætti svo gráu ofan
á svart meö því að birta endur-
minningar sínar í tímariti. „Hún
varð að draga hvern þann mann
Albert þykir leiðinlegur og laus í
rasinni.
sem hún hitti á tálar,“ sagði sá fyrr-
verandi.
Karólína giftist svo ítalska marg-
millj ónamæringnum Stefano Cas-
iraghi og eiga þau þrjú börn, fjög-
urra og tveggja ára og tíu mánaða.
Eins og .áður segir fetar hún nú í
fótspör. móður shmar og finnst
mörgum sem hún sé hin nýja
Grace. En fyrsti sigur hennar var
aö bola Iru burt, því hún vissi aö
ef faðir hennar myndi giftast aftur
þá þýddi það að hún félli í skugg-
ann.
Sean Penn semur
Hinn skapstóri Sean Penn samdi
nýlega viö blaðaljósmyndara sem
hafði ákært hann fyrir að hafa spark-
að í hurð á bíl sínum með fætinum.
Ljósmyndarinn Paul Adao, sem
vinnur fyrir New York Post, sam-
þykkti að feha niður allar kærur á
hendur leikaranum ef hinn síðar-
nefndi myndi borga fyrir viögerð á
bílnum og fyrir bílaleigubíl sem Paul
gæti notað meðan hinn væri í við-
gerð.
Atburðurinn, sem rifist var um,
átti sér stað þann 3. júlí þegar ljós-
myndarinn kom auga á Sean gang-
andi niður götu á Manhattan ásamt
konu sinni, söngkonunni Madonnu.
Leikarinn hafði áður setið 33 daga
í fangelsi á síðasta ári fyrir að hafa
lamið á aukaleikara þegar verið var
að taka upp Colors. Hann var eitt
sinn einnig sektaöur um 80.000 krón-
ur fyrir að gefa lagahöfundinum
David Wohnski einn utan undir. Se-
an hélt því fram aö David hefði kysst
Madonnu á næturklúbbi í Los Ange-
les. David sagðist aðeins hafa boðið
Madonnu góða nótt.
Sean, sem hefur leikiö í mynduri-
um Bad Boys, Fast Times at Ridge-
mont High og nú síðast í Colors, hef-
ur lent í fleiri illdeilum og þá venju-
lega við ljósmyndara sem hann telur
ráðast inn í einkahf sitt.
Sean Penn samdi nýlega við Ijós-
myndara um bætur.